Grjótkastið

Grjótkastið

By Björn Ingi HrafnssonNewsNews Commentary
Download on the App Store

Grjótkastið episodes

  • Allt að verða vitlaust: Obba og Gulli í spennuþrungnu Grjótkasti

    Spennan var rafmögnuð í hljóðveri Grjótkastsins þegar Guðlaugur Þór Þórðarson (Gulli) umhverfisráðherra og Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir (Obba) þingkona Viðreisnar mættust hjá Birni Inga, enda birtist rosaleg könnun Prósents um fylgi flokkanna fyrir Moggann meðan á upptöku stóð, en þar sýnist Viðreisn vera nánast tvöfalt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. Gulli varar við vinstri slysum, en Obba bendir honum þá að sjálfur sé hann að koma úr sjö ára vinstri stjórnarsamstarfi. Af hverju gengur stjórnarflokkunum svona illa í baráttunni? Hvað gerist á lokasprettinum? Erum við á leið í ESB, er Reykjavíkurmódelið að teiknast upp í landsmálunum og Obba setur fram áskorun á Gulla í borgarmálunum. Eftirminnilegur þáttur!

    1 hr 14 min
  • Grjótkast á sterum: Eyþór Arnalds og Vigdís Hauks um lokadaga kosningabaráttu sem skipt geta sköpum

    Grjótkastið er á sterum í dag, en Vigdís Hauksdóttir lögmaður og fv. alþingismaður og borgarfulltrúi og Eyþór Arnalds tónlistarmaður og fv. borgarfulltrúi mæta til Björns Inga og tala umbúðalaust um kosningaherferðir flokkanna, hvað er að virka og hvað alls ekki. Spáð er afsögn formanns stjórnmálaflokks á sjálfa kosninganótt, vill þjóðin ESB? Var afleikur hjá Þorgerði Katrínu að segja í Grjótkastinu að Sjálfstæðisflokkurinn sé vart stjórntækur? Rætt er um slaufunarmenningu, Þórðarmál, Klaustur og fyrirgefningu syndanna, svo eitthvað sé nefnt. Klukkutíma sem er vel varið!

    58 min
  • Grjótkast Kristrúnar og Þorgerðar: Hvor verður forsætisráðherra? Þjóðaratkvæði um ESB, skattar og vandræði frambjóðenda

    Hér koma 72 mínútur af pólitískri þungavigt: Er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn óstjórntækur? Hvernig finnst Kristrúnu Þórðarmál vera fyrir Samfylkinguna. Alma Möller og Jón Gnarr eru ráðherrakandídatar. Heilbrigðismál í ólestri, rifist um skattastefnu og bankasölu, af hverju er Viðreisn hætt að vera leiðinleg og orðin skemmtileg? Skiptir máli að kynna útfærða stefnu, eða er það hættulegt? Og margt fleira í þætti sem vitnað verður til.

    1 hr 13 min
  • Grjótkastið: Tilfinningaþrungið uppgjör borgaralega þenkjandi fólks og ný könnun

    Í eftirminnilegu Grjótkasti mætast þau Brynjar Níelsson og Sigríður Á. Andersen og ræða erfiða stöðu ríkisstjórnarflokkanna og Sjálfstæðisflokksins sérstaklega, ruglið með borgarlínuna, skattamál og vandræði Samfylkingarinnar, ris Viðreisnar, möguleikann á borgaralegri ríkisstjórn og útþenslu báknsins á öllum sviðum. Kynnt er ný könnun Maskínu fyrir Viljann um viðhorf til hægri/vinstri ríkisstjórnar.

    1 hr 13 min
  • Grjótkastið: Svandís og Þórdís á trúnó um lok stjórnarsamstarfsins, furðulega kosningabaráttu og heiminn eftir risasigur Trumps

    Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra og Svandís Svavarsdóttir formaður VG og fv. ráðherra í stórmerkilegu Grjótkastsspjalli við Björn Inga á Viljanum. Hér er farið á trúnó um hin furðulegu lok stjórnarsamstarfsins, hvort mistök voru gerð fyrir þremur árum um að endurnýja samstarfið, erfiða stöðu allra stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni nú, hræðsluna við að toppa of snemma, átökin um vinstri og hægri, skattamál og baráttu VG fyrir lífinu hvorki meira né minna. Trúnó og greiningar á dýptina sem áhugafólk um stjórnmál ætti ekki að missa af.

    53 min
  • Grjótkastið: Örlagarík heimsókn til Kristrúnar, Gnarr-áhrifin, sigur Trumps og galdurinn að toppa á réttum tíma

    Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður í stórskemmtilegu spjalli um spennandi tíma! Örlagarík heimsókn til Kristrúnar Frostadóttur. Hverju breytir það í kosningabaráttunni hér að Donald Trump hafi sigrað í Bandaríkjunum? Er varnarsamningi okkar ógnað? Kemst ESB-aðild þá á dagskrá? Er Jón Gnarr hvalreki Viðreisnar? Hvernig toppar maður akkúrat á réttum tíma og hvað gerir Framsókn á lokasprettinum?

    1 hr 5 min
  • Grjótkast Dags og Áslaugar: 113 mínútur af alvöru pólitík

    Engu skiptir hvort reynt er að stilla þeim Degi B. Eggertssyni og Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur upp sem aðal- eða aukaleikurum, pólitíkin þeirra nær alltaf máli og þetta 112 mínútna langa Grjótkast hjá Birni Inga sætir miklum tíðindum. Hvaða ríkisstjórn fáum við Íslendingar fyrir jól? Verður kosið um Reykjavíkurmódelið? Á að hækka eða lækka skatta? Borgarlínan, Sundabraut, samgöngusáttmálinn, verkfall kennara, staðan í heilbrigðiskerfinu, skólamálin, ríkisstjórnin og kosningarnar - allt er hér undir.

    1 hr 54 min
  • Grjótkastið: Víðir kvíðir ekki pólitík og Bergþór tæklar Kragann

    Björn Ingi með Grjótkast af dýrari gerðinni: Víðir Reynisson er hættur að halda upplýsingafundi og kominn í pólitík, hvernig kom það til og við hverja ræddi hann í aðdragandanum? Þarf að gera Covid-tímabilið upp? Hvernig sér hann deilur Kristrúnar og Dags? Miðflokkur mælist með hörkufylgi í Norðvestur, en samt flytur Bergþór Ólason sig um set. Hvers vegna? Skipta upprifjanir á Klaustursmálum máli í þessari kosningabaráttu? Eru sjálfstæðismenn pirraðir á Miðflokknum? Hvernig þróast kosningabaráttan? Og hvaða ríkisstjórn fáum við?

    1 hr 16 min
  • Grjótkastið: Miskunnarlausir strigakjaftar

    Hérna eru 80 mínútur sem þú vilt alls ekki missa af. Ólöf Skaftadóttir og Stefán Einar Stefánsson fara á kostum í Grjótkastinu með Birni Inga þar sem rætt er um komandi kosningar, innanflokksmein í Valhöll þar sem forystan hefur gert ítrekuð mistök, þríeykið, vanda vinstri flokkanna, framboð lukkuriddara og mögulega ríkisstjórn. Hverjir fara á þing og hverjir verða fyrir vonbrigðum?

    1 hr 10 min
  • Nú þarf meirihlutinn að ráða

    Guðmundur Fertram Sigurjónsson frumkvöðull á Ísafirði, hefur tekið forystu um Vestfjarðalínuna, verkefni sem byggir á efnahagsundrinu sem orðið hefur til á Vestfjörðunum undanfarin ár, en kallar eftir stórauknum innviðum og meiri uppbyggingu. Hann gagnrýnir í spjalli við Björn Inga boðaðar breytingar á rekstrarumhverfi nýsköpunarfyrirtækja sem boðaðar eru í fjárlögunum sem nú liggja fyrir þinginu, talar upp sjávarútveginn og eldisiðnaðinn og talar um komandi þingkosningar, borgarlínuna sem þenst út í áætlunum meðan tækniþróun bendir í aðra átt og leggur áherslu á að meirihluti þjóðarinnar vilji sjálfbæra nýtingu auðlinda og verðmætasköpun, en aðeins lítill minnihluti ekki. Meirihlutinn verði nú að fá að ráða för.

    50 min

About Grjótkastið

From the publisher's feed

Grjótkastið. Fréttaskýringar, pistlar og viðtöl um málefni líðandi stundar. Dagbókarbrot.

More shows like Grjótkastið

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

138 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

20 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

14 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Seinni níu by Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson

Seinni níu

5 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners