Á mánudögum í haust munu ólíkir einstaklingar úr ýmsum kimum íslensks samfélags setjast um borð í Lestina og segja frá bók sem þeim finnst varpa sérstaklega áhugaverðu eða gagnlegu ljósi á veröldina. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, ríður á vaðið í dag og segir frá bók sem skýrir heiminn. Hann velur bókina Quantum: Einstein, Bohr, og deilan mikla um eðli veruleikans eftir Manjit Kumar.
Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarpsþættina Undone. Í þáttunum ferðast aðalhetjan, Alma, um í tíma og rúmi í kjölfar bílslyss þar sem hún lætur næstum því lífið.
Við minnumst trommugoðsagnarinnar Gingers Baker sem lést í gær, en hann gerði meðal annars garðinn frægan með hljómsveitinni Cream. Kristján Frímann Kristjánsson segir frá manni sem var magnaður trommari, en umdeildur persónuleiki.
Og við ræðum um taktlausa Íslendinga.