Árið er

Árið er

By RÚVMusic
Download on the App Store

Árið er episodes

  • Árið er 2013 - seinni hluti
    Hljómsveitin Kaleo slær í gegn, John Grant tekur ástfóstri við land og þjóð og
    Ásgeir Trausti heldur á vit ævintýranna í útlöndum.
    Súpergrúppan Drangar gefur út plötu og Áhöfnin á Húna fer hringinn í kringum landið en Ólöf Arnalds býr til tónlist í sumarbústað í Hvalfirði.
    Hljómsveitin 1860 rafmagnast, Snorri Helgason breytist í hljómsveit en Sigur Rós hangir á bláþræði á ísjaka og semur tónlist fyrir The Simpsons.
    Obja Rasta veit og vonar einhvern veginn svona, Sin Fang túlkar bergmál sumarsins og Raggi Bjarna kemur við í Þjóðarbókhlöðunni.
    Ólafur Arnalds vinnur Bafta-verðlaun og heldur yfir 100 tónleika á erlendri grundu, Lay Low talar um veðrið og Cell 7 snýr aftur eftir 16 ára hlé.
    Skálmöld stígur á svið í Eldborg með Sinfó og þremur kórum, Ljótu hálfvitarnir syndga og syngja um athyglisprest og Ingó stýrir brekkusöng á Þjóðhátíð í Eyjum.
    Samaris syngur um tunglið góða, Gunnar Þórðarson semur óperu og Pálmi Gunnarsson rifjar upp farsælan feril.
    Árið er 2013
    1 hr 55 min
  • Árið er 2013 - fyrri hluti
    Jón Jónsson skrifar undir samning hjá Epic Records, Mammút fær andann yfir sig
    og mamma þarf að djamma með Baggalút.
    Emilíana Torrini flytur heim, Of Monsters & Men klárar tveggja ára tónleikaferð, Vök vinnur Músíktilraunir og Eyþór Ingi á líf í Eurovision.
    Mono Town tríóið fer óvenjulega leið við undirbúning á frumburði sveitarinnar og
    Berndsen kemst í gamlar Kraftwerkgræjur.
    Íkorninn Stefán Örn Gunnlaugsson skapar nýja fagra fortíð, Leaves sjá okkur í síðbjarmanum og Bloodgroup eltist við bergmál.
    Rúnar Þórisson fer af stað, Bubbi Morthens trúir á ljósið, Geir Sæm snýr aftur en Markús biðst afsökunar.
    Tilbury syngur um íslenska veturinn, Oyama sendir frá sér stuttskífu og ástralska stórstjarnan Kylie Minogue syngur með Múm.
    Verzlingurinn Steinar Baldursson kemur upp á yfirborðið, Monterey lætur tímann líða
    en Grísalappalísa spyr hver er ég?
    Dr. Gunni tryllir þjóðina með glaðasta hundi í heimi, Dúettinn Jed og Hera verður til
    og Fjallabræður og Ragga Gísla syngja um ástina.
    Árið er 2013
    1 hr 55 min
  • Íslensku tónlistarverðlaunin
    Íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í Hörpu föstudaginn 20. febrúar og í tilefni af því var farið yfir sögu verðlaunanna í tali og tónum frá 1993 til 2014 á Rás 2 sunnudaginn 22. febrúar kl. 16.05.
    Boðið var upp á tóndæmi, viðtöl og ræður frá vinningshöfum á borð við Todmobile, Björk, Unun, Jet Black Joe, Önnu Halldórs, Maus, Skítamóral, Ensími, Sigur rós, Selmu Björns, XXX Rottweilerhundum, Skúla Sverrissyni, Ske, Írafári, Tómasi R. Einarssyni, Mínus, Sálinni hans Jóns míns, Ragnheiði Gröndal, Jagúar, Hjálmum, Mugison, Bubba Morthens, Emilíönu Torrini, Jeff Who, Baggalút, Páli Óskari, Sprengjuhöllinni, Hjaltalín, Diktu, Jónasi Sigurðssyni og Ritvélar framtíðarinnar, Ásgeiri Trausta, Of Monsters & Men, Retro Stefson, Mammút, John Grant, Kaleo, Júníusi Meyvant og Mono Town.
    1 hr 55 min
  • Árið er 2012 - seinni hluti
    Retro Stefson er hampað sem líflegasta bandi landsins og Þórunn Antonía og Berndsen rugla saman reytum sínum með dansvænu vinsældapoppi.
    Kiriyama Family heillar landann með grúvknúnu mjúkpoppi, Friðrik Dór er vélrænn, Elíza Newman er með heimþrá en Ylja flytur fallega og angurværa þjóðlagatónlist.
    Það er sumar hvern einasta dag hjá Mannakorni, Hreimur Örn er agndofa en Sigurður Guðmundsson og Memfísmafían sötra síðasta móhítóinn um blánótt á Kúbu.
    Moses Hightower tekur stutt skref og fer upp á háa C, Bubbi segir sögur úr þorpinu, Múgsefjun fær ekki nóg en Borko er frjálsborinn maður.
    Stúlknatríóið Charlies reynir við ameríska drauminn, Ghostigital svífur inn í draumalandið með David Byrne en Helgi Júlíus hvetur Íslendinga til að standa saman.
    Magnús og Jónas gæta hugsana sinna, Skálmöld berst við börn Loka en Ásgeir Trausti og Blaz Roca heilla dömurnar með derhúfu og hvítum skóm.
    Árið er 2012
    1 hr 55 min
  • Árið er 2012 - fyrri hluti
    Ásgeir Trausti brýtur blað í íslenskri tónlistarsögu, Of Monsters & Men slær í gegn í útlöndum og Hjaltalín greiðir úr flækju.
    Formaður Dagsbrúnar ummyndast í Tilbury, Jónas Sigurðsson leitar til æskuslóðanna og
    Pétur Ben fer nýjar leiðir við fjármögnun.
    Magni er á heimaslóðum, Obja Rasta lofar gjafir jarðar, Dimma fremur myrkraverk og Valdimar bíður eftir skömminni.
    Lára Rúnars sendir frá sér sína fjórðu sólóplötu, Gréta og Jónsi keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision og Steed Lord hefur nóg fyrir stafni vestanhafs.
    Sometime býr til stuttmynd, plötu og þrívíddarskúlptúr, Biggi Hilmars fær heimþrá og Retrobot ber sigur úr býtum í Músíktilraunum.
    Sigur Rós breytist úr kvartett í tríó, Raggi Bjarna týnir tímanum með Lay Low en það er norðanátt hjá Magnúsi og Jóhanni.
    Árið er 2012
    1 hr 55 min
  • Árið er 2011 - seinni hluti
    Það kemst enginn með tærnar þar sem Mugison hefur hælana, Pétur Ben og Eberg rugla saman reytum sínum og Björk fer áfram ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun.
    Sólstafir rokka í stinningskulda niðri í fjöru, samstarfi Megasar og Senuþjófanna fylgir hugboð um vandræði, Quarashi snýr aftur en Dikta skilur ekki eftir hverju við erum að bíða.
    Lay Low syngur á íslensku á sinni þriðju plötu, Daníel Ágúst fer í bingó, Nýdönsk er í nánd og GusGus flokkurinn gefur út sína áttundu hljóðversplötu.
    Hljómsveitin Ég skoðar ímynd fíflsins, Valdimar Guðmundsson hittir Memfismafíunna í okkar eigin Osló og Hljómskálinn hefur göngu sína í sjónvarpi allra landsmanna.
    Hljómsveitin Reykjavík spilar melódísk lög undir glitrandi gítarhaug, Magnús Þór og Páll Rósinkranz taka höndum saman og Hera Hjartardóttir skýtur upp kollinum.
    Björgvin Halldórsson fagnar sextugsafmæli með þrennum afmælistónleikum í Háskólabíói en Eyfi fagnar fimmtugsafmæli með fimmtíu tónleikum víðs vegar um landið.
    Ingó Veðurguð fær Fjallabræður til liðs við sig, Felix Bergsson syngur lög við ljóð Páls Ólafssonar, Bogomil Font & Hákarlarnir skoða dýrafræðin og Gylfi, Rúnar og Megas eru þrjár stjörnur.
    Árið er 2011
    1 hr 55 min
  • Árið er 2011 - fyrri hluti
    Of Monsters & Men gerir það gott með sinni fyrstu plötu og Jón Jónsson syngur sig inn í hug og hjarta íslensku þjóðarsálarinnar.
    Hjálmar rafvæðast, hljómsveitin HAM snýr aftur, Bubbi semur og syngur sálartónlist og dúettinn Eldar er dropi í hafi í fjarlægri nálægð.
    Snorri Helgason heillast af vetrarsólinni, Kjarr bíður eftir sumrinu, Ragnheiður Gröndal nær áttum og Toggi flettir í dagbókinni þinni.
    Sóley Stefáns slær í gegn á Youtube, sólóverkefnið Sin Fang Bous breytist í hljómsveitina Sin Fang og Vicky Pollard breytist í Vicky.
    Páll Óskar kveður Háskólabíó og heilsar Hörpu með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Samaris ber sigur úr býtum Músíktilraunum.
    Hljómsveitin 1860 syngur um svaðilför á Snæfellsnesi en liðsmenn FM Belfast eru í svo miklu stuði að þeir neita að ganga til náða?
    Árið er 2011
    Fyrri hluti tuttugasta og níunda þáttarins í útvarpsþáttaröðinni Árið er .... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum fer í loftið á Rás 2 klukkan 16.05 sunnudaginn 25. janúar og verður endurfluttur þriðjudagskvöldið 27. janúar kl. 22.05
    1 hr 55 min
  • Árið er 2010 - seinni hluti
    Valdimar brotlendir yfirgefinn í Undralandi, Jónsi fer sóló, Retro Stefson fer til Kimbabwe og Hjálmar ganga alla leið.
    Hljómsveitin Lifun gefur fögur fyrirheit með hörku djöfuls fanta ást og Sálin hans Jóns míns er fyrir utan gluggann þinn.
    Orri Harðar gefur út Albúm, Ensími gefur heilræði í aldanna ró, Ólöf Arnalds er innundir skinni en Rökkurró er í öðrum heimi.
    Elíza Newman kennir útlendingum að segja Eyjafjallajökull, Kalli tekur síðustu lestina heim og Hjálmar ganga alla leið.
    Skálmöld gerir árás með kvaðningu á meðan Ljótu hálfvitarnir bjóða gott kvöld en það geta ekki allir verið Gordjöss á Diskóeyjunni.
    Árið er 2010
    2 hr 12 min
  • Árið er 2010 - fyrri hluti
    Hamingjan er hjá Jónasi Sigurðssyni og Ritvélum framtíðarinnar en Moses Hightower býr til börn í bílalest út úr bænum.
    Bjartmar og Bergrisarnir fara í gallann með Allan, Hera Björk talar tungum, Biggi Bix er eldfimur og Friðrik Dór er alveg með'etta.
    Apparat Organ Quartet semur lag um flugvélafarangur, Sóley Stefáns finnur blá lauf á leikhúseyju og Klassart syngur um gamla grafreitinn.
    Prins Póló fer niðrá strönd, Ellen Kristjáns og Pétur Ben liggja dreymandi á ströndinni og allir eru að fá sér með Blaz Roca og Ragga Bjarna.
    Of Monsters & Men tekur Músíktilraunir með trompi, Agent Fresco sendir frá sér langþráða breiðskífu og Seabear kveikir eld á köldu sumri.
    Hvanndalsbræður vilja vera vinsælir og frægir, Pollapönkarar hringja á vælubílinn, Björgvin Halldórs heldur áfram að syngja dúetta en Rúnar Þóris stendur upp.
    Árið er 2010
    1 hr 55 min
  • Árið er 2009 - þriðji hluti
    Ingó og Veðurguðirnir bjóða á gestalista, Ragnheiður Gröndal syngur íslensk þjóðlög en Hjálmar fara til Jamaica.
    Á móti sól sér þig kannski seinna, Jógvan og Friðrik Ómar syngja vinalög og Lára Rúnars kemur á óvart.
    Lights On The Highway siglir um á pappírsbát, Ljótu hálfvitarnir finna lukkutroll og Dr. Gunni er með mörg járn í eldinum.
    Sindri Már Sigfússon er Sin Fang Bous, Litla hafmeyjan léttir lund landsmanna og Sykur er með stuð í eyrum.
    Ourlives tapar kapphlaupinu, Prins Póló er einn heima en Egill Sæbjörnsson er brjálaður eins og býfluga.
    Árið er 2009
    1 hr 55 min

About Árið er

From the publisher's feed

Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.

More shows like Árið er

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Rauða borðið by Gunnar Smári Egilsson

Rauða borðið

4 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Samstöðin by Samstöðin

Samstöðin

1 Listeners