Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira
    Það voru tveir föstudagsgestir í dag, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, en þau sameina krafta sína á tónleikum sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Búið er að setja á þrenna tónleika, til að byrja með, þar sem þau munu flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja með þeim og hafa tekið ástfóstri við, auk þess að rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð þeirra í tónlist. Þau skipa bæði stóran sess í íslenskri tónlistarsögu sem var gaman að rifja upp með þeim í þættinum og ferðast með þeim í gegnum tímann.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag vildi Sigurlaug ræða lyktina sem fyllir loftið í byggðum landsins á þessum árstíma... og þá var hún ekki að meina ilminn af nýslegnu grasi. Svo rifjuðum við upp fleiri greinar úr Eldhúsbókinni frá sjötta og sjöunda áratugnum sem standast misvel tímans tönn.
    Tónlistin í þættinum:
    Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)
    Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Atli Bollason og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Dáleiðslufélag Íslands 25 ára, Skólakór Öldutúns 60 ára og Jónatan um Gunnar Ormslev
    Hannes Björnsson sálfræðingur kom til okkar í dag. Hann hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum og prestur Íslendinga í Noregi. Hann vinnur mikið í greiningu og klínískri meðferð þunglyndis, kvíða, áfalla og ADHD fullorðinna. Hannes er einnig formaður Dáleiðslufélags Íslands, sem á 25 ára afmæli þessa dagana og hann sagði okkur frá félaginu, ráðstefnu sem fer fram í lok maí og hvernig dáleiðsla nýtist hans starfi.
    Skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára afmæli með afmælistónleikum í Hörpu sunnudaginn 24. maí. Egill Friðleifsson, stjórnandi kórsins vann þrekvirki því hann hélt kórnum úti árum saman og þurfti sífellt að þjálfa upp nýjar raddir og náði að halda uppi gæða söngstarfi. Brynhildur Auðbjargardóttir tók við þegar Egill hætti, en hún var nemandi í Öldutúnsskóla á sínum tíma og söng með kórnum meðal annars inn á vísnaplöturnar vinsælu með Björgvini Halldórssyni og Gunnari Þórðarsyni. Fyrrverandi kórfélagar munu koma fram á tónleikunum ásamt núverandi kór, en það hafa ýmsir fyrrum nemendur skólans haldið áfram að fást við tónlist eins og þær Brynhildur, Margrét Eir og t.d. Guðrún Árný ofl. Margrét Eir og Bryndhildur komu í þáttinn í dag.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Ormslev saxófónleikara. Gunnar má telja meðal máttarstólpa íslenskrar djasstónlistar á upphafsárum hennar en stundum er sagt að hann hafi komið með djassinn með sér til Íslands frá Danmörku. Jónatan sagði okkur meira frá hans merkilega ferli í þættinum í dag.
    Tónlistin í þættinum:
    Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson)
    Klappa saman lófunum / Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla (Gunnar Þórðarson, íslensk þjóðvísa)
    Frá Vermalandi / Gunnar Ormslev (sænskt þjóðlag)
    Lady be Good / Tríó Jóns Páls Bjarnasonar (George & Ira Gerschwin)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Ljósmyndir af hversdagsleikanum, íslenski refurinn og vísindaspjall með Eddu
    Á morgun verður opnuð ljósmyndasýning í Ljósmyndasafni Reykjavíkur Hjartaþræðir: nándin í hversdeginum, ljósmyndir eftir Þórdísi Erlu Ágústsdóttur. Þórdís hefur myndað fólk, sem flest er henni náið eða vel kunnugt, yfir löng tímabil. Myndirnar segja sögur af ólíku fólki sem hún hefur fylgt eftir og velur stundir úr hversdeginum, lítil augnablik sem segja stærri sögu. Þórdís kom í þáttinn í dag og sagði frá.
    Við fræddumst svo um íslenska refinn í dag en Ester Rut Unnsteinsdóttir spendýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun hefur rannsakað tófuna um árabil og á næstunni verður haldið málþing á vegum Náttúrufræðistofnunar þar sem verður einmitt rætt um íslenska refinn, sérstöðu stofnsins, svipgerðir, erfðafræði og fleira. Ester sagði okkur frá refnum og málþinginu í dag.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, en í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að góðgerlar sem finnast í kimchi geti hjálpað til við að losa líkamann við nanoplast.
    Tónlistin í þættinum:
    Sólarsamba / GÓSS (Magnús Kjartansson, texti Halldór Gunnarsson)
    Í sól og sumaryl / Stebbi & Eyfi (Gylfi Ægisson)
    Hr. Reykjavík / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
    Daglega fer mér fram / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Ofurhlauparinn Karlotta, bókin Hamingja og Olga Hörn á Heilsuvaktinni
    Við töluðum í dag við Karlottu Ósk Óskarsdóttur sem hefur verið kölluð ofurhlaupari og það er ekki fjarri sanni. Hún lætur sér ekki nægja til dæmis bara venjulegt maraþonhlaup, heldur hljóp hún 75 kílómetra að meðaltali á dag, tíu daga í röð, eða samtals 750 kílómetra í Búlgaríu í síðustu viku. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á síðustu níu mánuðum, þar af þrjú í Búlgaríu og það hlaup var lengsta vegalengd sem Íslendingur hefur farið í keppnishlaupi. Við ræddum við Karlottu í þættinum í dag og spurðum hana til dæmis af hverju hún hreinlega er að standa í þessu?
    Mars Baldurs er verðlaunað ungskáld sem stundar nám á Akureyri og nú í byrjun vors kom út bók eftir hann i pastelritröð Flóru menningarhúss á Akureyri. Bókin heitir Hamingja og við mæltum okkur mót við Mars á kaffihúsi fyrir norðan.
    Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Fargufur hafa notið sívaxandi vinsælda síðustu ár og Helga náði tali af einum svokölluðum gusumeistara, Olgu Hörn Fenger, í Rjúkandi fargufu á Ægissíðu, við heyrðum þeirra spjall á Heilsuvaktinni í dag.
    Tónlistin í þættinum:
    Frækorn og flugur / Dúmbó og Steini (H. Newman, texti Ellert Borgar Þorvaldsson)
    Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Heim í Búðardal / Ðe Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Crohns og sáraristilbólga, efni af Þjóðskjalasafni og Pétur Már lesandi vikunnar
    Alþjóðlegur vitundardagur tileinkaður bólgusjúkdómum í meltingarvegi er á morgun 19.maí. Talið er að yfir 10 milljónir, þar af um 3,4 milljónir í Evrópu, séu annaðhvort með Crohns-sjúkdóm eða sáraristilbólgu, oft nefnda IBD. Á Íslandi hefur tíðnin aukist mikið frá 1950 og nýgengi sáraristilbólgu á Íslandi er u.þ.b. 22 á hverja 100.000 íbúa sem er með því hæsta í heiminum. Í ár vekja samtökin athygli á því að það á ekki að vera neitt feimnismál að tala um sjúkdómana eða það sem þeim fylgir, þótt þeir tengist þörmum og salernisferðum og mjög mikilvægt að eyða öllum fordómum. Hjalti Þór Davíðsson kom til okkar í dag en hann tekur þátt í vitundarvakningunni fyrir CCU samtökin, sem stendur fyrir Crohn’s og Colitis Ulcerosa, eða sáraristilbólgu.
    Svo fórum við í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og fengum Ólaf Arnar Sveinsson, sviðsstjóra miðlunar og rannsókna þar á bæ, til að segja okkur frá sakamáli, svokölluðu dulsmáli, frá árunum 1832-33 í Tálknafirði á Vestfjörðum.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Pétur Már Gunnarsson, myndlistar- og garðyrkjumaður. Við fáum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Pétur Már talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Frjáls e. Lea Ypi
    Nói bátasmiður - Lífshlaup Nóa skráð af Erlingi Davíðssyni
    Sorgin í fyrstu persónu e. Ko Un í þýðingu Gyrðis Elíassonar
    Tokyo-Montana hraðlestin e. Richard Brautigan
    Daníil Kharms og Brautigan
    Tónlistin í þættinum:
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Fegurðin svo hrá / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    He’ll Always Know / Elísabet Eyþórsdóttir ( Elísabet Eyþórsdóttir)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Daði Freyr föstudagsgestur og matarspjallið um sænskar kjötbollur
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Daði Freyr Pétursson tónlistarmaður. Þjóðin kynntist honum fyrst í Söngvakeppninni og svo fór hann auðvitað fyrir Íslands hönd í Eurovision keppnina og hefur síðan samið og framleitt tónlist undir eigin nafni og farið í tónleikaferðir víða um heim. Hann er nýfluttur aftur til landsins eftir að hafa búið í ellefu ár erlendis, en fjölskyldan býr nú í Hveragerði. Við fórum með Daða Frey aftur í tímann og svo fram og til baka í tíma og rúmi til dagsins í dag en hann er nýbúinn að gefa út nýja plötu sem komin er á allar streymisveitur og er væntanleg til landsins á vínilplötum. Við fengum að heyra tvö lög af nýju plötunni.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, þar héldum við áfram að grúska aðeins í Eldhúsbókinni gömlu og svo var það Svíþjóð sem átti sviðið, sænskt eldhús og kjötbollur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmson
    With You / Daði Freyr (Daði Freyr og Ásdís María Viðarsdóttir)
    I’m Out and I Want to Home / Daði Freyr (Daði Freyr og Simon Alexander Ward)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Ungt fólk og umhverfismálin, vísindaspjallið um tónlist og hreyfingu og Jónatan um Magnús Ingimarsson
    Við forvitnuðumst í dag um Uppskeruhátíð í verkefninu Umhverfisfréttafólk sem var á vegum Landverndar og Grænfánans, en hún fór fram í lok apríl. Á hverju ári berast fjölmörg vönduð og fjölbreytt verkefni í keppnina frá skólum víðsvegar á landinu. Í ár voru það m.a. rapplög, spil, myndbönd, hlaðvarp, fréttaskýringar, smásögur, dagatal, ljóð, listaverk, tímarit vöruhönnun og ljósmyndir. Við fengum Sigurlaugu Arnardóttur, verkefnastýru Menntateymis Landverndar til að segja okkur frá keppninni og hátíðinni og með henni komu Daney Emma Svansdóttir, fulltrúi hópsins úr Garðaskóla sem sigraði í flokki grunnskóla, og Húgó Heiðreksson, fulltrúa hópsins úr Tækniskólanum sem bar sigur úr býtum í flokki framhaldsskóla.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá finnskri rannsókn á áhrifum tónlistar á hreyfingu.
    Svo kom Jónatan Garðarsson aftur til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Magnúsi Ingimarssyni og hans merka starfi, en hann var einn þekktasti tónlistarmaður á Íslandi sem mestmegnis starfaði á bak við tjöldin, en hann var hljóðfæraleikari, hljómsveitastjóri, kórstjóri, laga- og textahöfundur, upptökustjóri en fyrst og fremst útsetjari sem flestir þekktustu tónlistarmenn landsins störfuðu með á sjöunda og áttunda áratugnum.
    Tónlistin í þættinum:
    Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (P. Doddoge, texti Flosi Ólafsson)
    Marína / Sigrún Jónsdóttir (Rocco Granata, texti Magnús Ingimarsson)
    Það er svo geggjað / Flosi Ólafsson (Magnús Ingimarsson, texti Flosi Ólafsson)
    Sveitin milli sanda / Ellý Vilhjálms (Magnús Blöndal Jóhannsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Aldin samtökin og kórinn, leikhús í bíó og veðurspjallið með Einari
    Við kynntumst aðeins starfi Aldin, samtaka eldri aðgerðarsinna gegn lofslagsvá í þættinum í dag. Sólveig Baldursdóttir og Halldór Reynisson eru félagar í Aldin og þau komu til okkar og sögðu frá tilurð samtakanna, starfinu, samnefndum kór og þýðingu hans í þeirra starfi. Í lokin fengum við svo að heyra upptöku af kóræfingu.
    National Theatre Live er framtak Breska Þjóðleikhússins þar sem margar af bestu sýningum leikhússins eru sýndar í völdum kvikmyndahúsum um allan heim. Bíó Paradís er samstarfsaðili NTL á Íslandi og meðal sýninga framundan er uppfærsla Breska Þjóðleikhússins, All My Sons, eða Allir synir mínir eftir Arthur Miller, sem sýnd verður 25.maí. Ása Baldursdóttir dagskrárstjóri í Bíó Paradís og Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á leikminjasafni Þjóðminjasafnsins, komu í þáttinn og fóru til dæmis yfir hvaða sýningar verða í boði.
    Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í dag í veðurspjallið. Hann byrjaði á veðurútlitinu og veðurhorfum fram á kjördag og mikilvægi þess að almennar kosningar á landinu eru tímasettar á þeim árstíma þegar auðvelt er að komast leiðar sinnar. Svo fjallaði hann um muninn á veðri, tíðarfari, veðurfari og loftslagi. Að lokum voru það svo El-Nino og La-Nina, sem eru fyrirbæri í Kyrrahafinu og Einar skýrði fyrir okkur hver munurinn á þeim er og tengsl þeirra við veður á jörðinni og hnattræna hitann.
    Tónlistin í þættinum:
    Og co. / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson)
    Jörðin mín / Aldin kór (Jón Ásgeirsson, texti Ludvig Guðmundssyni)
    Glaumbær / Dúmbó og Steini (Jóhann G. Jóhannsson)
    Ítalskur calypso / Erla Þorsteinsdóttir (Monte & Merrell, texti Loftur Guðmundsson)
    Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Systkinin í Blood Harmony, um Húsmæðraskólann frá 1948 og Friðrik lesandi vikunnar
    Blood Harmony er samstarfsverkefni systkinanna Arnar, Aspar og Bjarkar Eldjárn sem hófst snemma árs 2021 þegar heimsfaraldurinn skall á og þau voru flutt í heimahagana fyrir norðan. Þau umbreyttu kjallaranum á æskuheimilinu Tjörn í upptökustúdíó og hófu að taka upp lög. Nú, fimm árum síðar er loksins komið að því að fagna útgáfu plötunnar sem kemur út á vínyl þau halda upp á með útgáfutónleikum á miðvikudaginn. Þau komu þrjú til okkar í dag.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með enn einn gullmolann af safni RÚV. Í þetta sinn af lakkplötu, brot frá 1948 úr þættinum Úr skólalífinu. Þar fengum við að heyra kynningu á starfi Húsmæðraskóla Reykjavíkur og framsetningin var mjög áhugaverð. Nokkrar stúlkur úr skólanum leiklesa handrit þar sem þær léku sig sjálfar að segja frá því hvað þær eru að gera í skólanum og starfinu þar. Í rauninni leikin kynning á starfi skólans. Helga Lára sagði okkur betur frá þessu og leyfði okkur að heyra.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var svo Friðrik Sólnes, en hann er rafvirki og kennir rafvirkjun í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Við fengum hann til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Friðrik talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Fátækt fólk e. Tryggva Emilsson
    Svartfugl e. Gunnar Gunnarsson
    Heimsljós e. Halldór Laxness
    Kæri fáviti e. Virginie Despentes
    A Confederacy of Dunces e. John Kennedy Toole 2666 e. Roberto Bolaño
    Tónlistin í þættinum:
    Betri tíð / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Þórður Árnason)
    Way Home / Blood Harmony (Örn Eldjárn Kristjánsson)
    Landsímalína / Spilverk þjóðanna (Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla Garðarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Eva Ruza föstudagsgestur og húsráð og brauð í ofni í matarspjallinu
    Eva Ruža Miljević er föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Eva er þekkt útvarpskona, sjónvarpskona, skemmtikraftur, stjörnufréttakona hjá K100, velgjörðarsendiherra SOS Barnaþorpanna á Íslandi og áhrifavaldur. Og ef allt þetta er ekki nóg þá er hún líka í veitingabransanum, en hú rekur ásamt eiginmannisínum Svarta kaffi. Við ferðuðumt með Evu aftur í tímann, til Króatíu, en faðir hennar er þaðan, svo í gegnum æskuárin þar sem kom fljótt í ljós að hún ætlaði sér að verða fræg og hafði snemma mikið sjálfstraust í því að koma fram.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag héldum við áfram að skoða Eldhúsbókina gömlu og góðu, húsráð frá 1971 og fleira. Í framhaldi af því rifjuðum við upp þegar við vorum yngri og settum til dæmis brauð með skinku osti og tómatsósu í ofninn. Nostalgía og brauð í ofninn í matarspjalli dagsins.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens)
    Lucky / Britney Spears (Max Martin, Rami Yacoub & Alexander Kronlund)
    Finesse / Bruno Mars (Bruno Mars, James Fauntleroy, Philip Lawrence, Brody Brown, Jeremy Reeves, Jonathan Yip, Ray Charles McCullough II & Ray Romulus)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    56 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners