Platan Cosmic Cedar með hljómsveitinni The Ghost Choir er bara rétt ókomin í búðir en við fáum að heyra aðeins um pælingarnar á bak við plötuna og samstarf þessara ólíku tónlistarmanna. Hannes Helgason hljómborðsleikari sem segir okkur frá spunatónlist, frídjassi og áhrifum frá fornum menningarheimum.
Kolbeinn Rastrick flytur pistil um kvikmyndina Decision to Leave í leikstjórn Park Chan-wook sem er hvað þekktastur fyrir Hefndarþríleikinn og kvikmyndina Oldboy.
Við kíkjum líka á bókina The Chaos Machine eftir Max Fisher og fáum Gauk Úlfarsson til okkar til að ræða djúpstæð áhrif samfélagsmiðla á heiminn.