Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Ingibjörg Valgeirsdóttir og Guðmundur Steingrímsdóttir
    Ingbjörg Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri öldrunar og heimaþjónustu Garðabæjar sagði frá uppvextinum í Trékyllisvík á Ströndum og tengslunum við náttúruna og umhverfið þar í kring. Hún sagði frá námsárunum í Flensborg, þegar hún varð óvænt ófrísk af syni sínum og Jónasar eiginmanns síns aðeins 17 ára gömul og hvernig stuðningur fjölskyldunnar gerði þeim kleift að halda áfram námi þrátt fyrir að vera komin með barn. Hún sagði frá náminu í uppeldis - og kennslufræði í HÍ og síðar störfum sínum með ungu fólki m.a. hjá Reykjavíkurborg störf sem tengdust úrræðum fyrir ungt fólk. Hún sagði frá hvernig er að vera orðin amma, kyrrðardögum í Skálholti og víðar, göngu á Jakobsveginum, ættleiðingu dóttur þeirra Hrafnhildar Kríu frá Kína fyrir 14 árum síðan. Hún ræddi líka núverandi starf sitt og ýmislegt fleira.
    Guðmundur Steingrímsson rithöfundur og tónlistarmaður og fyrrverandi þingmaður sagði frá uppvextinum á Arnarnesinu, árunum í Garðaskóla og MR, tónlistarnáminu og ýmsu fleiru, Hann sagði frá þingmennskunni, bókunum sem hann hefur skrifað en nýjasta bókin Heimsendir er nýkomin út og fjallar um Leif Eiríksson blaðamann sem heldur á vit ævintýranna ásamt unnustu sinni til Ameríku. Hann ræddi smíðarnar sem hann hefur ástríðu fyrir, núverandi starfi sínu sem útgefandi og ýmsu fleiru.
    2 hr 22 min
  • 29.07.2018
    Guðrún Ragnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri sagði frá æsku sinni og uppvexti hjá einstæðri móður sem barðist fyrir því að halda heimili með þrjú börn. Guðrún og systkini hennar þurftu að fara á sumardvalarheimili í mörg ár þar á meðal Silungapoll því úrræði fyrir einstæðar mæður voru lítil sem engin. Hún sagði okkur frá fyrstu kvikmynd sinni Sumarbörn sem hlaut Edduverðlaunin fyrir leikið barnaefni en hún er að miklum hluta byggð á hennar æskuupplifun. Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari var seinni gestur þáttarins en hann stendur nú á tímamótum. Hann sótti um stöðu bæjarstjóra á Seyðisfirði í sumar en dró umsókn sína til baka þar sem hann fékk inngöngu í framhaldsnám við Oxford háskóla. Þar ætlar hann að stunda MBA nám með fjölskyldu sinni næstu tvö ár og leggja leiklistina á hilluna í bili. Hann ræddi einnig leiklistarferil sinn sem hefur staðið nær sleitulaust yfir í rúma tvo áratugi eða frá því hann var 12 ára. Þorvaldur vill breytingar í líf sitt og er óhræddur við að stíga inn í ólíkt umhverfi. Hann segist oft hafa fengið ákveðinn leiða í leiklistinni og hún hafi ekki gefið honum mikið síðustu ár eins og hann hefði viljað. Umsjón: Helga Arnardóttir.
    2 hr 6 min
  • Guðrún Ragnarsdóttir kvikmyndaleikstjóri sagði frá æsku sinni og uppvexti hjá einstæðri móður sem barðist fyrir því að halda heimili með þrjú börn. Guðrún og systkini hennar þurftu að fara á sumardvalarheimili í mörg ár þar á meðal Silungapoll því úrræði fyrir einstæðar mæður voru lítil sem engin. Hún sagði okkur frá fyrstu kvikmynd sinni Sumarbörn sem hlaut Edduverðlaunin fyrir leikið barnaefni en hún er að miklum hluta byggð á hennar æskuupplifun.
    Þorvaldur Davíð Kristjánsson leikari var seinni gestur þáttarins en hann stendur nú á tímamótum. Hann sótti um stöðu bæjarstjóra á Seyðisfirði í sumar en dró umsókn sína til baka þar sem hann fékk inngöngu í framhaldsnám við Oxford háskóla. Þar ætlar hann að stunda MBA nám með fjölskyldu sinni næstu tvö ár og leggja leiklistina á hilluna í bili. Hann ræddi einnig leiklistarferil sinn sem hefur staðið nær sleitulaust yfir í rúma tvo áratugi eða frá því hann var 12 ára. Þorvaldur vill breytingar í líf sitt og er óhræddur við að stíga inn í ólíkt umhverfi. Hann segist oft hafa fengið ákveðinn leiða í leiklistinni og hún hafi ekki gefið honum mikið síðustu ár eins og hann hefði viljað.
    Umsjón: Helga Arnardóttir.
    2 hr 22 min
  • 22.07.2018
    Halla Tómasdóttir er flutt til New York með fjölskyldu sinni og er orðin forstjóri alþjóðlegu samtakanna B-Team. Hún kom í Sunnudagssögur og ræddi um nýtt starf og markmið þessara merkilegu samtaka. Hún gerði upp forsetakosningarnar árið 2016 og sagði frá því augnabliki þegar hún mældist með 1% fylgi einum og hálfum mánuði fyrir kosningar og endaði með tæplega 28% fylgi, næst mesta fylgið á eftir Guðna Th. Jóhannessyni. Halla ræddi einnig upplifun sína sem móður og athafnkonu í íslensku viðskiptalífi árin fyrir efnahagshrunið. Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði Breiðabliks í Pepsídeildinni var annar gestur þáttarins. Þar ræddi hann æsku sína og uppvöxt, sérkennilegan áhuga sinn fyrir Sovíetríkjunum þegar hann var sjö ára, baráttu sína við brennivínið og þegar hann tók ákvörðun 19 ára að hætta að drekka og hefur ekki drukkið síðan. Hann sagði einnig frá erfiðum foreldra-og bróðurmissi og hvernig hann langaði að verða betri maður. Í kjölfar ítrekaðra áfalla ákvað hann að hætta að blóta og segir það bestu ákvörðun sem hann hafi tekið. Umsjón: Helga Arnardóttir
    1 hr 47 min
  • Halla Tómasdóttir er flutt til New York með fjölskyldu sinni og er orðin forstjóri alþjóðlegu samtakanna B-Team. Hún kom í Sunnudagssögur og ræddi um nýtt starf og markmið þessara merkilegu samtaka. Hún gerði upp forsetakosningarnar árið 2016 og sagði frá því augnabliki þegar hún mældist með 1% fylgi einum og hálfum mánuði fyrir kosningar og endaði með tæplega 28% fylgi, næst mesta fylgið á eftir Guðna Th. Jóhannessyni. Halla ræddi einnig upplifun sína sem móður og athafnkonu í íslensku viðskiptalífi árin fyrir efnahagshrunið.
    Gunnleifur Gunnleifsson markvörður og fyrirliði Breiðabliks í Pepsídeildinni var annar gestur þáttarins. Þar ræddi hann æsku sína og uppvöxt, sérkennilegan áhuga sinn fyrir Sovíetríkjunum þegar hann var sjö ára, baráttu sína við brennivínið og þegar hann tók ákvörðun 19 ára að hætta að drekka og hefur ekki drukkið síðan. Hann sagði einnig frá erfiðum foreldra-og bróðurmissi og hvernig hann langaði að verða betri maður. Í kjölfar ítrekaðra áfalla ákvað hann að hætta að blóta og segir það bestu ákvörðun sem hann hafi tekið.
    Umsjón: Helga Arnardóttir
    2 hr 22 min
  • Birkir Már Sævarsson og Ingunn Snædal
    Birkir Már Sævarsson knattspyrnumaður sagði frá uppvextinum í Hlíðunum, fótboltaáhuganum, fjölskyldunni náminu og ýmsu fleiru. Hann ræddi velgengi íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og hverjar hann taldi ástæðurnar fyrir því að liðinu hefur gengið svona vel. Hann stefnir á nám í tölvunarfræði í Háskóla Íslands í haust, og segist ætla að leika knattspyrnu eins lengi og mögulegt er.
    Ingunn Snædal kennari, ljóðskáld og þýðandi sagði frá uppvextinum á Skjöldólfstöðum í Jökuldal, skólagöngunni, náminu á Eiðum, dvölinni í Reykjavík og síðar kennaranámi. Hún sagði frá ferðalögum vítt og breytt um heiminn og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Jón Ragnar Jónsson tónlistarmaður og Sanna Magdalena Mörtudóttir borga
    Jón Ragnar Jónsson söngvari og tónlistarmaður sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, stórri og tónlistarelskri fjölskyldu og fótboltanum sem var aðal áhugamálið. Hann sagði frá því hvernig hann tók meðvitaða ákvörðun um helga tónlistinni líf sitt, og hvaða hlutir skipta mestu máli í því sambandi. Hann sagði frá því þegar hann hitti konu sína fyrst, börnunum og starfinu sínu við að fræða ungt fólk um fjármál og hvað skiptir mestu máli þar. Hann ræddi mikilvægi þess að vera góð fyrirmynd bæði fyrir börnin sín og önnur börn og þar telur hann mikilvægt að snerta alls ekki tóbak né áfengi.
    Sanna Magdalena Mörtudóttir sagði frá uppvextinum í Breiðholti en hún ólst upp við kröpp kjör hjá einstæðri móður. Eftir grunnskóla fór hún beint í Fjölbrautaskólann við Ármúla á félagsfræðibraut, þaðan í BA í mannfræði við HÍ og svo beint í master í mannfræði við HÍ og útskrifaðist sem mannfræðingur núna í febrúar.
    Hún sagði frá gildunum í lífinu, áhuganum á pólitík og ýmsu öðru.
    2 hr 15 min
  • Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Sigurður Helgi Pálmason
    Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir framkvæmdastjóri sagði frá uppvextinum í smáíðbúðahverfinu í Reykjavík, árunum í Versló, au pair starfi í Ameríku og síðar námsárunum þar. Hún sagði frá því hvernig hún fór að starfa í pólítikinni sem aðstoðarmaður ráðherra og síðar borgarfulltrúi. Í dag starfar Þorbjörg hjá eigin fyrirtæki sem heitir Trappa. Hún sagði frá því að hún væri allltaf með hugann við skólamál og hvernig við værum að keyra menntakerfið og við það starfar hún í dag.
    Sigurður Helgi Pálmason sagði frá uppvextinum í Garðabæ, áhuganum á safnaralífinu sem byrjaði þegar hann var mjög ungur. Hann sagði frá árunum sem hann starfaði í fiski og þegar hann fór á sjóinn, árunum sem flugþjónn en þar fékk hann tækifæri til að ferðast um framandi lönd. Hann sagði frá söngnum og starfinu sínu hjá myntsafni Seðlabankans og verkefninu framundan sem eru þættir sem sýndir verða á ruv og fjalla um líf safnara.
    2 hr 22 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners