Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Rokkstjórinn Kristján Freyr og leikstjórinn María Reyndal
    Kristján Freyr Halldórsson sem hefur starfað sem rokkstjóri tónlistarhátíðarinnar aldrei fór ég suður sagði frá uppvextinum í Hnífsdal, þegar hann starfaði sem bæjarfulltrúi fyrir vestan og árunum sem hann starfaði sem bóksali í Mál og menningu. Kristján hefur líka komið víða við í tónlistinni og starfað með fjölmörgum hljómsveitum og þótt hann búi nú í höfuðborginni elskar hann að fara vestur og nýtur þess að vera úti í náttúrunni þar.
    María Reyndal er leikkona, leikstjóri, kvikmyndagerðarkona og ýmislegt fleira. Hún ólst upp í norðurmýrinni í Reykjavík, hefur dvalið við nám og störf í Nýja - Sjánlandi og Bandaríkjunum og nú er fjölskyldan á leið í enn eitt ævintýrið til útlanda. María sagði frá nýjustu þáttunum sem hún leikstýrði en það eru Mannasiðir tveggja þátta sjónvarpsmynd sem sýnd var á ruv um páskana og fjallar um viðkvæm efni.
    2 hr 22 min
  • Þóra Jónsdóttir söngkona og lögfræðingur og Sigurður K. Kolbeinsson
    Þóra Jónsdóttir sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Laugalækjaskóla og Iðunni Steinsdóttur kennara sem hafði mikil áhrif á hana. Hætti í Versló og fór í fjölbraut í Breiðholti og kláraði stúdentspróf þaðan. Stofnaði heimili og var að vinna á ýmsum stöðum, söng með nokkrum hljómsveitum en ákvað að drífa sig í háskólanám árið 2007 og fór í lögfræði í HÍ. Starfar nú hjá Barnaheill og sem söngkona en hún ákvað loksins árið 2014 að koma út úr skápnum sem tónlistarmaður og fara að sinna þeirri list betur. Hefur hljóðritað tvö lög með Pálma Sigurhjartarsyni píanóleikara og er að undirbúa tónleikar sem verða á skírdag í Fríkirkjunni í Reykjavík.
    Sigurður K. Kolbeinsson sagði frá uppvextinum í Reykjavík og skólagöngu sem gekk vel alveg þar til hann kom í MS en þá voru það önnur verkefni sem tóku hug hans allan svo sem eins og félagslífið og veitingastaðurinn Hollywood. Sigurður starfar nú bæði á Íslandi og í Danmörku, bæði við ferðatengda þjónustu og á sjónvarpsstöðinni Hringbraut en ný þáttaröð hans og Friðþjólfs Helgasonar fer í sýningu eftir páska og er tileiknuð 65+ hópnum. Hann ræddi líka viðhorfin til lífsins, áhrifavalda og margt fleira.
    2 hr 22 min
  • Sváfnir Sigurðarson tónlistarmaður og Birgitta Birgisdóttir leikkona
    Sváfnir Sigurðarsson sagði frá uppvextinum í Kópavogi, hvernig hann eyddi mörgum stundum hjá Leikfélagi Kópavogs en foreldrar hans voru öflug í starfsemi leikfélagsins. Hann sagði frá ýmsum störfum sem hann fékkst við svo sem eins og malbikunarstörf, starfsmaður á Kópavogshæli, hjá verksmiðju Ora og mörgu öðru. Hann sagði frá draumnum um að verða tónlistarmaður sem aldeilis hefur ræst og í dag starfar hann jafnhliða að markaðsmálum og tónlist.
    Birgitta Birgisdóttir leikkona sagði einnig frá uppvextinum í Kópavogi og frá því þegar vinkonur hennar sóttu námskeið hjá leikfélaginu en ekki hún. Það var ekki fyrr en hún hætti í FG vegna þess að hún hafði ekki áhuga á hefðbundnu námi og taldi sig ekki þurfa stúdentspróf til að ná því sem hún ætlaði, að hún ákvað að skella sér í inntökupróf í leiklistarskólann. Í dag starfar Birgitta í Þjóðleikhúsinu og hefur farsælan feril að baki.
    2 hr 22 min
  • Linda Baldvinsdóttir samskiptaráðgjafi og Maríus Sverrisson söngvari
    Linda Baldvinsdóttir samskiptaráðgjafi og markþjálfi sagði frá lífi sínu og starfi. Hún hefur fengist við mörg og ólík verkefni á lífsleiðinni og miðlar nú af þeirri reynslu til fólks í þeim tilgangi að bæta líf þeirra. Hún var ung þegar hún stofnaði fjölskyldu en segist sjálf hafa gert meira sl. tíu ár en allt sitt líf fyrir utan auvitað að eignast og ala upp börnin sín.
