Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Nichole Leigh Mosty og Logi Bergmann
    Gestir Viktoríu Hermannsdóttur voru Nichole Leigh Mosty, fyrrverandi þingmaður og leikskólastjóri, og Logi Bergmann Eiðsson, fjölmiðlamaður. Nichole talaði um æskuna í Bandaríkjunum þar sem hún fæddist og er alin upp, bróðurmissinn sem breytti öllu, hvernig það er að vera einangraður innflytjandi á Íslandi, fordómar sem innflytjendur mæta, höfnunina við að detta af þingi og hvernig hún hefði viljað klára málin sem hún var byrjuð á. Hún ræddi einnig um reynslu kvenna af erlendum uppruna af því að búa á Íslandi og sagði frá þvi að á næstu dögum munu sögur þeirra kvenna birtast undir myllumerki #metoo. Þar séu margar ófagrar sögur. Hún talaði einnig um það sem er framundan og sagði frá nýju starfi sínu.
    Logi Bergmann Eiðsson talaði um lífið og ferilinn. Æskuárin í gerðunum, fótboltann og handboltann, þegar hann var rekinn úr Réttó, hvernig fjölmiðlaferillinn byrjaði. Árin á RÚV, Stöð 2 og svo lögbannið sem hann hefur verið í undanfarna mánuði. Hann er á tímamótum og hefur bráðum störf á nýjum stað. Hann ræddi það skemmtilegasta við starfið og kjaftasögurnar sem hann verður ekki var við.
    2 hr 22 min
  • Björn Berg Gunnarsson og Anna Hildur Hildibrandsdóttir
    Björn Berg Gunnarsson fræðslustjóri Íslandsbanka sagði frá uppvextinum í vesturbænum, en hann er lang ynstur fjögurra systkina. Hann sagði frá áhuganum á fjármálum sem kviknaði snemma, árunum í Verslunarskólanum og síðar í viðskiptafræðinni í HR. Hann hóf störf í Glitni og hefur starfað nær óslitið í bankanum sem i dag heitir Íslandsbanki. Hann segir að íslendingar eigi að stefna að því að verða fjármálalæsasta land í heimi. Anna Hildur Hildibrandsóttir er sagði frá uppvextinum í Garðabænum og hvernig henni tókst að næla sér í íslenskan kærasta í Svíþjóð. Hún hefur starfað sem fréttaritari bæði á Bylgjunni og síðar ruv. Hún skrifaði ævisögu Gísla Guðjónssonar réttarsálfræðings, en hefur starfað lengst af við útflutning á íslenskri tónlist. Í dag starfar hún í fyrirtæki sem hún á ásamt tveimur bretum og heitir Tattarrattatat og flakkar á milli Bretlands og Íslands árið um kring.
    2 hr 15 min
  • Elín Ebba í Hlutverkasetri og Ingvar Jónsson markþjálfi
    Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi sagði frá lífi sínu og starfi. Hún lærði iðjuþjálfun í Noregi þar sem hún kynntist eiginmanni sínum Joni Kjell Seljeseth arkitekt og tónlistarmanni. Hún ræddi geðsjúkdóma og fordómana í garð þeirra sem glíma við slíka sjúkdóma og þótt margt hafi breyst er enn langt í land. Hún hefur starfað á hinum ýmsu stofnunum tengd iðjuþjálfun geðsjúkra en rekur nú Hlutverkasetur sem er opin virknimiðstöð.
    Ingvar Jónsson markþjálfi og fyrrverandi söngvari í Pöpum sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, námsárunum í framhaldsskóla, árunum sem trúbator og síðar með Pöpum. Hann ræddi alvarleg veikindi sem hann glímdi við, baráttuna við Bakkus sem hann sigraði að lokum og þegar hann dreif sig í nám til Danmerkur rétt fyrir efnahagshrunið á Íslandi. Ingvar ræddi líka nýútkomna bók sem ber heitir Sigraðu sjálfan þig sem hann sendi frá sér á dögunum
    2 hr 22 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners