Á þessu ári eru 100 ár liðin frá fæðingu Selmu Kaldalóns, en hún fæddist 27. desember 1919, fjórða og yngsta barn Sigvalda Kaldalóns, tónskálds og læknis, og konu hans, Karenar Margrethe. Selma var eina barn Sigvalda sem lagði stund á tónlist, hún samdi sjálf lög og í tilefni af aldarafmælinu er þátturinn helgaður henni. Flutt eru lög eftir Selmu og rætt verður við dóttur hennar, Margréti Kaldalóns. Einnig verða flutt brot úr viðtali sem Pétur Pétursson tók við Selmu árið 1976. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Ragnhildur Thorlacius.