Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Benedikt Erlingsson föstudagsgestur og matarspjall um hafmeyju og kanínur
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, leikstjórinn og kvikmyndagerðarmaðurinn Benedikt Erlingsson. Hann er þessa dagana að leika á ný sýninguna sína Mr. Skallagrímsson í Landnámssetrinu í Borgarnesi eftir 10 ára hlé. Við ræddum við hann um ferilinn, ást hans á að segja sögur, stöðu kvikmyndagerðar á Íslandi og margt fleira í skemmtilegu spjalli í þættinum í dag.
    Svo tókum við upp þráðinn í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti í dag. Hún sagði okkur frá ferð sinni til Napólí og eyjunnar Ischia og matarupplifun sinni þar. Sætabrauði, kaffihús, ricotta ostur, kanínukjöt, pasta, hafmeyja og fleira í matarspjalli dagsins.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sigling / Magnús Þór Sigmundsson (Magnús Eiríksson)
    Glor på vinduer / Trine Dyrholm (Anne Kristine Linnet)
    Kærleikur / Óðmenn (Jóhann G. Jóhannsson, texti úr kórintubréfi Páls postula)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • 30 ára afmæli Hótel- og matvælaskólans, búningahátíð í Firðinum og Jónatan Garðars um Gunnar Þórðarson
    Á laugardaginn fagnar Hótel- og matvælaskólinn í MK 30 ára afmæli sínu. Viðburðurinn er hluti af afmælishaldi skólans og markar mikilvægan áfanga í sögu hans. Með þessu vill forsvarsfólk skólans kynna starfsemi Hótel- og matvælaskólans, efla tengsl við gesti og samstarfsaðila og skapa ánægjulega samverustund fyrir alla aldurshópa. Það verður opið hús og fjölbreytt og fjölskylduvæn dagskrá í boði. Gestir geta fylgst með keppnum, heimsótt matarmarkað, kynnt sér fyrirtæki og samstarfsaðila, notið matar og tekið þátt í ýmiss konar afþreyingu. Við fengum til okkar góða gesti frá skólanum, nemann Janus Þorsteinsson Roelfs og kennarana Dóru Svavarsdóttur og Hinrik Carl Ellertsson, sem einnig er deildarstjóri.
    Og það verður líka gaman í Hafnarfirði um helgina því á bókasafninu á annarri hæðinni í Firðinum verður haldin í þriðja sinn hátíðin Heimar og himingeimar sem er búninga- og leikjahátíð þar sem saman kemur áhugafólk um búninga af öllum tegundum, allt frá búningum sem byggja á sögulegum grunni yfir í búninga úr vísindaskáldsögum eins og til dæmis Hringadrottinssögu og Stjörnustríðsmyndunum. Unnur Helga Möller viðburðarstjóri kom í þáttinn og sagði frá.
    Jónatan Garðarson verður áfram með okkur á fimmtudögum og fræðir okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Þórðarsyni, sem lést í sumar. Jónatan rak magnaðan feril Gunnars frá því að hann byrjaði að spila kornungur á gítar, svo auðvitað hljómsveitirnar hans Hljómar, Trúbrot, Río tríó, Ðe lónlí blú bojs, og fleiri, sólóplöturnar og öll lögin sem hann hefur samið sem við öll þekkjum. Jóntan sagði okkur betur frá þessu í dag.
    Tónlist í þættinum:
    Það reddast / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik)
    Allt í fína / Raggi Bjarna og Katrín Halldóra og Karl Orgeltríó (Karl Olgeirsson)
    Bláu augun þín / Hljómar (Gunnar Þórðarson, Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    Þitt fyrsta bros / Pálmi Gunnarsson (Gunnar Þórðarson, Ólafur Haukur Símonarson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Bangsahátíð í Reykjavík, Haustsöfnun Barnaheilla og vísindaspjallið um áhrif sætuefna
    Reykjavík Bear hátíðin fer fram dagana 3.–6. september og sameinar bangsa, vini þeirra og gesti víðsvegar að úr heiminum í fjögurra daga hátíð. Bangsasamfélagið á rætur í menningu samkynhneigðra karla og varð til sem rými fyrir fólk sem fann sig ekki í ríkjandi útlitskröfum. Orðið bangsi hefur gjarnan verið tengt við stórvaxna, skeggjaða eða loðna karlmenn, en samfélagið er mun fjölbreyttara en sú staðalmynd gefur til kynna. Meðal hápunkta er val á Mr. Reykjavík Bear í Austurbæjarbíói laugardaginn. Sigurður Júlíus Guðmundsson, formaður Bangsafélagsins, og Jóhann Örn B. Benediktsson, sem vann titilinn Mr. Reykjavík Bear í fyrra, komu í þáttinn í dag.
    Svo brugðum við okkur til Síerra Leóne, en Barnaheill hefur staðið að byggingu skóla í þorpi þar. Ákvörðunin um að gera það var tekin eftir að blasti við að börnin á svæðinu gátu ekki nýtt sér aðstoð Barnaheilla því að það vantaði grunnstoðina, skólann. Tótla I. Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla, sagði okkur betur frá þessu, verkefnum samtakanna, haustsöfnuninni, Vigdísarstokknum og styrktartónleikum í Salnum í þætti dagsins.
    Edda Olgudóttir tók upp þráðinn frá miðvikudögum síðasta vetrar og kom í vísindaspjallið í dag. Nú fjallaði hún um rannsóknir sem sýna áhrif sætuefna á þarmaflóruna og fleira, jafnvel í nokkrar kynslóðir.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Skítaveður / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason)
    Gangi þér allt að sólu / Armundur Ernst Backman Björnsson (Armundur Ernst Backman Björnsson)
    Seabird / Alessi Brothers (Billy Alessi, Bobby Alessi & Mike Melvoin)
    Fiskisúpa Sigríðar í Fjörhúsinu / Hilmar Oddsson (Hilmar Oddsson, texti Karl Roth)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu
    Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, að þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtennisiðkun minnkar skjálftinn og ekki bara á meðan spilað er. Þau Hannes og Vilborg sögðu okkur betur frá þessu í dag.
    Er hægt að hlúa að sjálfum sér samhliða því að huga að öðrum og takast á við krefjandi verkefni? Rannsóknir sýna að einstaklingar sem sinna störfum sem fela í sér aðhlynningu fólks, geta verið útsettir fyrir neikvæðum heilsufarslegum áhrifum. Hins vegar sýna rannsóknir einnig fram á að samkennd getur dregið úr neikvæðum áhrifum. Við ræddum við Sólveigu Fríðu Kjærnested sérfræðing í klíniskri sálfræði í þættinum.
    Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað eftir sumarfrí og verður áfram í þættinum annan hvern þriðjudag. Við veltum fyrir okkur haustveðrinu, þó september sé skilgreindur sem sumarmánuður í veðurfræðinni hér á landi. Næturfrost, lægðarspá, monsúnvindar og skyndiflóð komu við sögu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    Óralangt / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Wrap Your Troubles in Dreams / Dean Martin (Moll, Barris & Koehler)
    Singing in the Rain / Dave Brubeck Trio (Brown & Freed)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Leikárið í Borgarleikhúsinu, pistill frá Kaupmannahöfn 1949 og Elínborg lesandi vikunnar
    Mannlegi þátturinn fór aftur í gang í dag eftir sumarfrí og þátturinn Sumarmál hefur runnið sitt skeið. Eins og undanfarin haust munum við á næstu mánudögum fara í svokallaðan leikhúsrúnt, þar sem við fáum að heyra hvað verður á fjölum leikhúsanna í vetur. Við byrjuðum í dag á því að ræða við Egil Heiðar Anton Pálsson Borgarleikhússtjóra og það sem verður þar á fjölunum í vetur.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar með gullmola úr safni RÚV, pistil frá árinu 1949 sem Geir Aðils, fréttaritari RÚV í Kaupmannahöfn sendi heim. Geir segir þar t.d. frá því þegar skömmtun var aflétt eftir Heimsstyrjöldina, Fegrunarfélagi Kaupmannahafnar og fleiru.
    Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Elínborg Sturludóttir dómkirkjuprestur. Við fengum að heyra hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina:
    Systkinaerjurnar e. Moa Herngren
    Kæri fáviti e. Virginie Despentes
    Jakaranda e. Gael Faye
    Salka Valka, Vefarinn mikli frá Kasmír og Sjálfstætt fólk
    Tónlist í þættinum í dag:
    Reykjavík / Spilverk þjóðanna (Spilverk Þjóðanna)
    Þrisvar í viku / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson)
    Greidd skuld er glatað fé / Fánar (Magnús R. Einarsson, Ásgeir Óskarsson og Haraldur Þorsteinsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, rithöfundurinn og leikstjórinn Gunnar Helgason. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar úr Hvassaleytinu í Vogahverfið, hvar hann eyddi öllum stundum í fótbolta eða á skíðum. Hvenær leiklistin kom inn í líf hans og svo bókaskrifin og leikstjórnin, en Gunnar hefur leikstýrt leiksýningum víða um lönd og skrifað um þrjátíu bækur. Nú síðast var hann að auglýsa á samfélagsmiðlum eftir frægum „Bo“-frösum sem verða notaðir á minningartónleikum um Björgvin Halldórsson í haust.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag veltum við því fyrir okkur hvort og hvernig er hægt að sitja úti, jafnvel heilt kvöld á Íslandi og hvað sé best að borða við slíkar aðstæður?
    Tónlistin í þættinum:
    Óbyggðirnar kalla / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
    Hringd’í mömmu / Stefán Hilmarsson (Yeary, Mille & Green, texti Stefán Hilmarsson)
    Póstnúmer / Flott (feat.KR!$$!) (Vigdís Hafliðadóttir og Regnhildur Veigarsdóttir, texti Vigdís Hafliðadóttir og Arnór Björnsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Svava í Hugarhlýju, Hveragerði 80 ára og Jónatan um Ragga Bjarna
    Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reikimeistari og geðsjúkraliði.
    Og við stöldruðum lengur í Hveragerði en það eru merk tímamót þegar bæjarfélag fagnar 80 ára afmæli og Hveragerði fagnar einmitt slíku afmæli allt þetta ár og dagskráin er glæsileg. Við hittum menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa bæjarins, Sigríði Hjálmarsdóttur, en hún hóf störf fyrir þremur árum og á þeim tíma hafa þrír bæjarstjórar vermt bæjarstjórastólinn.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Ragnar Bjarnason, eða okkar eina sanna Ragga Bjarna, sem var auðvitað einn ástsælasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu.
    Tónlistin í þættinum:
    Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Micheal Legrand, texti Hjördís Morthens)
    Hveragerði / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir)
    Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson)
    Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann
    Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum. Ástþóra Kristinsdóttir, sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá.
    Stefnumót við fortíðina, svangar ruslaverur og dansiball í göngugötunni er allt partur af Listasumri á Akureyri sem hefst á morgun og stendur til 18.júlí. Við slógum á þráðinn norður og töluðum við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra menningarmála hjá Akureyrarbæ.
    Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag talaði um rannsóknir á heilanum og heilaheilsu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson)
    Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis)
    Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur)
    Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson og Valdimar Hólm Hallstað)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu
    Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag.
    Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson)
    Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
    Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar
    Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
    Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði)
    Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni)
    Páll postuli
    Sigurbjörn Einarsson
    Tónlist í þættinum í dag:
    Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum)
    Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

18 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

461 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

129 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

7 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

12 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

17 Listeners