Tilhugalífið hefur breyst töluvert á síðustu árum en stefnumótasmáforritið Tinder spilar stóran þátt í þeirri þróun. Fyrirbærið verður skoðað nánar í þættinum í dag. Heimildarmaður Lestarinnar verður Fanney Svansdóttir en hún skrifaði nýverið meistararitgerð í menningarfræði um framsetningu sjálfsins á Tinder. Atli Bollason fjallar í dag að gefnu tilefni um Hatara og Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva og hugað verður að nýrri kvikmynd. Sagt verður frá athyglisverðri tónlistarhátíð sem haldin verður á Borðeyri við Hrútafjörð, af öllum stöðum, í sumar. Hátíðin nefnist HÁTÍÐNI og það er listasamlagið og útgáfufélagið POST - DREIFING sem stendur að henni, þar koma fram fjölmargar hljómsveitir og tónlistarmenn sem eru að hasla sér völl á íslensku tónlistarsenunni um þessar mundir. Gestur þáttarins verður Bjarni Daníel Þorvaldsson tónlistarmaður og einn af forsprökkum POST - DREIFINGAR, og raunar meðlimur í einni af skemmtilegustu hljómsveit landsins um þessar mundir.
Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um vitundarvakningu og loftslagsbreytingar.