Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Gói Karls og Anna ljósa
    Guðjón Davíð Karlsson sagði frá uppvextinum í 101 Reykjavík, árunum í Austurbæjarskóla og síðar Kvennó. Hann sagði frá áhuganum á leiklist sem kviknaði snemma og því hversu frábært er að fá að starfa við það sem maður elskar. Hann sagði frá erfiðu einelti sem hann varð fyrir, og hversu mikið mein þetta er á samfélaginu okkar sem þyrfti að uppræta. Hann talaði um fjölskylduna, áhugamálin, helstu hlutverkin og ýmislegt fleira áhugavert.
    Anna Eðvaldsdóttir eða Anna ljósa sagði frá uppvextinum í Túnunum í Reykjavík, íþróttaáhuganum en hún æfði fót - og handbolta með Val um árabil. Hún sagði frá árunum í fjölbraut í Breiðholti, hjúkrunarnáminu og síðar ljósmóðurnámi en Anna hefur tekið á móti 1500 börnum og hefur nú tekið saman ráðin sín og sett í bók. Hún ræddi líka fjölskylduna og áhugamálin.
    2 hr 15 min
  • Jóhann Vilhjálmsson og Stella Samúelsdóttir
    Jóhann Vilhjálmsson sagði frá uppvextinum á Akureyri, og í Reykjavík. Hann stundaði nám í Breiðholtsskóla síðar í MH og þaðan fór hann í tölvunarfræði í Háskóla Íslands. Hann sagði frá fjölskyldu og vinum og tónlistinni en Jóhann er sonur söngavarans og tónlistarmannsins Vilhjálms Vilhjálmssonar sem lést í bílsslysi í Luxemborg þá aðeins 32 ára gamall þegar Jóhann var unglingur. Hann kom fyrst fram opinberlega á minningartónleikum um föður sinn árið 2008 og síðan hefur hann sungið víða og undirbýr nú tvenna tónleika með tónlist Vilhjálms. Jóhann er stjálfstætt starfandi tölvunarfræðingur og söngvari.
    Stella Samúelsdóttir er framkvæmdastýra UN Women á Íslandi en hún hefur starfað og búið víða um heim og nýflutt heim eftir að hún tók við þessu starfi. Hún lærði mannfræði og hefur starfað m.a. hjá Þróunarsamvinnustofnun í Malavi, og hennar stærsta viðfangsefni eru mannréttindamál af ýmsu tagi. Hún sagði frá fjölskyldum áhugamálum og ýmsu öðru.
    2 hr 15 min
  • Hrólfur Jónsson og Rakel Pálsdóttir
    Hrólfur Jónsson fyrrverandi slökkviliðsstjóri í Reykjavík sagði frá uppvextinum í Hlíðunum, skólagöngu í þróttaferli og ýmsu öðru. Hann stofnaði fjölskyldu snemma á lífsleiðinni en með góðri aðstoð frá ömmunum tókst þetta allt saman. Hann starfaði sem tæknifræðingur um hríð en fór svo í slökkviliðið þar sem hann starfaði í yfir tuttugu ár. Þaðan fór hann til Reykjavíkurborgar og í dag starfar hann hjá Vísindagörðum HÍ. Hrólfur er á kafi í tónlistinni og undirbýr nú stórtónleika í Eldborg í Hörpu föstudaginn 12. október nk.
    Rakel Pálsdóttir söngkona og þroskaþjálfi sagði frá lífi sínu og starfi bæði í söng og við það sem hún menntaði sig til þroskaþjálfun.
    Hún hefur margoft tekið þátt í söngvakeppni sjónvarpsins og segir það skemmtilegt verkefni. Rakel sagði líka frá dóttur sinni sem fæddist með klofinn góm og skarð í vör og þeim stóru verkefnum sem fylgja því að eignast barn sem þarf að ganga í gegnum allt það sem dóttir hennar og þau fjölskyldan hafa glímt við.
    2 hr 22 min
  • Sigrún Waage leikkona og Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari
    Sigrún Waage leikkona sagði frá uppvextinum í Laugarneshverfinu þar sem Laugardalurinn var allur í skurðum og börn léku sér mikið á svæðinu. Hún sagði frá dansnáminu en hún lærði klassískan ballett í mörg ár, var ein af stofnendum módel 79 sem sýndu tískusýningar í Hollywood og fleiri stöðum. 21 árs fór Sigrún til New York að læra leiklist en hún hafði tengst leikhúsinu mikið sem barn og unglingur enda tekið þátt í fjölmörgum sýningum þar. Hún fékk hlutverk í Vesalingunum skömmu eftir heimkomu, frestaði því að flytjast með ungan son sinn til barnsföður síns til Florida og var hér heima og lék í fjölmörgum sýningum i leikhúsunum. Sigrún sagði frá erfiðum dótturmissi en hún missti dóttur sína úr heilahimnubólgu þegar hún var aðeins 11 ára gömul. Hún sagði frá erfiðri reynslu sem kom síðar á lífsleiðinni þegar yngsta dóttir hennar steig fram og sagði frá misnotkun sem hafði átt sér stað gegn henni af manni í fjölskyldunni þó ekki blóðtengdum. Sigrún hefur reynt að vinna sig út úr erfiðri reynslu með því að leita til fagaðila og síðan hefur hún ræktað listagyðjuna enn frekar og hefur nú lokið námi sem kennari í Vocal Technik. Hún er að undirbúa frumsýningu á verki sem kallast á íslensku Ég heiti Guðrún og verður frumsýnd í Kassanum í Þjóðleikhúsinu í byrjun okt.
    Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari í Sinfoníuhljómsveit Íslands sagði frá uppvextinum í Kópavogi, árunum í Skólahljómsveit Kópavogs þar sem hún lék á klarinett en skipti síðar yfir í flautu. Hún fór í frekara nám í flautuleik til London og Parísar, hefur kennt víða og spilað í yfir 20 ár með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hún fékk hugmyndina af Maximús Músíkús fyrir 13 árum síðan og síðan hafa út komið fimm bækur um þessa músikalísku mús.
    2 hr 22 min
  • Hildur Ingvarsdóttir skólameistari og Sigurður Þór leikari
    Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans sagði frá uppvextinum í smáíbúðahverfinu, árunum í Finnlandi þegar hún fluttist þangað með foreldrum sínum og síðar árunum í MR. Hún fór á styrk til ársdvalar til Georgiu í Bandaríkjunum og eftir það fór hún í verkfræði í HÍ. Þaðan hélt hún ásamt eiginmanni til Vancouver í Kanada og þar dvöldu þau hjón í tvö og hálft ár. Hún sagði frá störfum sínum sem kennari í MR og síðar hjá verkfræðistofu, Orkuveitunni og nú síðast sem skólameistari Tækniskólans. Áhugamálin eru fjölmörg sem tengjast flest tónlist og útivist sem hún stundar ásamt eiginmanni og þremur dætrum.
    Sigurður Þór Óskarsson leikari sagði frá uppvextinum í Reykjavík, árunum í Versló þar sem grunnurinn var lagður að framtíðinni þegar hann var hvattur til að sækja um í leiklistarskólanum. Í dag starfar hann sem leikari í Þjóðleikhúsinu og hefur verið heppinn hvað ferlinn varðar og fengið að taka þátt í mörgum og ólíkum leiksýningum.
    2 hr 15 min
  • Guðmundur Ingi umhverfisráðherra og Arna Sigríður handahjólreiðakona
    Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra sagði frá uppvextinum á Mýrunum, heimavist í barnaskóla í Borgarfirði, árunum í MA, og síðar í Þýskalandi, Rússlandi og Bandaríkjunum. Hann ræddi umhverfismál, áhugamál og ýmislegt fleira meðal annars símtalinu sem hann fékk frá Katrínu Jakobsdóttur í nóvember 2017 sem leiddi til þess að hann tók við ráðherraembættinu.
    Arna Sigríður Albertsdóttir sagði frá uppvextinum á Ísafirði, áhugamálunum sem voru m.a. fótbolti og skíði. Hún sagði frá örlagaríkri æfingaferð til Noregs þar sem hún lamaðist í skíðaslysi en hefur síðan þá náð að byggja sig upp andlega og líkamlega og er nú að undirbúa sig fyrir keppni á paralympic Tokyo 2020.
    2 hr 22 min
  • Arnar Símonarskon lífskúnstner og Eyþór Ingi organisti
    Arnar Símonarson sagði frá uppvextinum á Dalvík, menntaskólaárunum á Akureyri og síðar dvöl í Danmörku. Hann sagði frá áhugamálunum sem eru m.a. hannyrðir og söfnun gamalla hluta en Arnar rekur loppumarkað á Dalvík og hefur gert undanfarin ár. Hann sagði frá draumnum sem hann átti að verða flugþjónn en hann hefur einmitt starfað við það sl. sumar.
    Eyþór Ingi sagði frá uppvextinum í dölunum, menntun í tónlist sem leiddi til þess að hann ákvað að læra orgelleik. Hann starfar í dag sem organisti í Akureyrarkirkju stjórnar þar nokkrum kórum, heldur tónleika og brallar í mörgu í norðlensku tónlistarlífi.
    2 hr 20 min
  • Pawel Bartoszek og Sassa Eyþórdóttir
    Pawel Bartoszek sagði frá uppvextinum í Póllandi en hann var átta ára gamall þegar hann flutti til Íslands með fjölskyldunni. Hann sagði frá árunum í Melaskóla, Hagaskóla og MR, stærfræðiáhuganum, skákinni og ýmsu fleiru. Hann sagði frá háskólanámi í stærðfræði, kennslu í HR, starfinu í stjórnlagaráði og áhuganum á Pólitík sem kveiknaði snemma. Hann ræddi þingmennsku, Viðreisn og núverandi starfi sem borgarfulltrúi Viðreisnar, áhugamál fjölskyldu og ýmislegt fleira.
    Sassa Eyþórsdóttir sagði frá uppvextinum í Reykjavík, dvölinni í New York, árunum í MH, náminu í iðjuþjálfun, búsetu fjölskyldunnar á Spáni, heimsreisu og starfinu sínu sem iðjuþjálfi bæði á Reykjalundi, Bugl og nú í Hagaskóla. Hún ræddi líka þá lífsreynslu að greinast með krabbamein og það tvisvar og því hvernig forgangsröðun breyttist þegar maður veikist alvarlega.
    2 hr 22 min
  • Bjössi Thor og Katrín Halldóra
    Björn Thoroddsen gítarleikari sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, uppátækjum og ýmsu fleiru. Hann lét sig dreyma um að verða leigubílstjóri því þá gæti hann alltaf á fína og flotta bíla. Hann var feiminn sem barn og unglingur og var alltaf kallaður stóri vegna þess að hann var mun hærri en jafnaldrarnir og þetta hafði mikil áhrif á hann. Hann dreymdu um að verða góður gítarleikari og las tímarit um gítarsnillinga og viðtöl við þá. Hann sagði frá námsárinu í Hollywood og breyttum manni að því loknu en eftir það gekk allt upp hann náði í sætustu stelpuna og hefur starfað við gítarleik allt frá því námi lauk. Hann starfar í dag með helstu gítarleikurum heimsins, ferðast mikið og nýtur lífsins í botn.
    Katrín Halldóra Sigurðardóttir leik og söngkona sagði frá lífi sínu og starfi en hún ólst upp í Mosfellsdalnum en flutti 10 ára gömul austur á Neskaupsstað og lauk þar stúdentsprófi. Hún stefndi alltaf að því að starfa sem söng - og leikkona og fór og lærði söngtækni í Danmörku að stúdentsprófi loknu, þaðan fór hún í FÍH og í þriðju tilraun tókst henni að komast að í leiklistarbraut LHÍ. Hún segist elska starfið sitt og nýtur þess að túlka Ellý Vilhjálms í sýningunni um líf þessarar merkilegu söngkonu. Hún sagði frá fjölskyldunni og ýmsu fleiru áhugaverðu.
    2 hr 22 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners