
Sign up to save your podcasts
Or


Þorbergur Ingi / Tobbi er besti utanvegahlaupari okkar Íslendinga. Enginn hefur skorað jafn mörg ITRA stig, hann er eini Íslendingurinn sem hefur farið Laugaveginn undir 4 klukkutímum (þunnur?), margfaldur landsliðsmaður, lenti í 6. sæti í einu stærsta utanvegahlaupi heims, hann hefur tvisvar sinnum farið UTMB og gerir þetta allt samhliða fullu starfi hjá Marel sem véla- og orkufræðingur - og tveggja barna faðir.
Tobbi hefur einstaka nálgun á ultra hlaup sem hann nýtir sér í lífinu sjálfu. Það er erfitt að fyllast ekki innblástri yfir metnaðinum í manninum og dást að árangrinum sem hann hefur náð.
Þátturinn er tekinn upp sólarhring eftir að Tobbi kláraði Súlur Vertical 100km á vægast sagt stórkostlegu brautarmeti þar sem hann fór undir 10 klukkutímana.
Í boði Sjóvá og Gifflar.
Hvernig fer snæviþakinn Noregur að því að sigra Ólympíuleikana í strandblaki? Hvernig komst Jakob Ingebrigtsen hlaupandi í mark á undan Kenýumanninum? Síðan hvenær var heimsmeistarinn í Ironman norskur?
Í stúdíóið mæta Aron Gauti Laxdal, dósent við háskólann í Agder og Gunnar Birgisson, íþróttafréttamaður, til að kryfja þessar spurningar og gera grein fyrir því hvernig Norðmenn ala af sér íþróttamenn í sérflokki: þjálffræðin, kúltúrinn, mjólkursýrumælingarnar, peningarnir, Ingebrigtsen fjölskyldan, gagnrýnisraddirnar, Olympiatoppen, krossþjálfunin og Ventolín pústin!
Í boði Sjóvá og Gifflar.
Andrea Kolbeins og Andri Guðmundsson fundu sér sameiginlegan vígvöll í Laugavegshlaupinu um miðjan júlí. Andrea kom undan þriggja Íslandsmeistaratitla keppnishelgi, 10km götuhlaupi, hálfmaraþoni og ultrahlaupi áður en hún mætti á startlínuna en Andri tók 350km í bakgarðinum og tók svo afleiðingunum.
Umræðuefni þáttarins eru meðal annars:
Í boði Sjóvá og Gifflar.
From the publisher's feed

462 Listeners

215 Listeners

22 Listeners

90 Listeners

17 Listeners

72 Listeners

32 Listeners

28 Listeners

20 Listeners

15 Listeners

6 Listeners

12 Listeners

3 Listeners

27 Listeners

14 Listeners