Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Guðmundur Ingi Þóroddsson og Kristbjörg Jónasdóttir
    Guðmundur Ingi Þóroddsson sagði frá uppvextinum í Breiðholti og Árbæ, skólagöngu og fjölbreyttum störfum sem hann vann við. Hann sagði frá því þegar hann fluttist til Spánar, byrjaði í fíkniefnaneyslu, leiddist út í innflutning á dópi og þaðan í fangelsi. Hann sagði frá árunum á Litla-Hrauni og síðar Vernd, Hann sagði frá því þegar hann kom út úr fangelsi, þegar hann flutti aftur til Spánar og byrjaði aftur að flytja dóp milli landa. Það endaði með fangelsisvist og í dag er Guðmundur enn með öklaband. Hann ræddi aðstöðu fanga og það úrræðaleysi sem þar ríkir, starf sitt í dag í veitingagerianum og ýmislegt fleira.
    Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari sagði frá uppvextinum á Álftanesi, árunum fyrir austan á Stöðvarfirði og ýmsu fleiru. Hún sagði frá íþróttaáhuga, fjölskyldunni, hvernig er að vera gift atvinnumanni í fótbolta, lífinu í Cardiff og nú í Katar og nýjasta verkefninu sem er framleiðsla á kremlínu sem búin er til á Grenivík.
    2 hr 15 min
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir og Óttarr Proppe
    Þóra Margrét Þorgeirsdóttir sagði frá lífi sínu og starfi, uppvextinum á Álftanesinu, árunum í Garðaskóla og MR. Hún sagði frá námi á Bifröst, störfum sem hún tók sér fyrir að námi loknu, flutningi fjölskyldunnar til Sviss og þegar hún ákvað að hefja nýja vegferð i átt að ruslminni lífsstíl. Hún hefur bloggað um þetta verkefni fjölskyldunnar, er nú að þýða bók og því hvernig hún brennur fyrir þessu risavaxna verkefni.
    Óttarr Proppe tónlistarmaður og bóksali, sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði og Bandaríkjunum, tónlistinni skólagöngunni og starfi sínu sem bóksali. Hann sagði frá því þegar hann fór óvænt inn í pólitík og tók nokkur ár í það en mun líklega ekki snúa þangað aftur.
    2 hr 15 min
  • Eysteinn Orri Gunnarsson prestur og Hildur Loftsdóttir rithöfundur
    Eysteinn Orri Gunnarsson prestur á geðsviði Landspítalans sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, skólagöngu sem tók aðeins lengri tíma en gerist og gengur en þá var ekki komið í ljós að hann var með ADHD. Hann sagði frá náminu í guðfræði, fíkninni , starfinu sínu í dag og fjölskyldunni.
    Hildur Loftsdóttir rithöfundur sagði frá lífi sínu og starfi, búsetu í Bandaríkjunum, fjölskyldu og nýjasta starfinu sem rithöfundur.
    2 hr 15 min
  • Hjörtur Magni Jóhannsson Fríkirkjuprestur og Unnur Valdís hönnuður
    Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík sagði frá uppvextinum á suðurnesjum, skólagöngu, námi í biblíuskóla, ferðalögum með guðfræðinámi ss. eins og framhaldsnámi í Jerúsalem, í biblíu og trúarbragðafræðum, sem og í hebresku, í rúm tvö ár. Hann sagði örstutt frá tilurð Fríkirkjunnar, safnaðarstarfinu, fjölskyldunni, áhugmálunum og ýmsu fleiru.
    Unnur Valdís Kristjánsdóttir hönnuður og fyrrverandi fyrisæta sagði frá uppvexti í Reykjavík, árunum sem hún starfaði sem fyrirsæta í Bandaríkjunum, Japan og víðar. Rótleysinu sem tók við að því tímabili loknu, námi í hönnu sem leiddu til þess að flothettan varð til en í dag starfar Unnur sem leiðbeinandi í slökun í vatni með flothettu og í því samfélagi sem það umlykur auk þess að reka hönnunarskrifstofu með eiginmanni sínum.
    2 hr 15 min
  • Pálmar Ragnarsson og Lilja Bjarnadóttir
    Pálmar Ragnarsson hvatningaræðumaður sagði frá lífi sínu og starfi, námi sem hefur stundum gengið illa og stundum vel, körfuboltaástríðunni og meiðslum sem hann lenti í sem enduðu ferlinn. Hann sagði frá þjálfarastarfinu, fyrirlestrunum um jákvæð samskipti, ferðalögunum sem hann hefur farið í einn síns liðs og ýmsu fleiru.
    Lilja Bjarnadóttir lögfræingur og sáttamiðlari sagði frá lífi sínu og starfi, námi í lögfræði en hún er mikill námsmaður og hefur alltaf verið mikill námshestur. Hún starfar í dag sem sáttamiðlari og rekur Sáttaleiðina.
    2 hr 15 min
  • Birna Bragadóttir Þórey Vilhjálmsdótir og Haukur Snorrason
    Marglytturnar og Landvættirnar Birna Bragadóttir og Þórey Vilhjálmsdóttir sögðu frá útivistaráhuga sem hefur verið að stigmagnast undanfarin ár hjá þeim, áskorunum sem þær elska að setja sér, og síðan röktu þær ferðasöguna þegar þær luku við að synda yfir Ermasund í september sl. með Marglyttunum.
    Haukur Snorrason ljósmyndari og ferðaþjónustubóndi sagði frá uppvextinum í Garðabæ, ljósmyndaáhuganum og því starfi og hvernig tilviljun réði því að hann rekur ferðaþjónustuna í Hrífunesi ásamt konu sinni Höddu Gísladóttur. Hann ræddi ferðamennsku, og fallega staði á landinu en Haukur og Hadda hafa nýverið gefið út bók sem heitir Our Land og þar er að finna myndir eftir Hauk og mataruppskriftir eftir Höddu.
    2 hr 15 min
  • Karl Ágúst Úlfsson og Björg Guðrún Gísladóttir
    Karl Ágúst sagði frá uppvextinum í r
    reykjavík, sveitardvöl í borginni en afi hans og amma ráku bú í bænum. Hann ræddi feimnina sem ungur drengur, tækifærinu sem hann fékk þegar hann steig fyrst á svið 10 ára gamall og þaðan var ekki aftur snúið. Hann ræddi leiklistarnámið, starfið en hann hefur fengist við fjölmargt í gegnum tíðina tíðin, leiklist, leikstjórn og ritstörf að ýmsu tagi. Hann sagði frá fjölskyldunni áhugamálunum og ýmsu öðru.
    Björg Guðrún Gísladóttir ráðgjafi hjá Stígamótum, uppvextinum í Höfðaborginni, erfiðar heimilisaðstæður og uppgjörinu við forstíðina. Hún ræddi bækurnar sem hún hefur skrifað sem eru uppvaxtarsögur hennar, uppgjör við fjölskyldu og ýmsu því tengdu. Hún sagði frá starfi sínu, fjölskyldu og ýmsu öðru.
    2 hr 15 min
  • Sigrún Ósk Kristjánsdóttir og Laufey Steindórsdóttir
    Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona sagði frá lífi sínu og starfi, fjölskyldunni áhugamálunum og þáttaröðinni leitin að upprunanum sem hún er búin að vinna að síðustu misseri.
    Laufey Steindórsdóttir hjúkrunarfræðingur sagði frá uppvexti, námi í hjúkrunun, kvíða sem hún barðist við i mörg ár og því hvernig hún breytti algjörlega um lífsstíl því hún var komin að því að örmagnast. Í dag starfar hún sem jóga og hugleiðslukennari sem hún vill meina að sé allra meina bót.
    2 hr 15 min
  • Nanna Kristín Magnúsdóttir, Björn Leó Brynjarsson og Anna Þóra Björnsd
    Nanna Kristín sagði frá uppvextinum í vesturbæ Reykjavíkur, menntaskólaárunum, þegar hún ákvað að fara í inntökupróf í leiklistarskólann og árunum þar. Hann sagði frá verkefnunum sem hún hefur fengist við, skiptinemaári í Bandaríkjunum, námi í handritagerð í Kanada, fjölskyldunni, ákvörðuninni að hætta að nota áfengi og auðvitað vinnunni við Pabbahelgar sem verið er að sýna á ruv.
    Björn Leó Brynjarsson leikskáld sagði frá uppvextinum, tilviljunni sem réði því að hann fór út í listanám en svo kom móðir hans óvænt inn í spjallið en hún heitir Anna Þóra Björnsdóttir og er verslunareigandi og uppistandari. Þau ræddu lífið og tilveruna, ADHD greiningu og það að vera örfhentur og nýjustu verkefni Björns Leó sem eru sýningin Stórskáldið og bíómyndin Þorsti.
    2 hr 15 min
  • Andri Iceland og Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur
    Vilhjámur Andri Einarsson eða Andri Iceland eins og hann er oft kallaður sagði frá lífi sínu og starfi og hvernig hann tókst á við erfiðleika og verki með kælimeðferð. Hann sagði líka frá starfi sínu í dag en hann heldur fjölmörg námskeið fyrir fólk bæði í öndun og kælimeðferð sem hann segir allra meina bót.
    Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur saggði frá því hvernig tilviljun réði því að hún fór í sálfæði, Hún sagði frá fjölskyldunni, áhugamálum og msmunandi störf sem hún hefur fengist við sem sálfræðingur.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners