Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu
    Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag.
    Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson)
    Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
    Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar
    Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar
    Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði)
    Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni)
    Páll postuli
    Sigurbjörn Einarsson
    Tónlist í þættinum í dag:
    Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum)
    Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Andrea Róbertsdóttir föstudagsgestur, og leikfimi, sítrónur og fótalykt í matarspjallinu
    Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún var tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2026 en þau verðlaun eru veitt stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði og sýnt framúrskarandi hæfni í starfi. Andrea hefur komið víða við í atvinnulífinu og hefur mjög gaman af lífinu. Hún er þekkt fyrir lífsgleði og jákvæðni og við töluðum við hana um lífið og tilveruna og ferðuðumst aftur í tímann og svo aftur til dagsins í dag.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og áætlunin var að tala um sumarsólstöður sem eru á sunnudaginn og mat sem er við hæfi að borða þá og í dag á kvenréttindadaginn. Aftur á móti festumst við í spjalli upp úr Eldhúsbókinni gömlu, yfir greinum um líkamsrækt húsmæðra, sítrónur og táfýlu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Má ég / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal)
    Hakk og spaghettí / Árný Margrét (Svavar Pétur Eysteinsson)
    Fyrrverandi / Una Torfa (Una Torfadóttir)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Ofbeldi gegn öldruðum, skaðleg efnaáhrif á líkama og húð og Jónatan um Kristján Kristjánsson
    Á mánudaginn var alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum af því tilefni kom varaformaður Landssambands eldri borgara, Sigurður Ágúst Sigurðsson, í þáttinn í dag. Hlutfall einstaklinga 60 ára og eldri mun aukast um tæp 40% á heimsvísu frá 2019-2030 og ofbeldi gegn öldruðum er vanmetið og getur birst í margvíslegri mynd. Sigurður sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
    Una Emilsdóttir er sérnámslæknir í atvinnu og umhverfislæknisfræði og er við nám og störf í Danmörku. Una segir mikilvægt að vera upplýstur neytandi og að það skipti máli að forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkinguna að vopni. Við heyrðum í Unu í dag og forvitnuðumst til dæmis um hvað atvinnu- og umhverfislæknisfræði felur í sér.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk og í dag var komið að KK eða Kristjáni Kristjánssyni saxófónleikara, en hann er kunnastur fyrir hljómsveit sína KK sextettinn sem hann starfrækti í um fimmtán ára skeið. Sveitin var vinsælasta danssveit landsins og með henni sungu þekktir söngvarar, til dæmis Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason)
    Lukta-Gvendur / Alfreð Clausen, Sigrún Jónsdóttir og KK sextett (N. Simon, texti Eiríkur Karl Eiríksson)
    9:20 Special / KK sextett (J. Palmer, Earle Warren & W. Engwick)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni
    Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væru gott fólk og oftar en ekki að „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag.
    Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ.
    Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið að þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum.
    Tónlistin í þættinum:
    Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson)
    Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    51 min
  • Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar
    Við heyrðum í Ingu Eydal í dag, hún var í hljóðstofu fyrir norðan og við ræddum við hana um föður hennar Ingimar Eydal tónlistarmann en þessa dagana er einmitt verið að auglýsa tónleika honum til heiðurs, en hann hefði orðið níræður í haust. Ingimar lék á píanó og var einn vinsælasti hljómsveitarstjóri á Íslandi og fjölhæfur tónlistarmaður. Ingimar var einnig vinsæll kennari og tók virkan þátt í bæjarlífinu á Akureyri. Ingimar stofnaði eigin hljómsveit 1962, Hljómsveit Ingimars Eydal sem lék í Sjallanum á Akureyri um margra áratuga skeið.
    Við skruppum á Þjóðskjalasafn Íslands og töluðum við Brynhildi Ingvarsdóttur fagstjóra miðlunar og útgáfu þar á bæ. Hún sagði frá hinum ýmsu leiðum miðlunar til að almenningur eigi sem greiðastan aðgang að safninu.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Vilhjálmur Pétursson rithöfundur og þýðandi. Hann var að gefa út fyrstu skáldsögu sína, nóvelluna, Harðindi, sem fékk fljúgandi start og vann samkeppnina Nýjar raddir hjá Forlaginu. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Vilhjálmur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Huldukonan e. Fríðu Ísberg
    Irpa e. Hildi Knútsdóttur
    Project Hail Mary e. Andy Weir
    Góðir Íslendingar e. Huldar Breiðfjörð
    Minnisbók e. Sigurð Pálsson
    Tónlistin í þættinum:
    María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno & L. Moreno, texti Ásta Sigurðardóttir)
    Vor í Vaglaskógi / Hljómsveit Ingimars Eydal (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk)
    Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Hörður Magnússon föstudagsgestur og köld tómatsúpa í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til að hann fór að vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift að einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar.
    Tónlistin í þættinum:
    Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson)
    Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti)
    Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Anna Lára framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Sigurgeir syndir fyrir Pieta og Jónatan um Svavar Gests
    Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli.
    Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag.
    Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum.
    Tónlistin í þættinum:
    Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson)
    Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson)
    Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson)
    Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið
    Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er að komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf.
    Ný vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina að prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er að seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni.
    Tónlistin í þættinum:
    Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ)
    Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti)
    Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens)
    Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Dánaraðstoð, bók um Kjósasýslu og veðurspjallið með Einari
    Samkvæmt nýrri könnu er viðhorf almennings á Íslandi til dánaraðstoðar að tæp 74 prósent eru mjög hlynnt eða fremur hlynnt henni. Lífsvirðing er félag um dánaraðstoð sem var stofnað árið 2017 og hefur að markmiði að stuðla að opinni, upplýstri og yfirvegaðri umræðu um dánaraðstoð við skýr og ströng skilyrði. Ingrid Kuhlman er formaður félagsins og hún sagði okkur meira frá félaginu, niðurstöðum könnunarinnar og sinni persónulegu reynslu í þættinum í dag, en faðir hennar fékk dánaraðstoð í Hollandi árið 2002.
    Árbók Ferðafélags Íslands 2026 ber heitið Kjósasýsla og er nr.99 í þessri merku ritröð. Yfir sögusvið bókarinnar gnæfir fjallgarðurinn Esjan sem fylgst hefur með mannlífinu í Kjósarsýslusveitum frá margvíslegum sjónarhornum. Bjarki Bjarnason er höfundur bókarinnar en hann gjörþekkir þetta landsvæði og hefur búið í Mosfellssveit frá barnæsku. Hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá bókinni en í henni er að finna áhugaverðar ljósmyndir, jarðfræðikort, gróðurkort og kort sem sýnir staðsetningu á herbúðum sem risu víða í Kjósasýslusveitum í seinni heimsstyrjöldinni.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ætlar Einar byrjaði á því að kenna okkur nokkrar þumalputtareglur sem ágætt er að hafa í huga þegar kemur að veðrinu. Til dæmis: Hvað getur far skýjanna sagt okkur um það hvort það sé að kólna eða hlýna. Hvað segir blika á suðurhimni okkur um regnhorfur? Hver er munurinn á uppláttarbliku og fyrirstöðubliku? Hvenær verða góðviðribólstar að skúrabúlstrum? Svo hefur mælst sérlega lágur og eftirtektarverður loftþrýstingur fyrir árstímann, sem minnir á júní 1961 eða hvað? Og að lokum skoðaði Einar aðeins veðurhorfurnar framundan.
    Tónlistin í þættinum:
    Mexico / Snorri Helgason og Bríet (Snorri Helgason)
    Tryllta tungl / Brimkló (Barnes og Haggart, Ómar Ragnarsson)
    Sveitin mín / Haukur Morthens og Mezzoforte (Jóhann Helgason)
    Tempó Prímó / Uppáhellingarnir og Sigríður Thorlacius (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners