Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Óskar Jónasson leikstjóri og Marta María Jónasdóttir ritsjóri
    Óskar Jónasson sagði frá uppvextinum í bústaðahverfinu, árunum í Réttó, pönkinu og ýmsu fleiru. Hann sagði frá sveitadvöl, ferðalögunum með foreldrunum en hann ferðaðist víða með þeim auk þess að vera í sveit á sumrin. Hann sagði frá náminu í myndlistarskólanum, seinna kvikmyndargerðarnámi í Englandi en síðan hann kom heim úr námi hefur hann fengist við ótrúlega fjölbreytt verkefni, 5 bíómyndir í fullri lengd, stuttmyndir, sjónvarpsseríur og ýmislegt fleira. Óskar er leikstjóri nýrrar þáttaraðar sem verður sýnd á ruv og heitir Hvað höfum við gert en þar er fjalla um loftslagsmál á mannamáli. Hann ræddi umhverfismálin út frá sínu sjónarhorni og taldi að við getum ýmislegt gert til að bæta úr meðal annars með því að minnka neysluna.
    Marta María Jónasdóttir sagði frá uppvextinum í Árbænum, vinkonuhópnum, fjölskyldunni og ýmsu fleiru. Hún sagði frá árunum í Fjölbraut í Breiðholti en þar komst hún i tengsl við búningagerð og þar með var grunnurinn lagður að því sem hún fæst við í dag. Hún fór svo að vinna í verslun, byrjaði svo sem blaðamaður og hefur starfað bæði við tímarit og dagblöð. Hún er í dag ristjóri Smartlands en hún segist verða áhugsöm um fólk og telur sig heppna að geta starfað við áhugamálið.
    2 hr 15 min
  • Lóa Pind Aldísardóttir, Sigurþóra Bergsdóttir og Guðrún Ingvarsdóttir
    Lóa Pind sagði frá lífi sínu og starfi og því þegar hún strax á unga aldri var ákveðin í að verða blaðamaður. Hún sagði frá ársdvöld í Bretlandi og síðar námi í Frakklandi og Bretlandi. Hún var einstæð móðir en náði þó að klára sig vel í náminu og fékk svo fjöldbreytt störf í blaðamennsku þegar heim var komið. Hún söðlaði um eftir margra ára starf í blaðamennsku og fór í fréttamennsku á Stöð 2 og þaðan í þáttagerð og starfar núna stjálfstætt í þeim geira. Hún sagði frá fjögurra þátta röð sem ber yfirskriftina Viltu í alvörunni deyja sem er hennar nýjasta verkefni þar sem fjallað er um sjálfsvíg og sjóninni beint að fólkinu sem situr eftir þegar ástvinir svipta sig lífi.
    Sigurþóra Bergsdóttir kom svo inn í viðtalið en hún er ein þeirra sem kemur við sögu í þáttunum en sonur hennar Bergur Snær svipti sig lífi fyrir rétt tæpum þremur árum. Sigurþóra er í forsvari fyrir Bergið sem er úrræði fyrir ungt fólk í vanda en sjóður sem var stofnaður í nafni sonar hennar mun nýtast til að styrkja þetta verkefni.
    Guðrún Ingvarsdóttir forstjóri framkvæmdarsýslu ríkisins sagði sína sögu í þættinum, dvöl í Finnlandi með foreldrum og síðar í námi en Guðrún er menntaður arkitekt. Hún sagði frá verkefnum sem hún hefur fengist við sem arkitekt, árunum eftir hrun sem voru gríðarlega erfið í starfstétt arkitekta. Hún sagði frá áhugamálum og fjölskyldu og núverandi starfi sem forstjóri framkvæmdarsýslu ríkisins.
    2 hr 15 min
  • Salka Sól Eyfeld og Steinn Jóhannsson
    Salka Sól Eyfeld leik og söngkona sagði frá uppvextinum í Kópavogi, einelti sem hún varð fyrir í grunnskóla, hún flutti sig yfir í Tjarnaskóla og þar náði hún að blómstra. Hún fór til Englands í leik- og söngnám og þegar hún kom heim komu tækifærin eitt af öðru. Hún byrjaði að rappa, fór að syngja með reykjavíkurdætrum, fór að vinna í útvarpi og sjónvarpi og á tímabili vann hún aðeins of mikið og þurfti að draga sig að ákveðnu marki í hlé.
    Hún sagði frá fjölskyldunni, vinnunni með eineltið sem hún er á fullu að vinna í með því að heimsækja skóla og segja sögu sína. Salka er núna að leika Ronju ræningjadóttur í þjóleikhúsinu sem hún segist elska mest af öllu.
    Steinn Jóhannsson sagði frá sínu lífi og starfi en hann er núverandi rektor menntaskólans við Hamrahlíð. Hann sagði frá uppvextinum í sveitinni, námsárum í Bandaríkjunum, áhuganum á íþróttum og ýmsu fleiru, Hann fer á reiðhjóli til og frá vinnu daglega og segir það sína jógastund að hjóla.
    2 hr 15 min
  • Stefán Sturla Sigurjónsson leikari og leikstjóri og Hrafnhildur Gunnar
    Stefán Sturla Sigurjónsson sagi frá uppvextinum í Reuklavík, dvölinni í sveitinni á Rangárvöllum, húsasmíðinni og Bændaskólanum á Hvanneyri. Hann sagði frá því hvers vegna hann ákvað að fara í leiklistarskólann, tímabilinu eftir að hann útskrifaðist og vann nánast allan sólahringinn þegar hann nánast brann út. Hann hefur leikið og leikstýrt í fjöldamörg ár býr nú ásamt fjölskyldu sinni í Finnlandi en starfar nú að verkefni á Höfn í Hornafirði við uppbyggingu Lista- og menninvarsviðs Framhaldsskólans þar.
    Hrafnhildur Gunnarsdóttir leikstjóri og framleiðandi sagði frá uppvextinum í hlíðunum, hand - og fótboltaiðkun með Val. Hún ræddi réttindabaráttu samkynhneigðra sem hún tók virkan þátt í, hún sagði frá námsárunum í MH og síðar í Kaliforníu þar sem hún lærði kvikmyndagerð. Hún sagði frá fjölskyldunni áhugamálunum og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Auðunn Atlason sendiherra og Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Virk
    Auðunn Atlason sagði frá uppvextinum í Breiðholti, Kópavogi og síðar í vesturbænum í Reykjavík. Hann sagði frá skólaárunum í hverfisskólunum en eftir stúdentspróf úr MR fór hann til Berlínar í nám í stjórnmálafræði. Hann hefur starfað í fréttamennsku, við kennslu hjá alþjóðasviði Alþingis og eftir það í UTN eða frá 1999. Hann sagði frá fjölskyldunni, ættarhúsinu í Flatey, áhugamálunum og ýmsu fleiru.
    Vigdís Jónsdóttir framkvæmdastjóri Virk starfsendurhæfingar sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, frá því hún var ung móðir á sama tíma og hún var að ljúka stúdenstprófi og svo komu börnin eitt af öðru meðan hún var í námi. Hún ræddi viðskiptafræðinám, starfið hjá félagi hjúkrunarfræðinga og síðar fékkst hún við hin ýmsu störf þar til hún sá auglýsta stöðu framkvæmdastjóra Endurhæfingastjóðs sem var forveri Virk fyrir 10 árum síðan.
    Hún sagði frá tónlistinni en eiginmaður hennar gaf henni harmonikku þegar hún varð fertug og síðan þá hefur hún sinnt tónlistinni af krafti, spilað inn á tvær plötur haldið tónleika og notið þess í botn.
    2 hr 15 min
  • Guðni Már Harðarson prestur í Lindakirkju og Myrra Rós Þrastardóttir l
    Guðni Már Harðarson prestur sagði frá uppvextinum í Reykjavík og starfinu í KFUMK, árunum á Akranesi, menntaskólaárunum í Kvennnó ársdvöl í Svíþjóð sem gerði það að verkum að hann ákvað að verða prestur. Hann ræddi trúarstarfið í kirkjunni, lífsgildin áhugamálin og ýmislegt fleira.
    Myrra Rós Þrastardóttir listakona ræddi uppvöxtinn í Hafnarfirði, erfiðri reynslu sem hún varð fyrir í Danmörku þegar hún fór þangað sem unglingur, myndlistinni og hvernig það kom til að hún fór að starfa við tónlist. Hún ræddi listsköpunina, hvernig það er að búa á Stokkseyri, áhugamál og ýmislegt fleira.
    2 hr 15 min
  • Erla Gerður Sveinsdóttir læknir og Bjarni Þór Sigurðsson tónlistarmaðu
    Erla Gerður Sveinsdóttir læknir í Heilsuborg sagði frá uppvextinum í Kálfskinni við Dalvík, móðir hennar starfaði sem ljósmóðir og oft fæddust börn heima á bænum sem mótaði líf fjölskyldunnar að ýmsu leiti. Erla fór í MA og síðar í læknisfræði og starfar nú sem læknir í Heilsuborg þar sem hún vinnur ásamt sínu fólki að varanlegum lausnum á heilsufarsvandamálum fólks.
    Bjarni Þór Sigurðsson sagði frá uppvextinum á Bíldudal, dvöl í heimavistarskóla, tónlistinni söngnáminu, starfinu hjá ruv fyrir austan á Egilsstöðum og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Gissur Páll Gissurarson söngvari og Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdas
    Gissur Páll Gissurarson söngvari sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Vestmannaeyjum og Kópavogi. Hann sagði frá menntaskólaárunum og því þegar hann sótti um í leiklistarnám og komst ansi langt í inntökuprófi en þó ekki alla leið. Hann ákvað því að fara í söngnám en hann hafði leikið og sungið i söngleiknum Oliver Twist þegar hann var enn í grunnskóla og vissi strax að þetta ætti vel við hann. Hann sagði frá söngnámi á Ítaliu, matarkistunni Ítalíu, áhuganum á matargerð, fjölskyldunni og dætrunum og því hvernig hann nýtir tímann í að hlusta á hljóðbækur.
    Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu sagði frá uppvextinum í Garðabænum, árunum í versló, þegar hún vann í Kosovó eftir aldamótin 2000 og hvaða áhrif það starf hafði mikil áhrif á hana sem manneskju. Hún sagði frá námi í mannfræði, þróunarfræði og ýmsu sem hún hefur tekið sér fyrir hendur. Hún sagði frá dætrunum, skíðaáhuganum og nýja starfinu sem hún tekur við í febrúar sem framkvæmdastjóri Festu miðstöðvar um samfélagslega ábyrgð.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners