Popplagið Where is my husband er einkennissöngur einhleypra kvenna á Tiktok um þessar mundir. Við kryfjum lagið, sem er með bresku tónlistarkonunni RAYE, í þætti dagsins. Venju samkvæmt er það tónskáldið og tónlistarmaðurinn Friðrik Margrétar Guðmundsson sem hjálpar okkur að skilja aðdráttaraflið við lagið.
Ein vinsælasta samsæriskenningin um internetið er sú að það sé nú þegar dautt, þar séu engar manneskjur lengur heldur einungis bottar sem setja inn færslur, læka og skilja eftir athugasemdir. Fríða Þorkelsdóttir, bókmenntafræðingur og netblaðamaður Lestarinnar, rekur uppruna kenningarinnar.