Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Umræðuþáttur um Feneyjatvíæringinn
    Þátturinn Mollhljómar og mótmæli sem áður var á dagskrá á Hvítasunnudag. Kristján Guðjónsson stýrir umræðum um alþjóðlegu myndlistarhátíðina í Feneyjum sem fer nú fram í sextugasta og fyrsta sinn. Mótmæli hafa sett sinn svip á Feneyjatvíæringinn í ár en yfirskrift hátíðarinnar er In Minor Keys, Í mollhljómum.
    Myndlistarfólkið Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Tumi Georgsson og Sigrún Inga Hrólfsdóttir ræða við þáttastjórnanda um stefnur, strauma og pólitísku hitamálin sem hafa litað hátíðina í ár.
    55 min
  • Ástin í tímum tinder #10, og Brottfararstöð
    Í gær samþykkti Alþingi frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Brottvísunarstöðinni er ætlað að hýsa útlendinga sem vísa á úr landi. Henni verður fundið húsnæði á Suðurnesjum en lögin taka gildi 1. Desember. Frumvarpið hefur verið gagnrýnt, umfram allt fyrir það að börn skuli vistuð í lokuðu úrræði. En í þinginu var nokkur samhljómur, 42 þingmenn kusu með en restin sat hjá. Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, situr hins vegar ekki hjá í pistli dagsins.
    Við beinum sjónum okkar svo aftur að ástinni á tímum Tinder og annarra snjalltækja ástarlífsins. Snjólaug Lúðvíksdóttir uppistandari er viðmælandi Lóu í þætti dagsins.
    56 min
  • SORI-manifestó, Njálssaga fyrir börn
    Árið 1967 kom út eitthvað alræmdasta og öfgafullasta rit feministahreyfingarinnar, SCUM manifesto (eða SORI á íslensku) eftir Valerie Solanas. Hún leggur til að öllum karlmönnum verði eytt af jörðinni, en glasafrjóvganir og sjálfvirknivæðing muni viðhalda samfélagi kvenna. Við ræðum bókina við Kristínu Svövu Tómadóttur, sagnfræðing og þýðanda bókarinnar, í bókaklúbbi Lestarinnar.
    Við ræðum svo um íslenskan sagnaarf og barnamenningu.
    Við ræðum við Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur um nýja útgáfu hennar af Njálssögu fyrir börn - Njála hin skamma.
    1 hr
  • Hasar og Nýjasta tíska, list og velferð í Klúbbnum
    Örn Gauti er forsprakki og söngvari rokkhljómsveitarinnar HASAR, sem eru nýbúnir að senda frá sér plötu, Nýjasta tíska. Við ræðum pönk, Kalla á þakinu og skeitera á göngutúr um hverfið með Erni Gauta.
    Listir og velferð er nýtt nám á meistarastigi í Listaháskóla Íslands og nokkrir nemendur í því námi munu standa fyrir dagskrá á morgun í Klúbb Listahátíðar, sem fer fram undir yfirskriftinni Samfélag, listir og líðan. Alexía Björg kom í Lestina, en hún mun leiða leiki í Klúbbnum á morgun.
    56 min
  • Backrooms, Obession og popplagakrufning
    Við kryfjum slagarann Gleymmérei með Bríeti og KK, lag sem að má svo sannarlega glamra á gítarinn í útilegu í Básum í sumar. Er þetta vel samið kántrý eða kúrekablæti Bríetar komið úr böndunum? Friðrik Margrétar Guðmundsson, tónskáld og tónlistarmaður, ræðir þetta við umsjónarmenn Lestarinnar.
    Um þessar mundir njóta tvær hryllingsmyndir eftir unga menn mikilla vinsælda í kvikmyndahúsum. Báðir fengu þeir tækifæri til að gera mynd í fullri lengd eftir að hafa slegið í gegn á Youtube. Myndirnar eru Obsession og Backrooms, en leikstjóri þeirrar síðarnefndu er einungis 20 ára gamall.
    54 min
  • Björk í Listasafni Íslands, pistill um liti
    Björk Guðmundsdóttir og James Merry opnuðu um helgina sýningu í Listasafni Íslands, Echolalia og Ummyndlingar. Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík og stendur yfir fram á haust. Við fáum Björk í heimsókn og ræðum við hana um samstarfið við James, sköpunarferlið, umhverfisbaráttu og gervigreind.
    Svo fáum við heyra nýtt lag með Skröttum, Stressed, og pistil frá Eiríki Erni Norðdahl, sem er að þessu sinni að rífast um liti.
    55 min
  • Kæri fáviti, Patti Smith og Einar Már Jónsson
    Bókaklúbbur Lestarinnar verður í gangi í júní. Fyrsta bókin sem við tökum fyrir er Kæri Fáviti eftir franska rithöfundinn Virginie Despentes. Bókin gerist á internetinu í tölvupóstssamskiptum, og fjallar um Metoo, fíkn, stéttaklifur og ótal margt fleira.
    Rokkgoðsögnin Patti Smith kom fram í Eldborg í Hörpu um helgina og brunaði svo beint á Akureyri til að spila í Hofi. Við ræðum við Andreu Jónsdóttur, útvarpskonu á Rás 2, um Patti.
    Einar Már Jónsson sendir okkur pistil frá París.
    58 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners