Bruggvarpið

Bruggvarpið

By Bruggvarpið BruggvarpArtsFood
Download on the App Store

Bruggvarpið episodes

  • S5E02 - Áramótaþynkan

    Strákarnir hrærðu í einn svona aukaþátt, rétt fyrir áramótin.  

    Ýmislegt skeggrætt og skrafað.  

    Hér er smakkaður 

    Bóndalager frá Ægisgarði

    Frelsislager frá Dokkunni

    SkyrjarmurSkyrjarmur

    Ketkrókur Sour jólaglögg - Borg brugghús

    Röðull rauðöl - RVK Brugg

    Huginn - RVK Brugg

    SteðjaKveðja - Collab milli Borgar og Steðja

    1 hr 22 min
  • S05E01 - Bruggvarpið byrjar á nýjan leik

    Enn og aftur telja piltarnir í Bruggvarpsþátt. Vissulega er langt um liðið síðan síðast og fögur fyrirheit ávalt brostin, en hér er talið í nýtt tímabil fyrir Bruggvarpið. FArið er yfir víðan völl, enda langt síðan síðast. Lagabreytingar, nýjir bjórar, breytingar á Brugghúsamarkaði og allskonar sem er rætt.

    Smakkað hér er:

    Gæðingur Octopus

    Segull 67 Tindur Október öl

    Ölverk Hrekkur Festbier

    Októfer Bock

    Daniel nr. 97 Pastry Double Bock

    1 hr 30 min
  • S04E09 - Loksins rumskar Bruggvarpið

    Eftir logn, lágdeyðu, lægðir, storma, COVID og rauðar viðvaranir rumskar þetta Bruggvarp loksins. Hér er farið svona létt yfir stöðu mála, hvað hefur gerst síðan síðast og þetta smakkað:

    Skúli nr. 70 Pale Ale frá Borg Brugghúsi

    Hver? nr. 10 frá Ölverk Brugghúsi

    Einstök Arctic Lager frá Einstök/Víking

    Skvetta berjakóla frá Ægisgarði (Óáfengur)

    Borghildur Lager og

    Steinbúi Pale Ale frá KHB Brugghúsi


    56 min
  • S04E08 - Fyrsti þáttur ársins

    Í þessum fyrsta þætti ársins 2022 er farið yfir helstu áramótahluti hjá strákunum. Áramótaskaupið er skoðað, toppar og lægðir ársins á undan, í bjór og rennt er yfir sölutölur í Vínbúðinni örlítið.

    1 hr 2 min
  • S04E07 - Síðasti jólaþátturinn þetta árið

    Senn líður að tíðum og núna er síðasti jólaþátturinn kominn í hús. Amk þetta árið. Hér er farið yfir ýmislegt, jólin rædd, nýjar sóttvarnaraðgerðir ræddar, og bara allskonar. Fátt mannlegt óviðkomandi þessum strákum.

    Hér er smakkað

    Akasleikir frá Borg

    Drunken Monkey frá RVK brewing

    Choc HoHo frá Smiðjunni í Vík

    Cosmos 2022 frá RVK brewing

    Gáttaþefur frá Borg Brugghúsi

    57 min
  • S4E06 - Annar í jólum

    Hér er dottinn annar þátturinn sem gengur meira og minna útá jólabjór. Strákarnir fara í „djúpa“ greiningu á jólabjóramarkaðinum og kasta fram sleggjudómum eins og þeim einum er lagið. Staðsetningar nýrra Vínbúða og þróun stór-Hlemmsvæðisins rædd.


    Í þessum þætti var smakkað:

    Hátíð í bæ frá Múla

    Litla Brugghúsið jóla hvað?

    Haltá jólaketti frá Smiðjunni Vík

    Vetrarævintýri IPA frá OG natura

    Anchor Merry Christmas



    1 hr 10 min
  • S04E05 - Fyrsti í jólabjórum og hungangsflugan.

    Í ár ætla strákarnir nú ekki alveg að missa sig í jólabjórunum eins og síðast en ætla að smakka allskonar sem þeim finnst skemmtilegt. Hér er farið aðeins yfir jólabjóramarkaðinn, Ora Jólabjórinn smakkaður ásamt HóHóHó tunnuþroskuðum stout frá Ægisgarði. Þá er Hampbjór frá Svaneke brugghúsinu í Borgundarhólmi.

    En strákarnir kíktu líka í heimsókn í Öldur Mjaðargerð og rifja upp viðtalið sem þeir tóku þar. Þar opnaði Sigurjón Friðrik Garðarsson augu BruggVarpsins fyrir leyndardómum mjaðarins.

    1 hr 15 min
  • S04E04 - HEimsókn í Bjórland

    Strákarnir fóru að heimsækja Þórgný  Thoroddsen hjá Bjórlandi. Þar var ekki í kot vísað og fóru þeir yfir upphaf og mögulegan endi Bjórlands ásamt ýmsu öðru.

    Í þessum þætti var ýmislegt smakkað, m.a. Raföl frá A6 brugghúsinu á Akureyri, tilraunabjór frá Steðja, Samstarfsverkefni við Ægisgarð og loks einhver algjör bomba frá Omnipolo.

    1 hr 4 min
  • S4E03 - Októberfestgrín

    Nú er haustið mætt í allri sinni dýrð og eins og boðað hafði verið fara strákarnir yfir fyrri reynslu sína af Októberfest í Munchen. Þá er farið yfir jólabjórana aðeins, gott grín á kostnað strákanna og jólahlaðborðs strategíur.

    Í þessum þætti er smakkað:

    Paulaner Oktoberfest Bier

    Litla Brugghúsið Keilir IPA
    Veður fyrir leður Hoppy Pils nr. C30
    The Brothers Brewery Dirty Julie IPA
    Býkúpudrottning honey soured ale

    1 hr 10 min
  • S04E02 Lite haust

    Þessi þáttur hefst á óvnjulegum slóðum þegar Lite markaðinum á Íslandi eru gerð smávægileg skil. Þá er farið um víða völl og allskyns smakkað meðan piltarnir velta vöngum yfir lífi og tilveru.

    1 hr 1 min

About Bruggvarpið

From the publisher's feed

BruggVarpið er hlaðvarpsþáttur í umsjón Stefáns Pálssonar og Höskuldar Sæmundssonar. Báðir eru þeir áhugamenn um bjór, hafa skrifað bók um bjór, drukkið bjór í meira magni en þeir kjósa að viðurkenna…