Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Timothy Morton, Kristín Helga, Aðalheiður Atladóttir og Myrkir
    Rætt við Sigrúnu Hrólfsdóttur, deildaforseta myndlistardeildar Listaháskólans og Björn Þorsteinsson heimspeking, um heimspekinginn Tomothy Morton. Morton er einn af þekktustu fræðimönnum samtímans á sviði hugvísinda og hefur getið sér gott orð fyrir skrif sín um náttúruna á tímum mannaldar og póst-húmanisma.
    Rætt við Kristínu Helgu Gunnarsdóttur rithöfund um skáldsöguna Vertu ósýnilegur, en hún er bók vikunnar á Rás1.
    Ingibjörg Eyþósdóttir tónlistarfærðingur segir frá sinni upplifun af Myrkum músíkdögum.
    Aðalheiður Atladóttir arkitekt segir frá listaverkunum sem breyttu lífi hennar.
    Og sagt er frá því hvaða fræðirit eru tilnefnd til að hljóta viðurkenningu Hagþenkis.
    55 min
  • Lopapeysan, Ljósmyndaskólinn, Paul Robeson, Nýlistasafnið
    Í Víðsjá dagsins er rætt við Ásdísi Jóelsdóttur, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, um sögu íslensku lopapeysunnar. Ásdís gaf nýlega út bókina Íslenska lopapeysan. Uppruni, saga og hönnun og er það fyrsta ritrýnda fræðiritið um hannyrðir á Íslandi.
    Litið er við á Læknaminjasafn Seltjarnarness þar sem sjö konur úr Ljósmyndaskólanum sýna útskriftarverk. Sólveig Jónsdóttir segir frá verki sínu sem fjallar um heimabæ hennar, Þórkötlustaðahverfið á Reykjanesi.
    Þorgerður Ólafsdóttir flytur pistil um Nýlistasafnið. Þetta eru fyrslu "skilaboðin frá Nýló" á 40 ára afmælisári safnsins.
    Þorgerður Ólafsdóttir flytur pistil um Nýlistasafnið. Þetta eru fyrslu "skilaboðin frá Nýló" á 40 ára afmælisári safnsins.
    Einnig er fjallað um bandaríska bassasöngvarann Paul Robeson í tilefni að útkomu tveggja nýrra ævisagna um hann.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir
    55 min
  • Danskur þjóðminjavörður, Medea, söfn og innflytjendur og Vertu ósýnile
    Í Víðsjá í dag verður rætt við Arndísi Bergsdóttur um söfn, fólksflutninga og innflytjendur en hún stýrði á dögunum málþingi um þetta efni. Sagt verður frá nýjum þjóðminjaverði Dana, Rane Willerslev, sem hefur fengið um sig sinn eigin raunveruleikaþátt í danska sjónvarpinu. María Kristjánsdóttir segir skoðun sína á leiksýningunni Medeu í Borgarleikhúsinu og Kristín Helga Gunnarsdóttir les brot út skáldsögu sinni Vertu ósýnilegur, sem er bók vikunnar á Rás 1.
    55 min
  • Hlökk og Hulda, ljósmyndun, Guðrún frá Lundi og Grænmetisætan.
    Í Víðsjá dagsins verður litið á æfingu hjá Listahópnum Hlökk og forvitnast um hljóðfærið Huldu, sem gefur ekki aðeins frá sér hljóð heldur líka ljós. Hlökk mun frumflytja ný verk á Myrkum músíkdögum sem hefjast í dag. Tónlistarkonurnar Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir og Ragnheiður Erla BJörnsdóttir skipa listahópinn Hlökk.
    Rætt verður við Louise Wolthers um eftirlit, list og ljósmyndun. Louise var gestur Ljósmyndahátíðar Reykjavíkur í síðustu viku þar sem hún flutti erindi um efnið.
    Einnig er rætt við Droplaugu Benediktsdóttur um Guðrúnu frá Lundi en nú stendur yfir sýning á ævistarfi þessa afkastamikla rithöfundar á Borgarbókasafni Reykjavíkur.
    Og Ingunni Snædal, þýðandi Grænmetisætunnar, sem er bók vikunnar á Rás1, segir hlustendum frá sinni upplifun af bókinni.
    Umsjónarmenn eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Kaffi, myndlist, ull, listaverk sem breyta lífi þínu og myndlistarrýni
    Við byrjum í Bismút gallerí við Hverfistgötu og ræðum við Ragnar Má Nikúlásson og Hrund Atladóttur.
    Gunnar Karel Másson, tónskáld og listrænn stjórnandi Myrkra músíkdaga, segir okkur frá listaverkunum sem breyttu lífi hans.
    Myndlistarrýnir Víðsjár Starkaður Sigurðarson fór á nokkrar sýningar um helgina. Hann ætlar að segja okkur hvaða pælingar og tengingar fóru af stað í huga hans.
    Og við heimsækjum Ráðhildi Ingadóttur myndlistarkonu sem opnaði sýningu í Hafnarborg um síðustu helgi. Þar koma búddismi, draumar og ullin af sauðkindinni við sögu.
    Umsjónarmenn þáttarins: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Málaralist á 19.öld, tónlistarveisla á Akuryeri, Ljóðstafur Jóns úr Vö
    Rætt er við Gunnar Harðarson heimspeking um Ávísun um uppdrátta og málaralistina eftir Helga Sigurðsson. Crymogea gaf ritið nýverið út, en þetta er eina íslenska ritið frá fyrri öldum sem fjallar með fræðilegum hætti um myndlist.
    Rætt er við Ásdísi Arnardóttur um afmælisthátið tónlistarfélags Akureyrar.
    Einnig er rætt við Sindra Freysson sem er handhafi Ljóðstafs Jóns úr Vör þetta árið. Viðurkenninguna fékk hann fyr­ir ljóðið Kín­versk stúlka les uppi á jökli.
    Leiklistargagnrýnandi Víðsjár, María Kristjánsdóttir, fjallar um leiklistarhátíðina Everybody's spectacular og lesið er úr bók vikunnar sem er Grænmetisætan eftir suður-kóreska rithöfundinn Han Kang.
    Umsjónarmenn eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Codex Seraphinianus, Verstöðvar, Kórus, Efi og Bankster
    María Huld Markan og Pétur Ben segja frá hinum óhefðbundna kór, Kórus.
    Við förum á Þjóðminjasafnið og hittum ljósmyndarann Karl Jeppesen en sýning hans Fornar verstöðvar opnar á laugardag.
    Guðrún Baldvinsdóttir rýnir í uppsetningu Þjóðleikhússins á Efa eftir John Patrick Stanley í leikstjórn Stefáns Baldurssonar.
    Rætt er við Guðmund Óskarsson rithöfund um skáldsögu hans Bankster, sem er bók vikunnar á Rás 1.
    Og við kynnum okkur Codex Seraphinianus eftir Luigi Serafini og áhrif hennar á listakonurnar Lóu Hjálmtýsdóttur og Jóhönnu Maríu Einarsdóttur.
    Umsjónarmenn Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Myndlist og ljósmæðrun, Walden, La Mer og deila um frönsk handrit
    Sagt verður frá deilu sem upp er komin í Frakklandi og hefur með 80 ára gamla bæklinga rithöfundarins Louis-Ferdinand Céline að gera.
    Æsa Sigurjónsdóttir segir frá sýningunni La Mer eftir franska myndlistarmanninn Ange Leccia.
    Gauti Kristmannsson bókmenntafræðingur fjallar um nýja þýðingu Hildar Hákonardóttur og Elísabetar Gunnarsdóttur á bókinni Walden eftir Henry David Thoreau.
    Og rætt er við Sunnu Schram myndlistarkonu og verðandi ljósmóður um tengsl myndlistar og ljósmæðrunar.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Ungversk tónlist, Kjarval og framúrstefnan, Bankster,Himnaríki og helv
    Um liðna helgi frumsýndi Borgarleikhúsið Himnaríki og helvíti í leikstjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. María Kristjánsdóttir fór á verkið og deilir upplifun sinni með okkur í dag.
    Rætt er við píanókennarann Aladár Rácz um ungverska tónlist í tilefni af komu Budapest Festival sveitarinnar sem leikur annað kvöld í Hörpu undir stjórn Ivans Fischers.
    Við heimsækjum sýninguna Líðandinn - La duree á Kjarvalstöðum þar sem Aldís Arnardóttir segir okkur frá því hvernig Kjarval kynntist hugmyndum fútúristanna og kúbistanna þegar hann fór utan í nám.
    Og Guðmundur Óskarsson les úr skáldsögu sinni Bankster, sem er bók vikunnar hér á Rás 1.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Myrkrarverk, Jón Kalman, forseti Íslands, Piltur og stúlka
    Rætt er við Má Jónsson sagnfræðing um Pilt og stúlku eftir Jón Toroddsen en skáldsagan var nýverið endurútgefin.
    Kjarvalstaðir eru sóttir heim en þar er verið að undirbúa sýninguna Myrkrarverk þar sem sex ólíkir listamenn takast á einhvern hátt við þjóðsögur, ævintýra- og huliðsheima. Markús Þór Andrésson sýningarstjóri segir frá efnistökum listamannanna.
    Jón Kalman Stefánsson segir frá skáldsögu sinni Himnaríki og helvíti sem er bók vikunnar á Rás1.
    Gripið er niður í ávarp forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, sem hann flytur í dag á Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni á setningu 200 ára afmælishátíðar safnsins.
    Umsjónarmenn þáttarins eru Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min