Gunnar Vilhjálmsson, grafískur hönnuður rekur indversk-íslenska leturhönnunarfyrirtækið Universal Thirst. Fyrirtækið er tilnefnt til Íslensku Hönnunarverðlaunanna sem verða afhent á morgun.
Ásrún Magnúsdóttir, danshöfundur, hefur oft sýnt verk á alþjóðlegu danshátíðinni, Reykjavík Dance Festival. Við hringdum í Ásrúnu, sem er stödd erlendis að leikstýra dansverki, og spurðum út í Litlu Systur, hóp ungmenna sem mun stýra dagskrá í Iðnó á RDF, sem hefst í dag og stendur fram á sunnudag.
Við rennum yfir Grammy-tilnefningar sem voru tilkynntar í gær og kynnum okkur íranska klifurkonu, Nasim Eshqi, en heimildarmyndin Climbing Iran frá árinu 2020 verður sýnd í Bíó Paradís á fimmtudag.