Fotbolti.net

Fotbolti.net

By Fotbolti.net
Download on the App Store
  • Ranking

    9th

    on Professional

  • Favorites

    57

    Followers

  • Typical duration

    82 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Fotbolti.net episodes

  • Íslenski boltinn í limbói vegna veirunnar - Klárum þetta mót!
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Aftur er komið upp óvissuástand í íslenska fótboltanum vegna kórónaveirufaraldursins.
    Þórir Hákonarson, sérfræðingur þáttarins, fór yfir stöðu mála og rætt var um viðbrögð fótboltahreyfingarinnar við ástandinu. Hvað þurfum við að gera til að bjarga Íslandsmótinu?
    Þá var Guðni Bergsson, formaður KSÍ, á línunni og fór yfir hvað væri framundan.
    Umsjón: Elvar Geir, Benni Bóas og Gísli Þorkels.
    52 min
  • Bikaryfirferð - ÍBV og Fram að gera gott mót
    Úr útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977.
    Elvar Geir, Benni Bóas og Gísli Þorkels stýrðu skútunni.
    Ingólfur Sigurðsson mætti í heimsókn og fór yfir bikarleiki vikunnar, 16-liða úrslitin. Eftir dráttinn í 8-liða úrslt er ljóst að það verður Lengjudeildarlið í undanúrslitum.
    Opinberað var úrvalslið vikunnar í bikarnum.
    Þá var rætt við Daníel Geir Moritz, eiganda ÍBV, sem er staddur heima í Vestmannaeyjum. Spjallað var við Daníel um Þjóðhátíð, árangur ÍBV og bikarúrslitaleik Arsenal og Chelsea á Englandi.
    53 min
  • Heimavöllurinn - Uppgjör á fyrsta þriðjungi Lengjudeildarinnar
    Þáttur dagsins er tileinkaður fyrsta þriðjungi Lengjudeildarinnar. Knattspyrnuþjálfararnir Aníta Lísa Svansdóttir og Gylfi Tryggvason mæta í heimsókn og kryfja málin til mergjar ásamt Mist Rúnarsdóttur.
    Hvernig eru liðin að standast væntingar? Hvaða leikmenn og þjálfarar hafa skarað fram úr og hvaða lið hefur valdið mestum vonbrigðum?
    1 hr 33 min
  • Boltinn á Norðurlandi: Milo skákaði Deano, fyrsta stigið, múrað fyrir og sex á sig
    Það var aldeilis nóg um að vera síðastliðinn sunnudag þegar leikið var í efstu fjórum deildum Íslandsmóts karla.
    KA gerði jafntefli gegn Íslandmeisturunum, Þór steinlá gegn Fram, Magni náði í sitt fyrsta stig og KF vann gegn Selfossi.
    Dagskrá í tímaröð:
    Pepsi Max, Lengjan, 2. deild, 3. deild
    4. deild, tímabær sigur Þór/KA og óvænt tap Tindastóls
    Næstu leikir, skilaboð frá KSÍ.
    Umsjónarmenn: Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson.
    1 hr 5 min
  • Ástríðan - Allt það helsta í 2. og 3. deild með góðum gesti
    Ástríðan er hlaðvarp sem fjallar um neðri deildirnar á Íslandi.
    Þáttastjórnendur eru Óskar Smári Haraldsson og Sverrir Mar Smárason.
    Þeir fjalla um liðnar umferðir í 2. og 3. deild karla en þar hefur verið mikið leikjaálag að undanförnu og nóg að ræða. Dómgæslan hefur verið í umræðunni.
    Með þeim í þættinum í dag er Maggi Hödd, Magnús Haukur Harðarson, fótboltaáhugamaður og fyrrum þjálfari Vængja Júpiters.
    1 hr 25 min
  • Sandra María: Þakklát fyrir að fá að upplifa drauminn
    Sandra María Jessen skrifaði nýverið undir nýjan eins árs samning við Bayer Leverkusen og mun hún því leika með liðinu á komandi leiktíð í þýsku Bundesliga. Sandra gekk í raðir félagsins í janúar í fyrra og hafði nokkrum árið áður verið að láni hjá félaginu.
    49 min
  • Heimavöllurinn - Sif Atla, Svíþjóð og mikið Maxað
    Sif Atladóttir, landsliðskona, mætir í boltaspjall á Heimavellinum í dag. Hún fer yfir gang mála í sænsku deildinni og pælir í Pepsi Max með þáttastýru. Það varð aldeilis sprenging í uppgjöri toppliðanna í síðustu viku og pakkinn frá miðri deild og niður er sögulega þéttur. Ný Hekla er valin og við opinberum hvaða leikmaður var kosin best eftir fyrsta þriðjung Íslandsmótsins.
    1 hr 34 min
  • Innkastið - Sóknarsýning Blika og sterk KA gleraugu
    Fjallað um fjöruga níundu umferð Pepsi Max-deildarinnar. Elvar Geir, Gunnar Birgisson og Ingólfur Sigurðsson eru í Innkastinu að þessu sinni.
    Þátturinn er í boði White Fox, það besta í bransanum og vinsældirnar eru eftir því.
    Meðal efnis: Blikar með sýningu í fyrri hálfleik, KA gleraugun, Fylkismenn koma til baka, góð ferð Vals í Grafarvog, Lennon bjargar FH, Gunni giskar, bikarinn framundan, Lengjuhornið.
    1 hr 2 min
  • Fantabrögð - Uppgjör á enska tímabilinu
    Þá er hinu langa og sögulega tímabili 2019/2020 lokið í enska boltanum og þar með einnig Fantasy Premier League. Aron kom endurnærður úr sumarfríi og gerði upp tímabilið með Gylfa sem var þó heldur svekktur eftir erfiðan vetur.
    Hvað gekk upp - og það sem meira máli skiptir - hvað fór úrskeiðis? Hvað ætlum við að reyna að gera betur á næsta tímabili?
    Kevin de Bryune endaði sem stigahæsti leikmaðurinn að þessu sinni með 251 stig og það var því vel við hæfi að hann kláraði tímabilið með alvöru 19 stiga frammistöðu.
    Það var Búlgarinn Aleksandar Antonov sem sigraði Fantasy Premier League að þessu sinni og endaði með 2575 stig.
    Gunnar Björn Ólafsson varð stigahæsti Íslendingurinn og sigraði auk þess Budweiser deildina. Hann verður leystur út með glæsilegum vinningum þegar hann mætir sem gestur í næsta þátt Fantabragða og fer yfir sitt frábæra tímabil.
    1 hr 37 min
  • Boltinn á Norðurlandi: Addi heldur hreinu, úttekt á Grillvelli og grannaslagir gerðir upp
    Í þætti kvöldsins fengu þeir Aci og Sæbjörn fyrrum varamarkvörðinn, Egil Sigfússon, sem gest. Egill sagði frá sínum ferli og valdi meðal annars þrjá bestu varamannabekki landsins.
    Farið var ítarlega yfir nágrannaslagina tvo, heimaleik Samherja í dag, Þór/KA - Fylki og útileik KA í Kaplakrika.
    Dagskráin:
    Sögustund 1-7 (mín), KA 7-27, Þór - Magni 27-46, Völsungur - KF 46-60, Dalvík/Reynir 60-67.
    Tindastóll 68-73, Grillvöllurinn (Samherji) 73- 84, kvennaboltinn 84-91.
    Tákn, næstu leikir og smá gestaþraut 91-100.
    Umsjónarmenn Aksentije Milisic og Sæbjörn Þór Þórbergsson.
    1 hr 40 min

About Fotbolti.net

From the publisher's feed

Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.

Best of Fotbolti.net

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Fotbolti.net

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

5 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

21 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners