Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Gráðugir algóritmar, vinnustofuheimsókn og einkarými
    Í New York hefur sendlafyrirtækið DoorDash gert sátt við borgaryfirvöld eftir að upp komst að sendlar á þeirra vegum hafi ekki fengið greitt sem skyldi vegna algrímis sem sumir segja gallað en aðrir óheiðarlegt. Við ræðum við Sigmund Halldórsson, sérfræðing hjá VR, um algrími á íslenskum vinnumarkaði.
    Katrín Helga Ólafsdóttir kíkti í heimsókn á vinnustofu tónlistarkonunnar Sóleyjar Stefánsdóttur í Hafnarhúsinu.
    Nýr pistlahöfundur, rithöfundurinn Birgitta Björg Guðmarsdóttir, fjallar um einkarými í lok þáttar.
    55 min
  • Njálsbrenna í myndasögu, veitingastaðir á brauðfótum, RIFF
    Nú á dögunum kom út á bók fyrsta íslenska myndasagnaserían. En það var myndasaga byggð á Njálssögu - fjallaði um njálsbrennu og hefnd Kára. Myndirnar gerði teiknarinn Halldór Pétursson og birtust þær vikulega í Lesbók Barnanna, fylgiriti morgunblaðsins árin 1959 og 60. En nú loksins er hefur þetta brautryðjendaverk verið tekið saman og gefið út á bók. Við ræðum við ritstjórana Jón Karl Helgason og Bjarni Hinriksson.
    Saga veitingarekstrar á Íslandi er fremur stutt og kannski umfram allt saga af fallvaltleika og ótryggu rekstrarumhverfi. Björn Teitsson heldur áfram að flytja okkur pistla um matarmenningu. Og að þessu sinni fjallar hann um veitingahúsið - athyglisverðar orðsifjar, Meg Ryan og kjúlingur í körfu koma meðal annars við sögu í pistlinum.
    Við byrjum á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst á morgun. Við flettum í bæklingnum og ræðum meðal annars Club Kid, Amicar, The Siege of Paradise svo einhverjar myndir séu nefndar.
    56 min
  • Grasrótin í húsnæðiskrísu
    Á undanförnum vikum höfum við frétt af stöðugt fleiri samfélagsverkefnum og skapandi rýmum í Reykajvíkurborg sem er verið að loka.
    Víðsvegar um borgina hefur iðnaðarhúsnæði sem er í einhverskonar biðstöðu, byggingar sem er óljóst hvernig á að nýta í framtíðinni, verið leigt út undanfarin ár til listamanna og ýmiskonar samfélagsverkefna.
    Í Gufunesi, í Skerjafirði, á Sævarhöfða og á Bergþórugötu. En nú hefur fjölmörgum slíkum samningum verið sagt upp og hin ýmsu grasrótarverkefni þurfa að finna sér nýtt húsnæði ef þau eiga að tryggja sér framhaldslíf.
    Í þætti dagsins ætlum við að flakka um grasrótina í Reykjavík, flökkum milli listarýma og samfélagsverkefna sem horfa nú fram á óvissa framtíð.
    52 min
  • Mónókúltúr og Svanasöngur Selinu
    Á undanförnum árum höfum við tekið eftir því að skortur er á menningarefni sem öll þjóðin sameinast um. Maður mætir ekki á kaffistofuna á þriðjudögum til að ræða nýjasta þáttinn af Lost, fjölskyldan safnast ekki saman á föstudögum til að horfa á Idol stjörnuleit eða Á tali með Hemma Gunn.
    Er menningin að glata möguleikanum á að sameina heiminn, sameina Íslendinga, sameina stóra hópa ólíks fólks? Er mónókúltúrinn dauður?
    Til þess að ræða þetta höfum við fengið til okkar þau Nínu Hjálmarsdóttur, lektor við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands, Ísabellu Lenu Borgarsdóttur (bellamix69), plötusnúð, og Gísla Martein Baldursson, umsjónarmann Vikunnar.
    Í spilara RÚV er nú að finna skandinavíska þáttaröð sem slegið hefur í gegn í Skandinavíu. Upp úr aldamótum hóf utangarðs-unglingur Í Norður-Noregi, Selina, að blogga. Áður en hún vissi af hafði hún öðlast landsfrægð og var orðin að umdeildum áhrifavaldi. Fylgst er með Selinu
    Rekviem for Selina, eða Svanasöngur Selinu er umfjöllunarefni Brynju Hjálmsdóttu, sjónvarpsgagnrýnanda að þessu sinni.
    57 min
  • Sheeran í klípu, heimsendi frestað, Fuglar (og menn), No Rest for the Wicked
    Stormur hefur geysað í kring um Ed Sheeran á dögunum eftir að rapparanum Macklemore var sparkað út úr tónleikaferðalagi þar sem hann átti að hita upp fyrir Sheeran. Netheimar hafa logað síðan og nýjar vendingar virðast verða í málinu á hverjum degi. Við förum yfir atburðarásina og veltum fyrir okkur tjáningarfrelsinu, völdum milljarðamæringa og hvort tími hinna ópólitísku poppara sé liðinn.
    Rómantíski hryllingurinn No Rest for the Wicked gerist í færeyjum 1862 og fjallar um ástir sjómanns frá eyjunum og Dana. Þetta er ein stærsta og metnaðarfyllsta færeyska kvikmyndaframleiðslan til þessa, unnin í samstarfi Færeyinga, Dana og Íslendinga. Kolbeinn Rastrick rýnir í myndina og einnig heimildarmyndina Fuglar og menn en myndin er tekin upp í loðmundarfirði, en á hverju ári í þrjá mánuði safnast í þeim afskekkta firði tólf þúsund fuglar og fimm manneskjur.
    Forstjórar nokkurra helstu gervigreindarfyrirtækja heims hafa kallað eftir sameinuðu átaki í að hægja á þróun gervigreindar til að tryggja öryggi mannkyns. Fréttir af gervigreindarmódelum sem láta ekki af stjórn hafa vakið athygli, og innanbúðarmenn sem hafa spáð því að 10% líkur séu á að gervigreind muni ganga að mannkyninu dauðu innan áratugar. Við berum þessa spádóma undir Kristinn R. Þórisson prófessor við Háskólann í Reykjavík og stofnanda Vitvélastofnunar íslands.
    55 min
  • Draumaríngl og kuðungar
    Draumaríngl er samsýning 14 listamanna sem haldin er á Gljúfrasteini og stendur til 31. október 2026. Sýningin er leikur milli listforma og listaverka, samtal við Halldór og Auði; samtal við skáldverkin, lífið og listaverkin sem þau hjónin sköpuðu.
    Auður Lóa Guðnadóttir og Berglind Erna Tryggvadóttir eru sýningarstjórar en sú síðarnefnda fór með Lestina í leiðsögn.
    Í byrjun mánaðarins kom út 8 laga tilraunarafpoppplatan Kuðungur, frumraun tónlistarkonunnar Unu Mistar Óðinsdóttur. Við gerð plötunnar notast hún meðal annars við sérsmíðað hljóðfæri þar sem hún notast við kuðunga og skeljar til að stjórna rafhljóðum. Við ræðum við Unu Mist.
    Og við ræðum um nýjustu sjónvarpsveituna í streymishlaðborði Íslendinga, Apple TV.
    56 min
  • NAZA, töframáttur matarins, verslunin 114, Rómönsk-amerísk kvikmyndahátíð
    Menning fólks frá rómönsku Ameríku er að verða stöðugt meira áberandi í Reykjavík, það eru æ fleiri veitingastaðir sem bjóða upp á mat frá álfunni, tónlistarviðburðir og danspartý. Og nú í dag hefst í fjórða sinn rómansk Ameríska kvikmyndahátíðin í Bíó Paradís. Það eru fimm myndir sýndar frá fimm löndum en allar eftir konur. Við fáum til okkar skipuleggjendur hátíðarinnar, þau Hugo Llanes og Taniu Zarak.
    Í gamla húsi Tryggingarmiðstöðvarinnar á Laugavegi 114 hefur verið opnuð ný listamannarekin verslun sem heitir 114, eftir húsnúmerinu. Það sem gerir búðina sérstaka er að vörurnar sem þar eru til sölu eru mestmegnis framleiddar á staðnum og gestir geta jafnvel fylgst með handverksfólki skapa þær í rýminu, allt frá fatnaði og fylgihlutum til ilmvatna. Húsið er núna, eins og margir þekkja, kallað Hlemmur Haus og er undirlagt af alls kyns skapandi einstaklingum. Bræðurnir Rik og Ross McNair stofnuðu verslunina en þeir vinna einnig í húsinu undir nafninu Endurtakk. Verslunin þjónar þeim tilgangi að vera sá hluti þessa skapandi samfélags sem opnast út á götuna og býður fólki inn. Við spjöllum við Maddý Hauth, framkvæmdastýru Hlemms Haus um búðina.
    Svo er það matur. Í síðustu viku fjallaði Björn Teitsson um sjónvarpsmanninn og rokkstjörnukokkinn Anthony Bourdain. Og hann ætlar að halda áfram að pæla í matarmenningunni út frá hugðarefnum Bourdain - það hvernig matur tengir fólk, En nú veltir hann því fyrir sér hvar og hvernig við verslum í matinn í samtímanum. Kaupmaðurinn á horninu og heimsending, kemur við sögu.
    Og svo heyrum við um Ísraelsku heimildarmyndina NAZA sem hefur vakið hörð viðbrögð í heimalandinu.
    57 min
  • Hið slor-móderníska ástand og menningarhátíðin Ulga/Fró
    Nú á dögum fer fram pólsk menningar- og listahátíð víða um borgina. Hátíðin ber nafnið Ulga, eða fró, og er markmiðið að skapa rými fyrir fólk til að koma saman, nærast og njóta menningar á afslappaðan hátt. Á meðal þess sem er um að vera er hljóðganga um Sorpu og matarlist með einföldi i-i. Lestin settist niður með skipuleggjendum hátíðarinnar, þeim Ignacy Rybka, Katarzynu Strojnowsku og Weroniku Adamowsku á Bókasafni Kópavogs til að forvitnast um málið.
    Gervigreindarsmíðuð mynd sem lögreglan hefur prentað á límmiða og dreift til íslenskra skólabarna thefur vakið umtal í dag. Tveir brosandi lögregluþjónar og krúttlegur skógarbjörn í teiknimyndastíl öll merkt “Lógreglan.” Svona ódýrar og metnaðarlausar gervgreindarmyndir er það sem á ensku er kallað AI Slop en íslenska þýðingin gervigreindarslor er að ná nokkurri útbreiðslu. Við pælum í hinu slor-móderníska ástandi í þætti dagsins.
    Og ræðum í kjölfarið við Adam Flint grafískan hönnuð og lektor við listaháskóla Íslands um notkun gervigreindarmynda í pólitískri umræðu, slopaganda, sem er að verða sífellt algengara. Hvernig notar Trump gervigreindina og hvernig birtist hún á samfélagsmiðlum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB?
    56 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners