Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Katrín Björgvinsdóttir og Oddur Júlíusson
    Katrín Björgvinsdóttir ólst upp í Hafnarfirðinum og Kópavogi en lítur á sig sem Reykvíking. Hún upplifði sig utan gátta í skóla, lýsir sér sem lúða sem spilaði Hættuspil með vinkonum sínum en fann sig í Menntaskólanum við Hamrahlíð þar sem hún ákvað að verða leikstjóri. Það lá alltaf vel fyrir henni sem barn að stýra leikjum og segja sögur. Hún er búsett í Kaupmannahöfn þar sem hún hefur verið að fá stjörnudóma fyrir leikstjórn, en samhliða því starfi sér hún um að þrífa heima hjá gamalli konu sem hún lítur á sem dönsku ömmu sína.
    Oddur Júlíusson er mikill ömmustrákur og ljúfmenni. Hann hefur starfað sem fastráðinn leikari í Þjóðleikhúsinu um árabil pg hann leitar uppi krefjandi verkefni þar sem hann fær að sýna á sér óvæntar hliðar. Hann leikur í Ráðherranum sem verður á dagskrá RÚV næsta haust og mun taka við hlutverki Birkis Borkasonar í leikhúsinu þegar líður á sumar.
    2 hr 15 min
  • Þóra H. Ólafsdóttir og Hans Steinar Bjarnason
    Þóra Ólafsdóttir athafnarkona sagði frá uppvextinum í Reykjavík, námi í listförðun, starfi sínu sem slík en hún hefur starfað við fjölmargar kvikmyndir og sjónvarpsþætti. Hún sagði frá hestamennskunni en hún lenti í alvarlegu slysi á hestbaki árið 2004 og var haldið sofandi í 10 daga. Hún sagði frá þessari reynslu sem hafði mikil áhrif á hana og fjölskylduna alla. Hún sagði frá starfi sínu hjá icelandic glacier water en hún starfaði þar í 8 ár. Hún sagði frá fjölskyldunni, áhugamálunum og ýmsu sem hún hefur fengist við á litríkri ævi.
    Hans Steinar Bjarnason sagði frá uppvextinum á Hólmavik en hann ólst þar upp hjá ömmu sinni og afa og fluttist til Reykjavíkur þegar hann var 15 ára gamall. Hann sagði frá starfi sínu í útvarpsmennsku en hann var ungur þegar hann heillaðis af útvarpi og starfaði við það í fjöldamörg ár. Hann var síðast íþróttafréttamaður hér á ruv en sagði starfi sínu lausu fyrir rúmu ári síðan og starfar nún sem upplýsingafulltrúi SOS barnaþorpa. Hann sagði frá áhugamálum og fjölskyldu og ýmsu öðru.
    2 hr 15 min
  • Héðinn Svarfdal og Tatjana Latinovic
    Héðinn Svarfdal sagði frá uppvexti í Reykjavík, og Bandaríkjunum en þar bjó hann til 15 ára aldurs. Menntaskólaárunum sleit hann í MH, fór síðan í nám í sálfræði fyrst hér og svo í bandaríkjunum en síðar bjó hann og lærði í Bretlandi, og Kína. Hann sagði frá starfinu hjá lýðheilsustöð, áhugamálunum og fjölskyldunni og hvers vegna þau tóku þá ákvörðun að flytja til Costa Ríka.
    Tatjana Latinovic sagði frá uppvextinum í fyrrum Júgoslavíu, fjölskyldunni, átökunum í kringum stríðið og því þegar hún kynnstist eiginmanni sínum og ákvað að flytja til íslands með honum. Hún sagði frá starfi sínu hjá Össuri, þýðingum, baráttu fyrir málefnum innflytjanda á íslandi og ýmsu öðru.
    3 hr 15 min
  • Jórunn Frímannsdóttir og Guðjón Bergmann
    Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen sagði frá uppvextinum, menntaskólaárunum, öllu sem hún hefur starfað við, m.a. þegar hún var borgarfulltrúi í reykjavík. Hún sagði frá fjölskyldunni og áhugamálunum og starfinu sínu sem er að veita hjúkrunarheimilinu á Droplaugastöðum forstöðu.
    Guðjón Bergmann sagði frá uppvextinum, flóknu fjölskylduminstri, starfinu sem dagskrárgerðarmaður bæði í útvarpi og sjónvarpi, bókunum sem hann hefur skrifað, jógakennslu og þegar fjölskyldan flutti búferlum til Austin í Texas.
    2 hr 15 min
  • Guðbrandur Árni Ísberg og Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir
    Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur sagði frá uppvextinum í vesturbæ reykjavíkur, námsferlinum dvöl í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Danmörku þar sem hann var bæði í námi og starfi. Hann ræddi áhugamálin, starfið sem sálfræðingur og nýju bókina sem hann var að senda frá sér og fjallar um skömmina.
    Rakel Dögg Sigurgeirsdóttir sagði frá uppvextinum í Borgarnesi, nátturinni þar, námi, sundiðkun, fjölskyldu og áhugamálum. Hún sagði frá lífsreynslunni við að láta gera sig gjaldþrota, hvernig hún ásamt eiginmanni tókst á við þá erfiðleika, áskoruunum eftir það og heimsreislu fjölskyldunnar.
    2 hr 15 min
  • Þór Sigfússon stofnandi SJávarklasans og Þórdís Harðardóttir lýsingahö
    Þór Sigfússon sagði frá uppvextinum í Vestmannaeyjum, stórum systkinahópi, síðar árunum í Reykjavík en hann fluttist nokkuð oft með fjölskyldunni og rætur hans liggja þá víða. Hann var lengst af í Álftamýrarskóla, síðar MH og svo í Hí þar sem hann lærði viðskiptafræði. Hann fór í framhaldsnám ásamt eiginkonu sinni Halldóru Vífilsdóttur arkitekt en þau fóru fyrst til Bandaríkjanna og síðar til Finnlands. Þar starfaði Þór m.a. hjá norræna fjárfestingabankanum. Hann sagði frá því sem þau fengust við eftir heimkomu, erfiða tíma hjá Sjóvá sem jafnframt var lærdómsríkur, og síðan sagði hann frá hugmyndinni að Sjávarklasanum, fjölskyldunni áhugamálunum og ýmsu fleiru.
    Þórdís Rós Harðardóttir ævintýrafíkill og lýsingahönnuður sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, menntaskólaárunum, Þýskalandsdvöl sem barnapía og síðar á Spáni. Hún sagði frá náminu í iðn- og vöruhönnun, starfi sínu hjá stórri íþróttavöruverslun í Kringlunni sem hét Nanoq og síðar hjá 66 °Norður, Hún sagði frá starfi sínu sem lýsingahönnuður en hún starfar mest í útlöndum og segir íslendinga ekki komna eins langt í þeim fræðum eins og aðrar þjóðir. Hún bjó um tíma ásamt eiginmanni Jóni Gunnari Vilhelmssyni og síðar börnum í Þýskalandi, Kanada, í Kína og í Hong Kong hefur ferðast mikið með fjölskyldunni á framandi slóðir og nýtur þess að ferðast í vinnuna á milli þess sem hún stundar Quigong og Taichi leikfimi.
    2 hr 15 min
  • Sirrý Arnardóttir og Sævar Helgi Bragason
    Sigríður Arnardóttir eða Sirrý eins og hún er jafnan kölluð sagði frá uppvextinum í Reykjavík, menntaskólaárunum í MS, fjölmiðlamennskunni en Sirrý hefur unnið jafnhliða í útvarpi og sjónvarpi en ákvað að venda kvæði sínu í kross á síðasta ári og starfar nú sjálfstætt við námskeiðahald. kennslu og bókaskrif.
    sævar Helgi Bragason sagði frá uppvextnum í Hafnarfirði, áhuganum á vísindum en hann sagði frá því að hann hefði alla tíð haft mikinn áhuga á umhverfinu í kringum sig . Hann ræddi sólmyrkvaverkefnið frá 2015 þegar ákveðið var að fara í átak og gefa sem flestum börnum gleraugu til að horfa á sólmyrkvann, starfinu sínu sem kennari sjónvarps- og útvarpsamaður go rithöfundur en hann hefur skrifað nokkrar bækur um vísindi fyrir unga og aldna.
    2 hr 15 min
  • Inga Dóra Guðmundsdóttir og Valdimar Þór Svavarsson
    Inga Dóra Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri menntamála og starfsþróunar hjá Royal Greenland sagði sögur frá því að alast upp á Íslandi og i Grænlandi. Hún hefur búið á báðum stöðum til skiptis. Hún hefur verið flugfreyja, blaðamaður og ritstjóri, verið þáttakandi í stjórnmálum í Grænlandi og nú leiðir hún nýtt ferðafélag í Grænlandi sem er systurfélag Ferðafélags Íslands.
    Valdimar Þór Svavarsson sagði frá uppvestinum á Selfossi, unglingsárum sem einkenndust af miklu rótleysi, þegar hann ákvað að skella sér og læra rafvirkjun, og öllu því sem hann hefur fengist við síðan þá sem er ótrúlega fjölbreytt. Hann starfar nú sem ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og er auk þess pistlahöfundur á mbl.is en hann sérhæfir sig í samböndum og samskiptum.
    2 hr 15 min
  • Ásdís Olsen núvitundarkennari og Bjartmar Þórðarson fjöllistamaður
    Ásdís Olsen núvitundarkennari sagði frá lífi sínu og starfi, uppvextinum í Garðabænum, íþróttunum en hún var um árabil ein fremsta skíðakona landsins, hún sagði frá fjölskyldunni áhugamálunum, kennaranáminu og núvitundarfræðinni sem hefur verið hennar helsta viðfangsefni síðustu ár.
    Bjartmar Þórðarson sagði frá uppvexti, leiklistarnámi, bókmenntafræði, námi í leikstjórn og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Torfi Frans Ólafsson tölvuleikjahönnuður og Íris Ösp Ingjaldsdóttir lö
    Torfi Frans sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Kópavogi, Akureyri og Stykkishólmi, áhuganum á alls konar tilraunum en hann eyddi löngum studnum sem ungur strákur í að búa eitthvað til hvort sem það var úr kubbum eða öðru dóti. Hann sagði frá áhuganaum á tölvum, vinnuni hjá Oz, síðar CCP og nú síðast hjá Microsoft í Bandaríkjunum. Hann sagði frá starfinu hvernig það hefyur breyst og þróast, ferðalögunum sem einkenna líf hans og starf og ýsmu fleiru.
    Íris Ösp Ingjaldsdóttir lögfræðingur og rithöfundur sagði frá uppvextinum í Reykjavík, fimleikunum, árunum í FB og síðar Háskóla Íslands í lögfræði. Hún sagði frá þegar hún fór sem AU pair til Bandaríkjanna, áhugamálum og fjölskyldunni. Hún sagði líka frá nýrri bók sem hún var að senda frá sér og heitir Röskun en sagan er spennusaga og hefur vakið mikla athygli.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners