LANGA - hlaðvarp

LANGA - hlaðvarp

By Snorri BjörnsHealth & Fitness
Download on the App Store

LANGA - hlaðvarp episodes

  • 92. Offramboð af úthaldi - Synir LANGA létta af sér

    Western States vannst á sögulega hröðum tíma af mesta myrkrahesti hlaupasenunnar - en það er Elísa Kristinsdóttir sem á afrek helgarinnar og lokar þriðja UTMB sigrinum á 8 mánuðum. Helgin var smekkfull af úthaldsafrekum: Tove vinnur Mont Blanc Marathon á tíma sem fær menn til að spá henni sigri gegn íslensku körlunum í Dyrfjallahlaupinu í næstu viku, Norðmenn sýna enn og aftur að þeir eru bestir í Ironman og LANGA gefur rautt spjald fyrir að skipta um vegalengd í miðju hlaupi.

    1 hr 41 min
  • 91. Tilhneigingin til að ofgera sér, beinbjúgur, hjól fyrir hlaupara, WSER og The Swedish Method

    Handbolta- hjóla- og hlaupadrottningin Ágústa Edda og bakgarðs- og brokkolíspírukóngurinn Andri Guðmundsson mæta í stúdíóið til þess að ræða tilhneiginguna til þess að gera eins mikið og mögulegt er (👀🫵), hjólaæfingar fyrir hlaupara (hvað er hægt að læra af Tour de France hjólara sem hleypur hálft maraþon á 61 mínútu?), REDs og beinmeiðsli sem koma aftan að manni, sterkustu ráslínu í Western States frá upphafi, red zone sprengjuárásir í hjólreiðum, sænsku hlaupasenuna - og leggja síðast en ekki síst drög að Langathoninu.

    1 hr 52 min
  • 90. Latsi & Geir Ómars - Kominn til Kona!

    Latsi er kominn til Kona, Björgvin Karl er kominn í þríþraut og Andrea Kolbeins er komin í hjólreiðarnar.

    Geir Ómarsson og Einar Sigurjónsson eru komnir frá Filippseyjum með hálfan og heilan járnkarl undir beltinu til þess að gefa okkur ferðasöguna og fara yfir helstu vendingar í heimi úthaldsíþrótta.

    1 hr 48 min
  • 89. Þorbergur Ingi eftir EM

    Crazy carb numbers, einkapepparinn Þorsteinn Roy, hærri ITRA stig á Íslandi en í útlöndum, Tobbi vs. Tove (í beinni frá Dyrfjallahlaupinu) og yfirferð á frammistöðu íslenska landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í utanvegahlaupum.

    1 hr 11 min
  • 88. Enhanced Games, peptides, sál til sölu og hvað fara margir undir 4 í Laugaveginum? - Synir LANGA

    Engir gíslar teknir: Foreldrafélag LANGA hlaðvarps fordæmir Enhanced Games, hvað munu margir hlauparar fara undir 4 tíma í Laugaveginum? Gera þeir það í síðbuxum? Sage Canaday tilkynnir Cameron Hanes (58 ára… 2:39 maraþon… ???) til lyfjaeftirlitsins útaf peptíðum, Francesco Puppi efast um að 400km hlaup flokkist sem utanvegahlaup og Íslendingar munu valda skaða á Evrópumeistaramótinu næstu helgi.

    2 hr 9 min
  • DOPING, gráa svæðið, HGH, EPO og löglegar leiðir að heimsmetum - Ingimar Jónsson, Msc. molecular medicine

    Á ég rétt á því að vera skeptískur þegar ég horfi á besta árangur mannkynssögunnar nást, þvert á íþróttagreinar? Ingimar Jónsson, Msc. í molecular medicine (Sameindalífvísindi. Takk.), er í beinni frá Afrekslandinu til þess að ræða um árangur íþróttafólks með tilliti til frammistöðuaukandi efna: Testesterón, HGH, EPO, örvandi efni (hvað ertu búin með marga kaffibolla í dag?) og insúlín - hefur þetta einhver áhrif? Eru allir á sterum? Eru lyfjaprófin að virka sem skildi? Munu Enhanced Games sýna að allir eru að dópa? Af hverju fá sumir undanþágur fyrir frammistöðuaukandi efnum?


    Ingimar er bjartsýnn, yfir meðalgreind og trúir á það góða í manneskjunni - rétt eins og hlustendur LANGA hlaðvarps. Eigið góða helgi!

    1 hr 37 min
  • 86. Hlynur Andrésson - tilraun við Íslandsmet, maraþonæfingar, sub 1:59, kolvetni og koltrefjar

    Hlyni Andréssyni rænt í viðtal beint eftir Kaupmannahafnarmaraþonið þar sem hann hljóp á öðrum hraðasta tíma Íslandssögunnar, 2:15:30, en tókst ekki að slá eigið Íslandsmet. Hlynur veltir hér öllum steinum er viðkoma maraþonundirbúningi og þeirri staðreynd um hversu erfitt það er að framkvæma gott maraþon: Kolvetnainntaka, magaóþægindi, carbon skór, maraþon undir 1:59 á árinu, vafasöm hematókrítgildi, að fá ekki mynd af sér með Jakobi Ingebrigtsen (?), Íslandsmetið í hálfu maraþoni og allt hitt sem langhlauparar landsins hugsa um þegar þeir leggjast á koddann eftir erfiðan æfingadag.

    1 hr 12 min
  • 85. KRISTIAN BLUMMENFELT

    Coming off an epic win streak in early 2026, live from Bergen, the one and only: Kristian Blummenfelt.

    What could he run for the marathon with a year of marathon-specific preparation? How does he knock off multiple half Ironmans and Ironmans in the span of a couple of weeks? What happened to only running 2 marathons a year? When did the high-carb revolution hit the Norwegians? Can recent endurance performances be attributed to the super shoes and carbohydrates alone? Did Kristian hit the coach jackpot when he entered triathlon?

    We discuss the high-milage approach, cleaning up his diet while eating 7.000 calories, not being good at any sport as a kid but still wanting to be an Olympic champion, Norseman, Klæbo’s isolation tactics, training with the Ingebrigtsen brothers, almost not being accepted for class, knocking out a 1:08 half marathon in his off season, the possibility that he absorbs more calories from food than the average person, the 100+ VO2max test, deviating from the Norwegian measure-everything approach, and not signing with the Norwegian national team.


    1 hr 17 min
  • 84. Baldvin Þór Magnússon

    Viðbrögð við sub2 maraþoni, kolvetni og carbon skór, uppgjör á fyrstu götumílunni, hvernig hleypur einhver 25 ára gaur maraþon á 2:05 (fjórði hraðasti tími Bandaríkjamanns), meiðslin, Nike samningurinn og vegferðin í átt að Birmingham 2026.

    1 hr 6 min

About LANGA - hlaðvarp

From the publisher's feed

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

More shows like LANGA - hlaðvarp

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

12 Listeners

Út að hlaupa by Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Út að hlaupa

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners