Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • 32. Valdimar fer yfir efni vetrarins
    Valdimar Þór Svavarsson kom í Mannlega þáttinn í dag í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur.
    19 min
  • Ónæmisgallar, upprifjun í mannlegum samskiptum og býflugur í vísindaspjallinu
    Þessa vikuna er vitunarvakning hjá Lind, félagi fólks með ónæmisgalla. En markmið félagsins er að stuðla að öflugum forvörnum, greiningu og meðferð meðfæddra ónæmisgalla. Hrefna Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á ónæmisdeild Landspítalans kom í hljóðver og Guðrún Jóna Hreggviðsdóttir var á línunni frá Ítalíu, en sonur hennar fæddist með ónæmisgalla. Hún deildi með okkur þeirra sögu og Hrefna fræddi okkur um ónæmisgalla, vitundarvakningavikuna og félagið Lind.
    Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar, í þetta sinn á miðvikudegi, því mannlegu samskiptin eru svo áhugaverð að tala um við hann að það kom ekki til greina að missa hann út þessa vikuna þó að það sé ekki þáttur á morgun, Sumardaginn fyrsta. Ekki nóg með það heldur er þetta næst síðasta skipti sem hann kemur til okkar í bili, því stiklaði hann á stóru í dag og rifjaði upp það sem hann hefur verið að fræða okkur um mannleg samskipti í vetur.
    Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá ákveðnu afbrigði af býflugum sem eru þrautseigari gegn sníkjudýrum og sýklum og gætu því verið með lausnina til að bjarga býflugnastofninum sem hefur verið í hnignun.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Sveitin mín / Haukur Morthens (Jóhann Helgason)
    Here Comes the Sun / The Beatles (George Harrison)
    Okkar ástarvor / Björgvin Halldórsson og Sigurjón Brink (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Græn samskipti, Græna gangan og Auður Bjarnadóttir á heilsuvaktinni
    Græn, gul og rauð samskipti og samspil við taugakerfið er nokkuð sem við skoðuðum í þættinum í dag. Hvernig streita hefur áhrif á öll samskipti og hvernig við skynjum okkur sjálf og aðra ólíkt eftir því hvort við erum í jafnvægi eða í streitu. Gyða Dröfn Tryggvadóttir kom í þáttinn, en hún er með meistaragráðu í stjórnun heilbrigðisþjónustu og lýðheilsu frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig lokið námi í uppeldis- og áfallafræðumn Piu Mellody.
    Talandi um græn samskipti, þá töluðum við um Grænu gönguna sem fer fram á fimmtudaginn á Sumardaginn fyrsta. Og ekki nóg með það, heldur verður hátíðarsamkoma í lok göngunna í Hljómskálagarðinum, svo er það svokallaður Grænn pallur, þar sem frambjóðendur í sveitastjórnarkosningunum framundan munu ræða grænu málin og svo er það hápunkturinn, tónlistarveislan Hálendishátíð í Iðnó þar sem þekkt tónlistarfólk leggur náttúrunni lið með sinni tónlist. Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar og Snæbjörn Guðmundsson jarðfræðingur og formaður Náttúrugriða komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá þessu.
    Að lokum var það Heilsuvaktin. Að þessu sinni talaði Helga Arnardóttir við Auði Bjarnadóttur dansara, leikstjóra og jógakennara sem hefur kennt jóga í tæp 30 ár og verið ein af frumkvöðlum á sviði meðgöngujóga sem hefur verið afar vinsælt. Auður hefur líka kennt hundruðum kvenna að verða jógakennarar undanfarna tvo áratugi. Hún segir þær ekkert endilega allar verða kennarar en námið nýtist þeim í að ná tökum á streitu, jafnvel kulnun og hreinlega jafnvægi í lífinu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Í grænum mó / Ellý Vilhjálms og Hljómsveit Svavars Gests (Sigfús Halldórsson, texti Gestur Guðfinnsson)
    Bíldudals grænar baunir / Jolli & Kóla (Valgeir Guðjónsson)
    Græna byltingin / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Karlakór Reykjavíkur 100 ára, af heimsókn konungs 1907 og Henning Emil lesandi vikunnar
    Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu.
    Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því að Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti að lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess að geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni.
    Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Bread of Angels e. Patti Smith
    Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson
    Missing Person e. Patrick Modiano
    Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson
    Dísa Ljósár
    Íslandsklukkan
    Gísla saga Súrssonar
    Gyrðir Elíasson
    Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl
    Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson)
    Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson)
    Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Vigdís Hafliðadóttir föstudagsgestur og matarspjall um salat og sólskin
    Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og nú síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og Vigdís er meðlimur í hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það var um nóg að tala við Vigdísi í dag, en við fórum auðvitað líka með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar eins og við gerum yfirleitt með föstudagsgestinum.
    Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag talaði hún um salat og sólskin. Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og sólin hækkar á lofti sem kallaði á salatspjallið í dag, þar sem komu fyrir hrásalöt, majonessalöt og fersk salöt eins og grískt salat.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg)
    Hvergiland / Leikhópurinn Ekki hugmynd (Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason)
    Visa från Utanmyra / Jan Johanson (Jan Johanson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    55 min
  • Þriðji í höfnunarótta
    Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fór dýpra í þær í dag.
    14 min
  • Minningarsteinninn Eilífð, enn um höfnunarótta og Hrólfur Sæmundsson
    Við fræddumst um svokallaðan minningarstein í þættinum, en fjórir ungir menn tóku þátt í frumkvöðlakeppni þar sem þeirra vara var minningarsteinninn Eilífð. Á hverjum og einum steini er QR kóði sem leiðir inn á vefsíðu þar hægt verður að sjá myndir og myndbönd af þeim sem hefur fallið frá. Baldur Orrason Gröndal og Jóel Þeyr Kárason komu í þáttinn og útskýrðu betur fyrir okkur hvernig þetta virkar.
    Valdimar Þór Svavarsson kemur til okkar á fimmtudögum og fræðir okkur um mannleg samskipti. Síðustu tvo fimmtudaga var hann að tala um höfnunaróttann sem herjar á marga og getur verið snúið að glíma við. Hann hélt áfram á þeim nótum og fýr dýpra í þær í dag.
    Það eru spennandi verkefni framundan hjá Hrólfi Sæmundssyni óperusöngvara. Hann er að fara að syngja sjálfan Óðinn, í fyrstu heildaruppfærslu Eistlendinga á Niflungahringnum. Æfingar byrja í maí en fáir Íslendingar hafa sungið það hlutverk en það þykir eitt mest krefjandi hlutverk óperubókmenntanna.Við heyrðum í Hrólfi í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þó líði ár og öld / Björgvin Halldórsson (erlend lag, texti Hrafn Gunnlaugsson)
    Mamma / Björgvin Halldórsson (Þórunn Franz, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    Ég fann þig/Björgvin Halldórsson (Amerískt þjóðlag, texti Jón Sigurðsson)
    Selja litla / Björgvin Halldórsson (Jón Jónsson frá Hvanná, texti Guðmundur Ingi Kristjánsson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu
    Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mun setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið og hann var hjá okkur í dag ásamt Jóni Karli Ólafssyni, fyrrum umdæmisstjóra Rótarý Ísland, en Rótarý hreyfingin skipuleggur daginn með aðstoð bakhjarla.
    Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra en þetta eru 70 ára afmælistónleikar hans og afmælisdagurinn er í dag. Á tónleikunum verða einsöngvarar og margir kórar sem starfa á Suðurlandi en Björgvin sjálfur er Selfyssingur í húð og hár og þar hófst tónlistarferill hans. Við spjölluðum við Björgvin í þættinum í dag.
    Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. En í dag fræddi hún okkur um muninn á körlum og konum þegar kemur að heilsufarskvillum tengdum offitu.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)
    Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður og karlakór Reykjvíkur(Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum)
    Það varst þú / Óskar Pétursson (Björgvin Þ Valdimarsson)
    Smooth Sailing / Horace Henderson and his Orchestra (Thompson)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min
  • Endurunninn textíll og veður- og farfuglaspjall
    Nokkrar konur eru að koma á fót fyrstu textílendurvinnslustöð á Íslandi þar sem þær tæta niður textílúrgang og búa til nýjan textíl úr honum. Á HönnunarMars munu þær sýna fyrstu hljóðdempandi veggpanela sem eru unnir úr textílúrgangi og framleiddir hér á landi. Sigríður Tryggvadóttir textíllistakona kom í þáttinn og með henni kom Ólöf Sigríður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Flöff, sem er fyrirtækið sem þær stofnuðu í kringum þetta verkefni.
    Svo slógum við tvær flugur í einu höggi, því Einar Sveinbjörnsson kom til okkar í veðurspjallið en með honum kom Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur. Þannig að auk þess að spjalla um veðrið þá fengum við Arnór Þórí til að segja okkur frá áhrifum veðurs á flug farfugla og til dæmis hæfileiki þeirra til að finna sér rétta veðrið til að fljúga til landsins á sem stystum tíma og eyða í leiðinni sem minnstri orku. Við heyrðum af ferðum fugla sem til dæmis nýttu sér meðvind og slógu flugmet á leiðinni hingað og svo af öðrum fuglum sem villtust á leiðinni. Það var um nóg að tala við þá Einar og Arnór Þóri í þættinum, enda eru þetta mikil uppáhalds umræðuefni hjá okkur, veðrið og fuglar. Hægt er að fylgjast með flugi gæsanna á eftirfarandi vefslóð: www.verkis.is/gaesavefsja
    Tónlist í þættinum í dag:
    Akstur á undarlegum vegi / Sléttuúlfarnir (Gunnar Þórðarson, texti Jónas Friðrik)
    Farfuglarnir / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Helgason, texti Þórarinn Eldjárn)
    Christopher Cross / Ride Like the Wind (Christopher Cross)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    54 min
  • Að kunna að hlaupa hægt, hlustunarvenjur frá 1947 og Júlíus lesandi vikunnar
    Arnar Péturs er þrautreyndur landsliðshlaupari og hlaupaþjálfari. Hann hefur 73 sinnum orðið Íslandsmeistari og sigrað Laugaveginn tvisvar. Hann á einnig Íslandsmetið í 100 km hlaupi. Arnar skrifaði Hlaupabókina sem inniheldur þekkingu sem hann hefur aflað sér með því að æfa með bestu hlaupurum og þjálfurum í heiminum. Arnar kom í þáttinn í dag, en hann segir að allt sé hægt ef maður kann að fara nógu hægt.
    Svo kom Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, til okkar í dag með gullmola úr safni útvarpsins. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra upptöku frá árinu 1947 úr tónlistarþætti í umsjón Jóns Þórarinssonar, þar sem hlustendum er kennd listin að hlusta á útvarp, þar er talað um góðar og slæmar hlustunarvenjur í ýmislegt fleira til að bæta hlustunarupplifun. Mjög áhugaverður bútur sem við heyrðum og Helga Lára sagði okkur betur frá í þættinum.
    Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var Júlíus Ó. Einarsson, en hann var að senda frá sér nýja bók sem heitir Í framlínu - lögreglumenn segja frá. Hann tók viðtöl við tugi lögreglumanna, sem segja frá reynslu sinni, upplifun af starfinu í bókinni. Við fengum hann til að segja okkur frá þessari bók, en svo auðvitað aðallega frá þeim bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og þeim höfundum og bókum sem hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Júlíus talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Hollendingurinn fljúgandi e. Frederick Marryat
    Konungs skuggsjá, höf. ókunnur
    A short History of the World according to Sheep e. Sally Coulthard
    Prisoners of Geography e. Tim Marshall
    The Story of Russia e. Orlando Figes
    Enid Blyton
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vertu ekki að kvarta / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Kormákur Bragason)
    Ég skal syngja fyrir þig / Björgvin Halldórsson (G. Sklerov & Phyllis Molinary, texti Jónas Friðrik Guðnason)
    Words / Bee Gees (Maurice, Robin og Barry Gibb)
    UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
    50 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

19 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners