LANGA - hlaðvarp

LANGA - hlaðvarp

By Snorri BjörnsHealth & Fitness
Download on the App Store

LANGA - hlaðvarp episodes

  • BREAKING2, skórnir, lyfjaprófin, kolvetnin og bicarb?

    Latsi var sem betur fer á bakvakt þegar Sebastian Sawe og Yomif Kejelcha brutu tveggja tíma múrinn í London maraþoninu. Vænleg yfirferð á Breaking 2 verkefni Nike sem byrjaði þetta allt saman, hvernig Adidas stal þrumunni og setti báða sub2 hlauparana í Adidas skó, lyfjaprófin 25 sem Sawe bað um aukalega til að sanna sakleysi sitt, ný tegund ofurskóa ryður sér rúms, eru fleiri sem geta hlaupið undir tveimur en eru með samning við vitlausan skóframleiðanda? Virkaði bicarb á keppnisdegi og hvað tóku þeir inn mörg grömm af kolvetnum? 

    1 hr 37 min
  • 82. PENINGAR, frægð, athygli og samstörf - Snorri Barón

    Eru íþróttamenn bara fáklæddir áhrifavaldar með hátt VO2max??


    Snorri Barón, hlaupari, hefur áratuga reynslu úr auglýsingabransanum sem hann heimfærði á umboðsmennsku og listina við að leiða saman íþróttamenn og fyrirtæki. Snorri veitir hér sína skoðun á því hvort leikurinn snúist um að verða sá besti eða sá vinsælasti: hver ber ábyrgð á vinsældum íþróttamanns, fjölmiðlar eða íþróttamaðurinn sjálfur? Er það vinsælasti eða besti íþróttamaðurinn sem á peninginn skilið? Eru einstaklingar að þykjast vera sponsaðir? Eiga íþróttamenn peninga skilið yfir höfuð? Hverjir fá samninginn við Nike og Adidas? Hvað vilja fyrirtæki fá út úr samstarfi? Þarf að sýna frá öllu lífi sínu ef maður ætlar að hafa eitthvað upp úr íþróttinni? Eru fyrirtæki of varkár?


    Snorri rekur einnig samstarf sitt við Björgvin Karl (lirfan sem varð að fiðrildi), að hjálpa íþróttafólki sem fellur á lyfjaprófi og eigin raunir af því að fá annan séns í lífinu.

    1 hr 39 min
  • Hæsta VO2max Íslendings, KRISTIAN BLU óstöðvandi, leiðir til að bæta sig/meiðast og lygilegar mælingar

    Hans fræðsla, þinn árangur.

    Latsi heldur uppi ábyrgri umræðu um hæstu VO2max mælingar Íslandssgöunnar (official), ástæðu (eintala) þess að Arnar hægði á sér undir lok 100km hlaupsins, konur sem hlaupa Boston maraþonið 🤨, tilraun Hlyns við hraðasta maraþon Íslendings, YFIRBURÐIR Kristians Blummenfelt og hrottalegar (leynilegar) hlaupaæfingar, lygilegar mjólkursýrumælingar og nokkrar leiðir til að hlaupa hraðar og meiðast.

    2 hr 2 min
  • Fraser mútar BKG, VO2max genafrík, KLÆBO, komdu þér á framfæri og Northaug í neyslu

    Þurfa þessir íþróttamenn stanslausa styrki til þess að iðka íþróttina sína eða er hægt að taka málin í eigin hendur?

    Gunni Birgis og Björgvin Karl mæta nýklipptir í stúdíóið til að ræða ótrúlegan uppgang og vinsældir CrossFit, hvernig íslensku CrossFittararnir byggðu feril sinn á gríðarlegum vinsældum (og hvaða tækifæri opnuðu dyrnar að stóru samningunum), LYGILEGAR mútugreiðslur frá Matt Fraser til Bjögga, hvatningu til íþróttafólks um að trana sér meira fram, bekkjarbróðir Gunna mældist með hæsta VO2max í sögunni og varð heimsmeistari í hjólreiðum án þess að nenna því neitt sérstaklega, hard work vs. talent, Bjögga-bölvunin og byltan hans Klæbo, HEGGEN26, Ethereum vs. Bitcoin (fjárfestingarráðgjöf), Petter Northaug með ökklaband í heimagymminu og síðast en ekki síst - er kominn tími til að setja íþróttafólk utan á matvörur?

    1 hr 58 min
  • 79. Hlaupari með Íslandsmet í kraftlyftingum - Björn Margeirsson

    Björn Margeirsson er einn af 5 systkinum sem öll eru doktorar. Hann er einn besti millivegalengdahlaupari Íslandssögunnar, lengdi upp í maraþonið og Laugaveginn, tók brautarmetið hans Þorbergs Inga og sneri sér svo að kraftlyftingum - þar sem Íslandsmetin fengu heldur engan frið.

    Bjössi er úr sveit og segir hlutina þess vegna eins og þeir eru. Eiga allir að flytja út 15 ára? Eru frjálsar að deyja út? Er CrossFit íþrótt? Af hverju vilja crossfittarar ekki lyfjapróf? Er hægt að fá athygli ef maður hleypur styttra en 10km?

    1 hr 39 min
  • 78. BONK æfingar, árangur út frá bakgarðinum, UTMB deilur, ketó og lexíur brautryðjandans - Elísabet Margeirs fer yfir áratug af ULTRA

    Elísabet Margeirs með væææna yfirferð á hlaupasenunni allt frá því að hér varð hrun. Ekki nóg með að ryðja brautina fyrir ultrahlaupum á Íslandi þá er hún að auki með frábæra innsýn í hlaupasenuna úti um allan heim ásamt því að vera næringarfræðingur, hlaupahaldari og þjálfari. Við ræðum hvernig bakgarðurinn spilar inn í ótrúlegan árangur Elísu, BONK æfingarnar sem hefði mátt sleppa, hvað Elísabet sagði við Elísu til að ýta henni nokkra hringi í viðbót á ögurstundu, breytingar á mataræði hlaupara í gegnum tíðina („guð minn góður hvað ég er búin að vera vannærð í gegnum tíðina í þessum löngu hlaupum“), hvað Tobbi var að gera öðruvísi en allir hinir, dramað sem fylgir vinsældum UTMB og vöxtinn frá litlu derhúfu-nördasamfélagi í þjóðaríþrótt Íslendinga.

    1 hr 54 min
  • 77. Elísa Kristinsdóttir – Gott form, harður haus.

    Elísa keppti í Chianti 75km síðustu helgi og sigldi sigrinum heim á móti Judith Wyder. Þetta er ekki eini UTMB sigurinn hennar síðan hún kom síðast í viðtal hjá LANGA og í millitíðinni var hún tekin inn í landsliðið, lenti í 11. sæti á HM og hljóp 10km undir 35 mín.

    Á sama tímabili fór hún í gegnum meiðsli og þjálfaraskipti sem við ræðum í þættinum ásamt ótrúlegri (og nákvæmri) kolvetnainntöku í Chianti, að líta ekki of mikið upp til Judith Wyder, hugarfarinu sem þarf til að ákveða að taka fram úr henni með tugi kílómetra eftir af hlaupinu, hvaða hugarleikfimi Elísa stundar í ultra halupum, hvernig henni tekst að ná öllu úr sér í hverju einasta keppnishlaupi, að vera hörð við sjálfa sig og af hverju hún þarf þjálfara.

    1 hr 28 min
  • 76. Hlauparar með myndavélar, KILIAN, Elísa & Andrea á móti heiminum, landsliðsvalið og Arnar Péturs stigahæstur

    Synir LANGA, Egill Örn og Guðlaugur Ari, fara yfir liðna atburði og veisluna sem er í vændum:

    • ​Þarf að vera besti hlaupari landsins OG áhrifavaldur til þess að leggja íþróttina fyrir sig?
    • ​Óánægja með landsliðsvalið
    • ​Pendúllinn sveiflast: er FH að skemma partýið? Er brautin snúin aftur?
    • ​Annað hvort er Arnar Péturs í formi lífs síns eða að hlaupa á biluðu hlaupabretti.
    • ​Hvort myndirðu frekar: 27:40 í 10km eða 6:20:00 í 100km?
    • ​Elísa og Andrea keppa á móti bestu hlaupurum í heiminum eftir nokkra daga!
    • ​Hlynur Andrésson með sub29 í 10km og keppir stíft næstu vikur.
    • ​UFA Hype Train er bremsulaus.
    • ​SISU
    • ​Kilian Jornet gaf fólkinu nákvæmlega það sem það vildi. 2026 er árið.
    1 hr 58 min
  • 75. KLÆBO djúpköfun: yfirburðirnir, æfingarnar, spretturinn og afinn.

    Það dugði ekki minna til en að fá ólympíufarann, og fyrrum keppniaut Klæbo, Sævar Birgisson til þess að kafa djúpt í árangur og yfirburði Johannes Høsflot Klæbo sem við erum að horfa upp á þessa dagana. Hvernig varð hann svona góður? Er eðlilegt að geta unnið bestu sprettarana og líka mestu úthaldsvélarnar? Er þetta grunsamlegt? Hvernig æfir hann? Af hverju gera hinir ekki bara eins og hann? Hver er afi hans og af hverju geta þeir tveir farið gegn kerfinu og sigrað heiminn? Sævar fer með stórleik í sögugreiningu og fróðleik, gegn misgáfulegum spurningum Snorra Björnssonar, í þessum þætti.

    2 hr 2 min

About LANGA - hlaðvarp

From the publisher's feed

Hlaðvarp um langanir og langar vegalengdir.

More shows like LANGA - hlaðvarp

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

22 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Ólafssynir í Undralandi by Útvarp 101

Ólafssynir í Undralandi

12 Listeners

Út að hlaupa by Marteinn Urbancic og Þorsteinn Roy Jóhannsson

Út að hlaupa

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners