Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Baldur Þórir Guðmundsson og Edda Björgvins
    Baldur Þórir Guðmundsson sonur hjónanna Maríu Baldursdóttur og Rúnars Júlíussonar sagði frá uppvextinum í Keflavík, tónlistinni í lífi hans og fjölskyldunnar, árunum sem kennari og markaðstjóri í Sparisjóðnum og ýmsu fleiru. Hann sagði frá Geimsteini sem er safn og upptökuver sem er tileinkaði minningu Rúnars enda er þar að finna margt sem tengdist ferli hans.
    Edda Björgvins sagði frá lífi sínu og starfi og uppvextinum, árunum í MH og síðar leiklistarskólanum. Hún ræddi ferlinn, húmorinn, fjölskylduna og ýmislegt fleira og ekki síst hvað hún gerir til að koma sér í gott skap ef hún á einhverja slæma daga.
    2 hr 15 min
  • Eliza Reed forsetafrú
    Eliza Reed forsetafrú sagði frá uppvextinum í Kanada, en hún ólst upp á sveitabæ og naut lífsins í fallegu umhverfi. Hún sagði frá háskólanáminu í Kanada og framhaldsnámi í Oxford þar sem hún kynntist Guðna forseta. Hún sagði frá ferðalögum vítt og breytt en hún hefur ferðast talsvert ein síns liðs þannig segir hún að séu meiri líkur á að kynnast fólki. Hún sagði frá því þegar hún bað Guðna að giftast sér, fyrsta skiptinu sem hún kom til Íslands og síðan ræddi hún lífið sem forsetafrú og hvaða málefni hún vill leggja áherslu á í lífi sínu og starfi.
    2 hr 15 min
  • Sögur frá Tenerife og Suður - Afríku
    Snæfríður Ingadóttir sagði frá uppvextinum á Akureyri, frá því þegar hún flutti að heiman fyrst til Reykjavíkur og síðar sem Au- pair til Frankfurt í Þýskalandi. Hún sagði frá því hvernig var að alast upp hjá móður sem var Votti Jehova og ýmsu sem tengdist æskuárunum á Akureyri. Snæfríður fór síðan í menntaskólann á Egilsstöðum og útskrifaðist þaðan og síðar útskrifaðist hún frá blaðamannaháskólanum í Oslo. Snæfríður sagði frá blaða - og fréttamennskunni en hún hefur bæði starfað á dagblöðum sem og fyrir útvarp og sjónvarp. Hún sagði síðan frá íbúðaskiptum en hún hefur ásamt fjölskyldu sinni margoft skipt á íbúðum og hefur mikið dvalið á Kanaríeyjum og nú var Snæfríður að senda frá sér bók um Tenerife.
    Guðmundur A. Þorvarðarson blómaskreytir og Vilhjálmur Guðjónsson stoðtækjasmiður sögðu frá lífshlaupi sínu sem rak þá til Suður Afríku þar sem þær ráku hótel í tíu ár. Þeir ræddu menningarmun landanna, reynsluna sem dvölin hafði og hvernig það var að snúa aftur heim. Þeir sögðu líka frá ferð til Suður Afríku sem fyrirhuguð er í október en þeir verða fararstjórar í þeirri ferð.
    2 hr 15 min
  • Kristín Linda og lífsviðhorfin og Einar Scheving og tónlistin
    Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur og ritstjóri Húsfreyjunnar sagði frá uppvextinum í Þingeyjarsýslu, og heimavistinni sem hún fór í strax í Barnaskóla og hvaða áhrif það hafði á ung börn að fara að heiman. Hún sagði frá þjónastarfinu á Bautanu, bankaárunum og því þegar hún starfaði sem blaðamaður á Degi á Akureyri. Síðar flutti hún ásamt fyrrverandi eiginimanni í Aðaldalinn og tók við stóru kúabúi og starfrækti það þar til hún ákvað að fara í nám. Í dag starfar Kristín Linda sem sálfræðingur og rekur eigin stofu auk þess að ritstýra Húsfreyjunni.
    Einar Scheving sagði frá uppvextinum í Reykjavík, áhugamálunum og fjölskyldunni.
    2 hr 15 min
  • Hrefna Rósa Sætran og Hlynur Sigurðsson
    Hrefna Rósa Sætran sagði frá uppvextinum í Breiðholti og síðar Grafarvogi og miðbæ Reykjavíkur. Hún sagði frá dansinum en hún æfði og keppti í dansi frá unga aldri. Hún sagði frá námsárunum og áhuganum á matreiðslu sem kviknaði snemma en hún áttaði sig ekki á því á þeim tíma að þetta væri hægt að læra að verða kokkur og hvað þá ef maður er kona. Hún sagði frá fyrstu árunum í náminu í matreiðslu, árunum með landsliðinu veitingastöðunum sem hún á og rekur og fjölskyldunni.
    Hlynur Sigurðsson fjölmiðlamaður sagði frá lífi sínu og starfi uppvextinum í Hafnarfirði, skiptinemaárinu í Danmörku, ársdvöl á Spáni sem hófst rétt áður en tvíburaturnarnir voru flognir niður og ýmsu fleiru. Hann sagði frá starfi sínu sem fréttamaður hjá ruv, og frá eigin framleiðslu á sviði sjónvarpsþátta og auglýsinga.
    2 hr 22 min
  • Bjarni Hafþór Helgason og Anna Gunnhildur Ólafsdóttir
    Bjarni Hafþór Helgason sagði frá uppvextinum á Húsavík og síðar menntaskólaárunum á Akureyri, fótboltanum með Völsungi. Þór og Víkingi. Hann sagði frá viðskiptafræðináminu og því sem hann tók sér fyrir hendur að því loknu. Hann hefur starfað hjá fjölmörgum fyrirtækjum í fjármálageiranum og síðar við fjölmiðla. Hann hefur samið tónlist í mörg ár og nú var hann að senda frá sér safn með lögunum sem hann hefur samið og sett í nýja búninga og fengið til liðs við sig landslið Ísland í söng og hjóðfæraleik. Safnið heitir Fuglar hugans. Hann sagði frá lífsgildunum, fjölskyldunni, áhugamálunum og ýmsu fleiru.
    Anna Gunnhildur Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri Geðhjálpar sagði frá uppvextinum í Hlíðunum í Reykjavík, menntaskólaárunum í MH, íslenskunáminu í HÍ, blaðamennskunni hjá Morgunblaðinu og ýmsu fleiru. Anna hefur fengist við ýmislegt um ævina, starfaði hjá Reykjavíkurborg um árabil, en starfar nú sem framkvæmdarstjóri hjá Geðhjálp og segir það áhugavert og fjölbreytt starf og verkefnin næg.
    2 hr 22 min
  • Óskar Guðmundsson og Linda Ásdísardóttir
    Óskar Guðmundsson rithöfundur, og sjóntækjafræðingur sagði sögur úr Garðabæ, Stuttgart og Reykjavík. Hann sagði frá listsköpun sinni en Óskar hefur teiknað frá unga aldri og haldið eina málverkasýningu. Hann sagði frá því þegar hann ákvað að hætta að skrifa bara fyrir skúffuna og hvernig hann vann markvissta að skrifum fyrstu skáldsögunnar Hilmu sem kom út árið 2015. Nú hefur önnur bók litið dagsins ljós en hún heitir Blóðengill.
    Linda Ásdísardóttir sagði frá uppvexti í Hafnarfirði og því þegar hún fór að heiman sextán ára gömul á vertíð austur á Höfn. Erfiðar heimilisaðstæður gerðu það að verkum að hún kaus að flytja að heiman svona ung. Hún hefur ferðast víða, starfað í Noregi og Svíþjóð en flutti svo heim til Íslands fyrir 23 árum síðan og hefur búið á Eyrabakka síðan og starfar nú sem safnvörður á byggðasafni Árnesinga.
    2 hr 22 min
  • Þórarinn Ævarsson og Bragi Þór Hinriksson
    Þórarinn Ævarsson framkvædarstjóri Ikea á Íslandi sagði frá uppvextinum í Kársnesinu í Kópavogi hvar faðir hans Ævar Jóhannesson eldaði lúpínuseyði og gaf veiku fólki. Þórarinn lærði til bakara og starfaði við þá iðn í 10 ár en færði sig svo yfir til Dominos á Íslandi og stýrði því fyrirtæki í nokkur ár bæði hér heima og síðar í Danmörku þar sem fyrirtækið opnaði nokkrar starfsstöðvar. Eftir heimkomu starfaði Þórarinn hjá Dominos þar til hann ákvað að hætta þar, síðar bauðst honum starfið hjá Ikea. Hann nýtir frítíma sinn í að sigla og veiða og fjölskyldan stundar skíði á veturna og dvelur þá oft á Siglufirði þar sem þau eiga hús.
    Bragi Þór Hinriksson kvikmyndagerðarmaður og leikstjóri sagði frá uppvextinum í Reykjavík, Akureyri og Kópavogi. Hann sagði frá því hvernig var að eiga frægan fótboltamann sem föður og skilnaði foreldranna sem hafði mikil árif á Braga, sem hann hefur verið að vinna mikið úr síðan. Hann sagði frá verkefnunum í kvikmyndaheiminum, myndirnar um Sveppa, Loforð sem var sýnt á ruv og hefur verið mikið lofað og verðlaunað en þættirnir fjalla um skilnað foreldra út frá sjónarhorni barnanna. Síðast en ekki síst sagi Bragi frá nýjast verkefninu Víti í Vestmannaeyjum sem slær hvert aðsóknarmetið af fætur öðru.
    2 hr 22 min
  • Ásta Sigríður Fjeldsted og Ólafur Egill Egilsson
    Ásta Sigríður Fjeldsted sagði frá uppvextinum í Breiðholtinu, Ölduselsskóla og Menntaskólanum í Reykjavík. Hún sagði frá því þegar hún ákvað að taka hlé frá verkfræðinámi og halda til Frakklands en Ásta hefur dvalið meira og minna í útlöndum síðustu 15 árin en er nú komin heim og stýrir Viðskiptaráði Íslands.
    Ólafur Egill Egilsson sagði frá uppvextinum í Reykjavík, árunum í Austurbæjarskóla og síðar Menntaskólanum í Reykjavík. Hann fór svo í leiklistarskólann og hefur leikið hér og þar en starfar nú aðallega sem leikstjóri og handritshöfundur auk þess að vera handritaráðgjafi í hálfu starfi hjá ruv.
    2 hr 22 min
  • Hróbjartur Jónatansson og Kristín Stefánsdóttir
    Hróbjartur Jónatansson lögmaður sagði frá uppvextinum í smáíbúðarhverfinu hvar hann ólst upp hjá ömmu sinni og afa. Hann sagði frá menntaskólaárunum, leiklistinni sem hann fékkst við á þeim tíma og útvarpsmennskunni en hann starfaði um tíma á rás eitt og síðar rást 2 þegar hún kom til sögunnar. Síðan ræddi hann lögmennskuna, fjölskylduna og tónlistina en hún er ómissandi þáttur af lífi hans en hann hefur samið nokkur lög sem hann hyggst gefa út á plötu á þessu ári.
    Kristín Stefánsdóttir tannlæknir sagði frá lífi sínu og starfi og því þegar hún ákvað að sinna tónlistargyðjunni en hún undirbýr nú tónleika sem verða í Salnum í Kópavogi á næstunni.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners