
Sign up to save your podcasts
Or

The most played episodes among Podcast App listeners.

Íslenskir ferðamenn hafa stigið fram og lýst reynslu sinni af því að hafa verið sviknir í viðskiptum með leiguhúsnæði í Alicante á Spáni. Fyrirtækið sem um ræðir heitir Sammlind og eigandi þess Samúel Jón Samúelsson. Fólkið hefur lýst því hvernig það borgaði mörg hundruð þúsund eða jafnvel milljónir fyrir leiguíbúðir sem það fékk svo aldrei. Gögn frá spænskum yfirvöldum og fréttir í þarlendum fjölmiðlum sýna hvers algeng slík svik í ferðamannageiranum í landinu eru. Rætt er við tvö af fórnarlömbum Sammlindar og fjallað um þetta leigusvikamál í víðara samhengi. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Tvö vegleg brot úr verkinu Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana til sýnis á Listasafni Reykjanesbæjar. Brotin hafa varðveist eftir að listaverkið var sprengt í loft upp á nýársnótt 1960. Á sýningunni kemur fram að brotin séu í einkaeigu en þó eru þau skráð sem eign Listasafn Reykjavíkur. Í Þetta helst verður sögð saga brota af einu umdeildasta listaverki Íslands, hvernig það var uppgötvað fyrir tíu árum að þau væru horfin úr geymslu listasafnsins og leitað svara hvort það sé rétt að listasafnið hafi ætlað að farga þeim fyrir aldarfjórðungi eða hvort það sé vegna misskilnings að brotin eru nú stofustáss á Suðureyri. Umsjón: Erla Björg Gunnarsdóttir

Matvælastofnun fjarlægði mörg hundruð dýr af sveitabænum Brimnesi í Eyjafirði í sumar vegna vanhirðu og slælegrar meðferðar. Bæði var um að ræða kindur, hross og hrúta segir bóndinn á bænum, Arnar Gústafsson. Hann segir stofnunina meðal annars hafa fjarlægt 450 kindur, 26 hrúta og 36 hross. Kindurnar voru færðar í sláturhús um helgina, segir Arnar, og hrútunum var lógað og þeir notaðir í moltu segir bóndinn. Matvælastofnun hefur reynt að selja hrossin eftir að þetta inngrip átti sér stað og einhverjum mun hafa verið lógað. Að mati Arnars fer MAST fram með ofríki og einelti í málinu og telur hann að ríkisstofnunin ætli sér að knésetja hann og hans búskap í Brimnesi. Rætt er við Arnar og forstjóra Matvælastofnunar, Hrönn Jörundsdóttur í þættinum. Hrönn segir sjaldgæft að stofnunin fari í vörslusviptingu á dýrum á sveitabæjum og að þetta sé þrautalending þegar önnur úrræði hafa ekki dugað. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, greindi frá því í Vikulokunum á laugardaginn að frumvarp um að draga úr vægi verðtryggingar verði lagt fram í haust. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðing Íslandsbanka, og Jónas Atla Gunnarsson, hagfræðing Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, um áhrif þess að takmarka lengri verðtryggð lán og setja skilyrði um lágmarks eignamyndun. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Eitt stærsta mögulega skattamál Íslandssögunnar er nú á borði skattayfirvalda. Skatturinn hefur sent nokkrum bílaleigum hér á landi bréf og sagt þeim frá því að til skoðunar sé að krefja einhverjar þeirra um virðisaukaskatt af tekjum þeirra vegna sölu á vátryggingum aftur í tímann. Ef Skatturinn endurákvarðar skattgreiðslur þessara bílaleiga getur heildarupphæðin numið allt að 25 milljörðum króna. KPMG er að vinna fyrir nokkrar af stærstu bílaleigum landsins í málinu. Lögfræðingurinn Kristinn Jónasson, segir að bílaleigurnar hafi verið í góðri trú í málinu og að þæt hafa leitað ráðgjafar hjá bæði Skattinum og skattasérfræðingum í málinu. Rætt er við Kristinn um deiluna við Skattinn. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
The podcast currently has 829 episodes available.

443 Listeners

144 Listeners

23 Listeners

129 Listeners

89 Listeners

20 Listeners

30 Listeners

19 Listeners

30 Listeners

20 Listeners

33 Listeners

17 Listeners

7 Listeners

28 Listeners

16 Listeners