Viðmælandi þáttarins að þessu sinni er ekki forstjóri stórfyrirtækis eða virtur aðili í markaðsbransanum. Heiðbjört Ósk er kona sem við getum margar tengt við, móðir, snyrtifræðingur, sem eftir 15 ár í sama starfi var farin að finna fyrir leiða og þörf fyrir breytingu.
Þegar sonur hennar veiktist alvarlega og var frá skóla í tæp tvö ár fór Heiðbjört að kenna honum heima. Það kveikti neista hjá henni sem hún ákvað að fylgja og hún skráði sig í kennaranám.
Nú þremur árum síðar hefur lífið tekið algjöra U-beygju. Auk þess að hafa skipt um starfsvettvang gaf Heiðbjört á dögunum út sína fyrstu bók; Mamma, sagan þín, og stofnaði útgáfufélag.
Í þættinum ræðum við ferlið við bókaútgáfuna og hversu mikið gæfuspor það reyndist henni að viðurkenna að hún þyrfti ekki að gera allt ein. Hún segir frá því hvernig það að fá fleiri með sér í lið gerði ferlið skemmtilegra og mun árangursríkara.
Önnur umræðuefni þáttarins eru m.a:
Mikilvægi þess að láta ekki starfstitla skilgreina sig.Af hverju stefnubreytingar eru aldrei mistök heldur merki um vöxt.Hvernig móðurhlutverkið varð til þess að hún fór að sjá sína eigin móður í nýju ljósi og hvernig bókin hennar er hönnuð sem brú milli kynslóða til að varðveita sögu móðurinnar.Hvernig bókaævintýrið hefur opnað á fleiri tækifæri og aukið sjálfstraust.Tölvupóstar til þjóðþekktra kvenna og hvers vegna svar frá einni þeirra grættu Heiðbjörtu.Fyrstu skrefin fyrir þá sem langar að breyta um stefnu eða prófa nýjan starfsvettvang.Þetta er þáttur sem minnir okkur á að stærstu tækifærin leynast oft í óvæntum áskorunum og það er aldrei of seint að fylgja hjartanu og prófa eitthvað nýtt 🤍
📖 Söguspor og bókin „Mamma, sagan þín"
✨ Þessi þáttur er í boði 👟 Skór.is & Alfreð: Kynntu þér Hæfnileitina!
♡ Þátturinn er tekinn upp í Tekk stúdíói.
📱 Fylgdu Vörumerki á bakvið tjöldin á Instagram @vorumerki