Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Hildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur og Ágúst Kristján Steinarsson st
    Hildur Helgadóttir hjúkrunarfræðingur sagði frá starfi sínu í hjúkrun sem hefur verið fjölbreytt bæði innanlands og utan. Hún sagði frá því hvers vegna hún ákvað að læra hjúkrun en systir hennar Hrund var þar mikill áhrifavaldur og fyrirmynd. Hún sagði frá áskorunum í starfi og í einkalífi en þegar systir Hildar lést tók hún að sér son hennar í og flutti inn á heimili hans og sá um uppeldi hans ásamt föður. Hún sagði frá ævintýralegri dvöl í Bosníu á vegum íslensku friðargæslunnar en um þá reynslu skrifaði Hildur bók sem heitir í felulitum.
    Ágúst Kristján Steinarsson stjórnunarráðgjafi og jöklaleiðsögumaður sagði frá lífi sínu og starfi og frá því þegar hann veiktist fyrst af maníu aðeins 19 ára gamall. Hann sagði frá reynslu sinni af geðhvörfum og veikindum sem hann glímdi við í ristli . Hann sagði frá bók sem hann hefur skrifað um þessa reynslu sem heitir Riddarar hringavitleysunnar og tónlistinni sem hann byrjaði að sinna um svipað leiti og bókaskrifin byrjuðu,
    2 hr 15 min
  • Halldór Laxness Halldórsson og Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur
    Halldór Laxness Halldórsson eða Dóri DNA sagði frá uppvextinum í Mosfellsdalnum, árunum í grunnskóla, og síðar MH. Hann sagði frá vinunum, fjölskyldunni uppiistandinu og ýmsu fleiru. Hann ræddi leikhúslífið en í haust verður Atómstöðin sýnd í Þjóleikhúsinu í nýrri leikgerð Dóra.
    Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins sagði frá uppvextinum í Reykjavík en hún bjó á ýmsum stöðum vegna aðstæðna í fjölskyldunni en mest þó í vesturbænum. Hún sagði frá unglingsárunum, náminu í sálfræði, starfinu sem sálfræðingur og nú síðast starfinu sem borgarfulltrúi.
    2 hr 15 min
  • Andrés Jónsson almannatengill og ráðgjafi og Margrét Ingadóttir ferðar
    Andrés Jónsson sagði frá uppvextinum í Reykjavík, útvarpsmennskunni en hann byrjaði snemma að starfa í útvarpi sem hann hafði og hefur mikið dálæti á. Hann sagði frá því þegar hann fór sem skiptinemi til Indónesíu, þegar hann ákvað að ráða sig í fiskvinnslu til að safna sér pening fyrir frekari dvöl þar ytra. Hvernig hann hefur leynt og ljóst stefnt þangað sem hann er í dag, það er að starfa við að tengja saman fólk og viðfangsefni en hann hefur starfað sem almannatengill og ráðgjafi undanfarin ár.
    Margrét Ingadóttir ferðaráðgjafi og einn stofnenda munaðarleysingaheimilis í Nepal sagði frá uppvextinum á Hverfisgötunni, árunum í ML, kennaranáminu og starfi kennarans sem hún elskar en getur ekki framfleytt sér á. Hún sagði frá ferðaþránni, dvölinni í Saudi ARabíu og Færeyjum og hvernig það kom til að hún tók þátt í að reka heimili fyrir munaðarlaus börn í Nepal.
    2 hr 15 min
  • Þuríður Sigurðardóttir söng - og myndlistarkona og Gísli Halldór Halld
    Þuríður Sigurðardóttir ræddi uppvöxtinn í Laugarnesinu, hestamennskuna, söngferlinn, myndlistina fjölskylduna og ýmislegt fleira. Hún sagði frá því hversu mikilvægt það var fyrir hana að fara í myndlistarnám en hún hefur starfað sem slík í tæp tuttugu ár. Hún ræddi endurnýjun á hjúskaparheiti og ýmislegt fleira.
    Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri í ÁRborg og fyrrverandi bæjarstjóri á Íslafirði sagði frá uppvextinum fyrir vestan, námi og störfum. Hann sagði frá snjóflóðavetrnum og hversu mikil áhrif þeir atburðir höfðu á alla íbúa og landsmenn alla. Hann sagði frá páskahátíðinni fyrir vestan sem hefur vaxið og dafnað, áhugamálunum og núverandi starfi sem bæjarstjóri í Árborg.
    2 hr 15 min
  • Jóhannes Þór Skúlason framvæmdastjóri og Sara Dögg bæjarfulltrúi í Gar
    Jóhannes Þór SKúlason framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar sagði frá uppvextinum í vesturbænum og árunum í Mela - og Hagaskóla, síðar MR og Háskóla Íslands, Hann sagði frá námi í sagnfræð, kennslu sem hann fékkst víð í rúm 10 ár í Seljaskóla og því þegar honum bauðst að koma inn í pólitíkina sem aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs. Hann sagði frá því tímabili sem var bæði skemmtilegt en líka erfitt sérstaklega þegar Panamaskjölin komu fram en Jóhannes segist búa að þessari erfiðu reynslu sem hefur mótað hann á ýmsan hátt. Hann sagði frá fjölskyldunni, lestri en vísindaskáldsögur eru í sérstöku uppáhaldi og síðan er það margumtalaður áhugi hans á söngvakeppni evrópskra sjónvarsstöðva sem hann sagði frá.
    Sara Dögg sagði frá uppvextinum á Reykhólum, árunum í Reykjaskóla í Hrútafirði, árunum í Fjölbraut i Ármúla, síðar og síðar kennó. Hún sagði frá því þegar hún ákvað að stíga fram sem samkynhneigð kona og segist sjálf hafa verið heppin í öllu því ferli. Hún sagði frá starfinu sínu sem formaður samtakanna ´78, síðar kennslunni í Hjallastefnunni en hún var þar skólastjóri í nokkur ár. Hún sagði frá fjölskyldunni en hún og eiginkona hennar Bylgja eru stuðningsforeldrar einhverfrar sjúlku sem hún segir að sé eitt það allra besta sem hún hefur kynnst.
    Hún ræddi ástæðina fyrir því að hún ákvað að fara út í pólitíkina en hún er fulltrúi Viðreysnar fyrir Garðarbæjarlistann í Garðabæ.
    2 hr 15 min
  • Jóhann Helgi Hlöðversson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir
    Jóhann Helgi Hlöðversson framkvæmdastjóri og ferðaþjónustubóndi sagði sögur frá uppvextinum í Hafnarfirði, sumrunum í sveitinni í Dölunum, alls konar ævintýrum sem hann lenti í sem ungur maður og erfiðum lífsreynslum þegar hann missti besta vin sinn í mótorhjólaslysi og síðar ungan son sinn. Hann ræddi sorgina, hvaða leiðir hann valdi til að vinna sig úr þeim, hann sagði frá náminu í skrúðgarðyrkju, ástæðunni fyrir því að hann keypti gamlan bóndarbæ sem hann rekur í dag sem myndarbú þar sem rekin er ferðaþjónustan Vatnsholt í Flóa. Hann sagði frá fjölskyldunni, áhugamálunum, þáttökunni í Island got talent, og ferðalagi sem hann fór í á síðasta ári til Norður Kóreu.
    Steinunn Valdís Óskarsdóttir núverandi skrifstofustjóri skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu sagi frá uppvextinum í Laugarnesinu, árunum í Laugarnes og síðar Laugalækjarskóla, árunum í MS, Háskóla Íslands, þar sem hún byrjaði að stússast í stúdentapólitíkinni. Hún sagði frá árunum sem borgarfulltrúi og síðar sem borgarstjóri í Reykjavík. Hún sagði líka frá árunum sem þingmaður og hvers vegna hún ákvað að segja af sér, Hún sagði frá nyja starfinu, fjölskyldunni og áhugamálunum
    2 hr 15 min
  • Bjarni Ómar Haraldsson tónlistarmaður og Hafdís Hanna Ægisdóttir vísin
    Bjarni Ómar Haraldsson tónlistarmaður og sérfræpðngur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga sagði sögur frá Raufarhöfn og Hólmavík, árunum á sjónum, Laugum í Reykjadal og víðar. Hann sagði frá fjölskyldunni, öllum störfunum og tónlistinni sem hefur verið leiðarvísirinn í gegnum lífið. Hann sagði frá baráttunni við krabbamein, skilnaði við lífsförunautinn sem varði í tvö ár og endaði með því að þau tóku saman á ný og eru gift í dag, nýju plötunni og tónleikaferð um landið sem er framundan.
    Hafdís Hanna Ægisdóttir forstöðumaður landgræðsluskóla háskóla Sameinuðu þjóðanna sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði og á Skagaströnd, árunum í MH, áhuganum á líffræði, tónlistinni en hún hefur bæði lært á hjóðfæri og söng. Hún sagði frá ferð til Suðurskautslandsins sem hún fór í á síðasta ári ásamt 80 öðrum vísindakonum frá hinum ýmsu löndum en þar voru loftslagsmálin í brennidepli og breyting á náttúrunni að taka á sig mynd þar sem annars staðar.
    2 hr 15 min
  • Ásta Dís hjá Pepp Ísland og Ólafur Stephensen hjá samtökum atvinnurek
    Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir eða Ásta Dís eins og hún er jafnan kölluð sagði frá uppvextinum fyrir vestan og síðar í Reykjavík. Hún er alin upp af einstæðri móður sem var að hreyfihömluð og lífsbaráttan var erfið á köflum. Hún sagði frá stríðni og ákveðnu einelti sem hún hefur lent í bæði snemma og seint á lífsleiðinni. Hún sagði frá rótleysi, baráttu við að halda sér gangandi, síðar þegar hún varð sjálf einstæð móðir og árunum þar sem hún var algerlega búin að gefast upp. Hvernig hún fann leiðina út úr því, starfinu í dag hjá EAPN á Íslandi, hljómsveitinni, leikhópnum sem hún starfar með og ýmsu fleiru.
    Ólafur Stephenssen sagði frá uppvextinum en hann er fæddur á Sauðárkróki en hefur búið í Reykjavík mest alla sína tíð. Hann sagði frá árunum í blaðamennsku, hjá Morgunblaðinu, 24 Stundum, Fréttablaðinu og nú síðast starfi sínu hjá Félagi atvinnurekanda. Hann sagði frá áhugamálunum, fjölskyldunni og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Þráinn Þorvaldsson framkvæmdastjóri og Sigga Dögg kynfræðingur
    Þráinn Þorvaldsson sagði frá því þegar hann greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli árið 2005 og hvernig hann ákvað að fara óhefðbundna leið í baráttunni við meinið. Á þeim tíma fóru nánast allir karlar sem fengu slíkt krabbamein í aðgerð en Þráinn ákvað í samráði við eiginkonu sína Elínu að sleppa aðgerð og vera frekar í stöðugu og virku eftirliti. Síðan eru liðin mörg ár og enn er Þráinn hress og kátur og deilir nú reynslusögu sinni víða enda telur hann mikilvægt að opna umræðuna og telur það mikilvægt að fólk leiti sér upplýsinga og miðli hvert öðru. Hann talaði um uppvöxtinn á Akranesi, árunum í MA og síðar viðskiptafræði, störfum sem hann hefur fengist við, fjölskyldunni og hversu miklu máli það skiptir að vera jákvæður.
    Sigga Dögg kynfræðingur ræddi uppvöxtinn, námið í sálfræði og síðar kynfræði sem hún lærði í Ástralíu. Hún sagði frá starfi sínu en hún fer mikið í skóla og víðar með kynfræðslu. Hún vill opna umræðuna, segir enga umræðu tabú enda hefur hún sent frá sér fjöldann allan af pistlum, skrifað bækur og verið með útvarps og hlaðvarpsþætti um þessi mál.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners