Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Auður Lóa, Berglind Rós um skapandi Íslendinga og bók vikunnar
    Berlinale sending frá Svölu Arnardóttur í Berlín.
    Sufijan Stevens syngur lagið Mystery of love.
    Vinnustofuheimsókn til Auðar Lóu Guðnadóttur sem fékk hvatningarverðlaunin á Íslensku myndlistarverðunum í síðustu viku.
    Yrsa Þöll Gylfadóttir les úr bók sinni, Móðurlífið - blönduð tækni. Það er bók vikunnar á Rás 1.
    Berglind Rós Magnúsdóttir tekin tali um rannsókn sem nú er unnið að í Kansas sem snýr að sköpunarkrafti á Íslandi.
    55 min
  • Prýðileg reiðtygi, listaverkaupplifun, fornleifar á skálholtsjörðinni,
    Við lítum við á Þjóðminjasafni Íslands þar sem verið er að setja upp sýninguna Prýðileg reiðtygi. Rætt við Ingunni Jónsdóttur safnafræðing.
    Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur segir frá rannsóknum á Skálholtsjörðinni.
    Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs. Auður Ava Ólafsdóttir og Sigurður Pálsson lesa úr verkum sínum.
    Brynja Cortes Andrésdóttir segir okkur frá bók vikunnar, skáldsögunni Óþægileg ást eftir Elenu Ferrante, sem var nýlega gefin út i þýðingu Brynju.
    Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands segir okkur frá listaverkum sem hafa hreyft við henni.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Frönsk tónlist, norrænar kvikmyndir, gervigreind og fagurfræði borgari
    Við byrjum á því að trufla aðeins æfingu hjá hjá píanóleikaranum Aladár Racz og klassíska saxafónleikaranum Guido Bäumer en þeir skipa dúettinn Duo Ultima sem er með tónleika í Norræna húsinu í kvöld.
    Við kynnum okkur gervigreind og listsköpun út frá hugleiðingum um efnið sem kviknuðu vegna sýningar í Japan.
    Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt flytur pistil um borgina og borgarlandslag. Guja Dögg mun á næstu vikum flytja okkur pistla og leggja orð í umræðuna um arkitektúr, fagurfræði og borgarskipulag. Hennar fyrsta viðfangsefni er svæðið umhverfis Háskóla Íslands.
    Við rennum líka við í norska sendiráðinu og hittum þar Silje Betie Löken til að heyra af norrænni kvikmyndahátið sem hefst á morgun.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Alþýðulist á hjara veraldar, Myndlist í Neskirkju, Sjónarhorn í Safnah
    Í Víðsjá dagsins verður fjallað um alþýðulist á hjara veraldar en nú stendur yfir söfnun á Karolinafund til að ljúka við uppbyggingu á verkum Samúels Jónssonar úr Selárdal. Rætt verður við Ólaf Engilbertsson um uppbyggingu á svæðinu og Sólveigu Ólafsdóttur, sem ólst að hluta til upp með listaverkum Samúels í Selárdal.
    Einnig verður rætt við myndlistarmanninn Kees Visser um sýningu á hans á fjórtán krossamyndum í Neskirkju.
    Starkaður Sigurðarson fjallar um sýninguna sjónarhorn í Safnahúsinu og Brynja Cortes Andrésardóttir þýðandi les úr skáldsögu Elendu Ferrante, Óþægileg ást, sem kom nýverið út í íslenskri þýðingu Brynju.
    55 min
  • Clementi og Collins, Elina Bortherus , Helga Óskarsdóttir og Flórída
    Helga Óskarsdóttir, ritstýra vefritsins Artzine, segir okkur frá verkunum sem breyttu lífi hennar.
    Á Listasafni Íslands er Birta Guðjónsdóttir að setja upp sýningu á verkum Elinu Bortherus. Hin finnska Brotherus er af mörgum talin vera einn mikilvægasti ljósmyndari samtímans og BIrta segir okkur betur frá verkunum á sýningunni sem öll eru tekin á síðastliðnum tveimur árum.
    Við segjum eilítið frá hljómsveitarstjóranum Osmo Vänska, sem var aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands um skeið á 10. áratugnum, en hann stýrir sveitinni á tónleikum í kvöld og annað kvöld.
    Og hvað skyldi nú tengja átjándu aldar tónskáldið Muzio Clementi og popptónlistarmanninn Phil Collins? Arndís Björk Ásgeirsdóttir leiðir okkur í allan sannleikan um þau tengsl í sínum fyrsta pistli fyrir Víðsjá. Arndís mun héðan í frá flytja okkur reglulega pistla um forvitnilega atburði úr tónlistarsögunni.
    Og Bergþóra Snæbjörnsdóttir segir okkur frá ljóðabók sinni Flórída, sem er bók vikunnar ár Rás1.
    55 min
  • Ljósmyndasýning um tíma og tímaleysi, Shakespeare, myndlist í Árbæjars
    Hvernig á að mála málverk af valdafólki? Við veltum því fyrir okkur að gefnu tilefni, en ný portrett af Obama-hjónunum voru afhjúpuð í vikunni.
    Við heimsækjum Árbæjarsafn þar sem útskriftarnemar úr listaháskólanum hafa dvalið, starfað og rannsakað undanfarnar vikur undir handleiðslu Margrétar Bjöndal, myndlistakonu og kennara. Við hittum Margréti, Berglindi Hreiðarsdóttur, Guðrúnu Sigurðardóttur og Svanhildi Höllu Haraldsdóttur.
    Shakespeare stal öllu steini léttara, segja sumir, við heyrum af nýjustu rannsóknum á því hvað varð leikritaskáldinu að innblæstri.
    Og við lítum við í gallerí i8 þar sem ljósmyndarinn Orri Jónsson opnaði sýningu um nýliðna helgi. Á sýningunni gefur að líta verk sem samanstendur af ljósmyndum sem Orri hefur tekið af fjölskyldu sinni yfir 30 ára tímabil.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Listin í borginni, barnabækur, rússneska byltingin á Íslandi og Flóríd
    Rætt við Guðfinnu Mjöll Magnúsdóttur hönnuð um barnabækur en hún er sýningarstjóri sýningarinnar “Áhrifavaldar æskunnar - barnabækur fyrr og nú“ í Bókasafni Kópavogs.
    Við heimsækjum myndlistarkonuna Þórdísi Erlu Zoega og fáum að heyra af veggteppum sem hún málar á striga en líka á húsveggi.
    Bergþóra Snæbjörnsdóttir les ljóð úr ljóðabók sinni Flórída, sem kom út fyrir jól og var tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna.
    Einnig er rætt við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðing um komu rússnesku byltingarinnar til Íslands en Ragnheiður er ein höfunda í nýju Riti, tímariti Hugvísindastofnunar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Joseph Beuys, Dora Bruder, Þýskt dvergleikhús og Áslaug Agnarsdóttir
    Áslaug Agnarsdóttir þýðandi segir frá verkunum sem breyttu lifi hennar til hins betra
    Rætt við Torfa Tulinius bókmenntafræðing um bók vikunnar, Doru Bruder eftir franska nóbelskáldið Patrick Modiano í þýðingu Sigurðar Pálssonar.
    Svala Arnardóttir flytur pistil frá Berlín um minnsta leikhús Þýskalands.
    Um þessar mundir standa yfir þýskir dagar í Bíó Paradís og meðal þess sem boðið er upp á er heimildamynd um myndlistarmanninn Joseph Beuys. Við kynnum okkur manninn, hittum myndlistarkonuna Rúrí og skoðum myndaalbúm heima hjá Gunnari Kristjánssyni doktor í guðfræði og bókmenntafræði en hann hitti Beuys og heillaðist af honum.
    55 min
  • Ástin, umdeild lög í Póllandi, grasafræðingurinn Goethe og Dora Bruder
    Rætt við Guðmund Hálfdánarson um nýsamþykkt lög í Póllandi sem banna að pólskir þegnar séu bendlaðir við helförina.
    Þóra Ellen Þórhallsdóttir segir frá Goethe og grasafræði hans. Málþing verður haldið um Goethe og margar hliðar á starfi hans um næstu helgi.
    Lesið úr bók vikunnar: Dora Bruder eftir Patrick Modiano.
    Rætt við Elísabetu Jökulsdóttur, Charlottu Bøwing og Laufeyju Elíasdóttur um leikverkið Ahhh sem frumsynt verður á föstudag í Tjarnarbíói.
    55 min
  • María Ramos, Uppruni heimsins á facebook, Patrick Modiano og Vigfús Si
    Franskur kennari mætti nýlega lögræðingum Facebook í réttarsal vegna ritskoðunar samfélagsmiðlarisans. Málið snýst um verkið Uppruna heimsins frá árinu 1886.
    Rætt er við Maríu Ramos hjá útgáfufélaginu Partus. María segir okkur frá bókinni og les úr henni.
    Gauti Kristmannsson rýnir í Doru Bruder eftir franska rithöfundinn Patrick Modiano í þýðingu Sigurðar Pálssonar.
    Árni Hjartarson jarðfræðingur segir frá ferðum Vigfúsar Sigurðssonar grænlandsfara sem fór í fræga leiðangra til Grænlands 1912 og 1930 en nú hafa dagbækur Vigfúsar verið gefnar út.
    Umsjón Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min