Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Hugarafl, Guðríður Helgadóttir og garðurinn,Mannlegu Samskiptin
    Og þótt veðrið sé með versta móti og viðvaranir eins appelsínugular og þær verða, þá erum við í Mannlega þættinum farin að huga að vorinu sem er rétt handan við hornið. Það er nefnilega kominn tími til að byrja undirbúning fyrir garðyrkjustörf vorsins. Nú er til dæmis gráupplagt að byrja að sá fyrir alls kyns matjurtum og jafnvel sumarblómum. Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur hugsar um fátt annað þessa dagana. Við heyrðum í henni.
    Hugarafl eru félagasamtök fólks sem hefur upplifað persónulega krísu og vinnur að persónulegum bata sínum og alla þá sem hafa gengið í gegnum andlegar áskoranir og einnig aðstandendur þeirra. Notendur í Hugarafli móta eigin endurhæfingu og veita öðrum stuðning sem eru í svipuðu ferli. Kjarni starfsins er þekking og reynsla notenda og fagfólks. Við kíktum við hjá samtökunum sem eru staðsett í Síðumúla 6 og ræddum við Auði Axelsdóttur framkvæmdastjóra.
    Og svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimar Þór Svavarssyni ráðgjafa hjá Fyrsta skrefinu og stjórnandi Meðvirknipodcastsins, í óveðrinu í dag töluðum við um nokkuð sem kallast höfnunarótti.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Haglél / Mugison (Mugison)
    Þitt bros / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson)
    Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUÐMUNDUR PÁLSSON
    54 min
  • Dýr í sögum, Músík í Mývatnssveit og Vísindaspjall með Eddu Olgudóttur
    Við fræddumst um sögur um dýr, íslenskar dýrasögur og hvernig er skrifað um dýr í þeim. Rithöfundurinn Gunnar Theodór Eggertsson beindi sjónum sínum að þessu efni í fyrirlestri á Borgarbókasafninu fyrr í vikunni, þar sem hann sagði frá ríkri sagnahefð Íslendinga um dýr og setti þær í alþjóðlegt samhengi, bæði í tengslum við bókmenntahefðir og einnig dýravernd. Gunnar Theodór kom í þáttinn.
    Skemmtilegur óperufarsi í boði meistara Mozarts verður fluttur í Mývatnssveit um páskana. Já Mozart í Mývatnssveit og undir merkjum tónlistarhátíðarinnar Músík í Mývatnssveit 2026. Gamanóperan heitir Der Schauspiel-direktor sem á íslensku nefnist Viðburðastjórinn. Hátíðin hefur verið haldin í Mývatnssveit í dymbilviku samfellt frá árinu 1998 og við fengum Laufeyju Sigurðardóttur fiðluleikara til að segja okkur nánar frá þessari skemmtun.
    Edda Olgudóttir kom í vísindaspjall og segir okkur frá tapi á Y litningi og hvaða áhrif það hefur á heilsu karla.
    Lög:
    Dýrin á Diskó / Prófessorinn, Memfismafían og Margrét Kristín Blöndal (Bragi Valdimar Skúlason)
    Söngur dýranna í Týról / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson)
    Rock'n'Roll öll mín bestu ár / Brimkló (K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Queen of California / John Mayer (John Mayer)
    MANNLEGI ÞÁTTURINN MIÐVIKUDAGUR 25.MARS 2026
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Áfall, hvað svo? Ný bók eftir Dr.Sigrúnu Sigurðardóttur og Heilsuvaktin
    Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu. Út er komin bókin Áfall, hvað svo? eftir Dr. Sigrúnu Sigurðardóttur, prófessor við háskólann á Akureyri, og fjallar um áföll, afleiðingar þeirra og úrræði. Bókin byggir á fræðilegum grunni og eigin reynslu höfundar og í henni kynnir Sigrún leiðir til bata. Hver eru helstu einkenni áfalla, hverjar eru afleiðingar og hver eru úrræði út frá fræðum og reynslu? Sigrún fræddi okkur um þetta í þættinum í dag.
    Helga Arnardóttir var með Heilsuvaktina hjá okkur í dag eins og annan hvern þriðjudag. Lilja Kjalarsdóttir lífefnafræðingur vissi í rúman áratug að hún væri með bracca genið sem getur valdið lífshættulegu krabbameini. Móðir hennar greindist með bracca krabbamein og lést eftir erfiða baráttu árið 2022. Í langan tíma hikaði Lilja við að fara í fyrirbyggjandi aðgerð til að minnka líkurnar á að hún fengi sjúkdóminn. Hún var í eftirliti um langa hríð en einn daginn eftir samveru með konum í Bracca samtökunum tók hún ákvörðun og lét verða af því að fara í tvöfalt brjóstnám og hyggst láta fjarlægja eggjastokkana þar á eftir. Með tvöföldu brjóstnámi minnkuðu líkurnar á krabbameini úr 60-80% prósentum niður í tvær prósentur. Helga ræddi við hana skömmu eftir aðgerðina.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Gleym mér ei / Sigrún Hjálmtýsdóttir (Valgeir Guðjónsson)
    Appelsínugult myrkur / Una Torfa (Una Torfa og Hafsteinn Þráinsson)
    Gleymmérei / Bríet og KK (Bríet Ísis Elfar, Lárus Örn Arnarson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Nýjar fjármögnunarleiðir í íbúðakaupum, frásögn Sigurður frá 1947 og Auður lesandi vikunnar
    Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna kom í þáttinn í dag og við skoðuðum með honum nýtilkomnar leiðir sem eru í boði í íbúðarkaupum þar sem til dæmis byggingafyrirtæki, verktakar eða fjármálaþjónustur bjóða fólki upp á að leggja t.d. einungis fram 10% af kaupverði, seljandinn, eða annar aðili, leggja til allt að 20% og svo eru þá 70% húsnæðislán. Neytendasamtökin segja að þessir samningar séu varhugaverðir og óljósir, þar sem ekki sé búið að kanna frá öllum hliðum lögmæti þeirra og hver raunveruleg staða kaupend sé. Breki fór yfir þessi mál hjá okkur í dag.
    Við héldum svo áfram að grúska í safni Ríkisútvarpsins með Helgu Láru Þorsteinsdóttur safnstjóra og í dag kom hún með frásögn Sigurðar Helgasonar, tónskálds frá Blaine Washington, sem var tekin var upp árið 1947 þegar hann var nýkomin aftur til Reykjavíkur eftir 57 ára dvöl í vesturheimi, en hann fór frá Íslandi 1890. Stórmerkileg upptaka og frásögn þar sem hann til dæmis talar um framfarir og breytingar sem hafa orðið í Reykjavík og margt fleira.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var Auður Þórhallsdóttir barnabókahöfundur. En hún er einmitt nýbúin að gefa út fjórðu bókina um Miðbæjarrottuna. Við spurðum hana aðeins út í hana og svo sagði hún okkur auðvitað frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Auður talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Einsamræður e. Birtu Ósmann
    Snyrtistofan e. Mario Bellatin
    Þessir djöfulsins karlar e. Andrev Walden
    Móðurást- sólmánuður e. Kristínu Ómarsdóttur
    En hvað það var skrýtið e. Pál. J Árdal
    Alkemistinn e. Paulo Coelho
    Minningarbók e. Vigdísi Grímsdóttur
    Tónlist í þættinum í dag:
    Skítaveður / Bogomil Font og Greiningadeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
    Pínu sein / GDRN og Tómas R. Einarsson (GDRN og Tómas R. Einarsson)
    Skín við sólu Skagafjörður / Liljukórinn (Sigurður Helgason, texti Matthías Jochumsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Ísleifur B. Þórhallsson föstudagsgestur og súpur í matarspjallinu
    Ísleifur B. Þórhallsson tónleikahaldari er heldur betur búin að vera mikið í fjölmiðlum undanfarið en hann hélt utan um tvenna stórtónleika Laufeyjar um síðustu helgi fyrir hönd Senu. Ísi í Senu, eins og hann er oftast kallaður, hefur hefur ýmislegt reynt í tónleikahaldi hér á Íslandi undanfarna áratugi en hann byrjaði ungur að spá í kvikmyndir, tónlist og viðburðahald. Hann var föstudagsgestur í Mannlega þættinum í dag og við fórum með honum um víðan völl en þó tónleikar Laufeyjar í Kórnum hafi verið gríðarlega umfangsmiklir og í ótrúlega mörg horn að líta þá var hann alls ekki kominn í frí eins og við heyrðum í spjallinu.
    Sigurlaug Margrét var veðurteppt í bústað við Meðalfellsvatn og við töluðum við hana um súpur til að hlýja okkur í veðrinu sem nú gengur yfir landið.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander, Geoff Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir)
    Ber / Amor Vincit Omnia (Baldur Skúlason og Erla Hlín)
    Black / Pearl Jam
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • 28. Meðvirkni og barnauppeldi
    Í mannlegu samskiptunum með Valdimari Þór Svavarssyni í Mannlega þættinum í dag talaði Valdimar um meðvirkni og barnauppeldi. Þar var af nógu að taka.
    15 min
  • Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi
    Tannverndarvikan 2026 er einmitt þessa vikuna, Góð munnheilsa alla ævi er yfirskrift vikunnar í ár. Þó munnheilsa sé auðvitað mikilvæg á öllum stigum lífsins þá er í ár lögð sérstök áhersla á börn og ungmenni og áhrif nikótíns og koffíns á tennur og munnheilsu. Íris Þórsdóttir, tannlæknir í Vestmannaeyjum og nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands kom í þáttinn í dag og sagði betur frá þessu og talaði einnig um munnþurrk hjá eldra fólki, sem getur komið til af margvíslegum orsökum en getur ýtt undir tannskemmdir.
    Gleym mér ei styrktarfélag var stofnað árið 2013 af þremur konum, Önnu Lísu Björnsdóttur, Þórunni Pálsdóttur og Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, en sameiginleg reynsla þeirra af missi á meðgöngu færði þær saman með það að markmiði að styðja betur við foreldra sem missa barn á meðgöngu, í fæðingu og fljótlega eftir hana. Félagið hefur stækkað á þessum árum sem eru liðin síðan en tilgangurinn er enn sá sami. Sigrún Kristínar Valsdóttir kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá félaginu, áherslu á gamlar sorgir í samverustundum sem félagið hefur staðið fyrir, hópastarfið og fleira.
    Svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag talaði Valdimar um meðvirkni og barnauppeldi. Þar var af nógu að taka.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lover Girl / Laufey (Laufey og Spencer Stewart)
    Eitt af blómunum / Benni Hemm Hemm og Páll Óskar (Benedikt Hermann Hermannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson)
    Cairo vibe / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson)
    Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Alþýðutónlistarhátíð, fordómar gagnvar fólki með fíkn og áhrif ABS hljóða á kvíða
    Reykjavík Folk Festival snýr aftur næstkomandi helgi í Iðnó. Hátíðin er sett upp að alþjóðlegri fyrirmynd þar sem spilagleðin er í forgrunni og órafmögnuð hljóðfæri eru í aðalhlutverki. Fyrsta hátíðin fór fram árið 2010. Forsvarsmaður, hugmyndasmiður, helsti hönnuður og fyrsti framkvæmdastjóri Reykjavik Folk Festival var Ólafur Þórðarson, ástsæli tónlistarmaðurinn í Ríó Tríó og fleiri hljómsveitum. Tónlistarmennirnir Guðmundur Atli Pétursson og Sigmar Matthíasson komu í þáttinn í dag.
    Í gær fór fram hádegisfundur á vegum Geðhjálpar á Kjarvalsstöðum um fordóma Íslendinga gagnvart andlegum áskorunum. Kári Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands, kynnti þar nýjar niðurstöður rannsóknar á fordómum gagnvart einstaklingum sem kljást við fíkn. Kári kom og sagði okkur frá niðurstöðunum í þætti dagsins.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag fræddi hún okkur um áhrif tónlistar og ABS (auditory beat stimulation) hljóða á kvíða.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Glugginn / Flowers (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Þú ert /Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur (Guðmundur Björnsson))
    Einbúinn / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Eiríksson)
    Í hjarta þér / Haukur Morthens (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Gervigreind í fjármálum, 100 ára saga útvarps á Íslandi og veðurspjallið
    Hvaða störf á fjármálamarkaði eru líkleg til að hverfa vegna gervigreindar og hvaða ný störf verða til og hvaða hæfni þarf starfsfólk helst að hafa í nánustu framtíð. Þessa viku fer fram ráðstefnan Viðskipti og vísindi hjá Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Þar koma saman fræðafólk, sérfræðingar og stjórnendur úr atvinnulífinu til að ræða nokkur af heitustu viðfangsefnum viðskipta í dag, allt frá gervigreind og framtíð starfa til fjárfestinga og jafnréttis í atvinnulífinu. Hersir Sigurgeirsson prófessor í fjármálum við HÍ og Iða Brá Benediktsdóttir, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri hjá Arion banka, komu í þáttinn í dag.
    Á morgun eru liðin hundrað ár frá fyrstu formlegu útvarpssendingunni hér á landi, en hún fór fram í Loftskeytastöðinni í Reykjavík þann 18. mars 1926 og hófst þá nýr kafli í íslenskri miðlunarsögu. Sigurður Harðarson, rafeindavirki og fjarskiptasérfræðingur hefur um áratuga skeið unnið að uppsetningu, viðhaldio gþróun fjarskiptakerfa víða um land auk varðveislu útvarpstækja og fjarskiptasögu á Íslandi. Hann kom til okkar í dag og með honum kom Anna Diljá Sigurðardóttir, sýningarstjóri sýningarinnar H.f. Útvarp - dagurinn sem útvarpið varð að veruleika. Við ræddum sem sagt við þau um sögu útvarps á Íslandi í útvarpi á Íslandi í dag.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði á tíðarfarinu, en það hefur verið mikill gangur í veðrinu og við erum ekki alveg laus undan norðanáttinni og snjókomunni enn. Á fimmtudag hlánar nokkuð snögglega og frekari sviptingar er síðan að sjá áfram. Svo fór Einar með okkur aftur til ársins 1953, þegar mikil heræfing Atlantshafsbandalagsins fór eiginlega í vaskinn hér við land vegna veðurs. Hann rifjaði upp gamalt viðtal sem því tengist og ljóð eftir Jakobínu Sigurðardóttur skáldkonu um sama mál.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Kling klang / Dátar (Þórir Baldursson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Sveinbjörn Bjarki Jónsson, texti Páll Óskar Hjálmtýsson)
    Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
    Daybreak / Frank Sinatra & Tommy Dorsey and his Orchestra (Ferda Grofé)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Þrumu lostnir 1865, nýting á rabbarbara og Dóra Lena lesandi vikunnar
    Við fórum á Þjóðskjalasafnið og hittum Indriða Svavar Sigurðsson skjalavörð og hann sagði okkur afar merkilega sögu. Hann hafði heyrt að langafi hans hafi veirð einn 9 manna sem urðu fyrir eldingu við bæinn Auðnar á Vatnsleysuströnd 16. mars árið 1865. Þessi viðburður hafði vakið mikla athygli á sínum tíma og Indriði, verandi skjalavörður, hóf að leita að heimildum á safninu. Hann fann nokkrar frumheimildir um þetta undarlega og voðalega slys, þar á meðal skýrslu sem Jón Hjaltalín landlæknir skrifaði og sendi heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku. Við heyrðum meira um þessa ótrúlegu sögu í þættinum í dag.
    Rabbarbarinn á uppruna sinn í Kína og hefur því ferðast langa leið áður en hann festi rætur í íslenskum görðum sem fjölært nytjagrænmeti. En getum við hugsanlega nýtt þessa áhugaverðu plöntu betur? Við veltum því fyrir okkur í dag með Björk Bjarnadóttur, umhverfis- þjóðfræðingi, en hún heldur einmitt erindi um það í Fróðleikskaffi á Borgarbókasafninu Árbæ í dag.
    Lesandi vikunnar var Dóra Lena Christians verslunarstjóri í Bóksölu stúdenta og meistaranámsnemi í almennri bókmenntafræði. Hún er nýkomin aftur til landsins eftir að hafa sótt stóru bókamessuna í London. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá því en svo auðvitað líka þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina.
    Tónlist í þættinum:
    Meiriháttar / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir)
    Í dansi með þér / Ingibjörg Þorbergs, Marzbræður og Kvartett Jans Morávek (Pablo Beltran Ruiz, texti Þorsteinn Sveinsson)
    And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    49 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners