Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Inngilding ungmenna með fötlun, hjólreiðar með Maríu og vísindaspjall um kaffi og þarmaflóruna
    Snæfríður Þóra Egilsson, iðjuþjálfi og prófessor í fötlunarfræðum við HÍ hefur um árabil rannsakað líf, þáttöku og aðstæður barna með fötlun. Hún hefur skoðað áskoranir sem börn og ungmenni með fötlun þurfa að ganga í gegnum, hverjar áskoranirnar eru og hún hefur lagt áherslu á og hefur lagt út af rannsóknum sem hafa beinst að börnunum og ungmennunum sjálfum, þar sem hlustað er á þeirra skoðanir og reynslu og hvað þeim hefur verið efst í huga og hvað ungt fólk með fötlun hefur sett á oddinn. Snæfríður kom í þáttinn og fræddi okkur um málefni barna og ungmenna með fötlun en hún mun einmitt halda erindi á morgun á Vorráðstefnu Ráðgjafastöðvarinnar og Gló styrktarfélags.
    María Ögn Guðmundsdóttir er ein af fremstu hjólreiðakonum landsins, hún hefur haldið fræðandi fyrirlestra um hjólafærni í tilefni af átakinu Hjólað í vinnuna sem hófst 1. maí. María Ögn fjallar þá um hjólreiðar frá A til Ö, hugarfarið, menninguna og notagildið. Við heyrðum í henni þættinum þar sem hún var stödd á Spáni og fengum hana til að fara yfir helstu atriði sem snúa að hjólreiðum, hvort sem um er að ræða keppni eða daglegar samgöngur.
    Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið en hún talaði um það hvort kaffidrykkja hafi áhrif á þarmaflóruna og skoðaði rannsókn einmitt um það.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Einsemd / Snorri Helgason (Snorri Helgason og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Vegbúi / KK (Kristján Kristjánsson
    Bicycle Race / Queen (Freddie Mercury)
    What a Fool Believes / Doobie Brothers (Michael McDonald og Kenny Loggins)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Málþing um læsi og námsorðaforða, Minecraft tónlist í Hjallakirkju og Anna María á Heilsuvaktinni
    Á morgun verður haldið málþing um læsi og námsorðaforða, að frumkvæði Íslenskrar málnefndar, þar sem farið verður yfir stöðu mála í íslenskukennslu. Þar verða flutt erindi þar sem meðal annars verður skoðað hrakandi læsi nemenda, staða barna með íslensku sem annað mál og hvernig sé gagnlegt að styðja kennara í þessum flóknu verkefnum og hvers konar verkefni virka. Doktor Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ og dr. Elín Þöll Þórðardóttir, sem starfar við McGill háskóla í Quebec í Kanada og kennir talmeinafræði hjá HÍ, komu í þáttinn og sögðu betur frá stöðunni.
    Á morgun verða einnig tónleikar í Hjallakirkju í Kópavogi þar sem tónlistin úr tölvuleiknum Minecraft verður flutt á orgel og píanó. Kristján Hrannar Pálsson organisti kirkjunnar leiðir tónleikana ásamt píanónemendum úr Tónlistarskóla Kópavogs. Hann segir að þetta sé sennilega í fyrsta skipti sem þessi tónlist sé flutt í lifandi flutningi á Íslandi. Kristján segir að börn geti uppgötvað klassíska tónlist og klassísk hljóðfæri í gegnum tölvuleiki og að píanónemendur um víða veröld biðji oft um að fá að spila þessa tónlist. Við hittum Kristján Hrannar við orgelið í Hjallakirkju.
    Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Það er líf eftir geðrof, segir Anna María Jónsdóttir sem greindist fyrir rúmu ári með geðhvarfasýki eða bipolar eins og sjúkdómurinn er oftast kallaður. Anna sem er rúmlega fertug segir margt í sínum lífstíl hafa hjálpað sér til að lifa góðu lífi með geðhvörf. Hún nefnir fyrst og fremst hugleiðslu sem hún stundar daglega og jafnvel oftar, auk þess sem hún hreyfir sig mikið, passar sykurneyslu og borðar næringarríkan mat. Hún segist einnig vera heilög með svefninn og setur sér markmið um að ná alltaf 8 tíma nætursvefni. Helga ræddi við Önnu Maríu í kaldri vorgolunni á dögunum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í fjarlægð - Björgvin Halldórsson (Karl O. Runólfsson, texti Cæsar, eða Valdimar Hólm Hallstað)
    Vor í Vaglaskógi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk)
    Minecraft / C418 (Danieal Rosenfeld)
    Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Leikskólamál: Ekki bara pláss, heimildir.is og Sigurlín Bjarney lesandi vikunnar
    Við sögðum í dag frá málþingi sem fór fram fyrir nokkru þar sem leikskólamál voru rædd og yfirskriftin var: Bara pláss? Fagmennska og gæði í leikskólastarfi. Málþingið var hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og byggir á fagmennsku, þekkingu og skýrum gildum um réttindi barna, leik og vellíðan. Á sama tíma hefur umræða í samfélaginu í auknum mæli snúist um aðgengi, biðlista og rekstrarlegar áskoranir. Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ og Sara Margrét Ólafsdóttir, dósent í menntunarfræðum ungra barna og formaður námsleiðar í leikskólakennarafræðum,komu í þáttinn í dag.
    Við litum svo við á Þjóðskjalasafni Íslands og hittum fyrir Helgu Lilju Bergmann sem sýndi okkur vef Þjóðskjalasafnsins þar sem hægt er að finna ótrúlega margt, s.s. á slóðinni www.heimildir.is þar sem finna má t.d. gamlar kirkjubækur. Safnið fær margar beiðnir í viku frá fólki sem vill finna heimildir en nú er t.d. búið að skanna inn allar gamlar kirkjubækur fram til 1960-70 svo hægt sé að leita í þeim uppá eigin spýtur.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum var svo Sigurlín Bjarney Gísladóttir kennari og rithöfundur. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigurlín talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Þúsund og einn hnífur og fleiri sögur frá Írak e. Hassan Blasim í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar
    Þríleikur (Things I don't want to know, The cost of living og Real estate) e. Deborah Levy
    The white road:Journey into an obsession e. Edmund de Waal
    Mountains of the mind: A history of fascination e. Robert MacFarlane
    Biblían, Þórarinn Eldjárn, Vigdís Grímsdóttir, Kristín Eiríksdóttir og Tomas Tranströmer
    Tónlist í þættinum í dag:
    Hvar er tunglið / Kristjana Stefánsdóttir (Sigurður Flosason)
    Ég vil fara upp í sveit / Ellý Vilhjálms (Carasella, texti Jón Sigurðsson)
    Töfrar / Silfurtónar (Júlíus Heimir Ólafsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • 33. Góð ráð í lokakafla mannlegra samskipta (í bili)
    Valdimar Þór Svavarsson kom í síðasta skipti í bili í Mannlega þáttinn til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur.
    17 min
  • kynferðisofbeldi í samböndum ungmenna, Hrafnhildur Reykjalín um gildi og lokakafli mannlegra samskipta
    Undanfarna viku hefur staðið yfir vitundarvakningin ÉG LOFA á vegum Barnaheilla. Markmiðið var að vekja athygli á umfangi kynferðisofbeldis gegn börnum með því að miðla upplýsingum og fræðslu. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnisstýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum kom í þáttinn í dag og sagði okkur aeðins frá þessu átaki og einnig frá ungmennaþingum sem haldin voru á sex stöðum á landinu þar sem rætt var um kynferðisofbeldi í nánum samböndum ungmenna og það sem þar kom fram á þessum þingum er vægast sagt sláandi.
    Hrafnhildur Reykjalín er starfandi heilsuráðgjafi á Akureyri, hún er kennari í markþjálfun með diplómu í jákvæðri sálfræði auk fjölbreyttrar menntunar í andlegri og líkamlegri heilsu og önnur eigenda Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar. Í jákvæðri sálfræði og markþjálfun er unnið markvisst með gildi sem grunn að vellíðan og stefnu í lífinu. Hrafnhildur sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag.
    Svo var komið að síðasta skiptinu í bili sem Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar til að ræða mannlegu samskiptin. Hann hefur verið með okkur alla fimmtudaga í vetur og í síðustu viku fór hann yfir það helsta sem hann hefur talað um og í dag fór hann yfir nokkur góð ráð til að brjóta upp mynstur og venjur sem eru ekki að þjóna okkur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Létt / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik Guðnason
    Mig dreymir / Björgvin Halldórsson (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Kastað á glæ / Geirfuglarnir (Halldór Gylfason)
    Þér við hlið / Regína Ósk Óskarsdóttir (Magnús Þór Sigmundsson, texti Trausti Bjarnason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Hildur Björk í Glerárkirkju, systkinaofbeldi og vísindaspjall með Eddu
    Við heimsóttum Glerárkirkju í dag og ræddum við séra Hildi Björk Hörpudóttur og hún sagði okkur frá starfinu innan kirkjunnar en hún lítur á kirkjuna sem samfélagstorg og vill að hún sé opin fyrir alla. Úlfatíminn er tími fyrir fjölskyldur sem geta komið einu sinni í mánuði og leikið sér saman seinni partinn og borðað saman og þetta hefur mælst vel fyrir. Foreldrar eru líka með í fermingarfræðslunni en það er nýlunda og við heyrðum meira um þetta í spjallinu.
    Við heyrðum um meistararitgerð þar sem fjallað er um systkinaofbeldi. Þórdís Bjarnleifsdóttir meistaranemi í félagsráðgjöf við félagsvísindasvið Háskóla Íslands segir að systkinaofbeldi sé ekki skilgreint og lítið ef nokkuð rannsakað á Íslandi en yfirskrift ritgerðar hennar er „Þögnin í kringum systkinaofbeldi: Viðhorf fagfólks til ósýnilegs ofbeldis innan fjölskyldunnar.“ Markmið rannsóknarinnar var að kanna skilgreiningar, viðhorf og viðbrögð fagfólks sem vinnur með fjölskyldum og börnum, gagnvart systkinaofbeldi. Þórdís sagði okkur meira frá þessu í dag.
    Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið. Hún hefur frætt okkur á miðvikudögum um merkilega hluti sem eru að gerast í heimi vísindanna og í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem sýnir hvernig bakterían Morganella morganii getur ýtt undir, eða jafnvel valdið þunglyndi.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst)
    Dýrð í dauðaþögn / Ásgeir Trausti (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Júlíus Aðalsteinn Róbertsson)
    Harvest Moon / Neil Young (Neil Young)
    Háa c / Mosess Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Jazzþorpið í Garðabæ, Sindri Sparkle og regnbogafánar og veðurspjallið með Einari
    Í tilefni 50 ára afmælis Garðabæjar stendur Jazzþorpið á Garðatorgi í 4 daga. Ómar Guðjónsson er listrænn stjórnandi dagskrárinnar sem verður óvenju vegleg í tilefni afmælisins og gestir geta látið fara vel um sig og jafnvel keypt húsgögn og vörur sem flutt hafa verið á Garðatorgið frá Góða hirðinum. Ómar Guðjónsson og Ólöf Breiðfjörð fyrsti menningarfulltrúi Garðabæjar komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá Jazzþorpinu.
    Pláss fyrir alla: Regnbogafánar fyrir byrjendur og lengra komna er uppistandssýning í Tjarnarbíói sem rekur sögu hinna ýmsu fána á gamansaman en fræðandi hátt. Regnbogafánar hafa verið mikið í umræðunni undanfarið Sindri Freyja Bjarnabur, líka þekkt sem Sparkle, er grínisti, rithöfundur og grafískur hönnuður og hún kom í þáttinn í dag og sagði betur frá sýningunni og því hvernig þessi umræða hefur þróast undanfarið og áhrifin sem hún finnur glöggt fyrir á eigin skinni í kjölfarið.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um sjávarhita fyrir norðan landið, sem er hár miðað við árstíma og hefur áhrif á hafís og gefur mögulega fyrirheit um íslenska sumarið. Svo var dagurinn í gær líklega fyrsti raunverulegi sumardagurinn en hvað er átt við með því? Og hvað er kóngsbænakast? Að lokum herjar ógnvænleg hitabylgja á Indlansskaga, meiri en oft áður snemmsumars. Þetta og fleira var í veðurspjallinu með Einari í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Manstu þá / Björgvin Halldórsson (Allan Jackson, texti Karl Mann (eða Friðrik Erlingsson)
    Manstu / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir)
    Manstu / Hjálmar (Hjálmar, texti Þorsteinn Einarsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Fimmta hvert barn, gullmolinn af safninu frá 1947 og Guðrún Helga lesandi vikunnar
    Við fræddumst um verkefnið Fimmta hvert barn sem UNICEF hefur verið að vinna með yfir 800 börnum á Íslandi. Það er myndlistarsýning í Hörpu sem varpar ljósi á þá hrikalegu staðreynd að fimmta hvert barn í heiminum býr við afleiðingar stríðs og átaka. Sýningin stendur til 3.maí og þær Sigyn Blöndal kynningarstjóri og Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri UNICEF komu til okkar í dag og sögðu okkur betur frá.
    Helga Lára Þosteinsdóttir safnstjóri RÚV kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Rúgbrauðsgerðin er almennt heiti á húsinu Borgartúni 6, en það var reist árið 1947. Í innslagi dagsins, sem tekið var upp fyrir þáttinn Heyrt og séð þann 24.ágúst árið 1947, segir Jónas Árnason aðeins frá þessu nýja stórhýsi sem hýsti mjög metnaðarfulla framleiðslu á rúgbrauði, hrökkbrauði og sultu. Seinni hluti umfjöllunarinnar snýr að Nýborg, aðalútsölustað Áfengisverslunar ríkisins við Skúlagötu. Á þessum tíma var áfengi afgreitt yfir borðið. Helga Lára sagði okkur nánar frá og við heyrðum þessi hljóðbrot frá liðnum tíma.
    Og lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðrún Helga Halldórsdóttir búðareigandi og stundakennari við japönskudeild HÍ. Hún er stödd í Kyoto í Japan og vegna mikils tímamunar hringdum við í hana snemma í morgun og tókum spjallið upp. Við forvitnuðumst aðeins um hana og af hverju hún er stödd í Japan og svo sagði hún okkur auðvitað hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Guðrún talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Dagar mínir í Morisaki bókabúðinni e. Satoshi Yagisawa í þýðingu Ugga Jónssonar
    Kjörbúðarkonan e. Sayaka Murata í þýðingu Elísu Bjargar Þorsteinsdóttur
    Svo talaði hún um áhrif Haruki Murakami á sitt líf.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Síðasti móhítóinn / Sigurður Guðmundsson, Memfismafían og Tómas R. Einarsson (Bragi Valdimar Skúlason)
    Flugvélar / Nýdönsk (Jón Ólafsson, texti Björn Jörundur Friðbjörnsson)
    Manstu gamla daga / Alfreð Clausen (Alfreð Clausen, texti Kristín Engilbertsdóttir Clausen)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Haukur Holm föstudagsgestur og matarspjall um snittubrauð
    Haukur Holm fréttamaður, öllu heldur fyrrverandi fréttamaður, hefur yfir 40 ára reynslu á þeim vettvangi en er nú hættur, nýorðin sjötugur. Haukur vann lengst af á fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar en þar áður meðal annars á Alþýðublaðinu, Vikublaðinu Reykjavík og nú síðast hér á fréttastofu RÚV. Við fórum auðvitað aftur í tímann með Hauki, á æskuslóðirnar og upphaf fréttamannaferilsins, til dæmis viðtal hans við Leonard Cohen, sem var hans fyrsta verkefni í faginu.
    Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo auðvitað á sínum stað og í dag skoðuðum við aðeins Eldhúsbókina og svo gáfum við snittubrauðinu gaum, hvernig á að baka það og margvíslegum notagildum þess.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vorátak / Söngflokkurinn í Mosfellsbæ, Diddú, Hafdís Huld o.fl. (Thorbjörn Egner, texti Hafdís Huld)
    Banger / Virgin Orchestra (Stefanía Pálsdóttir, Rún Árnadóttir og Starri Holm, texti Stefanía Pálsdóttir)
    Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • 32. Valdimar fer yfir efni vetrarins
    Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur.
    19 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

26 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners