Við byrjum á bók sem kom út i síðustu viku, Mið-Austurlönd: Fortíð, nútíð og framtíð. Höfundurinn, Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Bandaríkjunum, kemur í spjall um bókina.
Guja Dögg Hauksdóttir rýnir í uppbyggingu borgaryfirvalda á hinum svokölluðu þróunarreitum, í pistlaröð sinni um fagurfræði borgarinnar
Anna Kolfinna Kuran dansöfundur og Bjartey Elín Hauksdóttir dansari koma í heimsókn og segja frá verkinu Allar mínar systur sem verður frumflutt á danshátíðinni Unglingurinn í Reykjavík, á morgun.
Og við lítum inn á vinnustofu Sigurðar Guðjónssonar sem hlaut á dögunum íslensku myndlistarverðlaunin.
Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.