
Sign up to save your podcasts
Or


Ómar Friðþjófsson er sögumaður af guðs náð og hér segir talar hann um hvernig ferðamennskan er svo mikilvæg í lífi margra, td frá pabba sínum sem fór 1946 á Dyngjujöklul á sínum Willisjeppa, ástæðum þess er hann sjálfur er svo háður ferðalögum, en megin hluti þáttarins fór í að tala um einstaka "jeppaferð" með góðum félögum, þar sem ekið var m.a. á ís á hinu stóra Mackenzie fljóti, um óbyggðir og á ísilögðu hafi. Enginn fyrr né síðar hefur leikið þetta eftir um óbyggðir Kanada.
Gleðigjafinn og gæðadrengurinn Hlynur Bragason frá stór Fellabæjarsvæðinu er gestur minn að þessu sinni. Gaf sér tíma í þessari bæjarferð og segir hér sögu sína á góðan og skemmtilegan hátt. Kappinn er alltaf kallaður Hlynur Sæti og ber nafnbótina vel.
Hann Halldór Jónsson, betur þekktur sem Dóri Tjakkur er einn af okkar alreynslumestu ökumönnum þessa lands. Hefur td starfað í 41 ár við að aka gámum um Höfuðborgarsvæðið. "Allir þekkja Dóra og bílinn hans", enda með eindæmum natinn við þrif og hafa allar perur í lagi, svo það sé nú sagt. Klárlega fyrirmynd margra yngi ökumanna í bransanum. Dóri fer hér vel yfir feril sinn í aksri frá unga aldri.
Við Ómar Jóhannsson áttum langt og mikið spjall um allskonar kvisti, þar sem bílar, fólk og ferðir koma við sögu. Síðustu árin hefur hann verið ökumaður hjá Líflandi en lengst af var hann með eigin bíl í rekstri á Sendibílastöðinni Þresti. Óhætt er að segja að Ómar hefur komið víða víð í allskonar akstri og segir hér skilmerkilega frá.
Ólafur Þór Erlingsson vörubílstjóri á Þrótti er fyrsti gestur ársins 2026. Alltaf kallaður Óli Skrjóður, en það nafn festist á hann á unga aldri á Reykhólum. Óli er lífsglaður að eðlisfari og við förum hér hratt yfir málin en gleymdum örugglega fullt af sögum.
Þáttarstjórnandi les hér stuttar endurminningar sínar um skíðaferð í Kerlingafjöll í júní 1978. Fyrst birt á facebók í desember 2012.
Það er langt síðan þáttarstjórandin bað James Goodall Alexandersson um að koma í þáttinn og segja ma frá akstri sem hann tók að sér fyrir Rauða Krossinn fyrir rúmum 30 árum síðan í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu.
James sem hefur afar gott orðspor sem ökumaður og i raun algjör ljúflingur, segir hér afar skilmerkilega frá þessu viðburðaríka tímabili í lífi hans.
Allt áhugafólk um ferðir þekkja frumkvöðullinn Arngrím Hermannson, en hann er gestur þáttarins að þessu sinni. Addi er klárlega einn af okkar allra bestu fjallamönnum og hefur staðið fyrir eða komið að flestum mest krefjandi leiðöngrum um hálendi Íslands. Hér í þessum þætti er td farið vel yfir ferð sem var kölluð, "Yfir jöklanna þrjá" sem farin var fyrst á skíðum árið 1975 og svo aftur sömu leið á jeppum tíu árum síðar.
Hann Björn Sigurðsson frá Húsavík sendi mér nokkrar síður úr dagbók Sigurjóns Jóhannessonar, er snýr að ferðalagi Ferðafélags Húsavíkur hingað suður um Kjöl í júlí 1959.
Svo var farið haldið heim á leið um Sprengisand, en þá þurfti að aka yfir Hófsvað í Tungná, sem var mikill farartálmi, enda löngu áður en brýr og virkjanir komu á svæðið.
Um er að ræða fróðlega, ítarlega og skemmtilega frásögn er lagt var í vaðið sjálft.
Hlustendur verða þó að taka viljann fyrir verkið, sum orð eru ansi framandi, auk þess að ekki var auðvelt að lesa þetta inn eftir skönnun.
Þeir Pétur Hoffmann og Eggert Sigurðs Karlssynir eru viðmælendur þáttarins að þessu sinni.
Flestir muna eftir þeim tvíburum að aka rútumseinni árin hjá Norðurleið, en sem ungir menn störfuðu þeir við alls konar akstur bíla og tækja, td hjá Vestfjarðarleið, Ræktunarsambandi Dalamanna, Vegagerðinni,Kaupfélagi Hvammsfjarðar og víðar.
Þessir strákar úr Steingrímsfirðinum hafa engu gleymt.
From the publisher's feed

470 Listeners

2 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

70 Listeners

4 Listeners

29 Listeners

20 Listeners

35 Listeners

13 Listeners

1 Listeners

16 Listeners

27 Listeners

0 Listeners