    Maríus Sverrisson sagði frá uppvextinum og árunum í Austurbæjarskóla. Hann lærði ballet sem hjálpaði honum síðar á lífsleiðinni þegar hann hélt til Vínarborgar að læra söngleikjalist. Hann hefur verið búsettur í Austurríki, Þýskalandi, Sviss og Íslandi og flakkar á milli eftir því hvernig verkefnum hann er í hverju sinni. Nú stefnir hann á að taka upp geisladisk með íslenskum lögum en hvað morgundagurinn ber í skauti sér veit hann ekki enda hver dagur nýtt ævintýri.
    2 hr 22 min
  • Þorvaldur Bjarni tónlistarmaður og Bryndís Óskarsdóttir ferðafrömuður
    Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður og framkvæmdarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og sviðstjóri tónlistarsviðs Menningarfélags Akureyrar sagði frá uppvextinum í Reykjavík, menntaskólaárunum og tónlistarlífinu sem hefur einkennt hans líf alla tíð. Hann er klassíkst menntaður bæði á gítar, tónfræði og tónsmíðum og hefur alla tíð tengt klassíkina inn í þá tónlist sem hann hefur fengist við. Hann sagði frá tengslum sínum í Eurovision, og ræddi flutninginn með fjölskylduna norður og hvernig tónlistarlífið blómstar þar eystra.
    Bryndís Óskarsdóttir rekur ferðaþjónustuna í Skjaldarvík ásamt fjölskyldunni. Hún sagði frá því hvernig það kom til að þau hjónin ákváðu að söðla um og fara út í ferðaþjónustuna en þau höfðu lengi gengið með þann draum í maganum.
    2 hr 22 min
  • Vala Guðna og Runólfur Ágústsson
    Valgerður Guðnadóttir söng - og leikkona sagði frá uppvextinum í Langholtshverfinu, árunum í Versló, söngleikjunum sem hún fékk tækifæri til að taka þátt í og söngnáminu sem hún stundaði hér heima og svo erlendis. Hún sagði frá fjölskyldunni en hún missti foreldra sína tiltölulega ung og systkinin stóðu þétt saman í gegnum það sorgarferli. Hún sagði frá dætrum sínum þremur, muninum á því að syngja klassísk og popp en Vala hefur fengist við hvoru tveggja.
    Runólfur Ágústsson verkefnastjóri og frumkvöðull ræddi uppvöxtinn í Fljótshlíðinni og skólagöngu á Selfossi. Hann fór í MH, starfaði hjá LR að loknu stúdentsprófi en fór síðan í lögfræði í Hí. Runólfur hefur fengist við ýmislegt m.a. verið rektor á Bifröst, starfaði við Keili, var umboðsmaður skuldara og ýmislegt fleira. Í dag starfar Runólfur sjálfstætt en hraðlest á milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur er eitt af verkefnunum ásamt stofnun Lýðháskóla á Flateyri.
    2 hr 22 min
  • Axel Ómarsson kántrýsöngvari og Linda Hilmarsdóttir í Hress
    Axel Ómarsson ólst upp í Texas og Oklahoma og hefur verið að skipa sér sess sem einn helsti kántrýsöngvari landsins að undanförnu. Hann sagði frá lífi sínu og starfi en hann hefur fengist við ýmislegt ss. eins og hótelstjórn, hestaútflutning og tamningar, í tölvugeiranum og ýmislegt fleira.
    Linda Hilmarsdóttir framkvæmdastjóri líkamsræktarstöðvarinnar Hress í Hafnarfirði sagði frá lífi sínu og starfi en hún hefur rekið stöðina í rúm þrjátíu ár. Hún ræddi áskoranir í lífinu og hversu mikilvægt það væri að skilja á milli vinnunar og áhugamála og fjölskyldunnar.
    2 hr 22 min
  • Anna Kristjáns og John Snorri
    Anna Kristjánsdóttir er íslendingum að góðu kunn en Anna lauk aðgerðarferli til leiðréttingar á kyni í Svíþjóð árið 1995 og vakti mikla athygli hjá þjóðinni enda ekki margir sem höfðu fetað þessa slóð á undan Önnu. Hún sagði frá uppvextinum í Reykjavík og Mosfellssveit, en Anna kemur úr stórri fjölskyldu sem bjó við þröngan kost svo hún þurfti að fara á fósturheimili í nokkur ár. Hún sagði frá sjómennskunni, hjónabandinu sem lauk með skilnaði en gaf af sér þrjú börn. Anna er sátt í dag starfar hjá Veitum og hefur gert síðan hún kom heim frá Svíþjóð.
    John Snorri Sigurjónsson sagði frá uppvextinum bæði í Mosfellssveit og síðar Ölfusi. Hann fór í Vélskólann, síðar fór hann sem skiptinemi til Bandaríkjanna og hefur líka lokið námi í viðskiptafræði frá Bifröst. Hann sagði frá viðskiptum sem hann stundaði í mörg ár sem gekk vel alveg fram að hruni en þá tapaði John Snorri nánast öllu í einu vetvangi auk þess að skulda heilmikið. Hann sagði frá fjölskyldunni en hann á sex börn, fjallgönguáhuganum en John komst á toppinn á K2 á síðasta ári sem telst mikið afrek. Í dag starfar hann m.a. sem fyrirlesari þar sem hann segir ferðasögur og því hvernig maður setur sér markmið og reynir að uppfylla þau m.a. með réttu hugarfari.
    2 hr 15 min
  • Unnur Jökulsdóttir og Baldur Öxdal
    Unnur Þóra Jökulsdóttir sagði frá uppvextinum í Flóanum og Reykjavík, skólagöngunni og árunum á skútunni Kríu með þáverandi sambýlismanni Þorbirni Magnússyni en samtals voru þau 5 ár á siglingu um heiminn og eru til tvær bækur um það ferðalag. Hún sagði frá lífi sínu og starfi eftir að hún kom úr heimsreisunni en Unnur hefur skrifað nokkrar bækur síðan, sú nýjasta heitir Undur Mývatns og fyrir hana hlaut Unnur íslensku bókmenntaverðlaunin á dögunum. Hún sagði frá tilurð bókarinnar, samvinnunni með Árna Einarssyni sem teiknar vatnslitamyndir í bókinni ásamt Margaret Davies.
    Baldur Öxdal veitingamaður sagði frá lífi sínu og starfi og því þegar hann ákvað að læra að verða matreiðslumaður og síðar konfektgerðarmaður. Hann hefur verið í íslenska landsliðinu, rak kaffihúsið í Ráðhúsi Reykjavíkur um árabil en rekur nú veitinarstaðinn Lindina á Laugarvatni. Hann er áhugamaður um veiði, helst skotveiði ásamt því að vera mikill áhugamaður um varðveislu gamalla húsa en hann er einmitt að gera upp eitt slíkt á Bakkafirði gamla kaupfélagshúsið og hyggst opna þar ferðaþjónustu á næstu misserum.
    2 hr 22 min
  • Hjálmar Örn Jóhannsson og Hrönn Sveinsdóttir
    Umsjón: Viktoría Hermannsdóttir. Gestir þáttarins voru þau Hjálmar Örn Jóhannsson og Hrönn Sveinsdóttir.
    Hjálmar Örn Jóhannsson sagði frá því hvernig hann lét drauminn rætast um að byrja vinna sem skemmtikraftur þegar hann var orðinn 36 ára gamall. Hann vann frá unglingsárum í fjölskyldufyrirtækinu Brimborg þar sem hann var sölustjóri notaðra bíla. Eftir hrun breyttist allt þegar ekkert var að gera lengur og hann setti inn auglýsingu á Bland þar sem hann bauðst til að skemmta sem jólasveinn. Þá fóru hjólin að snúast hægt og rólega, hann fór að vinna nokkrum árum síðar á leikskóla - starf sem hann elskaði en varð að hætta því launin voru svo lág. Hann byrjaði svo á samfélagsmiðlinum Snapchat þar sem hann fór að leika hinar ýmsu persónur og í dag vinnur hann við að skemmta fólki og var að leika í sinni fyrstu bíómynd í fullri lengd.
    Hrönn Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Bíó Paradís ræddi um starfið í bíóinu, hvernig hún nánast ólst upp í bíóinu, byrjaði að taka stuttmyndir og tónlistarmyndbönd með bróður sínum á unglingsárum, var farin að framleiða og leikstýra eigin sjónvarpsefni og heimildarmyndum fyrir tvítugt. Hún tók upp, framleiddi og klippti þættina Kolkrabbann ásamt bróður sínum sem voru á dagskrá RÚV. Í kjölfarið fóru þau að vinna á Skjáeinum. Hún talaði um tilurð þess að hún ákvað að taka þátt í fegurðarsamkeppninni Ungfrú Ísland.is og gera um það heimildarmynd sem fékk á sig lögbann. Hún sagði líka frá lífinu í Bandaríkjunum þar sem fór í nám og kynntist eiginmanni sínum.
    2 hr 22 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners