Fílalag
Download on the App Store

Fílalag episodes

  • For Whom The Bell Tolls – Feigð, húð, hryggð, hefnd, reiði, örkuml, angist, bólur, reiði, sekt, keyrsla
    Metallica – For Whom the Bell Tolls Kalifornía 1981. Veröldin heilsar nýrri tónlistarstefnu. Metallinn hefur fengið að súrrast í áratug og nú er komið  að kalsíum og næringaefnabættri uppfærslu. Keyrslu-málmurinn er fundinn upp. Thrash-metallinn. Fremstir í flokki eru nokkrir unglingar í gallajökkum með slæma húð. Þeir eiga eftir að verða eitt stærsta skrímsli tónlistarsögunnar. Hvort […]
    1 hr 25 min
  • My Hero – Lappadagasnilld
    Foo Fighters – My Hero Handboltarokkið er tekið föstum tökum í þætti dagsins. Um er að ræða slökkviliðsmannastomperinn My Hero með Foo Figthers, úr miðju hávaðastríðinu 1998. Nirvana lagði skyndilega upp laupana vorið 1994 við fráfall Kurt Cobains og eftir stóðu tveir hálfþrítugir atvinnulausir rokkarar. Krist Novoselic er í dag að mestu þekktur sem gaurinn sem […]
    45 min
  • Sweet Caroline – Harka demantsins, ljúfleiki lífsins
    Neil Diamond – Sweet Caroline Þá er komið að augabrúnunum frá Brooklyn. Neil Diamond. Axlafílarinn mikli. Strit og uppskera. Hvolpaást í sumarbúðum. Vor, sumar, útsprungin blóm í vasa í Viceroy mettuðu baksviðsherbergi. Barnalæknabringan. Skyrturnar, skylmingarnar, Talmúd-ritningin. Haltu kjafti brjóstsykur. Svartur gítar, svart hár, svört aska á botni kamínu í bjálkakofa. Stjörnur á himninum. Orion-drulla stensluð í kama-sutra bæklinga […]
    1 hr 2 min
  • Hausverkun – Drullumall sem varð að múr
    Botnleðja – Hausverkun Gestófíll: Ari Eldjárn Það er komið að því. Hnausþykk fílun á bestu rokkhljómsveit síðari tíma á Íslandi. Ari Eldjárn var kallaður út því hér þurfti að draga búrhveli að landi. Botnleðja var rokktríó sem hafði allt. Ungæðiskraft, fyndna texta og svo voru þeir líka mjög kúl. Heiðar, Raggi og Halli voru með þetta. […]
    1 hr 18 min
  • The Rose – Sú sem sprakk út
    Bette Midler – The Rose „Stóra systir mín var vön að sitja á gólfinu í herberginu sínu. Þetta var 1979 og nánast daglega setti hún 45 snúninga plötuna með Rósinni undir fóninn á plötuspilaranum frá Sears. Hún lést í fyrra, var 53 ára gömul. Maðurinn hennar og ég vorum að fara í gegnum dótið hennar […]
    1 hr
  • Organ Donor – Kvíðadrepandi félagsmiðstöðvastomper
    DJ Shadow – Organ Donor Lygnið aftur augum. Hann er kominn að kveða burt kvíðann. Sjálfur skuggaprinsinn. DJ Shadow, í linum Dickies buxum og með hveitilitað hörund býður hann ykkur á scratch-námskeið. Það er komið að því að fíla. Það fíla allir Organ Donor, jafnt dýr sem menn. Fólk sem hefur aldrei heyrt það fílar það […]
    58 min
  • Þeir bestu – Ég mun fela öll mín tár
    Hljómar – Ég mun fela öll mín tár Undir fílunarnálunni eru Hljómar frá Keflavík. Besta band Íslands, fyrr og síðar.  Þeir voru vinsælastir, frjóastir og metnaðarfyllstir allra banda á Íslandi í svo langan tíma. Óháð öllu meiki og heimsyfirráðum, þá hefur ekkert band gefið hann jafn grimmann. Frá falsettum Berta Jens til lagasmíða Gunna Þórðar, […]
    1 hr 3 min
  • Alheimssturtan – Óðurinn til gleðinnar: Gestófíll Jóhann Alfreð
    Ludwig van Beethoven – Óðurinn til gleðinnar Gestófíll: Jóhann Alfreð Kristinsson Það sem lagt hefur verið á álfuna. Fyrst voru það kóngarnir, púðraðir, grimmir og graðir. Blóðið bunaði. Svo voru það byltingarsinnarnir, grimmari, graðari, hraðari. Blóðið spýttist. Svo var það Napóleon, púðraður, graður og agaður og blóðið fossaðist. Og með þessu fylgdist Schiller og síðar Lúðvík gamli […]
    1 hr 31 min
  • I’m Sleeping My Day Away – Einbeittur brotavilji
    D.A.D. – I’m Sleeping My Day Away Sporðdreki hríslast eftir maga á konu með mjótt mitti. Þurrt eyðimerkurlandslag. Smokkar. Rauður Winston á náttborði. Hríslandi kögur á ljótum leðurjakka. Danir í húsbát súpa á náttúruvíni. Fólk á Akranesi skaddar sig. Leðurblökur undir þakskyggni í Perth í Ástralíu. Í myrkrinu eru glyrnur.Mikki Mús liggur í valnum. Skorinn á […]
    52 min
  • Dreams – Málaðu veggina með trönuberjasultu
    Cranberries – Dreams Ungt fólk í yfirgefnum vöruhúsum. Dýna á gólfi. Bjór. Fússball borð. Kona í hippakjól keyrir belgvíðan gulan leigubíl yfir hvít, spíssuð úthverfagrindverk. Hlátur. Þau eru mætt og þau mála og mála. Mála og borða pizzur. Draumar. Rauð sósa út á kinn. Trönuberjasulta lengst út á kinn. Mála barnaherbergi. Stilla upp rimlarúmum, óróum. […]
    56 min

About Fílalag

From the publisher's feed

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.

More shows like Fílalag

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Besta platan by Hljóðkirkjan

Besta platan

9 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Tvíhöfði by tvihofdi

Tvíhöfði

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners