Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Árið er 2009 - annar hluti
    Dikta þakkar fyrir sig, Baggalútur fer á slóðir Vestur-Íslendinga, Eberg tekur eitt skref í einu og Feldberg dúettinn slær í gegn.
    Hafdís Huld syngur um franskan ofurhuga, Elíza Newman tekur upp í London og Ívar Bjarklind er með nesti og nýja skó.
    Hljómsveitin Ske gefur út sína þriðju breiðskífu, Snorri Helgason fer í sóló, Bloodgroup þyngir hljóminn og Gus Gus er að allan sólarhringinn.
    Stjörnubjartur drengur fær Liljurós frá Ellen Kristjáns og Pétri Ben, og þetta reddast allt hjá Björgvini Halldórssyni.
    Hljómsveitin Leaves fær sparkið og gerist plötuútgefandi og Þórunn Antonía syngur Velvet Underground með Beck.
    Árið er 2009
    1 hr 55 min
  • Árið er 2009 - fyrsti hluti
    Hjaltalín sópar til sín verðlaunum, Jóhanna Guðrún stelur senunni í Moskvu og Árstíðir syngja sig inn í hug og hjörtu þjóðarinnar.
    Söngfuglinn Nanna Bryndís Hilmarsdóttir kveður sér hljóðs og Margrét Kristín Sigurðardóttir fabúlerar í fjórða sinn á plötu.
    Helgi Hrafn Jónsson dundar sér í garðinum, það haustar hjá KK, Múm poppar sig upp og Leone Tinganelli er hálfur Íslendingur.
    Fjallabræður hefja upp raust sína, Pascal Pinon dustar rykið af gömlu ævintýri og Berndsen kemur fram á sjónarsviðið.
    Mannakorn syngur yfir sokkinni þjóðarskútu, Morðingjarnir syngja manvísu, Todmobile er 25 ára og Stefán Hilmarsson þakkar fyrir sig.
    EGÓ snýr aftur í byltingargír, Stuðmenn syngja um ruglið, grasið grænkar hjá Milljónamæringunum en Baggalútur segir að þetta sé búið.
    Árið er 2009
    1 hr 55 min
  • Árið er 2008 - seinni hluti
    Sigur Rós spilar endalaust, Dísa fellur í freistni, Mammút er með geimþrá og Jeff Who óskar okkur öllum til hamingju.
    Sálin fagnar 20 ára afmæli, Dr. Spock semur sápuóperu, Baggalútur hefur það kósý og Buff þakkar kærlega fyrir.
    Lay Low gefur út aðra plötu sína, Bubbi syngur um brúnu augun þín en Memfismafían tekur upp barnaplötu.
    Motion Boys piltarnir dansa inn í hrunið, Blaz Roca rappar um stórasta land í heimi en Ghostigital leitar að peningunum sínum.
    Litla hafmeyjan lætur gamminn gjósa, Þokkabót syngur um tóma kassa og Sprengjuhöllin sendir sínar bestu kveðjur.
    Árið er 2008
    Seinni hluti tuttugasta og sjötta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 sunnudaginn 7. desemberog verður endurfluttur þriðjudagskvöldið 9. desember kl. 22.05.
    1 hr 55 min
  • Árið er 2008 - fyrri hluti
    Emilíana Torrini er alþjóðleg stórstjarna, Björk leggur náttúrunni lið og KK rær út á Æðruleysinu.
    Múgsefjun temur hagsmunatíkina, Barði Bang Gang syngur um drauga fortíðar en Ingó og Veðurguðirnir fara til Bahama.
    Ragnheiður Gröndal nær áttum á ný, Helgi Björns kemur ríðandi að austan en Daníel Ágúst og Krummi fara upp á Esju.
    FM Belfast heldur partý, Hjaltalín kemur við hjartað í þér og mér og The Viking Giant Show leitar að lækningu.
    Retro Stefson gefur út fyrstu plötuna sína, Ný Dönsk klifrar upp turninn en Eurobandið syngur um hið fullkomna líf.
    Memfismafían lætur til sín taka, Agent Fresco rústar Músiktilraunum, Geirfuglarnir snúa aftur og hljómsveitin Hraun heldur hamingjuleitinni áfram.
    Þursaflokkurinn fagnar 30 ára afmæli, það er nú eða aldrei hjá Skakkamanage og nóttin tekur við hjá Pikknikk.
    Árið er 2008
    1 hr 55 min
  • Árið er 2007 - seinni hluti
    Mugison stofnar hljómsveit, Hjálmar hætta við að hætta og Jónas Sigurðsson dansar þar sem malbikið svífur.
    Jakobínarína vekur bjartar vonir í útlöndum, Hljómsveitin Hraun segir ástarasögu úr fjöllunum og Silvía Nótt klórar í bakkann.
    Sniglabandið semur lög í samvinnu við hlustendur Rásar 2, Einar Ágúst er sóló og Mínus gengur í gegnum breytingar.
    B.Sig gefur út sína fyrstu og einu plötu, Sometime er með tromp á hendi og Jan Mayen býður upp á gleðireið.
    Ljótu hálfvitarnir stíga á stokk, Eivör syngur um mannabarn, Stuðmenn fríka út í góðærinu og Magnús Þór syngur um bjartan og sólríkan dag í miðju þunglyndiskasti.
    Jón Ólafs er á persónulegum nótum, Ný Dönsk er tvítug, Dr. Spock gefur skít í pakkið en stóra spurningin er hvort krúttin séu dauð.
    Árið er 2007
    Seinni hluti tuttugasta og fimmta þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 sunnudaginn 23. nóvember og verður endurfluttur þriðjudagskvöldið 25. nóvember kl. 22.05
    Meðal viðmælenda í seinni hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2007 eru: Örn Elías Guðmundsson, Arnar Þór Gíslason, Guðni Finnsson, Svavar Knútur Kristinsson, Bjarki Sigurðsson, Daði Birgisson, Magnús Þór Sigmundsson, Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, Einar Ágúst Víðisson, Ágúst Bogason, Snæbjörn Ragnarsson, Arngrímur Arnarson, Eggert Hilmarsson, Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Ólafsson, Daníel Ágúst Haraldsson, Jónas Sigurðsson, Óttar Proppé, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Gaukur Úlfarsson, Sölvi Blöndal, Gunnar Ragnarsson, Gunnar Örn Tynes, Örvar Þóreyjarson Smárason, Atli Bollason, Hildur Ársælsdóttir, María Huld Markan, Björn Stefánsson og Þorkell Máni Pétursson.
    Árið er 2007
    Umsjónarmenn eru Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson en þeim til aðstoðar eru Sigríður Thorlacius og Stefán Jónsson.
    1 hr 55 min
  • Árið er 2007 - fyrri hluti
    Páll Óskar gerir allt fyrir ástina, Magni er í hæstu hæðum, Sprengjuhöllin er í sambandi og Elíza útdeilir hjartagulli.
    Björk hvetur smælingja heimsins til að lýsa yfir sjálfstæði, Hjaltalín er bjartasta vonin og Eiríkur Hauksson les úr lófa þínum.
    Rás 2 plokkar hringinn, Sigur Rós túrar heima, Védís Hervör dásamar lífið en Klassart syngur Örlagablús og Laddi er sextugur.
    Jagúar kynnir þjóðina fyrir Diskódívu, Lay Low fer í leikhúsið og það verða kaflaskil hjá Birgittu Haukdal.
    Bloodgroup kemst í afar í klístraða stöðu, Megas og Senuþjófarnir skila góðum frágangi og Gus Gus er Forever.
    Árið er 2007
    Umsjónarmenn eru Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson en þeim til aðstoðar eru Sigríður Thorlacius og Stefán Jónsson.
    1 hr 55 min
  • Árið er 2006 - seinni hluti
    Magni fer í Rockstar Supernova, Hafdís Huld gerir það gott á Englandi, Pétur Ben sendir frá sér sína fyrstu sólóplötu og Kaninn kveður.
    Ragnheiður Gröndal er með þér, Fabúla svífur um á beiku skýi, Ívar Bjarklind fer yfir hafið, Regína Ósk er í djúpum dal en Lára Rúnarsdóttir syngur Þögn.
    Hjaltalín vekur athygli eftir skapandi sumarstarf í Reykjavíkurborg, Siggi Pálma segir sögur, Ghostigital breytist í hljómsveit og Sykurmolarnir koma saman á ný,
    Sálin hans Jóns míns og Gospelkór Reykjavíkur rugla saman reytum sínum, Todmobile lokar sig inní kastala og FM Belfast spilar á sínum fyrstu alvöru tónleikum.
    Sviðin jörð spilar og syngur lög til að skjóta sig við, Trabant er í útrásargír, Friðrik Ómar er sóló, Jet Black Joe snýr aftur og Bogomil Font & Flís dansa calypso.
    Stebbi og Eyfi hlýja sér undir nokkrum notalegum ábreiðum og Máni Svavars stekkur inn á breska smáskífulistann með vinum sínum í Latabæ.
    Árið er 2006
    Umsjónarmenn eru Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson en þeim til aðstoðar eru Sigríður Thorlacius og Stefán Jónsson.
    1 hr 55 min
  • Árið er 2006 - fyrri hluti
    Baggalútur og Bo rugla saman reytum sínum, Silvía Nótt hneykslar Evrópubúa, íslenskt lag er valið í fyrstu iPhone auglýsinguna og Sigur Rós túrar um landið.
    Rás 2 rokkar hringinn, Ampop siglir til tunglsins, Dikta vekur athygli í útlöndum, Hermigervill kemur fólki í stuð og Fræ slær í gegn með freðnum fávita.
    Lay Low kemur fram á sjónarsviðið, Biggi í Maus fer sóló, Telepathetics sendir frá sér sína fyrstu og einu plötu og Bubbi heldur uppá fimmtugsafmælið.
    Svala Björgvins snýr aftur inn í heim danstónlistarinnar, Nilfisk lendir í hagsmunaárekstri og Mammút gefur út sína fyrstu plötu.
    Brain Police ræður sænskan upptökustjóra, Í svörtum fötum fer í frí, Toggi slær í gegn og Nylon fer í útrás.
    Árið er 2006
    Umsjónarmenn eru Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson en þeim til aðstoðar eru Sigríður Thorlacius og Stefán Jónsson.
    1 hr 55 min
  • Árið 2005
    Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
    Umsjón: Gunnlaugur Jónsson og Ásgeir Eyþórsson.
    Aðstoð við handritsgerð: Jónatan Garðarsson.
    Lesari: Sigríður Thorlacius.
    25 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners