Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Mottumars, Dagur heyrnar og veðurspjallið með Einari
    Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins er í fullum gangi, þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir starfsemi félagsins. Nýju sokkarnir eru komnir í sölu um allt land og nýr matarvefur er kominn í loftið þar sem hollar uppskriftir eru aðgengilegar öllum. Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, og Hólmfríður Sigurðardóttir, formaður félags maka karla með blöðruhálskrabbamein, komu í þáttinní dag.
    Í dag, 3.mars, er Dagur heyrnar árlegur viðburður sem Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) kom á fót og er haldið á lofti hér af Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) í samvinnu við ýmis hagsmunasamtök heyrnaskertra og fatlaðra á Íslandi. Í ár eru skilaboðin - Heyrnavernd fyrir öll börn - þar sem skorað er á heilbrigðisyfirvöld að koma á reglulegri skimun á heyrn barna við upphaf skólagöngu. Hildur Heimisdóttir, kennsluráðgjafi hjá Hlíðaskóla og HTÍ og Telma Sigtryggsdóttir formaður Heyrnahjálpar komu í dag og sögðu okkur betur frá viðburðinum og átakinu.
    Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag sagði hann okkur frá sendibréfi sem honum barst þar sem greint er frá merkingu veðurorða og hugtaka í Árneshreppi á Ströndum. Svo sagði Einar okkur frá bók sem hann fann á Bókamarkaðinum eftir Þorvald Friðriksson um áhrif Kelta m.a. á íslenska tungu. Þar er farið yfir uppruna orða eins og úrkoma, mugga, fönn og hret, sem upprunin eru úr keltnesku. Svo var það auðvitað veðurspáin næstu daga og veðurbreytingarnar sem urðu í síðustu viku.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þrjú tonn af sandi / Haukar (Blackwell and Vinfield, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Impossible / Hraun (Hraun og Svavar Knútur)
    Half a minute / Matt Bianco (Mark Reilly, Danny White, and Kito Poncioni)
    Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Um Vargfélagið af Þjóðskjalasafninu og Óttarr Proppé lesandi vikunnar
    Heimsókn á Þjóðskjalasafnið sem var fastur dagskrárliður í Samfélaginu eftir hádegi á Rás 1 er nú komin til okkar í Mannlega þáttinn. Annan hvern mánudag förum við í heimsókn á safnið og fáum að fræðast um áhugaverða hluti af safninu, þar er úr nógu að moða og gríðarlegt magn af áhugaverðu efni sem þau munu kynna fyrir okkur. Í dag hittum við skjalavörðinn Jón Torfa Arason sem blaðaði í gegnum vel gulnuð skjöl frá 19.öld þar sem verið er að fjalla um flugvarga og vargfélagið. Jón Torfi sagði okkur meira um það í dag.
    Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Óttarr Proppé. Óttarr hefur borið marga titla í gegnum tíðina, hann er fyrrverandi bóksali, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, fyrrverandi borgarfulltrúi, rokksöngvari, júróvisjónfari og margt fleira. En hann kom sjálfsögðu í þáttinn til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Óttarr talaði um eftirfarandi bækur
    Taumhald á skepnum e. Magnus Mills
    Dyngja e. Sigrúnu Pálsdóttur
    Pálmavínsdrykkjumaðurinn e. Amos Tutuola
    Heyrt og séð erlendis - garðyrkjumaður segir frá e. Guðmundur Jónsson
    Haruki Murakami
    Tónlist í þættinum í dag:
    Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Poor Boy / Nick Drake (Nick Drake)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Stefán Hilmarsson föstudagsgestur og ofnpokar í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var söngvarinn Stefán Hilmarsson sem verður sextugur í sumar og af því tilefni syngur hann á tónleikum í Hörpu þar sem mun syngja sín þekktustu lög enda hefur ferill hans verið langur og farsæll. Við fórum með honum yfir ferilinn, ferðumst aftur í tímann, hvar og hvernig söngurinn kom inn í hans líf, stikluðum svo á stóru í gegnum lífið fram til dagsins í dag.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í þetta sinn talaði Frú Sigurlaug við okkur um steikarpoka, aðallega í samhengi við að elda kjúkling.
    Tónlist í þættinum í dag
    Í hangsinu / Latínudeildin (Ingvi Þór Kormáksson, texti Anton Helgi Jónsson)
    The Fool / Lee Ann Womack (Charles Stefl, Eugene Ellsworth & Maria Cannon-Goodman)
    Heim / Birgir (Birgir Steinn Stefánsson og Andri Þór Jónsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • 25. Þrjár leiðir sem meðvirkir gjarnan nota
    Í dag eins og aðra fimmtudaga í vetur voru mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa í Mannlega þættinum á Rás 1. Í framhaldi af spjallinu síðasta fimmtudag þá tókum við nú upp þráðinn og Valdimar sagði okkur frá þremur leiðum sem meðvirkir einstaklingar nota oft til að bregðast við erfiðleikum í lífinu.
    14 min
  • Lausa skrúfan, Karlar í skúrum og mannlegu samskiptin með Valdimari
    Lausa Skrúfan er vitundarvakning á vegum Grófarinnar Geðræktar á Akureyri. Markmið hennar er að auka meðvitund fólks um að gæta vel að andlegri heilsu sinni, efla forvarnir í geðheilbriðismálum og minnka fordóma gagnvart andlegum veikindum. Enn fremur, að hvetja fólk til þess að leita sér aðstoðar þegar þess er þörf og veita upplýsingar um hvar stuðning er að finna í samfélaginu okkar. Inga Bryndís Árnadóttir og Sonja Rún Sigríðardóttir frá Grófinni sögðu okkur betur frá í þættinum.
    Við brugðum okkur svo í Helluhraunið í Hafnarfirðinum og kynntumst áhugaverðum félagsskap sem kallar sig Karlar í skúrum. Þetta verkefni er starfrækt á nokkrum stöðum á landinu og er opið fyrir alla karlmenn og gefur þeim stað og stund itl að hittast, spjalla og vinna að ýmsum sameiginlegum verkefnum sem þeir sjálfir ákveða. Þar er unnið í ýmis konar handverki, smíðum, útskurði, járnsmíði, leðurvinnslu og mörgu fleiru. Við fengum að skoða aðstöðuna og ræddum í kaffistofunni þar við Þórarinn Klemensson, Sigurjón Elíasson og Hallgrím Guðmundsson.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í framhaldi af spjallinu síðasta fimmtudag þá tókum við nú upp þráðinn og Valdimar sagði okkur frá þremur leiðum sem meðvirkir einstaklingar nota oft til að bregðast við erfiðleikum í lífinu.
    Tónlist í þættinum í dag
    Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti)
    Vor við flóann / GÓSS (Leon René, texti Jón Sigurðsson)
    Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason)
    Í stóru húsi / Hildur Vala (Halldór Gylfason)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Ingibjörg ljósmóðir, kjarakönnun Einingar Iðju og vísindaspjallið með Eddu
    Við kynntumst Ingibjörgu Eiríksdóttur ljósmóður, sérfræðingur í ljósmóðurfræðum og brjóstagjafaráðgjafa í þættinum í dag. Landspítalinn stóð fyrir heiðursmálþingi vegna starfsloka hennar sem sérfræðiljósmóður við spítalann og miðað við erindin sem þar voru flutt þá er óhætt að segja að hún hafi markað djúp spor í faginu og verið fyrirmynd og áhrifavaldur. Ingibjörg er brautryðjandi í umönnun og fræðslu í fjölburameðgöngum, fæðingum og brjóstagjöf á Landspítalanum. Við töluðum við Ingibjörgu á þessum tímamótum, fengum hana til að rifja aðeins upp ferilinn og þróunina í faginu í þættinum.
    Kjarakönnun sem Gallup framkvæmdi undir lok síðasta árs fyrir norðlenska stéttarfélagið Einingu Iðju sýnir að vaxandi hlutfall félagsmanna hefur þurft að neita sér um læknis- og tannlæknisþjónustu vegna kostnaðar og stór hluti þeirra sem eru með börn á leikskóla er ósáttur við breytingar á opnunartíma og/eða gjaldskrá þeirra og hafa neyðst til að breyta vinnutíma sínum. Þá hefur hlutfall þeirra sem segjast eiga erfitt með að greiða af lánum sínum ekki verið hærra síðan 2019 og yngra fólkið á sífellt erfiðara með að búa sér mannsæmandi líf. Við ræddum við Tryggva Jóhannsson varaformann Einingar Iðju í dag.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur, í dag sagði hún okkur frá rannsókn sem bendir til þess að sykurneysla fyrstu 1000 daga ævinnar (þ.m.t. á skeiði fósturþroska) getur haft neikvæð áhrif á hjarta og æðaheilsu. Edda útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag
    Dag eftir dag / Múgsefjun (Eva Hafsteinsdóttir og Hjalti Þorkelsson)
    Ævintýri / Hrekkjusvín (Leifur Hauksson)
    Just Breathe / Willie Nelson & Lukas Nelson (Eddie Vedder)
    Á rauðum sandi / Ylja (Guðný Gígja Skjaldardóttir, Bjartey Sveinsdóttir og Smári Tarfur Jósepsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Snjallforrit gegn matarsóun, virkniþing fyrir eldra fólk og þýskir kvikmyndadagar
    Við kynntum okkur aðeins sprotafyrirtækið Humble í dag, þau hafa hannað smáforrit fyrir snjallsíma þar sem boðið er upp á mat sem annars færi til spillis á lækkuðu verði sem þá bæði býður notendum upp á ódýrari vöru og hjálpar til við að minnka matarsóun. Á einu ári tókst notendum appsins að koma í veg fyrir að 31 tonn af matvælum færu til spillis. Rósa S. Markúsdóttir og Hlynur Rafn Guðmundsson voru hjá okkur í dag og sögðu okkur betur frá forritinu og verkefninu.
    Við fræddumst svo um virkniþing í þágu eldra fólks í Kópavogi sem fer fram á morgun í Kórnum. Þar er verið að stuðla að félagslegri virkni eldra fólks í bæjarfélaginu. Hlín Sigþórsdóttir, verkefnastjóri velferðasviðs og Fríða Karen Gunnarsdóttir, vekefnastjóri Virkni og vellíðan hjá Kópavogsbæ, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá virkniþinginu.
    Bíó Paradís, í samstarfi við Goethe-Institut Dänemark, German Films og Þýska sendiráðið á Íslandi, standa fyrir Þýskum kvikmyndadögum í sextánda sinn. Þeir hefjast á föstudaginn og það kennir ýmissa grasa í dagskránni sem vert var að skoða með Ásu Baldursdóttur frá Bíó Paradís.
    Tónlist í þættinum í dag
    Áður oft ég hef arkað þennan veg / Haukur Morthens og hljómsveit Sigurd Jensen (erlent lag, texti Egill Bjarnason)
    Let go of Your Plans / Lukas Nelson & The Promise of the Real (Lukas Nelson)
    Ágústín / Sigrún Jónsdóttir (Åge Gerard, texti Jón Sigurðsson)
    Io E Te (Ég og þú) / Emilíana Torrini (Leone Tinganelli)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar
    Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræddum um sánur, gusur, fargufur og alla þessa sánumenningu sem er að myndast á Íslandi.
    Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV emur til okkar annan hvern mánudag með gullmola af safni RÚV. Í tilefni þess að í gær var konudagurinn haldinn hátíðlegur dró Helga Lára fram úr safninu stuttan fréttaauka sem var fluttur þann 30.júní árið 1950, eða fyrir 76 árum, þar sem ræddust við tvær merkilegar konur; fréttakonan Margrét Indriðadóttir og Margrét Tryggvadóttir húsmóðir. Þar segir frá orlofsferð húsmæðra úr Vestur Húnavatnssýslu um Suðurland.
    Svo var Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda:
    Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason
    Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín
    Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson
    Tónlist í þættinum í dag
    Leikur að vonum / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik)
    Regndropar falla við hvert fet/ Engilbert Jensen (Burt Bacharah, texti Þorsteinn Eggertsson) 1970
    Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    53 min
  • Unnur Birna Jónsdóttir Backman föstudagsgestur og vorþrá í matarspjallinu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Unnur Birna Jónsdóttir Backman leikkona. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýrri íslenskri kvikmynd, Röskun, sem var frumsýnd í vikunni. Hún er svo gott sem alin upp í leikhúsinu, en móðir hennar var Edda Heiðrún Backman leikkona. Hún lék sitt fyrsta hlutverk í stórri erlendri sjónvarpsþáttaröð, Örnen, en gekk svo í gegnum langt tímabil þar sem hún vildi alls ekki verða leikkona. Faðir Unnar er myndilstarmaðurinn Jón Axel Björnsson sem var með vinnustofuna sína á jarðhæðinni heima hjá þeim, það var listafólk allt í kringum hana. Við fórum víða í spjallinu með Unni Birnu, ræddum leiklistina, nýju kvikmyndina og ýmislegt fleira í viðtalinu.
    Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað í matarspjallið í dag. Það var ekki laust við að það hafi verið talsverð vorþrá í því spjalli og heitt súkkulaði kom talsvert við sögu.
    Tónlist í þættinum í dag
    Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi)
    Tell Me That it Isn’t True / Bob Dylan (Bob Dylan)
    Trouble / Cat Stevens (Cat Stevens)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • 24. Örmögnun, meðvirkni og öndun
    Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag og fræddi okkur um mannlegu samskiptin eins og alla fimmtudaga í vetur. Það í dag talaði hann um örmögnun, meðvirkni og öndun.
    Fyrst flutt í Mannlega þættinum 19.feb. '26
    13 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners