Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Bjarnheiður Hallsdóttir og Sölvi Tryggvason
    Bjarnheiður Hallsdóttir formaður samtaka ferðaþjónustunnar og einn eigandi Katla Travel sagði frá uppvextinum á Akranesi, þegar hún flutti til Þýskalands með þáverandi maka og árunum í háskólanum í Munchen. Hún sagði frá áhuganum á ferðamálum sem hún hefur lengi haft og hvernig þessi mál hafa þróast frá þeim tíma sem hún var í námi og til dagsins í dag. Hún sagði frá fjölskyldu og áhugamálum sem eru meðal annars fjallgöngur og sjósund.
    Sölvi Tryggvason fjölmiðlamaður sagði frá uppvextinum í 101 Reykjavík og síðar í Laugarneshverfinu. Hann sagði frá fjölmiðlaferlinum, og kvíðanum sem hann var með en uppgörtvaði ekki fyrr en hann var kominn í þrot vinnulega séð vegna álags og streytu . Sölvi sagði frá ferðalagi sínu síðustu 10 árin sem hafa verið með ýmsum hætti en allt í þeim tilgangi að uppfylla betra líf og nú er út komin bók með sögu Sölva af þessu ferðalagi sem nefnist Á eigin skinni.
    2 hr 15 min
  • Pétur Oddbergur Heimisson söngvari og Erna Kristín Blöndal lögfræðingu
    Pétur Oddbergur sagði frá uppvextinum í vesturbæ reykjavíkur, árunum í Vesturbæjarskóla, Hagaskóla og síðar Kvenó. Hann ákvað að fara í söngnám og eftir að hafa klárað námið hér heima fór hann til Hollands þar sem hann kláraði mastersnám og er nú nýfluttur heim til Íslands aftur. Hann hefur verið í fjarnámi í Menningarstjornun á Bifröst og klárar það nám í febrúar. Hann sagði frá tónlistinni, hollendingum, sönghópnum Olgu Vocal og prónaáhuganum og ýmsu fleiru.
    Erna Kristín Blöndal er lögfræðingur og starfar nú sem verkefnastjóri í málefnum barna hjá velferðarráðuneytinu. Hún ræddi bernskuárin í Garðabæ, fótboltanum í Stjörnunni, árunum í MR, fjölskyldunni og starfinu. Hún brennur fyrir málefnum barna og fjölskyldna þeirra og er stjórnarformaður UNICEF á Íslandi.
    2 hr 15 min
  • Guðrún Karls Helgudóttir prestur og Jónas Sig tónlistarmaður og forrit
    Guðrún sagði frá uppvextinum i Kópavogi, skólagöngu í Snælandsskóla, menntaskólaárunum sem hún ákvað að skipta í tvennt, árinu sem Au Pair í Chicago, guðfræðinni og starfinu sínu sem prestur. Hún sagði frá því þegar hún bjó og starfaði í Svíþjóð, blogginu sem hún skrifaði um árabil, predikunum og hvernig hún finnur leiðir til að skrifa alltaf eitthvað nýtt og uppbyggjandi. Hún sagði frá útihlaupum sem hún byrjaði að stunda fyrir nokkrum árum. kvíðanum sem þeim fylgir og hvernig hún reynir að finna leiðir út úr honum og hún ræddi líka fjölskylduna starfið í kirkjunni og ýmislegt fleira.
    Jónas Sigurðsson tónlistarmaður og forritari sagði frá uppvextinum í Þorlákshöfn, árunum á Eiðum, menntaskólaárunum. og tónlistariðkuninni. Hann sagði frá sveitaböllum, Sólststrandagræjunum sem var hans þekktasta hljómsveit þar til hann steig fram undir eigin nafni sem tónlistarmaður. Hann ræddi líka um andleg málefni fjölskyldu, dvöl í Danmörku og ýmislegt fleira.
    2 hr 15 min
  • Ásdís Halla og Einar Mantyla
    Ásdís Halla Bragadóttir sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Ólafsvík, Akranesi Svíþjóð og víðar. Hún ræddi fjölskylduna, námsferilinn, íþróttaiðkun og ýmislegt fleira úr æsku. Hún sagði frá blaðamannaferli á morgunblaði eftir nám í stjórnmálafræði, starfi sem aðstoðarmaður ráðherra og framkvæmdastjóri þingflokks sjálfstæðismanna. Hún sagði frá bæjarstjórastarfinu í Garðabæ, framkvæmdastjórastöðunni hjá Byko og nú síðast hjá Sinnum, Klínikinni og Hótel Íslandi. Hún ræddi bækurnar sem hún hefur skrifað um sig og fjölskyldu sína, hversu mikil áhrif skrifin höfðu á hana og fjölskylduna og hvaða áhrif þessi vinna öll hefur haft í jákvæða átt.
    Einar Mantyla sagði frá uppvextinum í Helsinki í Finnlandi, árunum í Melaskóla þegar hann lagði hart að sér til að læra íslensku til að falla vel inn í vinahópinn. Hann sagði frá sveitninni í Borgarfirði, hvernig hann endaði yfirleitt á þeim stöðum sem hann alls ekki ætlaði, nám í líffræði, búseta í Svíþjóð og Þýskalandi, störfum tengdum náminu og nú síðast Auðnu Tæknitorgi. Hann ræddi líka um fjölskylduna og tónlistana sem honum finnst ómissandi þáttur í tilverunni.
    2 hr 15 min
  • Steindi jr. og Birgitta Haukdal
    Steinþór Hróar Steinþórsson eða Steindi eins og hann er jafnan kallaður sagði frá uppvextinum í Mosó, skólagöngu, fótbolta vinum og fjölskyldu. Hann sagði frá tilraunum sínum til að komast inn í leiklistarskólann sem gekk ekki en í fyrsta skiptið var hann mjög nálægt því. Hann sagði frá uppistandi, útvarps og sjónvarpsmennsku, og hversu þakklátur hann væri fyrir það að fá að gera það sem honum finnst skemmtilegast þ.e. að leika og umgangast skemmtilegt fólk.
    Birgitta Haukdal sagði frá uppvextinum á Húsavík, þegar hún elti fyrir kærasta á heimavistarskólann á Laugum.þegar hún fyrir tilviljun komst að í sýningu hjá Gunnari Þórðar á Broadway sýning sem bar heitið stjörnur morgundagsins. Síðar kom hún fram í Abba sýningum. söngleiknum Grease þar sem hún kynntisti eiginmanni sínum í dag honum Benna. Hún sagði frá dvölinni á spáni, ristörfunum en Birgitta hefur sent frá sér tíu barnabækur.
    2 hr 15 min
  • Guðrún Nordal og Sveppi
    Guðrún Nordal forstöðumaður Árnastofnunar sagði frá uppvextinum í Laugarneshverfinu, árunum í MS, síðar Háskóla Íslands og þegar hún flutti til Oxford á Englandi í frekara nám. Hún sagði frá dvölinni ytra, þegar hún ákvað meðvitað að flytja aftur heim til Íslands og starfinu sínu sem forstöðumaður Árnastofnunar. Hún sagði frá fjölskyldunni, áhugamálunum og nýju bókinni sem heitir Skiptidagar og er persónulegt ferðalag hennar um sögu Íslands og bókmenntir allt frá landnámi til okkar daga.
    Sverrir Þór Sverrisson eða Sveppi eins og hann er alltaf kallaður sagði frá uppvextinum í Breiðholtinu, íþróttaiðkuninni en hann stundaði bæði hand- og fótbolta. Hann vildi verða íþróttakennari eins og pabbi hans en leiðin hans lá í leiklistina og í dag starfar Sveppi sem sjálfstæður dagskrárgerðamaður leikari og ýmislegt fleira. Hann sagði einnig frá fjölskyldunni, áhugamálunum og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Ragnar læknirinn í eldhúsinu og æskuvinkonurnar Álfheiður og Þórunn
    RAgnar Freyr Ingvarsson læknir og matgæðingur sagði frá lífi sínu og starfi. Hann ræddi heilbrigðiskerfið á Íslandi en stutt er síðan hann flutti heim til Íslands frá Svíþjóð þar sem hann bjó og starfaði. Hann ræddi áhugann á matargerð, bækurnar sem hann hefur skrifað um mat og sjónvarpsþætti sem hann hefur gert um matarkisturnar Ítalíu og Spán. Hann ræddi líka um áhugamálin og fjölskylduna og margt fleira.
    Álfheiður Ingadóttir og Þórunn S. Þorgrímsdóttir sögðu frá því þegar þær kynntust í Hagaskóla og hafa verið vinkonur síðan. Álfheiður er lífrræðingur og Þórunn nam leikmyndagerð og leiktjaldamálun og þær starfa nú saman að sýningunni Vatnið í náttúru Íslands sem verður opnuð í Perlunni 1. desember 2018.
    2 hr 15 min
  • Lára Jóhanna Jónsdóttir og Davíð Logi Sigurðsson
    Lára Jóhanna Jónsdóttir sagði frá uppvextinum í seljahverfinu í Breiðholti, menntaskólaárunum í MS og síðar náminu í Listaháskólanum. Hún sagði frá árinum sem hún fór í Háskóla Íslands í læknisfræði áður en þá hafði hún þegar þreytt inntökupróf í LHÍ en komst ekki inn. Hún ræddi leiklistina, leikritin sem hún hefur tekið þátt í og bíómyndirnar og sérstaklega nefndi hún myndina Lof mér að falla sem nýverið var frumsýnd. Lára Jóhanna ræddi síðan Flateyjargátu sem nú er í sýningu en þar fer hún með eitt af aðalhlutverkunum.
    Davíð Logi Sigurðsson sagði frá uppvextinum í Breiðholtinu, framhaldsskólaárunum í fjölbraut Breiðholti, sagnfræðiáhuganum, blaðamennskunni en Davíð Logi var blaðamaður á Morgunblaðinu í tíu ár. Hann sagði frá starfi sínu í Beirút í Líbanon en þar bjó hann ásamt fjölskyldu sinni í fjögur ár. Hann sagði líka frá nýju bókinni sinni Ærumissi sem er pólitísk saga einstaklinga sem urðu leiksoppar í valdatafli á umbrotatímum þegar Ísland var að brjótast til nútímans.
    2 hr 15 min
  • Helgi Jóhannesson lögmaður og Guðjón Ragnar Jónasson kennari
    Helgi Jóhannesson lögmaður sagði frá uppvextinum í Hjálmholti,sumrunum í sveitinni í Hrútafirði, árunum í Æfingadeildinni, síðar Versló og lögfræði í HÍ. Hann ræddi föðurmissi, ættleiðingu tveggja barna og fæðingu þriðja barnsins. Hann sagði frá því hvernig það er að upplifa það að barnið manns komi út sem trans og hversu mikilvægt það er að hafa umræðuna opna og eðlilega. Hann ræddi útivistina og áhugann á öllu sem tengist útivst, hvers vegna hann hefur aldrei bragðað vín og ýmsu fleiru.
    Guðjón Ragnar Jónasson menntaskólakennari ræddi uppvöxt í Breiðholti, árunum í sveitinni á suðurlandi og síðar fimm háskólagráðunum sem hann tók. Hann sagði frá áhuganum á bókmenntum og íslenskri tungu og síðan sagði hann frá nýrri bók sem hann var að senda frá sér og heitir Hin hliðin en þar er að finna grátbroslegar sögur úr leikhúsi næturlífsins á Laugaveginum og rifjar upp áfanga úr langri og strangri baráttu fyrir réttindum og sýnileika.
    2 hr 15 min
  • Kristján Gíslason og Ragnhildur Ágústsdóttir
    Kristján Gíslason sagði frá uppvextinum í Reykjavík, árunum í MH, skiptinemaárinu í Bandaríkjunum og því þegar hann kynntist konunni sinni. Hann starfaði hjá SÍS um árabil í tölvuþjónustu og rak síðan fjölskyldufyrirtæki um árabil en ákvað að selja fyrirtækið 2006 til þess að einfalda lífið og njóta meira. Hann hefur ferðast víða og nú hefur hann sent frá sér bók um mótorhjólaævintýri en hann fór í heimsreisu einn síns liðs og ný heimildarmynd um ferðalagið verður sýnd á ruv í lok mánaðar og bókin Hringfarinn er nýkomin út. Allur ágóði bókarinnar rennur í sérstakan stjóð sem stofnaður hefur verið til að styrkja forvarnir í fíknefnamálefnum.
    Ragnhildur Ágústsdóttir sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði og Danmörku, árunum í Versló og spennandi störfum í fjarskiptageiranum. Hann sagði frá strákunum sínum en tveir eldri drengirnir eru báðir með einhverfu en Ragnhildur hefur verið í forsvari samtaka sem vinna að aukinni umræðu um einhverfu til að upplýsa og fræða. Hún sagði frá nýjasta verkefni fjölskyldunnar en það er lítill drengur 6 mánaða og sýningin the icelandic lava show í Vík í Mýrdal sem er eldgosasýning af bestu gerð.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners