Víðsjá

Víðsjá

By RÚVArts
Download on the App Store

All Víðsjá episodes

  • Himnaríki og helvíti, Gerðuberg, 200 ára Landsbókasafn og Undirferli
    Rætt er við Egil Heiðar Anton Pálsson, leikstjóra sýningarinnar Himnaríki og helvíti sem byggð er á þríleik Jóns Kalmanns (Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins), en sýningin verður frumsýnd á stóra sviði Borgarleikhússins annað kvöld.
    Kristbergur Pétursson segir frá sýningu sinni Utan þjónustusvæðis, sem nú stendur yfir í Gerðubergi.
    Einnig er rætt við Ingibjörgu Steinunni Sverrisdóttur, landsbókavörð, en Landsbókasafn -Háskólasafn fagnar 200 ára afmæli á árinu.
    Steinunn Inga Óttarsdóttir rýnir í Undirferli, skáldsögu Oddnýjar Eirar Ævarsdóttur.
    Umsjónarmenn þáttarins eru: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Landamæramúr Trumps, Gautaborgarsinfónían, Barnalekihús og Jón Kalman.
    Rætt er við Arnbjörgu Maríu Daníelsen sem nú er að undirbúa margmiðlunartónleika sinfóníuhljómsveitar Gautaborgar sem haldnir verða í byrjun næsta mánaðar til að minnast þess að á þessu ári verða 100 ár liðin frá fæðingu Ingmars Bergman.
    Sagt verður frá nýjustu hugarsmíð Christophs Büchel sem hefur í hyggju að breyta átta frumgerðum af múr Donalds Trump á landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna í listaverk.
    María Kristjánsdóttir fjallar í gagnrýni um barnasýningarnar Ég get og Skúmaskot.
    Jón Kalman Stefánsson úr bók vikunnar sem að þessu sinni er skáldsaga hans Himnaríki og helvíti.
    Umsjón: Guðni Tómasson og Halla Harðardóttir.
    55 min
  • Bein útsending frá afhendingu menningarviðurkenninga Ríkisútvarpsins.
    Umsjón: Halla Harðardóttir og Guðni Tómasson.
    55 min
  • Esperantó, Nýló, Rótarý tónlistarverðlaun og Elín, ýmislegt
    Víðsjá 3.1.2018
    umsjón: Guðni Tómasson
    1. Nýlistasafnið stendur á fertugu. Viðmælendur: Anna Líndal og Þorgerður Ólafsdóttir.
    2. Kristín Eiríksdóttir les úr bók vikunnar sem er Elín, ýmislegt. Hún segir einnig frá bókinni.
    3. Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari er annar tveggja tónlistarnema sem fékk tónlistarverðlaun Rótarý í ár.
    Artemis kvartettinn leikur loka kafla strengjakvartetts op. 18 nr. 2 eftir Beethoven.
    4. Heimsókn til esperantistafélagsins Auroru þar sem rætt er við nokkra meðlimi.
    LAG: Hljómeyki syngur Krummi svaf í klettagjá á Esperantó. Jónas Ingimundarson leikur með á píanó.
    55 min
  • Barrokkskápur, ljóð á nýju ári, Pnín og Íslenskan í Economist.
    Rætt við Sigurlín Bjarney Gísladóttur um ljóðalestur sem fór fram í Gröndalshúsi í gær á fyrsta degi nýs árs.
    Gluggað í grein um íslenskuna sem birtist á dögunum í tímaritinu The Economist.
    Gauti Kristmannsson fjallar um þýðingu Árna Óskarssonar á skáldsögunni Pnín.
    Rætt við Bjarka Bragason um sýningarrýmið Ca. 1715 sem rekið er í og við forláta barokkskáp á heimili hans og um sýninguna Munur í Skaftfelli á Seyðisfirði. Claudia Hausfeld og Elísabet Brynhildardóttir segja frá verkum sínum þar.
    55 min
  • Hómer, Jensen, Eiðurinn og Hjartasteinn
    Már Másson Maack ræðir við Ástráð Eysteinsson, prófessor í bókmenntafræði, um þýðingar á Hómerskviðum
    Guðmundur Arnar Guðmundsson, kvikmyndaleikstjóri segir frá kvikmynd sinni, Hjartasteini, sem frumsýnd var í Feneyjum fyrir fimm dögum
    Rætt verður við rithöfundinn og samfélagsrýninn Carsten Jensen um bók sína, Den første sten, og við Sigurð Ólafsson, verkefnastjóra í Norræna húsinu, um höfundakvöldin sem nú fara af stað í kvöld
    Ólafur Egill Egilsson kemur í heimsókn til að tala um mynd sína Eiðinn sem verður forsýnd í kvöld
    55 min