
Sign up to save your podcasts
Or


#58 Laugavegsvikan er hafin!
Jæja nokkrir dagar í LAUGAVEGINN, takk.
Að því tilefni tókum við í Hlaupalíf smá ,,Laugavegs-trúnó’’ við betri helming H.H.
Við förum yfir hvernig ferðalagið hefur gengið fram til þessa, af hverju ákvað Elín Edda að prófa LV, hvaða tímamarkmið er hún með, hvernig metur hún samkeppnina, næringarplan, hlaupabúnaður og plan síðustu dagana fyrir hlaup og hlaupadaginn.
Þetta eru allt umræðuefni sem við fórum yfir og þú getur notið, hvort sem þú keppir í Laugavegshlaupinu 12. júlí eða ekki 😀
Að sjálfsögðu fórum við svo aðeins yfir hanskalausa hnefabardagann og mál málanna í dag; Arnar vs. Ármann!
Þátturinn er í boði; Heilsu, Optical Studio og Sportvörur.
Íþróttagúrúinn Siggi TRI kom til okkar í settið og ræddi við okkur um HOT TOPIC dagsins: HITAÞJÁLFUN.
Hver er sagan á bakvið þessi fræði? Hvað er hitaþjálfun? Hvaða áhrif hefur hitaþjálfun á líkamann og hvernig fer maður af stað? Passíf vs. actíf hitaþjálfun? Er þetta fyrir alla? hverjir eru að stunda þetta? Hvernig getur þetta gagnast mér?
Strangheiðarlegt spjall við einn öflugasta íþróttamann okkar Íslendinga.
Þátturinn er í boði: Heilsu, Sportvörur og Optical Studio.
Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring.
Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI.
En við hlauparar þurfum sannarlega að huga að atriðum tengt sólarvörnum, sólgleraugum, nuddsárum, rósroða, ofnæmi, sólarexemi og áhrifum hitaþjálfunar á húðina.
Þetta eru allt umfjöllunarefni sem við förum yfir með sérsnámslækni á Húðdeild Landspítalans: Sunnu Kristínu Hannesdóttur.
Þátturinn er í boði Optical Studio, Heilsu og Sportvörur.
.....en einnig á þeim léttu enda við í Hlaupalíf stemningsfólk en fyrst og fremst stemningshlauparar. Sturlaðar hlaupastaðreyndir á sínum stað og almennt gott spjall um hlaupalífið þessa dagana.
Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá slík met, m.a nýlega í 5 km Víðavangshlaupi ÍR.
Þá hljóp hún Lissabon maraþonið sl. haust á 3.35 og var fyrst í sínum aldursflokki. Langfyrst.
66 ára gömul.
Og sló þar með Íslandsmetið í sínum aldursflokki (65-69 ára). Geri aðrir betur.
Þvílík fyrirmynd sem hún Sigurbjörg er fyrir okkur hlaupara og í raun alla þá sem aðhyllast hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl.
Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi, æfir fyrir heilan Iron Man í ágúst, hefur langa og mikla reynslu af þjálfun, er með master í íþrótta og heilsufræðum, kennir við MH og Háskóla Íslands - og hefur fyrst og fremst mikla ástríðu fyrir heilbrigðum lífsstíl, rétt eins og við í Hlaupalíf Hlaðvarp.
Við fórum einnig yfir nokkur praktísk atriði fyrir Bakgarðshlaupið nk og kynntum til leiks nýjan lið; sturlaðar og skemmtilegar hlaupastaðreyndir!
Evrópumeistaramótið í götuhlaupum fór fram í Brüssel um liðna helgi. Nokkrir af frambærilegustu hlaupurum okkar kepptu fyrir Íslands hönd í 10 km, hálfu og heilu maraþoni. Elín Edda var á meðal keppanda í maraþoni sem við förum rækilega yfir í þættinum sem og allt mulighed tengt mótinu en betri helmingur Hlaupalíf Hlaðvarp tók upptökugræjurnar með sér og átti gott spjall við nokkra keppendur íslenska landsliðsins daginn fyrir keppnisdag.
Þið megið svo endilega fylgja okkur á Spotify eða Apple Podcast og setja eitt gott ,,like'' á facebook síðu Hlaupalíf Hlaðvarp :D
Njótið svo endilega páskana og vonandi njótiði þess borða eitthvað gott en fyrst og fremst mikið súkkulaði! :)
Það eru tæpir þrír mánuðir í STÓRA hlaupið; Laugavegshlaupið 2025 12 júlí nk.
Því fannst okkur í Hlaupalíf ekki úr vegi að fara yfir ýmis atriði tengd hlaupinu; hvernig best væri að undirbúa sig næstu vikurnar, dæmi um góðar ,,Laugavegs-æfingar'', umræður um næringu, endurheimt og andlega þáttinn eru allt umfjöllunarefni sem við fórum yfir og meira til með Elísabetu.
Það þarf vart að kynna viðmælandann. Hún hefur hlaupið Laugaveginn oft. Mjög oft. Eða 15x og er einnig með sérstakt undirbúningsnámskeið hjá Náttúruhlaupum fyrir þetta fræga hlaup og er því afar fróð um þessi atriði.
Enjoy!
Hlaupavorið og hlaupasumarið handan við hornið og þá hlöðum við fallbyssurnar og skjótum nýjum og brakandi ferskum þætti í loftið. Margt á döfinni; Evrópumeistaramótið í maraþoni hjá Elínu Eddu, nýr dagskrárliður; Hlaupalíf-þjálfunarhornið, hvernig var hlaupaveturinn og síðast en ekki síst; ofurpepp fyrir hlaupasumrinu. Sem verður frábært hlaupasumar.
Hvað er heilsueflandi vinnustaður og hvernig kann það að hafa áhrif á vinnustaðinn þinn? Við fengum tvo öfluga lækna í settið sem sögðu okkur frá eigin reynslu af því að heilsuefla vinnustaðina sína. Þetta er okkur í Hlaupalíf hjartans mál enda trúum við einlæglega á hreyfingu (eins og hlaup) sem frábært tæki til að efla vellíðan og heilsu í eigin lífi, og ekki síður í vinnunni.
From the publisher's feed

90 Listeners

15 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

13 Listeners

15 Listeners

6 Listeners

3 Listeners

0 Listeners

3 Listeners

27 Listeners

15 Listeners

1 Listeners