Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Margrét Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur og Arnar Steinn Þorsteinsson kí
    Margrét Grímsdóttir hjúkrunarfræðingur sagði frá starfi sínu og lífi. Hún sagði frá uppvexti í Árbæ, dvöl í Bandaríkjunum, fjölskyldunni og núverandi starfi hjá heilsustofnunni í Hveragerði. Hún ræddi streitu og kulnun sem alltaf margir glíma við og hópurinn er að yngjast og hún ræddi hvað fólk á að reyna að forðast til að koma sér ekki í þannig ástand að það upplifi streitu og kulnun.
    Arnar Steinn Þorsteinsson kínverskufræðingur og sölustjóri Nonna Travel sagði frá uppvexti í vesturbænum, menntaskólaárunum og ástæðunni fyrir því að hann ákvað að halda til Kína í nám. Hann ræddi Kína frá mörgum hliðum, menningu og ýmislegt fleira. Hann ræddi fjölgun kínverskra ferðamanna á Íslandi, hvað hægt er að gera betur til að taka betur á móti því fólki sem þaðan kemur.
    2 hr 15 min
  • Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona og verkefnisstjóri og Andri Ólafss
    Jóhanna Vigdís eða Hansa eins og hún er jafnan kölluð sagði frá uppvextinum í Garðabæ, píanónámi, menntaskólaárunum í MR, síðar leiklistarskólanum. Hún sagði frá fjölbreyttum leiklistarferli, námi í MBA, söngnum og núverandi starfi hjá samtökum iðnaðarins. Hún sagði líka frá fjölskyldunni, verkefnum í leikhúsinu og ýmsu öðru.
    Andri Ólafsson tónlistarmaður sagði frá uppvextinum í austur - landeyjum, tónlistaráhuga og almennum nördaskap. Hann sagði frá árunum í MH, námi í FÍH og síðar í Amsterdam. Hann sagði frá fjölskyldunni. áhugamálum og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Edda Hermannsdóttir, samskiptastjóri og Fannar Sveinsson, leikstjóri
    Fannar Sveinsson fjölmiðlamaður og leikstjóri sagði frá uppvextinum í Fossvogi, skólagöngu, vinum feimni og ýmsu tengdu barna og unglingsárum. Hann sagði frá kvikmyndaáhuga, áhuga á leiklist og tækifærunum sem komu strax í grunnskóla varðandi kvikmyndagerð. Hann sagði frá verslóárunum, vinnu á mbl. is og hraðfréttum sem urðu til þar. Hann sagði frá fjölskyldunni og vinunum, og ýmsu fleiru áhugaverðu.
    Edda Hermannsdóttir markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka sagði frá uppvextinum á Akureyri, og í Danmörku, menntaskólaárunum í MA, Au Pair starfi á spáni og ýmsu tengdu unglingsárum. Hún sagði frá fjölskyldu og vinum, dýrmætrum systrum, börnunum áhugamálunum og ýmsu öðru.
    2 hr 15 min
  • Edda Hauksdóttir kennari og Valdimar Örn Flygering leikari og sögumaðu
    Edda Hauksdóttir kennari í Hagaskóla sagði frá uppvexti í Háaleitishverfinu, árunum í MH en hún eignaðist son sinn þegar hún var enn í skólanum. Hún sagði frá lífi sínu sem einstæð móðir, kennaranámi og síðar starfi, unglingum sem hún hefur kennt um árabil og starfi sínu í tengslum við tónleikahald. Hún sagði frá fjölskyldu sinni, andlegum veikindum föður sem mótuðu æskuna, barnabörnum og ýmsu fleiru.
    Valdimar Örn Flygering sagði frá uppvexti í Reykjavík, árunum í MH, skiptinemadvöl í Suður Ameríku, tónlistinni leiklistarnámi og ýmsu fleiru. Hann ræddi starf sitt sem leiðsögumaður, ástandi á ferðamannastöðum á landinu en þar telur Valdimar að við megum gera miklu betur hvað innviðauppbyggingu varðar. Hann sagði frá fjölskyldunni, tónlistinni og mörgu öðru.
    2 hr 15 min
  • Halli Reynis tónlistarmaður og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir framkvæmdast
    Halli Reynis sagði frá uppvextinum í Breiðholti, skólagöngu, tónlistaráhuga, fótbolta og handbolta og ýmsu tengdu unglingsárum. Hann sagði frá spilamennsku, síðbúnu háskólanámi, kennslu í Ölduselsskóla. Hann sagði frá sveitinni í Dölunum, áfengisfíkn og mörgu fleiru.
    Guðbjörg Andrea Jónsdóttir sagði frá uppvextinum í Mýrdalnum, síðar Skógaskóla og svo menntaskólaárunum í MH. Hún sagði frá áhuganum á tölfræði og aðferðarfræði, námi í London, fjölskyldu, áhugamálum og starfi sína hjá Félagsvísindastofnunar HÍ.
    3 hr 15 min
  • Kristín Ólafsdóttir og Gunnlaugur Bragi Björnsson
    Kristín Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Pieta samtakanna sagði frá uppvextinum í Garðabæ, menntaskólaárunum á Laugarvatni, dvöl og starfi í Luxemborg og öllu því sem hún hefur starfað við sem er mjög fjölbreytt flóra. Hún sagði frá sonum sínum, áskorunum í lífinu, samsettri fjölskyldu og núverandi starfi hjá Pieta samtökunum.
    Gunnlaugur Bragi Björnsson sagði frá uppvextinum á Höfn í Hornafirði, menntaskólaárunum í MH, viðskiptafræðinámi, starfi í Arion banka og síðar starfinu sem formaður Hinsegin daga. Hann sagði frá áskorunum í einkalífi áhugamálum og ýmsu öðru.
    3 hr 15 min
  • Þórhallur Heimisson og Arndís Hrönn Egilsdóttir
    Þórhallur Heimisson sagði frá uppvextinum fyrst i Reykjavík, Seyðisfirði, Skálholti síðar menntaskólaárunum á Laugarvatni. Síðan hélt hann í háskóla íslands byrjaði í sagnfræði og tók svo próf í guðfræði og hefur starfað sem prestur sl. þrjátíu árin. Hann ræddi áhugamálin, námskeiðin sem hann hefur haldið fyrir hjón og fjölskyldur, ristörfin, farastjórnina fjölsylduna og áhugamálin.
    Arndís Hrönn Egilsdóttir leikkona sagði frá lífi sínu og starfi, námi í Frakklandi, útvarpsmennskunni og leiklistinni en hún hefur undanfarið fengið mörg stór hlutverk bæði í leikhúsi og í bíómyndum en Arndís leikur aðalhlutverkin í myndinni Héraðið eftir Grím Hákonarson. Hún ræddi áhugamálin fjölskylduna og ýmislegt fleira.
    3 hr 15 min
  • Haukur Ingvarsson og Halla Margrét Jóhannesdóttir
    Haukur Ingvarsson verðlaunaljóðskáld er uppalinn í Hafnarfirði þar sem hann hlaut bókmenntauppeldi frá gamalli nágrannakonu sinni. Hauki er afar umhugað um náttúruvernd en í ljóðabók hans Vistarverur, sem hlaut rífandi viðtökur í síðasta jólabókaflóði, dregur hann upp dystópíska mynd af framtíðarsamfélagi þar sem stutt er á milli hláturs og hryllings. Hann á tvo unga syni og segir að hann grípi stundum skelfing þegar hann leyfir sér að velta fyrir sér hvaða framtíð bíði þeirra. Hann er að leggja lokahönd á doktorsverkefni sitt um áhrif bandaríska skáldsagnahöfundarins William Faulkner á Íslandi og segist trúa á ævintýrin.
    Halla Margrét Jóhannesdóttir leikkona fór í íþróttakennaranám eftir að hún útskrifaðist úr Menntaskólanum í Reykjavík. Hún er forfallinn ABBA aðdáandi og tók nýlega lagið á sviði í ABBA safninu í Stokkhólmi fyrir engan nema sjálfa sig og gáttaðan starfsmann safnsins. Hún er miðjubarn, ljóðskáld og gjörningalistamaður og er um þessar mundir að setja saman ritlistarnámskeið fyrir áhugasama byrjendur í skapandi skrifum.
    Umsjón: Júlía Margrét Einarsdóttir
    3 hr 15 min
  • Kormákur Bragason og Elín Ingvarsdóttir
    Kormákur Bragason tónlistarmaður og kennari sagði frá uppvextinum í Kópavogi, hvernig það var að eiga frægan bróður sem var í hljómsveitinni RíóTríó en Ólafur Þórðarson heitinn er hálfbróðir Kormáks. Hann sagði frá dvöl í lýðháskóla í Danmörku, kennarastarfi bæði í Svíþjóð og Noregi, tónlistarmennskunni en hann byrjaði á því að spila á flautu og saxafón en spilar mest á gítar í dag. Kormákur sagði frá hljómsveitinni South river band sem er frændhljómsveit sem á tengsl í Ólafsfjörð en þeir eru nýbúnir að senda frá sér plötu.
    Elín Ingvarsdóttir sagði frá uppvextinum í Brasilíu, Kúbu og Mexíkó en þar hefur hún mestan part ævinnar. Faðir hennar starfaði við hafrannsóknir sem skýrir búsetu fjölskyldunnar,en þau heimsóttu Ísland reglulega og þess vegna talar Elín góða íslensku. Hún starfar í tungumálakennslu þar í landi en hennar aðaláhugasvið er frumbyggja mállýskur indíána sem hafa verið að deyja út síðustu ár en nú er verið að reyna allt til að viðhalda þeim.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners