Fílalag
Download on the App Store

Fílalag episodes

  • Layla – Guð, gítar, kjuðar, dramb, ást, þrá, hamar, hnífur
    Sagan sem sögð er í nýjasta þætti Fílalags er líklega ein sú stærsta í rokksögunni. Þátturinn fjallar um Laylu, blúsrokk-neglu Eric Claptons og félaga sem teygði sig nokkuð nálægt himinskautum og er enn þann dag í dag talin með metnaðarfyllstu tónverkum sem rafmagnsgítarinn hefur smíðað. „Þetta er náttúrulega nánast því oftuggið tyggjó en það kemur […]
    53 min
  • Síðan hittumst við aftur – Helgi Björns og vatnstankurinn
    Bergur Ebbi og Snorri Helgason taka fyrir lagið Síðan hittumst við aftur í nýjasta þætti Fílalags. Sveitaballapopp var nafn á íslenskri tónlistarstefnu sem nú hefur að mestu liðið undir lok. Hún náði hámarki um síðustu aldamót þegar hljómsveitir eins og Á móti Sól, SSSól, Í svörtum fötum og Írafár sendu frá sér metnaðarfull lög og myndbönd. […]
    43 min
  • Man In The Mirror – Poppið og konungur þess
    Shamone. Fílalag stendur á tímamótum. Allt hefur verið gert. Konungur rokksins hefur verið fílaður. Glamrokk prinsinn hefur verið fílaður. Stjórinn hefur verið fílaður. Margir hafa verið tilnefndir. Flestir hafa verið maukfílaðir. En nú er komið að aðalréttinum: konungi poppsins. Við erum að tala um hanskakanslarann, sjálfan Michael Jackson, konung popp músíkur. Það verður ekki ráðist í neitt obscurity […]
    1 hr 8 min
  • You’re So Vain – Kona lætur karlana heyra það
    Carly Simon gaf út lag sitt, You’re So Vain, árið 1972. „Hún er 27 ára þegar þetta lag kemur út en samt er þetta rosalegt uppgjör við fortíðina. Það er eins og hún hafi lifað margar ævir þó hún sé ekki eldri en þetta,“ segir Bergur Ebbi í þessum nýjasta þætti Fílalags þar sem þessi […]
    32 min
  • Please Don’t Let Me Be Misunderstood – Að rista á hol og græða á því
    The Animals komu frá Newcastle á Englandi. Músíklega má segja að Newcastle sé einskonar Liverpool fyrir lengra komna. Newcastle liggur nokkrum gráðum norðar, er nokkrum stigum blúsaðara og tónlistin sem kom þaðan endurspeglaði það. Í þessum nýjasta þætti Fílalags er farið beint í hjartað á British Invasion bylgjunni í tónlist sem er það merkilega fyrirbæri […]
    0 min
  • Dancing On My Own – „Ég er út í horni og horfi á þig kyssa hana“
    Robyn gaf út Dancing on My Own árið 2010 en það lifir enn góðu lífi á skemmtistöðum og heimapartíum út um allan heim. Lagið er tragískur diskóstompari, stútfullt af dansvænni örvæntingu og metrósexúalískri sænskri fegurð. Það er ekki annað hægt en að fíla kjötsöxuðu bassaynthalínuna, yfirkeyrðan vocal-trackinn og chorus-bestunina. Sagan í textanum er mannleg og […]
    38 min
  • I Wanna Be Your Dog – Sturlaði táningurinn Detroit
    Ef Bandaríkin væru fjölskylda og borgir landsins fjölskyldumeðlimir þá væri Detroit sturlaði táningurinn. Það sem meira er: Detroit er eilífðartáningur. Vandræðagemsinn sem mætir heim til aldraðra foreldra sinna í leðurjakka og drepur í sígarettu á Drottinn blessi heimilið skiltinu og skipar föður sínum að fara út og kaupa bland og mömmu sinni að búa til […]
    51 min
  • Sound of Silence – Gæsahúð handa þér
    Það var heitt á könnunni. Það var heitt á pönnunni. New York ómaði af þjóðlagatónlist. Alpahúfurnar bærðust í vindinum og vindurinn boðaði breytingar. Paul Simon, ungur lagahöfundur frá Queens, var til í þetta og vinur hans fékk að vera með. Þeir boðuðu óm þagnarinnar. Hér er til fílunar Sound of Silence. Ein mesta gæsahúðarsprengja tónlistarsögunnar. […]
    36 min
  • Criticism as Inspiration – „Sex mínútna langur hengingarkaðall“
    „90’s var tími öfga í tónlist. Það sem var að seljast var annaðhvort öfga hedó-popp eins og 2Unlimited eða öfga rokk um sjálfstortímingu eins og Nine Inch Nails. Það var annaðhvort grunna laugin eða hyldýpið, ekkert pláss fyrir venjulegt svaml. En þegar rykið var að setjast voru margir í sárum. Heil kynslóð var sködduð. Meðal […]
    42 min

About Fílalag

From the publisher's feed

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur.

More shows like Fílalag

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Lestin by RÚV

Lestin

7 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

141 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Besta platan by Hljóðkirkjan

Besta platan

9 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Tvíhöfði by tvihofdi

Tvíhöfði

7 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners