LANGA - hlaðvarp

LANGA - hlaðvarp

By Snorri BjörnsHealth & Fitness
Download on the App Store

LANGA - hlaðvarp episodes

  • 43. Næsta bylting í íþróttum er... íslensk? Frá Harvard til Team Visma, Kilian Jornet og Norska Ólympíusambandsins.

    Arnar Lárusson og teymið hans kepptu gegn Boston Dynamics í keppni á vegum DARPA (klikkuðu þróunardeildinni sem leitar að mörkum hins mögulega á vegum bandaríska hersins) um að bæta skilvirkni og orkunotkun mannslíkamans með utanáliggjandi stoðgrind (glöggir hlauparar eru strax farnir að tengja þessa flóknu skilgreiningu við carbon skó).

    Teyminu tókst að bæta hagkvæmni líkamans og við mælingar á rannsóknunum fæðist hugmynd Arnars um að mæla innri starfsemi mannslíkamans í gegnum loftflæði. Hann segir skilið við Harvard og endar í háfjallaæfingabúðum með Team Visma, fær 2x Tour De France meistarann Jonas Vingegaard til að kenna sér á kaffivélina, sendir Kilian Jornet með prótótýpuna sína á Everest og vinnur nú m.a. með Norska Ólympíusambandinu að því að safna gulli á Vetrarólympíuleikunum 2026. Þessir aðilar halda varla vatni yfir tölunum og gögnunum sem næsta bylting í úthaldsíþróttum er að veita þeim.

    Lokaðu augunum og hlustaðu vel, you're in for a ride.

    1 hr 49 min
  • 42. "Ekki bestur... betri!" – Sigurbjörn Árni Arngrímsson

    Ekki bara lýsandinn Sigurbjörn Árni heldur doktorinn í lífeðlisfræði, skólameistarinn og 40x-faldur Íslandsmeistari í hlaupum.


    Sigurbjörn stundaði verulega áhugaverðar rannsóknir við doktorsnám sitt í Bandaríkjunum. Niðurstöðurnar eru nýttar í tengslum við hámarksframmistöðu íþróttamanna á hæsta getustigi úti um allan heim.

    Sömuleiðis gerði hann ýmsar tilraunir á sjálfum sér með t.d. sodium bicarbonate/matarsóda, svíngrófu æfingaprógrammi og lagði allt í sölurnar til þess að hámarka árangur sinn í hlaupum–ekki til þess að verða bestur... heldur til þess að verða betri!

    1 hr 19 min
  • Backyard BBQ #2 – Hálf lungu, „Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum!“, örmögnun og CPH maraþon

    Bjarni Ármanns kallar þetta gott, Pétur Ívars gefur okkur innsýn í CPH maraþonið (þar sem Andrea gerði atlögu að Íslandsmeti nú í morgun), "Bjarni Ármanns hættir ekki í stólnum", Mari fær orku út úr því að leiða aðra í gegnum þjáninguna og Ósk Gunnars deilir með okkur ástæðunni og hvatanum á bakvið Bakgarðinn sinn.


    Í boði NOW, Sjóvá, Hlaupár, Bodylab og Kia EV3!

    29 min
  • Backyard BBQ #1 - Mari með mækinn, Bjarni Ármanns reiðubúinn í 111 hringi, ketó-bakgarður og Elísabet Margeirs.

    Sein útsending frá Bakgarðinum! Mari Jaersk stendur undir nafni, Bjarni Ármanns gerir grein fyrir áformum sínum (111 hringir?), Egill Trausti reyndi við Ketó-Bakgarð og Elísabet Margeirs mun taka Bakgarð þegar hún nennir því.

    Fylgið okkur á Instagram og fylgist með hér á Spotify, við verðum að alla helgina í boði Kia EV3, Hlaupár, Bodylab, Sjóvá og NOW!

    31 min
  • 38. Íslandsmet í maraþoni, brautarmet í Puffin, vonbrigði, pressa og næstu sigrar... á eigin forsendum! – Hlynur Andrésson

    Sigurvegari Puffin Run og Íslandsmethafi í maraþoni kemur funheitur inn í stúdíóið og ræðir sigurinn í Puffin Run síðustu helgi.

    Hlynur átti Íslandsmetin frá 3000m upp í maraþon árið 2021 en við ræðum erfiða tíma sem fylgdu árangrinum: 3x misheppnaðar tilraunir til að slá eigið Íslandsmet, næring á hlaupum, þjálffræðin sem hann aðhyllist, hvernig þjálfaraskipti og flutningar til Ítalíu sem fóru illa með hann, að missa áhugann á hlaupunum, finna ekki gleðina í íþróttinni lengur og upprisan úr þessu öllu saman!

    Svo kemst enginn elítuhlaupari út úr stúdíóinu án þess að segja sína skoðun á sodium bicarbonate, hitaþjálfun, high-carb fueling, carbon skó, krossþjálfun og fleiri þætti sem eru að skila okkur nýrri gullöld af langhlaupum.

    1 hr 13 min
  • Hvernig vinnuru Puffin Run 2025? (Sterkasta utanvegahlaup ársins)

    Það stefnir í að sterkustu hlauparar landsins mæti á startlínuna í Puffin Run 2025. Þorbergur Ingi kemur með greiningu á hlaupinu:

    • Hlynur Andrésson er hraðasti hlauparinn, Arnar Pétursson á brautarmetið og Þorsteinn Roy hefur yfirnáttúrulega hæfileika í erfiðri braut. Hvernig halda menn á vopnum sínum og hvenær þurfa þeir að höggva?
    • Andrea Kolbeins, Guðlaug Edda og Elín Edda keppast kvennamegin. Hversu hratt þarf Andrea að fara til að tryggja sér sigur – og Íslandsmet í maraþoni helgina eftir? Munu Eddurnar gera hennir erfitt fyrir?
    • Verðlaunaféð í Puffin: Samanburður við Reykjavíkurmaraþon og vangaveltur um hvata fyrir elítuhlaupara.
    41 min
  • Míluðustu menn landsins: Ofurskórnir - eitthvað shady í gangi? „Milage is king,“ London, Boston, 40km túr á bretti og Vorri gegn Ingebrigtsen.

    Það eru fáir Íslendingar sem hlaupa jafn marga kílómetra og Guðmundur Magnússon og Viktor Orri Pétursson þessa dagana. Þeir uppskera eins og þeir sá: báðir með maraþon PB í aprílmánuði... eftir að hafa náð maraþon PB seint á síðasta ári.

    Þeir veltu stóru steinunum í þættinum:

    • Hvað er í gangi með ofurskóna? Puma segist hafa í höndunum 3+% betri skó miðað við bestu skóna á markaðnum.
    • Var Nike löngu búið að finna upp carbon skóinn?
    • Hvernig æfir Gummi til að fara maraþon á 2:46 í fyrstu tilraun?
    • Hvernig var fyrir Viktor að mæta Jakob Ingebrigtsen á brautinni.
    • Röntgen myndir til að sanna að Jakob Kiplimo sé 15 ára.
    • Sifan Hassan vs. Tigist Assefa: The Rematch.
    • Baldvin Magnússon chippar inn í umræðuna, alla leið frá Bretlandi.
    • Gummi (sérfræðingur) gefur gefur grænt eða rautt ljós á hlaupatrend og hlaupatísku.
    • Vecct - Íslenskt hlaupafatamerki
    • Yfirferð á London/Boston maraþonunum.
    1 hr 44 min
  • 35. Afrekslandið heimsótt: beinheilsa & beinmeiðsli, Ingebrigtsen dómsmálið, hitaþjálfun, kolvetni, VLOG og maraþon season.

    Ekki trúa neinu sem þú heyrir og bara helmingnum af því sem þú sérð. LANGA hlaðvarp er mætt til Afrekslandsins og fær á hreint, í eitt skiptið fyrir öll, af hverju Norðmenn eru svona góðir í íþróttum.

    Guðfinna Kristín stýrir þættinum með okkur, við förum í saumana á árangri Bergenbúa í íþróttum, samstarf Olympiatoppen við almenning, Ingebrigtsen dómsmálið, fræðumst um beinheilsu (og beinmeiðsli) hlaupara, spáum fyrir um árið 2025, ræðum hitaþjálfun og saununotkun samhliða hlaupum (bætingar), Boston maraþonið, London maraþonið og fleira af hlaðborði langhlaupanna.

    2 hr 13 min
  • „Ég legg það ekki á mig, fjölskylduna og neinn í kringum mig að við höldum þessu áfram.“ – Hreinskilið uppgjör eins besta þríþrautarmanns Íslands.

    Rúnar Örn setti Íslandsmetið í Ironman í fyrstu tilraun árið 2016. Margur myndi  áætla að þetta væri gríðarlega ánægjulegt augnablik á ferli Rúnars en það var margt í gangi á bakvið tjöldin sem gerði honum erfitt fyrir að vera stoltur af sjálfum sér. Næstu tvö árin voru svo mikill rússíbani að Rúnar tók þá ákvörðun að hætta frekar í íþróttinni en halda áfram að reyna.
    Það kemur fljótt í ljós í þessu viðtali að Rúnar er einstaklega hreinskilinn og einlægur í sinni frásögn og hikar ekki við að tala um allar hliðar þess að hætta í vinnunni og fórna tíma með fjölskyldu og vinum til að ná lengra í íþróttinni sinni.

    Við ræðum um:

    • Hugrekkið sem þarf til þess að taka fyrsta skrefið í átt að stórum markmiðum.
    • Hvað verður um þá sem ná ekki stóru markmiðunum.
    • Glansmyndina þegar vel gengur
    • Ákvörðunina að hætta í vinnunni til þess að gefa allt í íþróttina.
    • Sætustu sigrana og dýfuna og sjálfsniðurrifið sem fylgdi því að hætta í miðri keppni.
    • Vinnan og hjálpin sem hann fékk til að ná sér upp aftur.
    • Hvernig það fjaraði undan gleðinni þegar Rúnar fór að æfa einn.
    • Augnablikin (í fleirtölu) þegar hann vissi að nú væri kominn tími til að hætta.


    „Fyrir hvert eitt skipti sem við sjáum glansmyndina þá eru miklu fleiri svona móment – þar sem einhver lét vaða og það gekk ekki upp. Það ratar ekki alltaf á Instagram, flestir bara loka hurðinni og hverfa. Það er líka bara hollt að tala um það því það er alveg jafn mikið afrek. Afrekið er að þora að láta vaða, það er bara bónus ef það gengur upp. Hugrekkið er að taka fyrsta skrefið.“


    Grein Rúnars um ferðalagið til Kona sem var kveikjan að þessu viðtali.

    1 hr 40 min

About LANGA - hlaðvarp

From the publisher's feed

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

More shows like LANGA - hlaðvarp

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

12 Listeners

Út að hlaupa by Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Út að hlaupa

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners