Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Davíð, Jónmundur og Unnsteinn föstudagsgestir og matarspjall á frönskum nótum
    Föstudagsgestir Mannlega þáttarins voru þrír í þetta sinn, Davíð Þór Katrínarson, Jónmundur Grétarsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson, en þeir voru að frumsýna glænýtt leikrit á Stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi, Gæðablóð, sem þeir sömdu ásamt leikstjóra sýningarinnar Þóru Karítas Árnadóttur. Þeir eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í sýningunni deila þeir sögum úr lífi sinni og reynslu sinni af því að alast upp sem litaðir Íslendingar. Það var standandi lófatak og fagnaðarlæti í lok sýningarinnar, enda er hún bráðskemmtileg, fyndin og snertir við áhorfendum. Við áttum skemmtilegt spjall við þá þremenninga í þættinum og eltum svo þræðina þangað sem þeir leiddu okkur.
    Svo kom Sigurlaug Margrét í matarspjallið, eins og alla föstudaga, við héldum aðeins áfram með grjónaumræðuna, við fengum viðbrögð frá hlustendum sem frú Sigurlaug fór aðeins yfir. Og svo fletti hún í franskri matreiðslubók og talaði um eggjabrauð, eins og ýmsir kalla það og í lokin fór Guðrún yfir það hvernig maður þeytir smjör og bakar einfalt brauð.
    Tónlist í þættinum:
    Lífsgleði / Hljómar (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Glow / Retro Stefson (Unnsteinn Manuel Stefánsson)
    Skin / Retro Stefson (Retro Stefson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • 27. Að loka á foreldri
    Valdimar Þór Svavarsson var með mannlegu samskiptiní Mannlega þættinum í dag. Í þetta sinn fjallaði hann um samskipti innan fjölskyldna og það þegar fólk tekur þá ákvörðun að loka á foreldra sína. Hann fór yfir þessi flóknu mál og benti á hversu erfitt það getur verið að dæma annað fólk þegar kemur að til dæmis svona ákvarðana.
    14 min
  • Hvað er málið með Eddu? Kvenheilsa og mannlegu samskiptin
    Hvað er málið með Eddu? Þetta er nafnið á fyrirlestri Gísla Sigurðssonar rannsóknarprófessors við Árnastofnun sem hann mun flytja á laugardaginn í fyrirlestrasal Eddu. Undirtitillinn á fyrirlestrinum er Bók fyrir innvígða, ekki almenning, en Gísli fjallar um það hvernig heimsmyndin og hvers kyns hugmyndir og þekking var miðlað í lausu máli og bundnu á þrettándu og fjórtándu öld, án þess að vera ritaðar, en þær sögur lögðu grunninn að því sem við köllum eddur og fornsögur. Gísli kom í þáttinn og sagði okkur betur frá þessu.
    Líf styrktarfélag stóð fyrir málþingi undir yfirskriftinni Kvenheilsa fyrir skemmstu. Þar voru sagðar til dæmis persónuleguar sögur af kulnun, rætt um grindarbotninn, mikilvægi hreyfingar og mikilvægi hvíldar og ýmislegt fleira. Bára Mjöll Þórðardóttir, varaformaður Lífs kom til okkar í dag og fræddi okkur um kvenheilsu, en allir fyrirlesarar og aðrir sem að málþinginu komu gáfu vinnu sína og allur ágóði rennur til kaupa á nýju Clinitek status þvagstix tæki sem kvennadeildinni bráðvantar.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag fjallaði hann um samskipti innan fjölskyldna og það þegar fólk tekur þá ákvörðun að loka á foreldra sína. Hann fór yfir þessi flóknu mál og benti á hversu erfitt það getur verið að dæma annað fólk þegar kemur að til dæmis svona ákvarðana.
    Tónlist í þættinum:
    Lapis Lazuli / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson og Guðmundur Óskar Guðmundsson)
    Í rauðum loga / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
    Stjörnur stara / Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Jón Ásgeirsson)
    Brúnaljósin brúnu / Páll Óskar Hjálmtýsson (Jenni Jóns)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Starfsmótun, Öryggi í umferðinni og vísindaspjall um peptíð
    Án vafa sækjast flestir eftir vellíðan í starfi, en hvað er starfsmótun? Í örstuttu máli snýst starfsmótun um það hvernig hægt er að móta og aðlaga störf fólks að styrkleikum og áhugasviðum þeirra til að auka vellíðan þeirra í starfi. Sigrún Þorgeirsdóttir ráðgjafi gerði lokaverkefni um einmitt vellíðan í starfi og starfsmótun í meistaranámi sínu hjá HÍ og hún kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá starfsmótun.
    Öryggi á okkar vegum er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram á morgun í Hörpu á vegum VÍS þar sem þemað verður umferðaröryggi í víðu samhengi. Við fengum þá Guðmund Val Guðmundsson, framkvæmdastjóra þróunarsviðs hjá Vegagerðinni og Reyni Bjarna Egilsson, framkvæmdastjóra trygginga og tjóna hjá VÍS, til að koma og segja okkur frekar frá því sem þar verður rætt. En Guðmundur verður þar með erindi sem kallast Mat á öryggi þjóðvegakerfisins og erindi Reynis Bjarna ber titilinn Raunveruleikinn - Umferðaslys hjá VÍS.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í þetta sinn talaði hún um peptíð, sem hafa verið talsvert í fréttum undanfarið, einskonar tískubylgju þar sem áhrifavaldar hafa mælt með og notast við peptíð á einhvern hátt til að líta betur út. En það eru ekki allir sem vita hvað peptíð er og því útskýrði Edda það fyrir okkur í vísindaspjalli dagsins.
    Tónlist í þættinum:
    Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum)
    Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir)
    Spánskur dagger / Vilberg Pálsson (Vilberg Andri Pálsson)
    Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • ACT nálgunin, heilbrigð vinnustaðamenning og Thelma Björk á Heilsuvaktinni
    Við fræddumst í dag um það sem kallast ACT-nálgunin, en samkvæmt Rúnari Helga Andrasyni, er það sálfræðileg nálgun sem snýst í grunninn um það að hætta tilgangslausri baráttu við erfiðar hugsanir og tilfinningar. En Rúnar, sem er sérfræðingur í klínískri sálfræði og er yfirsálfræðingur á Reykjalundi hefur nýtt sér þessa aðferð í starfi sínu bæði á Reykjalundi og hjá VIRK. Rúnar kom í þáttinn og sagði okkur betur frá ACT í dag.
    Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu? Við heyrðum í þættinum af málþingi sem fer fram á fimmtudaginn þar sem fjallað verður einmitt um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, sem hefur leitt verkefnið og stýrt framkvæmd þess var hjá okkur í Efstaleitinu og fyrir norðan í stúdíó RÚVAK var Hafdís Ólafsdóttir, leikskólastýra á Klöppum, Akureyri. En Klappir eru einn af fimm þátttökuskólum verkefnisins og hún mun lýsti reynslu sinni af verkefninu.
    Og svo var það Heilsuvakt dagsins með Helgu Arnardóttur. Það er sjaldan rætt við fólk sem glímir við langvinnt krabbamein og lifir þokkalegu lífi með sjúkdómnum. Thelma Björk Jónsdóttir fatahönnuður, listgreina- og jógakennari greindist með brjóstakrabbamein fyrir tveimur árum og í ljós kom að meinið var einnig komið í beinin að litlum hluta. Thelma fór ekki í hefðbundna lyfjameðferð eins og flestir gera heldur tekur hún líftæknilyf í hverjum mánuði sem halda sjúkdómnum niðri. Hún var andlit bleiku slaufunnar í fyrra með sína mögnuðu sögu og þar fyrir utan hannaði hún slaufuna sjálfa. Herferðin hét Listin að lifa með krabbameini og hlaut tilnefningu til lúðursins í flokknum almannaheillauglýsingar. Helga hitti hana á dögunum og ræddi við Thelmu um hvað hún gerir til að vera jákvæð og láta ekki óttann stjórna sér.
    Tónlist í þættinum:
    Ó, ljúfa líf / Flosi Ólafsson (Pops & Doddoge, texti Flosi Ólafsson)
    Tasko tostada / Hljómar (Rúnar Júlíusson)
    Hoppsa bomm (Á skíðum skemmti ég mér ) / Helena Eyjólfsdóttir og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir og Birgir Marinósson)
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Sprengjan sem sprakk, gullmoli frá 1968 um brautryðjanda og Benedikt lesandi vikunnar
    Guðrún Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarkona hér á Rás kíkti til okkar í dag og sagði okkur frá þáttum sem hún hefur verið að gera, Sprengjan sem sprakk, sem segir áhugaverðar sögu og frásagnir tengdar hernámi Breta á fimmta áratug síðustu aldar, atburðir sem aldrei hafa liðið úr huga þeirra sem þá upplifðu. Hún segir okkur frá símtali sem hún fékk frá hlustanda, Erni Smith, 82gja ára og er búsettur í Hveragerði. Hann hafði mjög merkilega sögu að segja um sprengju sem hann og vinir hans fundu á sjötta áratugnum fyrir austan fjall. Við fengum að heyra brot úr viðtalinu við hann og Guðrún kom með brot úr sprengjunni sem Örn færði henni. Guðrún sagði okkur frekar frá þættinum og nýjum þáttum sem hún hefur einnig verið að vinna, enn um menntamálin, Kerfið, sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun, þriðjudaginn 10.mars.
    Svo var það enn einn gullmolinn af safni RÚV sem Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, deilir með okkur hér í þættinum annan hvern mánudag. Í þetta sinn var það viðtal Stefáns Jónssonar, frá 1968, við Kristleif Jónsson sem var fæddur 1899 og var brautryðjandi í vegagerð á Vestfjörðum. Helga sagði okkur betur frá viðtalinu og við heyrðum það í þættinum.
    Svo var það auðvitað lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur, sem býr á Indlandi, en er á landinu til að fylgja eftir bók, Gáttir, sem kemur út á næstunni og því gripum við hann glóðvolgan og fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Benedikt talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Mother Mary Comes to Me e. Arundhati Roy
    Ghost Eye e. Amitav Ghosh
    Gabriel García Marquez: Hundrað ára einsemd
    Marcel Proust: Í leit að glötuðum tíma
    Rainer Maria Rilke: Minnisblöð Maltes Laurids Brigge
    Tónlist í þættinum:
    Við viljum lifa / Ríó tríó (Alberto, texti Helgi Pétursson)
    Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson ( Meisel, texti Theódór Einarsson)
    Moist / PPCX
    UMSJÓN: GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Ögmundur Jónasson föstudagsgestur og matarspjall um hrísgrjón
    Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er fyrrverandi sjónvarps- og útvarpsmaður, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og fyrrverandi formaður BSRB. Ögmundur Jónasson kom til okkar í dag og við spjölluðum við hann um lífið og tilveruna, forvitnuðumst um hvar hans rætur liggja, af hvaða fólki hann er komin en hans ættir skiptast í tvær fylkingar í stjórnmálaskoðunum, hægri í móðurætt og vinstri í föðurætt. Ögmundur sagði okkur svo meðal annars frá námsárunum í Skotlandi og mörgu fleiru og svo er hann síður en svo sestur í helgan stein, eins og við heyrðum í þættinum í dag.
    Sigurlaug Margrét kom svo auðvitað í matarspjallið í dag og við skoðuðum með henni ýmsar hliðar á hrísgrjónum, t.d. grjónagrautinn, mismunandi tegundir af grjónum, hvernig hægt er að gera þau spennandi og svo aðeins um steikt hrísgrjón.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson
    Walk on the Wildside / Lou Reed
    Goldberg tilbrigði / Úrsúla Ingólfsdóttir Fassbind (Johann Sebastian Bach)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • 26. Nánar um þrjár leiðir sem meðvirkni getur orsakað
    Valdimar Þór Svavarssson ráðgjafi kom, eins og alla fimmtudaga í vetur í Mannlega þáttinn í dag og fræddi okkur um mannleg samskipti. Hann náði ekki að klára í síðustu viku þegar hann var að tala um þær þrjár leiðir sem meðvirkni getur leitt fólk inn á. Við munum því aðeins rifja þær upp og hann fer betur yfir þær og hvað er hægt að gera til þess að lenda ekki í öngstræti.
    14 min
  • Golfsýning í Laugardalshöll, 10CC og Placido Domingo og þrennt sem meðvirkni getur leitt til
    Á þessum árstíma eru kylfingar um allt land að verða alveg viðþolslausir að bíða eftir vorinu og að geta farið út á golfvelli landsins að elta litlu hvítu boltana. Reyndar nýta sífellt fleiri kylfingar innanhús aðstæður sem spretta upp út um allt land eins og gorkúlur og um helgina geta kylfingar fengið forsmekkinn af golfsumrinu í Laugardalshöllinni, en þar fer fram stórsýning á því nýjasta sem í boði er sem tengist golfi og útiveru, Golf Expo. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, og Ómar Már Jónsson, sem stendur að sýningunni um helgina, komu í þáttinn í dag.
    Hljómsveitin 10CC er á leið til Íslands þar sem Graham Gouldman og tónleikaband hans stíga á svið í Eldborgarsal Hörpu. Sveitin hefur áratugum saman skipað sér sess meðal merkustu nafna poppsins og tónlist hennar heldur áfram að höfða til nýrra kynslóða. Graham stofnandi, bassaleikari, gítarleikari og söngvari hefur stýrt 10CC frá upphafi en núverandi skipan byggir á traustum grunni úr sögu sveitarinnar. Guðbjartur Finnbjörnsson tónleikahaldari kom til okkar í dag.
    Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Hann náði ekki að klára í síðustu viku þegar hann var að tala um þær þrjár leiðir sem meðvirkni getur leitt fólk inn á. Við rifjuðum þær upp og hann fór dýpra ofan í þær og hvað er hægt að gera til þess að lenda ekki í öngstræti.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lítið ljóð / Rebekka Blöndal (Rebekka Blöndal og Ásgeir Ásgeirsson, texti Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson)
    Lítið lausnarorð / Stefán Hilmarsson (Magnús Þór Sigmundsson, texti Stefán Hilmarsson og Friðrik Erlingsson)
    The things we do for love / 10cc (Eric Stewart & Graham Gouldman)
    Get Out Your Lazy Bed / Matt Bianco (Danny White & Mark Reilly)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu
    Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr að heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag.
    Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð að halda, einu sinni í viku, til að halda fæðuvegi opnum. Þær aðgerðir voru framkvæmdar á sjúkrahúsinu á Akureyri en fyrir skemmstu hefur hann þurft að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur. Hann skrifaði nýlega grein í fjölmiðla þar sem hann setur spurningamerki við þessa löngu leið í aðgerðina og reiknaði út að árið 2024 færi fólk af landsbyggðinni 25-30 þúsund ferðir til höfuðborgarinnar til að sækja læknisþjónustu á Landspítalann og kostnaðurinn við það væri rúmur milljarður. Þorvaldur spyr hvort það borgi sig virkilega að Sjúkratryggingar, þ.a.l. ríkið og skattgreiðendur, greiði fyrir allar þessar ferðir til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á landsbyggðinni? Við ræddum við Þorvald Lúðvík í dag.
    Eva Olgudóttir kom í þáttinn með vísindaspjall sitt eins og undanfarna miðvikudaga. Í þetta sinn sagði hún okkur frá því hvaða áhrif krabbamein í æsku getur haft á fólk seinna meir í lífinu.
    Tónlist í þættinum
    Þú trumpar ekki ástina / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason)
    Jag har det så travlt / Tina Dickow (Tina Dickow)
    Dont Blame It on That Girl / Matt Bianco (Mark Reilly & Mark Fisher)
    Harvest / Rufus Wainwright, Chris Stills og Andrew Bird (Neil Young)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners