Myrka Ísland

Myrka Ísland

By Sigrún ElíasdóttirComedyScienceSocial SciencesHistory
Download on the App Store

Myrka Ísland episodes

  • Hvítárvallabaróninn

     Rétt fyrir aldamótin1900 kom til Íslands undarlegur förumaður sem kallaði sig barón. Hann skapaði ótal kjaftasögur og kenningar og hleypti ferskum vindum í landann. Við reynum að komast að því hvort maðurinn var snillingur eða bara tæpur á geði.

    1 hr 8 min
  • Morðin á Sjöundá

    Loksins kemur að þessum þætti! Ekki aðeins síðasta þætti sjöttu séríu og síðasta þætti ársins, heldur hunskaðist Sigrún loksins til að taka þetta mál fyrir sem hefur lengi staðið til og verið óskað eftir. Tvo dauðföll verða í Rauðasandshreppi á Vestfjörðum og sveitin logar í kjaftasögum. Við vitnum hægri vinstri í frásögn Gunnars Gunnarssonar í bókinni Svartfugl, sem fer ágætlega eftir heimildum og er  alveg eins góð útgáfa af atburðunum og hver önnur.

    1 hr 24 min
  • Jón Indíafari II

    Við höldum aftur til Danborg á Sri Lanka þar sem við skildum við Jón Ólafsson í síðasta þætti. Þar dvaldi hann í eitt ár og lenti í hinum ýmsu skemmtunum, uppákomum og hrakförum. Hann var þarna orðinn viðförlasti Íslendingur allra tíma og við fylgjum honum heim á leið aftur þar sem hann hafði safnað saman upplýsingum og sögum sem síðar varð að hinni 400 blaðsíðna ferðabók sem hér hefur verið vitnað í.

    1 hr 18 min
  • Jón Indíafari I

    Anna er enn að reyna að yfirtaka umræðurnar! Nú bættir hún við dagskrárliðnum "Anna les úr þjóðskránni" sem á eflaust eftir að slá í gegn í Austur Indíum, en þangað er ferðinni einmitt heitið í þætti dagsins! Hver man ekki eftir viðar og tekk búðinni Jóni Indíafara? Nefnd eftir Jóni Ólafssyni sem lengi vel var víðförlasti Íslendingurinn. Hann skrifaði 400 blaðsíðna reisubók sem ég þvældi mér í gegnum og efnið er svo mikið að við komumst ekki yfir það í einum þætti.

    1 hr 13 min
  • Bróðurmorð

    Ósvífna Anna reynir að stela þætti dagsins með tali um Disneymyndir, áramótaskaup og Eyjólf bróður sinn! Þegar ég loksins kemst að, segi ég ykkur frá Eyjólfi sem var myrtur í Reykjavík, árið 1913. Ekki bróðir Önnu samt, hann var hvorki fæddur, né myrtur á þessum tíma og er að ég held enn á lífi. Málið vakti mikla athygli á sínum tíma enda íbúar smábæjarins Reykjavíkur ekki vanir morðmálum. Æsifréttasnepillinn Morgunblaðið kemur líka sterkt inn sem sögupersóna í þessu máli.

    1 hr
  • Galdra Loftur

    Þótt við hættum að brenna grunað galdrafólk á báli, var ekki þar með sagt að við hættum að segja af þeim sögur eða finnast galdrar spennandi. Síður en svo! Á 18. öld náðu sögusagnir af galdrafólki hámarki og þar af er sennilega frægastur Loftur nokkur, kenndur við galdra. Við heyrum söguna af honum og hvort einhver fótur hafi verið fyrir henni yfirleitt.

    53 min
  • Kambsránið

    Við höldum áfram að segja sögur af fólki í Árnessýslu í upphafi 19. aldar. Þá riðu ekki kannski hetjur um héruð, skulum frekar kalla þá hraustmenni. Þar ber hæst heljarmennið Sigurð Gottsvinsson sem hefði vissulega getað nýtt hina miklu krafta sína til betri hluta en hann gerði. Ránið á Kambi var á sínum tíma stærsta sakamál sem komið hafði upp á Íslandi og í það flæktist margt fólk, margir Jónar og Þuríður formaður!

    1 hr 10 min
  • Þuríður formaður

    Stígið um borð í sjálfstæðan fyrrihluta þáttar um mannlífið í Árnessýslu í byrjun 19. aldar. Hér stýrir Þuríður Einarsdóttir bátnum okkar og annarra á Höggstokkseyrarbakka, þegar það þótti ekkert tiltökumál þótt konur væru sjómenn. Þuríður var merkiskona sem kemur einnig við sögu í næsta þætti og því mikilvægt að kynnast henni áður en lengra er haldið.

    55 min
  • Eyjafjallajökuls og Grímsvatnagos

    Við förum út á hálan jarðfræðiísinn hjá Eyjafjallajökli og Grímsvötnum í dag. Hamfarir eru ekki bara lengst í sögulegri fortíð okkar heldur eigum við fjöldan allan af virkum eldstöðvum sem minna sífellt á sig og halda okkur á tánum. Sigrún er óvenju málhölt og treg í þessum þætti enda er hún ekki með nein próf á tölur og stærðir nema um sé að ræða prjónaskap.

    1 hr 14 min
  • Tilberi og margýgja

    Við eigum svo mörg skemmtileg og falleg orð í íslensku, eins og þessi tvö; tilberi og margýgja! Því miður vill svo til að þau lýsa mjög ógeðfelldum fyrirbærum úr íslenskum þjóðsögum, sem er einmitt það sem gerir þau stórkosleg.  Eða allavega í okkar augum.

    53 min

About Myrka Ísland

From the publisher's feed

Fyrir alla þá sem hafa gaman af hörmungum Íslandssögunnar, hvort sem það eru stórslys, morðmál, draugasögur, galdrar eða þjóðtrú.

More shows like Myrka Ísland

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Frjálsar hendur by RÚV

Frjálsar hendur

65 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Draugar fortíðar by Hljóðkirkjan

Draugar fortíðar

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

34 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

18 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

True crime Ísland by True Crime Ísland

True crime Ísland

2 Listeners