Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Hannes Óli föstudagsgestur og portúgalskt matarspjall
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hannes Óli Ágústsson. Frá því hann útskrifaðis frá Listaháskóla Íslands árið 2009 hefur hann leikið mikinn fjölda hlutverka á sviði og fyrir framan kvikmyndavélar, til dæmis í fjölmörgum áramótaskaupum og svo nú síðast í gamanþáttaröðinni Hæst sem er sýnd hjá Sjónvarpi Símans, en hann er einn handritshöfunda auk þess að leika annað aðalhlutverkið. Við ræddum við hann um lífið og tilveruna, ferðuðumst með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Breiðholtinu og stikluðum á stóru í gegnum lífið til dagsins í dag.
    Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Í dag ræddum um portúgalskan mat, saltfisk, sjávarrétti, skrýtna samloku og sætabrauð.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í útvarpinu / Björgvin Halldórsson og HLH flokkurinn (Björgvin Halldórsson, texti Jónas Friðrik)
    Berghain / Rosalia & Björk & Yves Tumor (Rosalia Vila Tobella, Noah Goldstein & Dylan Wiggins)
    Bankrobber / The Clash (Joe Strummer)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • 30. Meira um höfnunarótta
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hélt áfram að fræða okkur í Mannlega þættinum um mannlegu samskiptin. Í dag tók Valdimar upp þráðinn frá því síðast og hélt áfram að tala um höfnunarótta.
    15 min
  • Formlegur og óformlegur stuðningur mikilvægur, Barnadjass og enn um höfnunarótta
    Við fræddumst í dag um rannsókn sem Þóra Katrín Erlendsdóttir, meistaranemi við í heilbrigðisvísindum við Háskólann á Akureyri vann. En tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna af stuðningi í kjölfar sjálfsvígs vinar. Þátttakendur voru einstaklingar sem höfðu misst vin í sjálfsvígi. Þóra Katrín var hjá okkur í dag og sagði okkur frá rannsókninni og niðurstöðunum, þar sem til dæmis kom fram mikilvægi formlegs og óformlegs stuðnings.
    Félagasamtökin Barnadjass standa að hátíðinni Barnadjass í Mosó sem verður haldin í 4. sinn í júní. Þetta er alþjóðleg hátíð þar sem börn á aldrinum 8-16 ára koma fram og spila djass eftir eyranu og spinna. Hátíðin er stofnuð eftir norskri fyrirmynd en listrænn stjórnandi beggja hátíða er Odd André Elveland, norskur djasstónlistarmaður og frumkvöðull í kennslu ungra barna í að spila djass eftir eyranu og spinna. Guðrún Rútsdóttir er formaður félagasamtakanna Barnadjass og hún kom í þáttinn í dag.
    Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi og stjórnandi Meðvirknipodcastsins kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um mannlegu samskiptin. Í dag hélt Valdimar áfram að tala um höfnunarótta.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ráðahagur / Moses Hightower (Moses Hightower (Andri Ólafsson, Magnús Trygvason Eliassen & Steingrímur Karl Teague)Texti, Andri Ólafsson & Steingrímur Karl Teague)
    Pain / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson)
    Það jafnast ekkert á við jazz / Stuðmenn (Jakob Frímann Magnússon)
    Er það satt sem þau segja um landann / HLH flokkurinn (erlent lag, texti Þorsteinn Eggertsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    51 min
  • Hjóla 3500 km. á 34 dögum, Bústaðabúar og vísindaspjallið
    Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson eru á leið í afar krefjandi hjólreiðaferð þar sem þeir munu hjóla um 3.500 km um vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Markmið ferðarinnar er að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Þeir komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá þessu ferðalagi sem hefst nú um helgina.
    Heiða Björk Sturludóttir er að skrifa bók sem heitir Bústaðabúar, bók um fólk sem á sitt aðalheimili í svokölluðum frístundahúsum. Þetta er viðtalsbók til að kynna þennan lífsstíl og sýna hversu mikil fjölbreytni er í hópnum. Alls kyns fólk á alls kyns aldri sem fæst við alls kyns. Við ræddum við Heiðu Björk í dag.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá nýju lyfi gegn beinþynningu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)
    Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson)
    Green Green Grass of Home / Tom Jones (Curly Putman)
    Hey Rube / The Rocketeers (S. Johnson & A. Johnson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Gömlu eyjalögin, trefjar á Heilsuvaktinni og Kári lesandi vikunnar
    Leifur Geir Hafsteinsson, forsprakki alþýðutónlistarhópsins Vinir og vandamenn og dóttursonur Oddgeirs Kristjánssonar, kíkti í heimsókn til okkar í dag en hópurinn vinnur að gerð hljómplötu þar sem finna má áður óútgefin eða sjaldheyrð gömul Eyjalög. Leifur sagði okkur frá hljómplötunni og lögunum og við heyrðum tvö laganna, þar á meðal Setjumst að sumbli en það er fyrsta Þjóðhátíðarlagið, frá árinu 1933 og hefur aldrei verið gefið út áður og var því frumflutt í útvarpi í Mannlega þættinum í dag.
    Í Heilsuvakt dagsins kom Helga Arnardóttir til okkar í beina útsendingu og ræddi um prótein æðið sem hefur riðið yfir á samfélagsmiðlum og trefjaæðið sem nú er að taka við. Rannsóknir sýna nefnilega að fæstir ná lágmarksskammti af trefjainntöku á dag en trefjar hafa veruleg góð áhrif á meltinguna og næra bakteríur í þarmaflórunni en ekki bara það því dagleg og góð trefjainntaka getur spornað gegn sykursýki 2, ristilkrabba, hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og alzheimer svo eitthvað sé nefnt. Helga ræddi þetta við okkur á Heilsuvaktinni og fór yfir helstu fæðuflokka sem innihalda góðar trefjar.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Kári Sævarsson einn af eigendum vörumerkjastofunnar Tvist. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Kári talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Smásögur eftir Hauk Ingvarsson (sem eiga að koma út í heildarsafni og ekki enn kominn titill)
    Tímabundin e. Kristján Hrafn Guðmundsson
    Alistair McClean og Hammond Innes
    Fávitinn e. Dostojevski
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í bíl / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson, ljóð Örn Arnarson)
    Setjumst að sumbli / Vinir og vandamenn (Oddgeir Kristjánsson,texti Árni úr eyjum)
    And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Helgi Björns og Ísafjörður, Guðmundur Pétursson og blúshátíð og Edda Olgudóttir
    Páskahelgin er á næsta leyti og margir sem verða á faraldsfæti. Sumir fara í sumarbústað, aðrir til útlanda og svo eru margir sem fara vestur Ísafjörð, þar sem fram fer skíðavika og auðvitað tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður. Við töluðum við skíðagarp, frá Ísafirði sem margoft hefur troðið upp á þessari ágætu hátíð fyrir vestan - þó hann hafi sig hægan núna um páskana. Helgi Björnsson tónlistarmaður kom í þáttinn í dag.
    Blúshátíð í Reykjavík er í gangi yfir páskana eins og undanfarin ár og áratugi. Hátíðin verður í sínum stað á Hilton Reykjavík Nordica og á dagskránni eru bæði erlendar og innlendar blússtjörnur og að lokinni formlegri dagskrá verður Klúbbur Blúshátíðar þar sem tónleikagestir geta notið lifandi tónlistar í afslöppuðu umhverfi. Guðmundur Pétursson kom til okkar í dag.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í lok þáttar í sitt reglubundna vísindaspjall. Hún fjallaði um nýjar rannsóknir á rafrettum og níkótíninntöku. Og okkur skildist að þetta hafi ekki verið alslæmar fréttir sem hún færði okkur í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Blús í G / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    Allt ljómar / Helgi Björnsson
    Ég trúi á þig / Múgison og Blúskompaníið
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    54 min
  • Bragðlaukaþjálfun og matvendni, Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall
    Við töluðum um matvendni í Mannlega þættinum - aðallega matvendni hjá börnum, orsakir hennar og hvað er til ráða. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði hefur undanafarið rannsakað þetta ásamt hópi vísindamanna í rannsókn þar sem áhersla er lögð á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Og stór hluti af þessari rannsókn er það sem er kallað ‘bragðlaukaþjálfun’ - hvernig fer hún fram? Anna Sigríður sagði okkur meira um þetta.
    Evrópuferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands lauk síðasta fimmtudag á glæsilegum tónleikum í hinu virta tónlistarhúsi Elbphilharmonie í Hamborg. Uppselt var á tónleikana, stemningin frábær og áhorfendur risu úr sætum og fögnuðu sveitinni. Framundan eru tvennir tónleikar með tónlist úr kvikmyndinni ET og svo tónleikar með Barböru Hannigan verðandi aðalstjórnandi hljómsveitarinnar ,Sköpun heimsins, þar sem Barbara fer með tónleikagesti í ferðalag um tíma og rúm með efnisskrá sem spannar rúm 200 ár tónlistarsögunnar. Guðni Tómasson er framkvæmdastjóri sveitarinnar og hann kom til okkar á eftir.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur talaði um veðurseiglu eða hæfileikann til að takast á við íslenskt vetrarveður í daglegu lífi. Að vetrinum er lágur meðalloftþrýstingur vísir fyrir sviptinga- og stormasamt veður. Nú í mars hefur loftþrýstingur verið lágur að meðaltali en sosum ekkert einsdæmi. Svo var það veðurspáin næstu daga og yfir páska og hugtakið páskahret á ekki við núna, við spyrjum: Af hverju?
    Tónlist frá útsendingarlogg 2026-03-31
    CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins.
    Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
    THE HOUSEMARTINS - Caravan of Love (80).
    Björgvin Halldórsson, Kór Öldutúnsskóla - Ég á lítinn skrítinn skugga.
    JAMES TAYLOR - Don't Let Me Be Lonely Tonight.
    CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins.
    MANNLEGI ÞÁTTURINN ÞRIÐJUDAGUR 31.MARS 2026
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    53 min
  • Bragðlaukaþjálfun og matvendni,Sinfóníuhljómsveit Íslands og veðurspjall
    Við töluðum um matvendni í Mannlega þættinum - aðallega matvendni hjá börnum, orsakir hennar og hvað er til ráða. Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor í næringarfræði hefur undanafarið rannsakað þetta ásamt hópi vísindamanna í rannsókn þar sem áhersla er lögð á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum. Og stór hluti af þessari rannsókn er það sem er kallað ‘bragðlaukaþjálfun’ - hvernig fer hún fram? Anna Sigríður sagði okkur meira um þetta.
    Evrópuferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands lauk síðasta fimmtudag á glæsilegum tónleikum í hinu virta tónlistarhúsi Elbphilharmonie í Hamborg. Uppselt var á tónleikana, stemningin frábær og áhorfendur risu úr sætum og fögnuðu sveitinni. Framundan eru tvennir tónleikar með tónlist úr kvikmyndinni ET og svo tónleikar með Barböru Hannigan verðandi aðalstjórnandi hljómsveitarinnar ,Sköpun heimsins, þar sem Barbara fer með tónleikagesti í ferðalag um tíma og rúm með efnisskrá sem spannar rúm 200 ár tónlistarsögunnar. Guðni Tómasson er framkvæmdastjóri sveitarinnar og hann kom til okkar á eftir.
    Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur talaði um veðurseiglu eða hæfileikann til að takast á við íslenskt vetrarveður í daglegu lífi. Að vetrinum er lágur meðalloftþrýstingur vísir fyrir sviptinga- og stormasamt veður. Nú í mars hefur loftþrýstingur verið lágur að meðaltali en sosum ekkert einsdæmi. Svo var það veðurspáin næstu daga og yfir páska og hugtakið páskahret á ekki við núna, við spyrjum: Af hverju?
    Tónlist frá útsendingarlogg 2026-03-31
    CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins.
    Árný Margrét - Hakk og spaghettí.
    THE HOUSEMARTINS - Caravan of Love (80).
    Björgvin Halldórsson, Kór Öldutúnsskóla - Ég á lítinn skrítinn skugga.
    JAMES TAYLOR - Don't Let Me Be Lonely Tonight.
    CLUB DES BELUGAS - A men's scene Kynningarlag Mannlega þáttarins.
    MANNLEGI ÞÁTTURINN ÞRIÐJUDAGUR 31.MARS 2026
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    53 min
  • Meindýraeyðir, Þjóðskjalasafnið og lesandi vikunnar
    Það vilja fáir fá meindýr inná heimili sitt og gera allt til að koma í veg fyrir það. Við ræddum við teymisstjóra meindýravarna hjá Dýraþjónustu Reykjavíkur, hann heitir Ólafur Ingi Heiðarsson og hann segir til dæmis að það sé mikil aukning á veggjalúsatilfellum í borginni og að rotturnar séu gáfaðar.
    Og við kíktum í heimsókn á Þjóðskjalasafn Íslands og hittum skjalavörðinn Kjartan J. Richter og hann fann gögn í safninu sem tengjast undirbúningsnefnd Alþingishátíðarinnar 1930 og þar kennir ýmissa grasa.
    Og lesandi vikunnar þennan mánudaginn er Þorkell Heiðarsson, líffræðingur og formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga. Hann kom með nokkrar af sínum eftirlætisbókum og spjallaði um þær við okkur.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Næst síðasti geirfuglinn / Geirfuglarnir (Valgeir Guðjónsson)
    Please Mr. Postman / Carpenters
    Days We Left Behind / Paul McCartney
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    53 min
  • Agnar Jón Egilsson föstudagsgestur, Matarspjall með Sigurlaugu Margréti
    Það er föstudagur og gul viðvörun í gangi víða. Við látum það ekki á okkur fá og fögnum föstudagsgesti dagsins og sá er dósent við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands. Hann er einnig leikstjóri og höfundur, hann stofnaði Leynileikhúsið á sínum tíma og er, eins og vinir hans segja, alltaf önnum kafinn náungi. Núna í vetur leikstýrði hann leikritinu Mömmó sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Við töluðum við Agnar Jón Egilsson.
    Svo er það Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti Jónasdóttur, í dag velti hún fyrir sér fyndnum mat.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Landbúnaðar Lísa / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson)
    You Make Me Feel / Jimmy Sommerville
    Lithium / Nirvana
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    53 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners