Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Hinrik Ólafsson föstudagsgestur og súrmjólk og purusteik í matarspjallinu
    Hinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður var föstudagsgesturinn okkar í dag en hann er handritshöfundur og leikstjóri nýrrar íslenskrar heimildarmyndar, Above Iceland, sem verður frumsýnd í Bíó Paradís 10.júní. Í henni er fjallað um eldfjöll, jöklar, þjóðsögur og lífsbaráttu þjóðar. Myndin er sérstök fyrir það leyti að hún er aðallega tekin upp að ofan með drónum. Hinrik Ólafsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1993 og hefur starfað sem leikari í leikhúsum landsins og í fjölda kvikmynda- og sjónvarpsverkefna.
    Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið. Grasið grænkar, laufblöðin spretta fram, beðin fyllast af gróðri, velkomnum og óvelkomnum og alltaf þurfum við að borða. Við töluðum lengst af um súrmjólk, minningar og nostalgíu henni tengd og aðeins í lokin um purusteik.
    Tónlistin í þættinum:
    Times like these / Glen Campbell (Foo Fighters lag)
    Time in a bottle / Jim Croce (Jim Croce)
    You´ve got að friend / James Taylor (Carole King)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Lögin hans Bubba, hjóluðu 3.500 km. og Jónatan um Stefán Jónsson í Lúdó
    Gunnlaugur Jónsson og Þór Freysson komu til okkar í dag, en þeir hafa verið að gera nýju heimildarþættina um Bubba Morthens, Lögin hans Bubba, þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Á laugardaginn er komið að sjötugsafmælinu sjálfu, en þriðji og síðasti þátturinn verður í sjónvarpinu á föstudagskvöldi. Í þáttunum er rætt við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Þeir Þór og Gunnlaugur fræddu okkur aðeins um Bubba Morthens í þættinum.
    Við töluðum snemma í apríl við Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson sem voru þá á leiðinni í 3.500 km. hjólreiðaferðum vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Nú eru þeir komnir aftur til baka og við heyrðum í dag hvernig ferðin gekk. Markmið ferðarinnar var að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Einar og Hartmann sögðu okkur betur frá hjólreiðaferðinni.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Stefán Jónsson söngvara Lúdó sextett, eða Stebba í Lúdó. Hann var meðal allra fyrstu rokksöngvara Íslands en hann kom kornungur fram á sjónarsviðið laust fyrir 1960 og varð jafnframt sá fyrsti af þeirri kynslóð rokksöngvara sem söng inn á plötu.
    Tónlistin í þættinum:
    Fjórir kátir þrestir / Egill Ólafsson, Edda Heiðrún Backman og Tamlasveitin (erlent lag, texti Jón Sigurðsson) Þrek og tár
    Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Því ekki að taka lífið létt / Lúdó sextett (Lew Douglas, Cliff Parman & Frank Levere, texti Ómar Ragnarsson)
    Ólsen Ólsen / Lúdó sextett (Mann & Appel, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu
    Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnina fyrir framhaldsskóla. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Námfús kom í þáttinn í dag við fengum hann til að útskýra fyrir okkur hvernig þetta virkar og hverjir möguleikarnir eru.
    Næringarþerapía á rætur að rekja til hugmyndafræði functional medicine, þar sem meginmarkmiðið er að styðja líkamann út frá rót vandans. Við ræddum við Sigríði Róbertsdóttur, eða Siggu Róberts, í þættinum í dag, en hún er næringaþerapisti sem lærði fræðin í Bretlandi. Hún segir að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Hún talaði meðal annars um það af hverju konur á miðjum aldri eru í meiri hættu á histamínóþoli.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á músum þar sem var í fyrsta skipti skoðað hvernig krabbamein og krabbameinslyf virka mismunandi á mismunandi aldurskeiðum þar sem líkaminn og ónæmiskerfi líkama okkar eru berskjaldaðri á efri árum en þegar við erum ung.
    Tónlistin í þættinum:
    Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson)
    Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon)
    Kötturinn sem gufaði upp / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Leikhópurinn Lotta tuttugu ára og Guðbrandur Árni á Heilsuvaktinni
    Leikhópurinn Lotta heldur upp á tuttugu ára afmælið í ár og sýning hópsins í sumar er Litaland sem segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Anna Bergljót Thorarensen er höfundur verksins og jafnframt stofandi leikhópsins. Hún kom í þáttinn í dag ásamt öðrum af tveimur leikstjórum, Þórunni Lárusdóttur.
    Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hvað einkennir heilbrigð og langlíf ástarsambönd og hvenær verða þau óheilbrigð? Hvaða máli skipta tengslin og nándin sem við fáum í æsku fyrir ástarsambönd okkar á fullorðinsárum og hvernig getur það komið fram á neikvæðan hátt ef örugg tengsl og nánd hafa ekki verið til staðar. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur leitast við að svara þessum spurningum og fjölmörgu öðru um ástina í nýútkominni bók sinni Í augum þínum verð ég til. Helga ræddi við Guðbrand á Heilsuvaktinni í tilefni af því.
    Tónlistin í þættinum:
    Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir)
    Hver er hann? / Leikhópurinn Lotta, Rósa Ásgeirsdóttir (Baldur Ragnarsson, texti Sævar Sigurgeirsson)
    Ósvikin ást / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Einverfa og kulnun kvenna, skjöl Jónasar frá Hriflu og Úlfar lesandi vikunnar
    Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag.
    Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman
    Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck
    Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway
    Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e.
    Clinton Heylin.
    Náðarstund e. Hannah Kent
    Harry Potter bækurnar.
    Tónlistin í þættinum:
    Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson)
    The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel)
    Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Sigtryggur Baldursson föstudagsgestu og espadrillur og sniglar í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var trymbillinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita, Þeym, Kukl, Sykurmolarnir, svo er það auðvitað hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem sungið hefur sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. En með síðastnefndu sveitinni var hann að senda frá sér glænýtt lag af glænýrri plötu sem er væntanleg og við fengum að heyra það í þættinum. En við ferðuðumst líka með honum fram og aftur í tíma, frá Babylon í New York í Kópavoginn. Á handahlaupum sagði hann okkur til dæmis frá hljómsveitinni Hattímas, knattspyrnuferlinum, tilurð Bogomil Font og miklu fleiru í þættinum í dag.
    Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið og í dag voru það espadrillur, kjúklingar, sniglar og mátulega skítugir veitingastaðir sem voru ræddir.
    Tónlistin í þættinum:
    Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin
    Í faðmi dalsins / Haukur Morthens (Bjarni J. Gíslason, texti Guðmundur Þórðarson)
    Gellur eru bestar / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    54 min
  • Gefum íslensku séns, vatnsvernd og Jónatan um Hallbjörgu Bjarnadóttur
    Við forvitnuðumst í dag um verkefnið Gefum íslensku séns sem sett var af stað við Háskólasetur Vestfjarða en hefur nú verið stofnað sem formlegt félag sem ætlað er að ná til landsins alls. Markmiðið er að hvetja íslenska móðurmálshafa til að vera þolinmóði, umburðarlyndir og einnig hvetjandi við þau sem eru að læra málið. Við fengum Eirík Rögnvaldsson, prófessor emeritus og Elizu Reid, rithöfund, fyrrverandi forsetafrú, til að segja okkur frá verkefninu og félaginu Gefum íslensku í dag.
    Við töluðum svo um vatn og vatnsvernd í þætti dagsins. Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands seinna í dag. Þar verður meðal annars rætt um það hvernig góðar ákvarðanir um vatnsvernd geta tryggt okkur heilnæm vatn í kranann og hvernig á að vega saman hagsmuni í þessum mikilvægu málum. Einn þeirra sem tekur til máls á þessum fundi er Baldur Dýrfjörð, stjórnarmaður í VAFRÍS. Hann kom í þáttinn í dag.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur og hlustendur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Hallbjörg Bjarnadóttir. Jónatan sagði okkur frá stórmerkilegum ferli hennar og lífi og við heyrðum tvö lög sem hún söng.
    Tónlistin í þættinum:
    Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Kristján Jónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Sveinbjörn Egilsson)
    Sukiyaki / Kuy Sakamoto (Nakamura, Rokusuke)
    Moonlight and Shadows / Hallbjörg Bjarnadóttir (Frederik Hollander, texti Leo Robi)
    Björt mey og hrein / Hallbjörg Bjarnadóttir (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Stefán Ólafsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    54 min
  • Herferð Amnesty á Íslandi, steraleikarnir og vísindaspjall með Eddu
    Við kynntum okkur nýja herferð Íslandsdeildar Amnesty International sem kallst Mannúðin mun sigra - Virðum réttindi fólks á flótta. Markmið hennar er að mæta ótta og rangfærslum með staðreyndum, mannlegum sögum og samtali sem byggir á samkennd og mannréttindum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá herferðinni.
    Við kynntum okkur svo umdeilt íþróttamót. Um helgina fór fram viðburður sem er kallaður "Enhanced games“ sem stundum er kallaður „steraleikarnir“ upp á íslensku. Þar var keppt í nokkrum greinum - eins og sundi, spretthlaupi og lyftingum. Og á þessum leikum eru ýmis lyf og efni leyfð sem almennt eru bönnuð í hefðbundnum íþróttakeppnum. Einn íslenskur keppandi tók þátt - og vann, Hafþór Julius Björnsson. Við fræddumst aðeins um þessa keppni og spjölluðum við Jóhann Pál Ástvaldsson íþróttafréttamann.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar með vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn þar sem kannaður var munurinn á virkni heilans þegar við skrifum með blýanti eða penna, sem sagt handskrifum, miðað við það að pikka á lyklaborðin.
    Tónlistin í þættinum:
    Kúadelluslamm / Melchior, Elín Jónína Bergljótardóttir (Hilmar Oddsson)
    Landþvættirnir / Bogomil Font (Rafael De Leon, texti Sigtryggur Baldursson)
    Gi Mig Hvad Du Har / Dodo and The Dodos (C. Nerenst, texti A. Valbro og S. Christiansen)
    Reynimelur / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    50 min
  • Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar
    Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði í dag á að tala um hitana í Evrópu og ástæðu þeirra. Svo voru það horfurnar hjá okkur og spár um jafnvel vorhret í byrjun júní. Og í því samhengi rifjaði hann upp með okkur upp sumarhret á sama tíma í fyrra og ekki síst hitteðfyrra.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Birna Hjaltadóttir kennari í Brúarskóla við Dalbraut, en hún er einnig með meistaranám í ritlist. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Frumbyrjur e. Dag Hjartarson
    Huldukonan e. Fríðu Ísberg
    Formaður húsfélagsins e. Friðgeir Einarsson
    Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftir á e. Höllu Birgisdóttur
    Jakobína, saga skálds og konu e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur.
    Salka Valka e. Halldór Laxness
    Tónlistin í þættinum:
    Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith & Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson)
    Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson)
    Northern Sky / Nick Drake (Nick Drake)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira
    Það voru tveir föstudagsgestir í dag, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, en þau sameina krafta sína á tónleikum sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Búið er að setja á þrenna tónleika, til að byrja með, þar sem þau munu flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja með þeim og hafa tekið ástfóstri við, auk þess að rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð þeirra í tónlist. Þau skipa bæði stóran sess í íslenskri tónlistarsögu sem var gaman að rifja upp með þeim í þættinum og ferðast með þeim í gegnum tímann.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag vildi Sigurlaug ræða lyktina sem fyllir loftið í byggðum landsins á þessum árstíma... og þá var hún ekki að meina ilminn af nýslegnu grasi. Svo rifjuðum við upp fleiri greinar úr Eldhúsbókinni frá sjötta og sjöunda áratugnum sem standast misvel tímans tönn.
    Tónlistin í þættinum:
    Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)
    Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Atli Bollason og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners