
Sign up to save your podcasts
Or


Velkomin/nn í þáttinn Ekki tabú
Í þáttunum ´Ekki tabú´ mun hún Sjana Rut m.a. fjalla um erfið í bland við létt en óþægileg málefni, forvarnir og umræðuefni sem af mörgum talin eru tabú og mun hún nálgast þau á uppbyggilegan, jákvæðan og fræðandi hátt.
Markmið þáttarins er að gera tabú umræðuefni ‘ekki tabú’ og opna fyrir umræðuna í gegnum almennt spjall, viðtöl, reynslusögur og fleira...
þáttastjórnandi : Sjana Rut Jóhannsdóttir
Tölum saman og rjúfum þögnina
#EkkiTabu
http://www.thuskiptirmali.is
Velkomin/nn í Verkfærakassann
Í þessum ellefta þætti verkfærakassans heimsækjum við Jóhönnu Jónasar Brennan heilara. Auk þess að spyrja hana nánar um Brennan heilun, forvitnumst við um ástæðurnar fyrir því að Jóhanna ákvað að yfirgefa leiksviðið og snúa sér að heilun og magadansi.
Áhugavert spjall við afar áhugaverða konu!
www.thuskiptirmali.is/
Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur landsþekkt tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Jóna Alla Axelsdóttir
www.tonasmidjan.is/
Í þáttunum Frelsi frá fíkn heyrum við reynslusögur frá vinum í bata.
www.thuskiptirmali.is/
Velkomin/nn í Verkfærakassann!
Í tilefni þess að Allraheilagramessa, einnig þekkt sem Samhain (Hátíð hinna dauðu) eða Hrekkjavaka í daglegu tali er nú nýliðin, er þessi tíundi þáttur Verkfærakassans helgaður reimleikum, draugagangi og ýmis konar óværu. Öll eigum við einhvers konar sögur af reimleikum eða þekkjum einhvern sem hefur frá slíku að segja. Til að fá nokkrar alvöru draugasögur beint í æð heimsótti Hrabbý þær mæðgur Ölmu Hrönn englareikimeistara og Hrönn Friðriksdóttir spámiðil auk þess sem hún leit í sóttfarinn kaffibolla til Vigdísar Steinþórsdóttur hjúkrunarfræðings. Allar höfðu þær frá merkilegum og skemmtilegum sögum að segja tengdum draugum, púkum, reimleikum og annarri óværu. - Njótið!
Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir.
www.thuskiptirmali.is/
Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur landsþekkt tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Elísabet Ólafsdóttir
www.tonasmidjan.is/
Velkomin/nn í Verkfærakassann!
Í þessum fyrsta þætti verður skyggnst inn í heim dáleiðslunnar og í þetta skiptið verður sjónum beint að fyrri lífa dáleiðslu. Í fyrri hluta þáttarins er tekið hús á Vigdísi Steinþórsdóttur hjúkrunarfræðingi en hún hefur sérhæft sig í þessari tegund dáleiðslu. Vigdís segir okkur frá þessu merkilega meðferðarformi og reynslu sinni af því, bæði sem meðferðaraðili og á sínu eigin persónulega ferðalagi til betra lífs. Í seinni hluta þáttarins er rætt við hana Írisi sem fór á vegum þáttarins til Vigdísar og prófaði dáleiðslu til fyrri lífa í fyrsta skiptið. Hún hefur margt áhugavert að segja sem gaman er að hlusta á.
Þáttarstjórnandi : Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Í þessum þáttum ætlum við að skoða ýmsar áhugaverðar leiðir til sjálfshjálpar, leiðir sem oft teljast óhefðbundnar eða fyrir utan normið. Leiðir sem af mörgum teljast framandi og jafnvel í sumum tilfellum forboðnar eða furðulegar. Við ætlum að setja á okkur spæjarahattinn og halda á stað í rannsóknarferð þar sem við hittum áhugavert fólk og fjölgum verkfærunum í sjálfshjálparkassanum okkar. Við hlökkum til að læra ýmislegt nýtt og spennandi og vonum að þið njótið ferðalagsins með okkur.
Velkomin/nn í Verkfærakassann
"Öll getum við líklegast kannast við það að hafa upplifað erfiða eða óþægilega orku. Meðal annars við komum inn í krefjandi aðstæður eða þurfum að takast á við einstaklinga sem draga úr okkur allan mátt svo við rétt náum að dröslast upp í sófa og kveikja á Netflix þegar að heim er komið. Svo eru það blessaðir draugarnir sem oft geta valdið miklum óþægindum. Margir kannast líklega við að hafa vaknað upp við framandi og óþægilega orku eða nærveru og fyllst ótta. En hvað er þetta sem við erum að skynja? Og hvað getum við gert til þess að hjálpa okkur að skilja OG vernda okkur betur fyrir þessu? Til að fá svör við þessum spurningum og mörgum fleiri leitaði Hrabbý aftur til Ölmu Hrannar englareikimeistara og miðils. - Í þessum fróðlega pistli talar Alma um verndarengla, dreka, drauga, umbreytingu orku, bænina og margt, margt fleira og kennir hlustendum ýmsar aðferðir til að takast á við erfiða orku".
Þáttarstjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
http://www.thuskiptirmali.is/
Í þáttunum FYRIRMYNDIR í tali og tónum fáum við til liðs við okkur landsþekkt tónlistarfólk sem spjallar við okkur og svara nokkrum spurningum m.a um jákvæðni, vináttu, sjálfsmynd o.fl. segja okkur sögur af sér og spila og/eða syngja sín uppáhaldslög. Gestur : Íris Hólm
www.tonasmidjan.is/
Í þessum áttunda þætti Verkfærakassans leitar Hrabbý svara við því af hverju við manneskjurnar og jörðin virðumst vera að ganga í gegnum mikið óróleikatímabíl. Stjörnuspekingar og andlegir spekúlentar tala um orkubreytingar sem helstu orsökina en hver er þessi orka sem er að breytast og í hverju felast breytingarnar? Hvernig hefur orkan áhrif á okkur og hvað þurfum við að gera til að finna jafnvægi? Til að ræða þessi mál kíkti Hrabbý aftur í heimsókn til Ölmu Hrannar englareikimeistara og miðils sem nýverið birti pistil á síðunni sinni um einmitt þetta viðfangsefni. Í seinni hluta þáttarins slæst Hrönn Friðriksdóttir spámiðill og móðir Ölmu í hópinn, dregur upp spilin og segir okkur aðeins frá því við hverju við megum búast af þessari umtöluðu orku næstu vikur og mánuði.
Þáttarstjórnandi Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
"Í þessum þáttum okkar skoðum við ýmsar áhugaverðar leiðir til sjálfshjálpar, leiðir sem oft teljast óhefðbundnar eða fyrir utan normið. Leiðir sem af mörgum teljast framandi og jafnvel í sumum tilfellum forboðnar eða furðulegar. Við ætlum að setja á okkur spæjarahattinn og halda á stað í rannsóknarferð þar sem við hittum áhugavert fólk og fjölgum verkfærunum í sjálfshjálparkassanum okkar. Við hlökkum til að læra ýmislegt nýtt og spennandi og vonum að þið njótið ferðalagsins með okkur".
www.thuskiptirmali.is
From the publisher's feed

8 Listeners

5 Listeners

4 Listeners

0 Listeners